Jæks! Þá er maður búinn að brjóta fyrsta hollenska hjartað... Jömundur minn hvað drengurinn var samt fallegur, en jah, algjört óþarfi að segjast vera ástfanginn af mér eftir 20 mínútur... Algjört turn-off verð ég nú að segja!
Jájá Anna, við skulum vera svolítið opinská á þessu bloggi hérna! *Hósthóst*. Að sjálfsögðu koma mín "ástarmál" ykkur nákvæmlega ekkert við, en af því að maður er nú í útlöndum er nú allt í lagi að segja frá svona skondnum atburðum!
En já, ég er sem sagt búin að finna POTTÞÉTTA aðferð til þess að vekja heilmikla athygli og fiska nokkur símanúmer í leiðinni! Lesið áfram...
Já, í dag var ég sko í algjöru uppáhaldi hjá strákunum mínum tveimur (tveir fimm ára guttar). Fjörið byrjaði um þrjú-leytið. Fyrst gúffuðum við í okkur gommu af keyptum kanelsnúðum. Síðan bjó ég til skutlur og lék kónginn í æsispennandi og hávaðasömum stríðsleik þar sem við svoleiðis stráfelldum óvinina hægri vinstri. Því næst kappklæddi ég barnaskarann í útiföt og við fórum út í almenningsgarðinn hér fyrir utan, sú yngsta (einsoghálfsárs) var að sjálfsögðu í kerrunni sinni. Núnú, þarna gengum við í hægðum okkar eins og gengur og gerist, og allt í einu datt mér í hug að vera alveg ferlega fyndin og hlaupa eins hratt og ég gæti niður smá brekku sem er þarna. Já, og ég öskraði örlítið í leiðinni, svona til að vera ennþá fyndnari. Þetta vakti þvílíka lukku, að ég ákvað að haga mér eins og algjör asni, svona einu sinni, til að gleðja blessuð börnin aðeins meira. Strákarnir fengu að keyra kerruna (þetta er svona kerruvagn með dekkjum sem fara út um allt og ekki beint auðvelt fyrir fimm ára börn að stýra slíku) og klessti kerran oftar en ekki á runna eða var næstum lent út í vatn... Og þarna hlupum við fót við fót, öskrandi og gargandi og gerðum allskonar Taekwondokúnstir, strákarnir keyrandi kerruna og ég tók fimleg R&B dansspor á milli valhoppa. Fljótt fór okkur að hitna í hamsi, og enduðum við bara á bolunum að stikna úr hita. En já. Garðurinn var fullur af fólki, og þarna hlupum við argandi og gargandi og baðandi út öllum útlimum, og gangandi vegfarendum fannst það alveg ægilega fyndið. Og svo stoppuðu þrír strákar okkur, hojhoj!
Já, eftir að hafa spjallað við þá um stund spurði einn þeirra, örlítið myndarlegur svona, mig um símanúmerið mitt. Obbobb! Og ég kann ekki símanúmerið mitt og gemsinn minn var fjarri góðu gamni og enginn penni var á staðnum, svo þá voru góð ráð dýr! Þá tóku strákarnir upp á því að spyrja alla sem gengu framhjá hvort þeir væri með penna, og einn hjólaði meira að segja alveg lengst í burtu til að spyrja eitthvert fólk sem sat í makindum sínum á bekk hvort það væri nokkuð með penna á sér... En nei, nútímafólk gengur ekki með penna í vasanum, svo gæinn reddaði þessu með því að skrifa með steini á pappírsmiða. Þegar heim var komið sendi ég honum svo sms með númerinu mínu.
(Innskot: Bara til að segja ykkur hvursu frábærlega skemmtileg barnapía ég var í dag, þá héldum við "partíinu" (strákunum fannst þetta sko algjört partí!) áfram þegar heim var komið og skelltum okkur í SingStar þar sem ég öskraði mig hása þegar ég söng "Skeiter boj" af mikilli innlifun, sjö sinnum í röð).
En já, svo hringdi gæinn og ég fór og hitti hann. Fínasti gaur maður! En eins og áður segir, þá er það örlítið too much að fá ástarjátninguna eftir 20 mínútur, auk þess sem ég fékk að heyra svona 23 sinnum að ég væri "so beautiful", á 10 mínútum!!! Ég sagði kauða að þetta gengi nú ekki lengur, ef ég fengi að heyra það einu sinni enn að ég væri bjútífúl (sem ég nú reyndar er, haha, en öllu má nú ofgera!), þá myndi ég grínlaust brjóta á honum nefið!!! Bjó svo til heillanga sögu um að ég ætti nú kærasta heima og svona, sem sæti og biði eftir mér svo ég gæti nú ekki farið að dandalast með einhverjum hollenskum... Og svo sagðist ég þurfa að gera söguverkefni (sem var nú reyndar alveg satt) og þyrfti að drífa mig heim... Æi greyið. Það fór næstum því með hann, þvílík sorg í gangi, en hann fékk þó leyfi til þess að hringja í mig á laugardagskvöldið. Já, ég er alltaf til í smá djamm sko! Vond eða hvað? Held ég hefði nú átt að frelsast þarna á laugardagskvöldið, hehe, þá hefði nú kannski allavega sleppt því að ljúga svona mikið, því það er náttúrulega ein af mestu syndunum...
Nei, uss, maður á ekki að segja frá svona "ástarsögum" á blogginu sínu. Þið lásuð þetta aldrei!
Ástarkveðjur, Anna the Heartbreaker
mánudagur, október 30, 2006
Fruss!
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, október 30, 2006
Flokkur: Holland
sunnudagur, október 29, 2006
Hjálpi mér allir heilagir!
Skrifað á sunnudagsmorgni
Löng færsla?
Í gær fór ég í sakleysi mínu í bæinn með það markmið að kaupa mér einhver flott föt. Þegar ég kom inn í miðbæinn var allsstaðar líf og fjör, og það fyrsta sem ég sá var kall í bláum gallabuxnasmekkstuttbuxum, með grænan hætt, í grænni skyrtu, í grænum sokkum og í grænum tréklossum. Þarna stóð hann og lét öllum illum látum á meðan hann spilaði á gítarinn sinn og söng, tjah, fagurlega með. Mér fannst þetta fyndinn kall og stóð þarna um stund og horfði á. Þá fór hann að tala eitthvað, og ég skyldi nú lítið af því sem hann sagði, fyrir utan "rounde vrouw" sem útleggst sem bollulegar konur. Hann var þá að tala um kvennamál sín, og óskaði einskis frekar en að eignast eina Rounde Vrouw. Og svo fór hann að spila og syngja, og í hvert sinn sem kona gekk fram hjá honum elti hann hana og urraði, eh, getnaðarlega á eftir henni. Og svo dansaði hann mjög eggjandi dans. Og alltaf þegar hann sá manneskju í grænum fötum hætti hann að spila og hrópaði "GROEN, GROEN!" sem útleggst sem grænn, grænn. Ég stóð þarna ásamt hóp af fólki og var næstum búin að hljóta bráðan bana, svo fyndið var þetta.
En obbobb, það var nú gott að ég hlaut ekki bráðan bana, því þá hefði ég farið straight to hell! Gúlp! Já, lesið lengra, og komist að því af hverju ég hefði endað þar...
Eftir að kallinn var búinn að urra á þónokkuð margar konur og dansað af miklum móð missti hann óvart gítarnöglina sína og komst þá að því að hann hafði slitið streng á gítarnum í öllum hamaganginum. Ég ákvað þá að fara og kíkja í nokkrar búðir og koma svo kannski aftur þegar hann væri búinn að laga gítarinn sinn.
En ég komst ekki nema 20 metra, því þá sá ég þennan fína flokk af fólki sem var að syngja gospel-lög. Ég að sjálfsögðu staldraði við og hlustaði, enda gospel-tónlist oft á tíðum mjög flott. Síðan var eitthvað fólk að rétta vegfarendum miða þar sem auglýstir voru ókeypis gospel-tónleikar þá um kvöldið. Ég tók við einum slíkum miða með hálfum hug, því ég var svo upptekin við að hlusta. Og allt í einu segir stelpan sem rétti mér miðann eitthvað. Og ég bara "Eh, sorrí, I don't speak Dutch..." Og hún skipti þá yfir á ensku. "Do you believe in God?" Og ég bara "No, not really, I just love the music so that's why I'm standing here..." Og í óspurðum fréttum sagði stelpan (sem var 26 ára) mér allt um hvernig allir á jörðinni væru fæddir syndugir vegna þess að Adam og Eva borðuðu eplið forðum daga, að Jesú hefði fórnað sínu lífi fyrir okkur og að okkur bæri að biðja Guð um aflausn synda okkar.
Það þarf nú varla að taka það fram, að ég er ekki mjög móttækileg gagnvart svona hlutum, og fór að spyrja meira út í þetta, bara svona upp á forvitnissakir. Komst ég þá að ýmsu, eins og að allir þeir sem eru í öðrum trúarbrögðum fara til Helvítis, því að þeir trúa ekki á hinn rétta Guð, því að sjálfsögðu er bara til einn Guð, og allir aðrir "Guðir" hafa orðið til vegna sjálfselsku annarra. Ekki einu sinni kristnir menn komist í Himnaríki, því þeir hafa ekki gefið Guði allt sitt líf og hjarta, því það er nottla ekkert nóg að fara í kirkju einu sinni í viku og biðja bænir... Ég spurði þá út í "Survival of the fittest" kenningu, það væri nú ekkert hægt að kollvarpa henni, þar sem að það væru jú vísindi sem hægt væri að sanna með auðveldum hætti. Þá fékk ég spurninguna "Who made your watch?" sem sagt, hver bjó til úrið þitt. Ég fór samstundis að leita að merki framleiðandans, en áður en mér gafst tími til að finna það sagði önnur kona sem var þarna komin "You don't know! And you don't know who made the world! So do you really believe in the Big Bang?". Ég bara "Jah, það á enn eftir að sanna það mál, en það er það skásta sem hægt er að trúa á allavega..."
Og þannig hélt þetta áfram í einn og hálfan klukkutíma. Ég kom með öll hugsanleg mótrök, eins og hver skapaði Guð, af hverju ættu lítil börn að fara til Helvítis bara út af þessu eina epli, hverjar eru sannanirnar fyrir því að Guð sé til, hvernig bjó hann til sólina á bara einum degi, af hverju eru þetta og þetta syndir, af hverju ættum við að gjalda fyrir syndir Evu og Adam því þetta var jú ekkert okkur að kenna, af hverju er þetta hin eina rétta trú, og så videre og så videre... (Ég tek það samt fram að þetta eru ekki trúarbrögð, þessi trú gengur aðeins út á einlæga trú á Guði og Jesú). Og svörin sem ég fékk voru flest á þá leið "Þú verður bara að prófa, og þá kemur Guð til þín og þá veistu að það er bara til þessi eini Guð. Þú getur prófað Islam, þú getur prófað Búddatrú, þú getur prófað að gerast kaþólikki, en þú munt komast að því að það er tímasóun! Viltu biðja bænina um syndaaflausn núna? Við getum beðið með þér!"
Huhuhumm, ég var nú ekki alveg tilbúin til þess að játa syndir mínir (enda tel ég mig vera ákaflega syndlausa manneskju, sama hvað öllum eplum líður), en lofaði þó að mæta á tónleikana þarna um kvöldið, bara upp á forvitnissakir.
Og svo mætti ég þarna um kvöldið, rétt fyrir klukkan átta. Og það var heil móttökunefnd sem beið eftir mér! Jii, mér leið eins og ég væri fræg eða eitthvað! Og ég bjóst við einhverri svaka kirkju (í venjulegum skilningi), en þá var þetta samkomusalur sem er kirkjan þeirra. Frekar spes og annað en maður hefur vanist... Og þarna var fullt af fólki sem allt var súperforvitið um hagi Íslands og menningu og þjóð. Og svo byrjaði dagsskráin. Tónlistaratriðin samanstóðu af lögum sem allir kannast við, en það er bara búið að breyta textunum örlítið og skjóta orðum eins og "Jesus" og "God" inn í. En þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt. Svo inn á milli kom fólk og talaði um af hverju það hefði ákveðið að gerast trúað. Sumir voru langt leiddir í fíkniefnum áður en þeir frelsuðust, og aðrir voru þarna til að fylla tómarúmið í lífi sínu. (Það var alltaf einhver að túlka fyrir mig, svo ég fékk alveg að vita um hvað málin snérust).
Og svo var sýnt sýnt leikrit inn á milli, sem öllum fannst alveg ferlega fyndið. Það gekk í megindráttum út á það að nunnan komst ekki til himna, biskupinn komst ekki til himna, búddatrúarmaðurinn komst ekki til himna, karlinn sem lenti í bílslysi komst ekki til himna... En töffarinn sem hafði beðið syndaaflausnarbæn daginn áður með einhverjum trúboða, hann komst til himna. Þótti þetta leikrit hin mesta skemmtun!
Þegar líða fór að lokum formlegrar dagskrár, þá var spiluð tónlist og allir sungu með, og þeir sem trúa á Guð, nú eða þeir sem vildu byrja að trúa þetta kvöld (og þá var litið á mig), þeir áttu að sýna Guði hendurnar á sér. Jah, frá því er skemmst að segja, að mig byrjaði að klæja í nefið akkúrat á þessari stundu, en ég þorði að sjálfsögðu ekki að klóra mér ef það skyldi vera tekið sem merki um að ég vildi frelsast, svo ég gretti mig bara sitt á hvað til að reyna að minnka kláðann... hahaha, það hefur ábyggilega verið alveg kostulegt að sjá mig!
Eftir formlega dagskrá hópaðist fólk í kringum mig og rökræddi við mig um Guð. En ég nenni nú ekki að trúa á þann Guð sem sendir alla til Helvítis út af einu epli, svo ég gaf mig hvergi. Svo finnst mér líka einkar þægileg tilhugsun að maðurinn hafi einu sinni verið api, já, það er langeinfaldast að hafa það bara þannig. Ég hefði eflaust getað verið þarna í marga klukkutíma, en ég þurfti nú samt að drífa mig heim og spila póker (sem var nú alveg satt, það voru allir að bíða eftir mér heima). Áður en ég fór var mér samt boðið að mæta til kirkju morguninn eftir og skoða þetta mál aðeins betur, athöfnin myndi að sjálfsögðu verða þýdd fyrir mig. Ég bara "Eh, jah, sjáum til..." og gerði mig líklega til þess að fara. En áður en ég komst lönd eða strönd, lenti á ég spjalli við eitthvað fólk úr "GreenPeace", og segið þið mér, ó kæru Íslendingar, erum við byrjuð að veiða hvali aftur? Jii, ég vissi það ekki, og gat þess vegna ekki varið land og þjóð sem skyldi. Held ég verði að fara að lesa fréttir!
Já, svo hélt ég að ég væri loksins sloppin, en þá sagði ein konan við mig "Remember your watch!" og ég bara "Jájájá..." og hélt hún væri að skírskota til þess að ég ætti að muna hver hefði búið til úrið mitt... En það var nú aldeilis ekki svoleiðis, því hún var bara að minna mig á að sumartíminn myndin breytast yfir í vetrartíma þá um nóttina! Já, gott að hún sagði mér það, því við í Geldersedam vissum ekki af því!
Og svo fór ég heim að spila Póker, og tapaði, samt eiginlega viljandi, því ég var orðin dulítið þreytt í hausnum af öllu þessu trúarspjalli. (Þess má geta að um síðustu helgi vann ÉG!).
Já, kannski ég skjóti því að, að ég er með engum hætti að gera lítið úr trú, hvorki gospel né annarri. Þetta var bara svona lítil saga til að sýna ykkur muninn á menningu fólks, og mun ég sko bera miklu meiri virðingu fyrir trú fólks núna en ég gerði áður. Já, alltaf er maður að læra!
En þetta er orðin dágóð klausa, vona samt að flestir hafi komið sér í gegnum hana, þetta var nú smá svona upplifun!
Kveðja, Anna the Monkey
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, október 29, 2006
Flokkur: Holland
laugardagur, október 28, 2006
Jeremías minn
Skrifað á laugardagsmorgni
Nennir einhver að fletta því upp í orðabók fyrir mig hvað orðið "jæja" þýðir eiginlega? Einkar asnalegt orð, og áðan fór ég skyndilega að efast um tilvist þess. En svo mundi ég eftir því að það væri til, og væri meira að segja mjög mikilvægt orð. En ég hef ekki hugmynd um hvað það þýðir! Anyone?
Jæja (ég bara varð að nota þetta), klukkan er ekki nema korter í níu á laugardagsmorgni og ég er strax komin á stjá. Það er þó engan veginn af fúsum og frjálsum vilja, það get ég sagt ykkur!
Sagan er sem sagt sú, að í morgun um sjö-leytið vaknaði ég við eitthvert undarlegt píp-hljóð. Ég slökkti á vekjaraklukkunni minni og bölvaði í hljóði, því auðvitað á ég ekkert að stilla vekjaraklukkuna á laugardögum. En áfram hélt hljóðið. Ég stökk þá á símann minn (sem var nú annars á silent), en hann var ekki sökudólgurinn. Og áfram hélt pípið. Ég grunaði þá hátæknivigtina mína um græsku, en fannst þetta þó í meiralagi undarlegt, því hljóðið var mjög óreglulegt og stundum liðu alveg 4 sekúndur á milli pípa. Ég gramsaði um stund í náttborðsskúffunni minni (sem inniheldur ekkert annað en snyrtivörur og skartgripi og engin píptæki), því eftir miklar pælingar komst ég að því að sennilega kæmi hljóðið þaðan. (Og nei, ég gat ekki kveikt á lampa því ég á engan lampa, haha). En ég fann ingenting. Datt mér þá í hug að þetta væri kannski vekjaraklukkan nágrannanna, en það á nú samt ekki að heyrast svona hátt í henni yfir til mín, og ekki var þetta vekjaraklukka úr hjónaherberginu á þriðju hæð. Og áfram hélt pípið. Ég stóð þá á fætur og kveikti ljósið, og gramsaði aðeins betur í náttborðsskúffunni minni. En ég sá engin líklega píptæki þar, nema kannski þráðlausa netkortið mitt, en uhh, það á nú varla að taka upp á því að pípa! Og áfram hélt pípið og ég var að verða geðbiluð þarna, fálmandi eitthvað út í loftið í leit að einhverju sem ég vissi ekki hvað var. Allt í einu fattaði ég hvað þetta var! Þetta var þá skrefamælirinn, sem ég fékk ókeypis í einhverri búð um daginn, að verða batteríslaus... Og mælinn geymdi ég einmitt ofan í náttborðsskúffunni. Hoho, þetta var nú skemmtileg saga!
En bölvaður skrefamælirinn vakti mig greinilega svo mjög að mér varð eigi svefns vant aftur og skakklappaðist því niður á klósettið. Sótti að mér þorsta og ég ákvað að fá mér vatnssopa, svona eins og ég geri alltaf þegar leið mín liggur inn á bað. En einhverra hluta vegna var mér svo ferlega óglatt að ég kom ekki vatnsdropa niður, og pældi ég vel og lengi í því hverju þetta sætti. Fór ég aftur upp í rúm með svima mikinn og lagðist fyrir og pældi í þessu um stund. Og þá fattaði ég það!
Ég hef aldrei áður vaknað klukkan sjö hérna í Hollandi, því ég vakna alltaf klukkan rúmlega átta á virkum dögum og er þá tekið að birta allverulega úti. En klukkan sjö er greinilega alveg kolniðamyrkur úti, og ég hef ekki vaknað í myrkri síðan, tjah, í febrúar eða svo, þannig að ég vaknaði með jólaspenning í maganum!!! Staldrið aðeins við og pælið í því! Jæja, ég reyndar sönglaði "Jóóólin, jóóólin aaallstaðar" úti á leikvelli núna í vikunni, en ákvað að líta ekki á það sem alvarlegan hlut. En núna þegar ég vaknaði í myrkrinu fann ég jólaandann hellast yfir mig og væri nú alveg til í að það væri kominn desember og að ég væri heima á Grænavatni í jólastemningu! Jah, fyrir þá sem ekki vita, þá ríkir alltaf gífurlegt stress heima hjá mér fyrir jólin. Pabbi situr og ræður krossgátur eins og vitlaus maður og betra að vera ekki fyrir honum þegar hann stendur á fætur og nær í meira Toblerone! Mamma náttúrulega alveg að tapa sér og púslar í tölvunni eins og hún eigi lífið að leysa... Bræður mínir alveg að ganga af göflunum þar sem þeir sitja við tölvurnar og lana af miklum móð þegar þeir eru ekki of uppteknir við að lesa Andrésblöð á milli leikja...! Og ég spái og spekúlera allan daginn í því hvernig best sé að nýta fríið sem best, og enda svo í allsherjarsjónvarpsglápi. Juu, 47 dagar í að ég komi heim, og ég kem heim á besta tíma, sem sagt beint í jólastemninguna! :D Mamma, ertu ekki örugglega byrjuð að baka...?
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, október 28, 2006
Flokkur: Holland
föstudagur, október 27, 2006
Sveiattan
Iss, ég ætlaði að standa við stóru orðin og skella inn nokkrum myndum, en þá er bloggerinn á hinni örgustu gelgju og neitar með öllu að sýna ykkur þessa unaðsfögru myndir. En það þýðir nú lítið að gráta Björn bónda, svo ég skrifa bara örstutta færslu í staðinn.
Það er samt ekkert nýtt að frétta síðan í morgun. Tjah, fyrir utan að ég fór í þriggja tíma verslunarleiðangur og afrekaði það stórvirki að festa kaup á leggings. Aðrar flíkur skoðaði ég einnig af miklum móð, og verður gert framhald af þeirri skoðun núna strax í fyrramálið.
Já, og svo var engin klósettdama á McDonalds svo ég slapp við að borga 25 cent þegar ég skaust þangað inn til þess að pissa. Alltaf er maður að græða!
Nei, það væri öllum fyrir bestu að ég hætti þessu blaðri og einbeitti mér þess í stað að æsispennandi söguverkefni. Adiós!
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, október 27, 2006
Flokkur: Holland
Á gellunni?
Juu, ég var næstum búin að gleyma því að ég ætti blogg!
Já, annars er fátt að frétta, eins og svo oft áður. Fátt hef ég afrekað síðustu daga, en eitthvað þó.
T.d. er matvöruverslunin á horninu að fara að hætta og voru því allar vörur búðarinnar á heilmiklum afslætti núna í vikunni. Og hvað gerði ég? Jú, ég fór að keypti mér ýmsan bráðnauðsynlegan óþarfa! Til bráðnauðsynlegs óþarfa telst m.a. Andrélon hárlotion sem maður setur í blautt hár og er til þess gert að binda lit betur en ella, extreme hárgel úr Fructis-línunni og sléttulotion frá L'oréal Paris sem maður setur í blautt hár, blæs svo hárið og sléttar og whola, slétt hár! Svo nú gengur ekki lengur að vera bara með slegið og venjulegt hár, ó nei!
Já, allt er þetta liður í gellu-processnum svokallaða, en ég hef einsett mér að gerast gella, sama hvað það kostar. Eða, reyndar skiptir alveg heilmiklu hvað það kostar, en það er ýmislegt hægt að finna á góðu verði ef maður leggur á sig nokkurra klukkustunda leit.
Já, ég hef komist að þeirri niðurstöðu eftir fimm mánaða dvöl í útlöndum, að það gengur ekki lengur að vera ekki-gella. Ég skellti mér t.d. í bæinn í gærkvöldi (það er allt opið til klukkan 21 á fimmtudögum), og ég átti nú eitthvað lítið af hreinum og hlýjum gellufötum, svo ég skellti mér í Nike-buxur sem eru rifnar á rassinum, eldrauða íþróttapeysu og ljósbláa íþróttaskó. Jah, ég er ekki frá því að ég hafi skorið mig örlítið úr hópnum, en á fimmtudagskvöldum dressar fólk sig greinilega extra vel upp og mætir í djammgallanum í verslunarleiðangur með vinkonunum og Heinaken-bjór í hönd. En ég lét þetta nú ekkert á mig fá, heldur strunsaði beinustu leið inn í helstu gellubúðirnar og skoðaði þar ýmisskonar gelluvarning. Endaði svo á því að kaupa mér þvílíkan gellubol að annað eins hefur ekki sést í fataskápnum mínum, hvorki fyrr né síðar! Ætla svo í bæinn á eftir að kaupa mér leggings og einhverja óþægilega gelluskó til að fullkomna dressið... hver veit nema að ég leggi svo einhverndaginn í það að KAUPA MÍNU FYRSTU GALLABUXUR Á ÆVINNI? En það er náttúrulega stórt skref sem þarf að íhuga vel og vandlega, það er óþarfi að ana að einhverju... Róm var nú ekki byggð á einum degi, eller hur?
Ég skelli svo sennilega inn nokkrum myndum í kvöld, þó ekki af mér því ég er með skítugt hár (mjög svo ógellulegt, ég veit) heldur verða þetta myndir af trjám og fleiru spennandi.
Ástarkveðjur úr hitanum og sólinni í Hollandi, Anna van Bosch
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, október 27, 2006
Flokkur: Holland
mánudagur, október 23, 2006
On the list
Ég hef loksins fundið skipulagið og dugnaðinn í mínu lífi! Eða allavega smá hjálpartæki sem stuðlar að breyttum lífsháttum.
Listar. Listar af öllum stærðum og gerðum!
Ég get t.d. ekki lengur án innkaupalista verið, því ég gleymi alltaf öllum smáatriðum sem þarf að kaupa, á borð við póstkort, svitalyktareyði og lyklakippu. Þannig að um leið og ég man eftir einhverju sem ég þarf að kaupa, en þarf kannski ekki að kaupa akkúrat á stundinni, þá skrifa ég það niður á lista og kaupi það svo næst þegar ég rekst á það! Og svo um leið og hluturinn er keyptur, þá er gert áberandi strik yfir hann svo maður sjái nú hvað maður er duglegur. Reyndar hafa nokkrir hlutir verið á innkaupalistanum hjá mér allt frá því ég kom hingað til Hollands þann 24. ágúst, en þeir eru engu að síður á listanum sem þýðir að þeir verða keyptir svona einhvern daginn.
Fatainnkaupalistar eru líkar stór partur af mínu lífi. Til þess að halda eyðslu í skefjum kaupi ég ekkert annað en það sem er á listanum, og kem þannig í vef fyrir að ég kaupi mér fimm djammboli en enga úlpu. Ég er svo sneddí! Reyndar hafa nokkrar flíkur verið á listanum frá því 24. ágúst, en þær verða nú samt keyptar einhvern tímann því þær eru jú á listanum.
Listinn yfir það sem ég ætla að gera í jólafríinu lengist dag hvern. Já, það er margt sem þarf að huga að, skella sér í sjónmælingu (bara hálft ár síðan síðast, en ég vil auðvitað fá að vita um leið og sjónin versnar svo ég missi ekki af útsýninu í kringum mig), kaupa hitt og þetta sem fæst ekki í útlöndum (útlenskar vörur samt á borð við náttúrulegan sítrónusvitalyktareyði sem ég hef hvergi séð nema heima á Íslandi), skella sér til einhverra lækna (maður þarf nú að vita að það sé í lagi með mann) og fara í ýmsa hittinga og djömm.
Listinn yfir það sem ég ætla að gera áður en ég fer frá Hollandi er nú reyndar ekki ýkja langur. Það helsta sem á honum er, er samt að fara til Amsterdam og til útlanda.
Listinn með fjárhagsáætluninni minni er svo kapítuli út af fyrir sig. Því á honum tilgreini ég allt sem ég þarf að kaupa, set niður hámarksupphæð og lágmarksupphæð og skrái svo niður raunverð hlutarins þegar hann er keyptur. Með þessu spara ég mér háar fjárupphæðir, því ég reyni að sjálfsögðu alltaf að halda mig við lágmarksupphæðina...
Nýjasta nýtt er svo listinn yfir það sem ég ætla að gera yfir daginn. Sá listi er líka lang skemmtilegastur, því ég legg mig, grínlaust, alveg heilmikið fram við að gera hlutina sem standa á listanum svo ég fái að gera stórt og fallegt strik yfir þá að loknu verki. Og svo kemur maður svo miklu í verk! Dæmi um hluti sem eru á þessum dagslistum eru t.d. að ryksuga í herberginu mínu, skrifa hinum og þessum tölvupóst, skila spænskuverkefni, fara út að labba, þvo smá þvott, fara í sturtu, setja símann í hleðslu... Oftast kemur það nú reyndar fyrir að ég næ ekki að ljúka við allt sem ég ætla að gera, en það færist þá yfir á lista næsta dags. Og ekki vil ég að listinn lengist endalaust, svo ég legg mikið kapp við að klára sem mest... og strika svo fallega yfir það.
Þannig að þið kæru lesendur sjáið að það þarf lítið til að gleðja mig. Mér hafði ekki einu sinni dottið í hug að stór og falleg strik gætu glatt mig svona mikið! Ég mæli með því að allir latir taki upp þessa listaaðferð, þetta svínvirkar.
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, október 23, 2006
Flokkur: Holland
laugardagur, október 21, 2006
Hlýtt í Hollandi
Í dag ætla ég að gera ýmislegt gáfulegt. M.a. ætla ég í bæinn og svipast um eftir úlpu, því hún móðir mín segir að ég megi ekki koma heim fyrr en ég hafi keypt mér úlpu. Annars stofni ég útlimum mínum í hættu...
Hvað segið þið, er kalt þarna á klakanum hjá ykkur? Ha ha ha ;)
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, október 21, 2006
Flokkur: Holland
föstudagur, október 20, 2006
Jarí jarí
Nei, ég strokaði óvart færsluna mína út! Humm, það er nú eitthvað dularfullt við þetta, því ég gerði nú ekki neitt af mér nema að skrifa á fullu...
Kannski eru æðri máttarvöld eitthvað að grípa inn í og segja mér að blogga um eitthvað spennandi?
Nei, ég hlusta ekki á svoleiðis rugl.
En já, í stuttu máli sagt, þá fjallaði færslan um einkar óspennandi hluti á borð við tiltekt í herberginu mínu, allsherjar yfirhalningu (æh þið vitið, vax og plokk og kornakrem og allt það) og góð kaup í bænum. Ég meina, 14 pör af eyrnalokkum á 8 evrur (692 krónur) sem áttu að kosta 64 evrur (5.537 krónur) er nú ansi góður díll. Langar einhvern í heimsókn eða?
Og mamma, ég keypti líka svona plastpoka sem virka þannig að maður setur bara fötin sín í þá og pressar loftið úr! Gasalega sneddí fyrir fólk sem kann ekki að brjóta saman föt, með öðrum orðum, þetta var ábyggilega sérhannað fyrir mig :D
Annars er þessi frívika mín ekki búin að fara í neitt gáfulegt. Ég sem ætlaði að skella mér til útlanda og allskonar, en æh, það fór nú eitthvað út um þúfur í krónísku letikasti. Nei þetta gengur ekki lengur, ég er farin að læra!
Ástarkveðjur, Anna van Bosch
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, október 20, 2006
Flokkur: Holland
fimmtudagur, október 19, 2006
Opinskátt viðtal
Blaðamaður setur sig í viðeigandi stellingar, tilbúinn að spyrja Önnu Björk Haraldsdóttur spjörunum úr.
Blm: Segðu mér Anna, hvernig er það eiginlega að vera svona frábær?
Anna: Það er bara geggjað fínt sko.
Blm: Hvernig myndirðu lýsa sjálfri þér?
Anna: Smá dass af seinheppni hér og þar, ekkert alvarlegt samt.
Blm: Hvernig hefur svo Hollandsdvölin þín verið?
Anna: Alveg æðisleg, alltaf nóg að gera.
Blm: Hvernig hefur t.d. dagurinn í dag verið?
Anna: Ég fór í sund, ekkert smá stuð.
Blm: Og gekk það ekki bara vel?
Anna: Jújú, alveg ljómandi. Nema kannski þegar ég ákvað að taka sjálfstæða ákvörðun og fór í gegnum vitlaust hlið...
Blm: Og hvað gerðist þá?
Anna: Fyrst var ég eins og villuráfandi sauður og sá ekki nokkurn mann, en þá fattaði ég að fara bara sömu leið til baka.
Blm: Og fannstu svo rétta hliðið?
Anna: Já, eða sko fyrst þurfti ég að fara aftur upp í afgreiðsluna og fá nýjan lykil, því maður þarf alltaf að setja lykilinn sinn í einhvern kassa þegar maður fer út um hliðin aftur.
Blm: Og hvað svo?
Anna: Svo fór ég og fann rétta hliðið.
Blm: Og gekk þetta eins og í sögu eftir það?
Anna: Já, eða kannski ekki þegar ég læsti lykilinn minn inni í skápnum mínum...
Blm: Nei hvað segirðu! Og hvað gerðirðu þá?
Anna: Ég ákvað að gera ekkert í málinu og ætlaði að strunsa út eins hratt og ég gæti, svona áður en eitthvað fleira kæmi fyrir, enda var ég ekki búin að setja dótið mitt í skápinn.
Blm: Hvað strunsaðirðu hratt?
Anna: Æ, ég gat eiginlega ekki strunsað mikið, því maður þarf nefnilega lykil til að komast út...
Blm: Og varstu þá bara föst?
Anna: Já, eða svona þar til ég var búin að ganga 37 hringi í klefanum og leita að sundlaugarverði.
Blm: Og fannstu sundlaugarvörð?
Anna: Já, og hann var ekkert smá sætur sko.
Blm: Og opnaði hann skápinn?
Anna: Já.
Blm: Og gekk það áfallalaust fyrir sig?
Anna: Já, en hann hefði nú alveg mátt sleppa því að öskra "WAS IT NUMBER 322???" yfir allan klefann.
Blm: Og komstu þá loksins ofan í laugina?
Anna: Já.
Blm: Og hvað var klukkan eiginlega orðin?
Anna: Hún var orðin seint og um síðir...
Blaðamaður þakkar Önnu kærlega fyrir þetta viðtal og vonar að hún haldi sig frá sundlaugum í bráð...
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, október 19, 2006
Flokkur: Holland
Thursday morning
Jii, hvað ég er eitthvað andlaus í dag.
Svo er það alveg spurning hvort ég virkilega NENNI að fara í sund á eftir á milli klukkan tólf og eitt? Já, ég fór sem sagt og spjallaði aðeins við fólkið í sundlauginni í gær, og almenningur getur aðeins synt frá 7-9 á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum og svo frá 12-13 á öllum virkum dögum nema föstudögum. Og mér er alveg meinilla við að einhver annar ákveði hvenær mér dettur í hug að hreyfa mig, svo mér er skapi næst að sitja bara sem fastast hér heima og safna spiki. Hoho!
Annars komst nú upp um mig í gær að ég væri nú bara slet ikke hollensk! Já, við mættum bara þrjár í danstímann (venjulega erum við svona 20-30) og ég var spurð álits á einhverju. Og ég bara "Ehh... do you speak English?". Tjah, danskennarinn missti örlítið andlitið, ha ha ha...
Nei þessi færsla er ykkur svo sannarlega ekki til andlegrar uppörvunar eða innblásturs. Held ég láti gott heita í bili og fari að undirbúa mig fyrir alveg æsispennandi klukkutíma í ískaldri laug, og engir heitir pottar! Ó mig auma.
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, október 19, 2006
Flokkur: Holland
mánudagur, október 16, 2006
Í kjólinn fyrir jólin
Hér í Geldersedam 42 hefur allsvaðalegu heilsuátaki verið startað. Sem þýðir ekkert annað en í kjólinn fyrir jólin, ekkert brauð, ekkert kjöt og ekkert sukk... bara no nothing!
Já, Heiða og Rakel fóru í tíma til einkaþjálfara áðan og komu heim fullar af allskonar visku. Spurning samt hvað hafa eigi í kvöldmatinn, fyrst hvorki má hafa kjúklingafajitas né spakk og hagettí? Og svo ætla ég að panta mér tíma hjá þessum flotta einkaþjálfara, hann er nefnilega ókeypis...
Annars gerði ég nú nokkuð góðan túr í bæinn í dag. Þar sem ég hef ákveðið að kaupa mér ekki fleiri föt fyrr en líkamlegt ástand er orðið aðeins, tjah, grennra, þá fór ég bara og spanderaði í ýmsa aðra flotta hluti. Ber þar m.a. að nefna geheggjaða tösku (litla gula handveskið mitt sem ég fékk á 500 kall í Centro fyrir nokkrum árum síðan hefur nú samt staðið sig með prýði sl. fjóra og hálfan mánuð) og þunna fitness-dýnu sem mun þjóna þeim tilgangi að sjá til þess að ég geri maga-og bakæfingar á kvöldin.
En þar með er það ekki allt upptalið, því ég keypti mér líka vigt. Já, vigt! Mig hefur lengi langað í svoleiðis græki (sorrí mamma og pabbi, en ég held að þessi sem er heima sýni ekki aaalveg réttar tölur lengur...) og vita hvað ég er þung!
En þið skuluð ekki halda að ég hafi látið mér nægja að kaupa bara venjulega vigt, nei þá þekkið þið mig ekki rétt. Heldur fór ég og keypti mér alvöru flókna vigt! Hún virkar svona:
- Settu mælingarfjarstýringarskjáinn með innrauða ljósinu ofan á vigtina sem er annars glær og ekki með neinum skjá.
- Veldu númer frá 1-10. (Það er sem sagt hægt að vista 10 manneskjur í vigtinni).
- Skráðu inn hæð, aldur, kyn, símanúmer og nafn föðurömmu þinnar. (Nei, nú er ég smá að ýkja, en ekki mikið. Maður þarf allavega að skrá inn hæð, aldur og kyn).
- Potaðu laust með tánni í vigtina þar til þú sérð 0,0 á skjánum.
- Stígðu á vigtina og bíddu smá.
- Nú sérðu þyngd, fituprósentu líkamans og vatnsmagn.
Já, ég sagði fituprósentu og vatnsmagn, og það eru sko engar ýkjur! Það er líka klukka og hitamælir á vigtinni, og hvað þarf maður meira í þessu lífi? Og að sjálfsögðu var þetta á alveg hreint spottprís, eða eins og gengið er í dag: 2.565 íslenskar krónur.
Reyndar finnst mér þessi fitumælir alls ekki sniðugur lengur, svona eftir að ég prófaði hann. Sé ég því aðeins tvennt í stöðunni. A) Að skila vigtinni. B) Að fara út að labba.
Er þetta erfitt líf eða hvað?
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, október 16, 2006
Flokkur: Holland
sunnudagur, október 15, 2006
Djísöss maður, skrítnir þessir Íslendingar!
Áhugasamir geta lesið eftirfarandi grein sem birtist í háskólablaðinu í Den Bosch nú á dögunum
.
The neighbours are the same age as the Icelanders, but they do not have any children. That surprised the three students who arrived in the Netherlands in August. "At the Efteling themepark we only saw parents between thirty and forty years old. In Iceland, it is completely normal to have children when you are around the age of twenty. It doesn't matter if you are studying or working at the time", explains Egill Ragnar Sigardsson (26). His girlfriend Heida Jôhannsdôttir (28) has just got their 18-month-old daughter, Kristjana, out of bed. Her brother Aron (5) is playing on the playstation in the television room with Aron (5), the son of Rakel Breidfjörd Palsdôttir (28). "It's all quiet at the moment, but they often squabble. That's because they are spending too much time together", says Rakel. The students are looking for a crèche so that their children can meet other children. This is proving difficult, however, as no crèche wants to take them because they don't speak Dutsch.
(Punt, 12. október 2006)
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, október 15, 2006
Flokkur: Holland
laugardagur, október 14, 2006
Passipass
Já hér sit ég á barnapíuvaktinni á laugardagskvöldi með börnin þrjú, fimm kíló af nammi til að gúffa í þau og pening sem myndi duga fyrir 7 pitsum. Og að sjálfsögðu er kveikt á barnaefninu. Hver segir svo að það sé erfitt að passa börn?
Já, talandi um sætindi! Ég uppgötvaði mér (og öðrum heimilismeðlimum) til mikillar skelfingar um daginn að það eru 5 grömm af sykri í hverjum 100 grömmum af mjólkinni sem við drekkum!!! Oj bara, ég myndi kæra þetta ef Hollendingar væru ekki allir svona grannir... hvernig fara þeir eiginlega að þessu?
Ég fór að sofa klukkan hálftólf í gær eftir að hafa klárað æsispennandi söguverkefni. En það leið ekki nema klukkutími þar til ég var rifin á fætur aftur með harðri hendi og á dregin djammið... Nei nú er ég að ýkja smá. Það var bankað ofurblítt á dyrnar á herberginu mínu og mér boðið að kíkja með í bæinn. Sem ég og gerði, og það tók mig ekki nema 40 mínútur að skella á mig andlitinu, geri aðrir betur! Fátt náði ég þó að afreka að þessu sinni, en hér kemur ferðasagan í megindráttum:
- Náði að svolgra í mig hálfum bjór með miklum erfiðismunum... Já, reynið að drekka bjór klukkutíma eftir að þið vaknið! Oj bara, ég verð aldrei almennilegur alki...
- Fór á geggjaðan skemmtistað sem var TROÐINN, og ALLIR gaurarnir voru fallegir, ó svo fallegir...
- Lét benda á mig... humm. Það reyndar tengist myndinni sem kom af mér í háskólablaðið á svæðinu, er ég orðin þekkt eða hvað?
- Labbaði hratt framhjá gellunni sem var á klósettvaktinni og þurfti þess vegna ekki að 50 sent fyrir að pissa í skítugt klósett
- Fór á, tjah, skíðabar? Og 90% allra þar inni voru gaurar á mínum aldri, og þetta var ekki hommabar! Enda var svolítið fyndið þegar allir stilltu sér upp í kringum mann og störðu bara og drukku bjór...
- Reynt var að plata mig til að dansa uppi á barborði... Eh, kannski eftir nokkra bjóra í viðbót, hahaha
- Sá gaur í loðnu vesti með dalmatíuhundamunstri... hahaha
- Fór á tóman bar og lét éta mig með augnarráðinu
- Lét kalla mig flesk
- Fékk tvær sneiðar af geggjað góðri pitsu, namminamm
- Brilleraði í að tala ÞÝSKU, já, þýsku! Gaurinn talaði ekki ensku og spurði hvort ég talaði þýsku og áttum við langt og innihaldsríkt samtal á því ágæta tungumáli, og sjá! Gaurinn skyldi allt sem ég sagði!
Í dag fór ég í upplýsingamiðstöðina í bænum og spurðist fyrir um sundlaugar í bænum. ÞAÐ ER BARA EIN SUNDLAUG Í ÖLLUM BÆNUM, og þó inniheldur bærinn 125.000 íbúa! Og sú sundlaug er svo rándýr að það kostar milljón og tvær að dýfa litlu tánni þar ofan í... Í framtíðinni mun ég ávallt velju búsetu með tilliti til nálægðar við sundlaugar.
Já, svo er ég búin að fara á pósthúsið og spyrjast yfir um hvað það kostar að senda dót heim með pósti... 10-20 kíló á 3.500 íslenskar krónur telst óneitanlega nokkuð gott og mega því mútta og pápi eiga von á því að fá tvo 20 kílóa pakka senda heim svona þegar nær dregur desember...
Og að tilefni þess að það er svo ódýrt að senda dót heim, þá fór ég í bæinn í gær og spanderaði fullt af peningi í allskonar fegrunarvörur, reiknast mér svo til að ég hafi keypt um tvö kíló eða svo af allskonar kremum...
Nei, best að komast að því hvernig maður kveikir eiginlega ljósið í stofunni, kveikirofinn hefur aldrei viljað hlýða mér! Já, ég held að ljós sé alveg nauðsynlegt, svona ef litið er á þá staðreynd að yngsta skvísan er eitthvað að brasa þar inni og kannski betra að sjá hvað það er ;)
Kærar kveðjur, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, október 14, 2006
Flokkur: Holland
fimmtudagur, október 12, 2006
Nýr sími eller hur?
Ég veit ekki hver stendur fyrir þessu ódæði, og ég hef svo sem engan sérstakan hug á að taka upp nafnið Gunilla. Svo ég tali nú ekki um ókosti þess að það standi Gunilla á skjánum! Sko, sjáið þið þetta hösl ekki fyrir ykkur?
Og hvað gerist?
Og svo myndi ég fara grenjandi heim yfir versta klúðri ever.
Hver sá sem veit hvernig í ósköpunum ég breyti nafninu á símanum mínum má hafa samband hið snarasta. Annars neyðist ég víst til þess að kaupa mér nýjan síma, alveg er ég miður mín! (Lesist með smááá dassi af kaldhæðni).
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, október 12, 2006
Flokkur: Holland
miðvikudagur, október 11, 2006
Gott veður eller hur?
Í morgun dúðaði ég mig í tvöfaldar buxur og snjóbuxurnar hennar Elínar minnar og tvær þykkar peysur, enda 12 stiga hiti úti þegar ég fór út á leikvöll í morgun. Tjah, eftir hálftíma var kominn 18 stiga hiti og ég sat í blíðunni á hlírabolnum og fékk mér smá brúnku.
Já, það er sko greinilega ennþá alveg blússandi sumar hjá mér! Ég uppgötvaði mér nefnilega til mikillar skelfingar fyrir nokkrum mínútum síðan að mappan sem ég set öll fjarnámsverkefnin mín í heitir því skemmtilega nafni "sumarfjarnám 06". Humm, ég hef greinilega ekki alveg verið með fulle femm þegar ég skírði þessa möppu!
Annars er fátt að frétta, eða allavega fátt sem ég nenni að segja frá. En ég tilkynni það nú samt að þriðjudagar og miðvikudagar eru skemmtilegustu dagar vikunnar, en þá er nefnilega Fusiondance-tímar í ræktinni! Ég mætti galvösk í gær, tilbúin til þess að gera mig aftur að algjöru fífli, en gerði mig nú eiginlega ekki að neinu fífli, inte alls! Það var kenndur einhverskonar hip-hop dans, ekkert smá gaman. Samt er ég meira fyrir StreetDance, sem verður vonandi kenndur í kvöld.
Bestu kveðjur, Anna van Bosch
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, október 11, 2006
Flokkur: Holland
sunnudagur, október 08, 2006
Shopping!
Í tilefni þess að ég er löt og nenni hvorki að læra né fara í ræktina, þá fór ég í bæinn og tók nokkrar myndir. Já, í dag er sunnudagur og allar búðir lokaðar, og greip ég því tækifærið á meðan bærinn var mannlaus og tók myndir af uppáhaldsbúðunum mínum og fleiru... Haha.
Það er kominn smá haustlitur í sum trén hérna - flest trén eru samt ennþá græn

Þessi bygging er að ég held hótel eða veitingastaður, nema hvort tveggja sé.

Bókasafnið góða sem ég stundaði mikið fyrstu dagana hér í Hollandi til þess að blogga... hef ekki stigið fæti þangað inn síðan ég fékk internetið hingað í hús!

Cool Cat - þessi búð er bara SVO GEGGJUÐ!!! Ein af mínum allra uppáhaldsbúðum hér í bæ og þarna fást aðaltískufötin! Verðið er svona melló, sem sagt bolirnir flestir á 2000 íslenskar krónur og gallabuxurnar á 5000-6000, og pilsin á svona 3000... já, ég er búin að stúdera þetta vel og vandlega!

Bakkerij Bart - Oh, ég ÞOLI EKKI þetta ljóta ljóta bakarí! Maður sér það um leið og maður kemur inn í miðbæinn, og maður hreinlega NEYÐIST til þess að kaupa sér einhverjar syndir þar... mig langar til þess að fara að grenja, það er allt svo hræðilega girnilegt þarna inni :( Bestar eru þó Bosche Boll, sem eru vatnsdeigsbollur STÚTFULLAR af rjóma, sem sagt bolludagsbollur af bestu gerð! Þarna er líka að finna súkkulaðifyllt croissant og appelflap, sem er sykurhúðað brauð með eplagumsfyllingu... Sveiattan... Ég legg hér með fram tillögu þess efnis að þetta bakarí verði lagt niður hið snarasta!

Dixons - þetta er tölvubúð og þarna er ég fastagestur... er alltaf að kaupa eitthvað drasl í tölvuna mína (þráðlaust netkort, usb-lykil, skype-síma...) og er þjónustan þarna hreint út sagt æðisleg! Mæli sko með þessari búð :)

C&A - mest einhver kerlingaföt þarna inni, en samt eitt horn með flottum gellufötum á ágætis prís. Þarna er hægt að fá geggjaðar peysur á 2000 kall og fullt af úlpum á góðu verði.

Hunkemöller - á ég að fá hjartaáfall núna eða? Þetta er nærfataverslun, og ó mæ gad! Náttfötin, djísös kræst sko... Þarna get ég hangið klukkutímum saman og látið mig dreyma um hvernig náttföt ég ætla að eignast þegar ég verð alveg ofboðslega rík! Endilega kíkið á linkinn og skoðið myndirnar...

Esprit - ó svo dýr! Já, fötin þarna inni eru alveg rándýr (pilsin á alveg 6000 kall og úlpurnar á 11000 kall eða eitthvað!) en það má nú alveg láta sig dreyma...

Intersport - ég hef nú alveg séð flottari Intersportverslanir um ævina, maður þarf nefnilega að grafa ansi vel í þessari til þess að finna eitthvað nothæft, og ef það er nothæft þá er það alveg rándýrt... En ég fer samt alltaf í þessa búð, svona EF maður skyldi rekast á eitthvað ódýrt og gott... :)

Bruna - þarna inni er hægt að fá alveg svakalega flottar dagbækur og bréfsefni og minnisbækur og allskonar svoleiðis dúllerí... en ég get bara ekki keypt mér neitt því ég er að reyna að halda yfirvigtinni í nokkurskonar skefjum.. (var sko með 25 kíló í yfirvigt þegar ég kom hingað frá Svíþjóð! Ojoj...).

Kijkshop - þarna kennir ýmiss grasa. Þarna getur maður nefnilega keypt allan fjandann: gemsa, tölvumýs, taekwondosparkpúða (150 cm háir á 2000 kall, sem er skítur á priki!), ryksugur, hljómborð, taflborð, hárblásara, sléttujárn í tugatali, klukkur, úr, heyrnatól, útvörp, ípoda, mp3-spilara... you name it! Kíki oft þangað inn og læt mig dreyma smá :)

Björn Borg - Ekki föt að mínu skapi, en töskurnar eru kannski ágætar...

Einhver skúlptúr

NewYorker - þarf að segja meira? Þessi búð er með svo geggjuð götutískuföt að það hálfa væri hellingur! Og síðan er verðið þarna bara brandari, bolirnir bara svona 1000 kall og allt annað alveg hræbilligt... Og karlafötin þarna, maður minn sko! Hnakkarnir kæmust sko í feitan feng færu þeir inn í þessa búð!!!

H&M - að sjálfsögðu þarf að vera ein slík í bænum. Og þar sem að það er aðeins ein slík í bænum, þá er hún svona "alhliða", sem sagt bæði með flottum og ljótum fötum... Þannig að maður þarf stundum að gramsa svolítið til þess að finna þetta flotta, en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi :)Og þarf ég eitthvað að minnast á verðið eða?

Vero Moda - já, ég fann Vero Moda búð í dag! Veit nú ekki alveg hvernig sú búð hefur farið algjörlega framhjá mér! Ég þarf endilega að kíkja aðeins í hana á mánudaginn og stúdera hana örlítið... held reyndar að hún sé frekar dýr en það má alltaf láta sig dreyma :)

Bags & Cases- geheggjuð töskubúð! Og á fínu verði, flestar töskurnar á svona 2000-3000 kall :)

VanHaren - búð með endalaust mikið af stígvélum, sem flest kosta um svona 3000 kall... já, það er gaman að fara þangað og láta sig dreyma um að maður kynni/þyrði/þoldi að ganga á smá hælum!

Wonder Woman - núna fer ég að skæla! Þetta er FLOTTASTA búðin í bænum, grínlaust!!! Ég tárast í hvert sinn sem ég geng þangað inn, sjitt sko! Og fötin eru á engu verði þannig séð, gallabuxurnar á svona 5000-6000 kall, bolirnir á 2000 og pilsin á 3000-4000... Bara verst að ég þori ekki að kaupa neitt af ótta við að þessi föt séu ekki í tísku í öðrum löndum... það tók mig nefnilega smá tíma að venjast tískunni hérna, en ég er sko á því að hún sé með þeim allra flottustu! Það eru sömu föt í þessari búð og í Cool Cat, fyrir utan að í þessari búð er aðeins kvenfatalínan og kallast hún einmitt Wonder Woman.

Perry - þarna er vel hægt að grafa upp flott íþróttaföt á ágætisverði. Keypti mér meðal annars Nike-skóna mína þarna :)

Þetta er, tjah, eitthvað hús í miðbænum. Þarna eru alltaf haldin brúðkaup á laugardögum og þá fer maður alltaf og glápir á þegar brúðhjónin koma út úr húsinu og stíga upp í limmuna sína...

Vroom&Dreesmann - ég hélt fyrst að þetta væri "frú- og dressmann", sbr. Dressmann heima á Íslandi. En það er nú aldeilis ekki, heldur er þetta bygging á mörgum hæðum með allskonar dóti. Á neðstu hæðinni er að finna bókadeildina og þar er einnig hægt að kaupa allskonar dagbækur og stílabækur og minnisbækur og blöð og skriffæri... reyndar allt saman rándýrt, en maður má nú alveg láta sig dreyma! Þar er einnig smá heimilistækjadeild. Á annarri hæð eru belti og húfur og töskur og vettlingar og treflar og skartgripir í hundraðatali, og einnig eru þar snyrtivörur og veitingasölustaður. Á þriðju hæð eru misfögur kvenmannsföt. Reyndar eitthvað hægt að finna af ágætum nærfötum þar. Á fjórðu hæð eru karlafötin og íþróttafötin. Ég hef ekki stúderað karladeildina mikið, en ef maður grefur vel er hægt að finna nothæf íþróttaföt á sæmilegu verði. Á fimmtu hæðinni er svo veitingarstaður.

Scapino - þetta er skóbúð. RISAstór skóbúð! Reyndar er hún ekki neitt fáránlega flott, en það er vel hægt að finna eitthvað þarna, og að sjálfsögðu á brilljant verði :)

Reus Shoenen - ég mæli EKKI með því að þeir sem eru kvenkyns og veikir fyrir skóm fari þangað inn!!! Þessi búð er STÚTFULL af GEGGJUÐUM skóm sem eru næstum því gefins, þeir eru svo ódýrir! Flest pörin á svona 2000 kall eða eitthvað, og þú getur fundið bæði venjulega skó þarna og svo geggjaða djammskó...

Emco - töskur töskur töskur á yndislegu verði alveg hreint!

Etos - stórt og flott apótek með risastórri og flottri snyrtivörudeild, ég gæti hreinlega búið þarna!

Zara - búðin sem ég gleymi oftast að sé til. Ég þarf samt að stúdera hana aðeins betur. Þar er hægt að fá fín föt á mellóverði.

Vodafone - þangað fer ég stundum. Oh, svo er ég svo vitlaus, ég fór þangað um daginn til að kaupa inneign í símann minn og bað um "prepaid card for my AND vodafonecard!!!" Já, ein svolítið föst í Og Vodafone nafninu!

Postkantoor - stofnun sem ég hef vanrækt allrækilega síðan ég kom hingað til Hollands... vúps!
Jæja, þannig er nú það! Og þetta er aðeins brotabrotabrot af öllum búðunum sem eru hérna! Ég bara nenni sjaldan að kíkja í allar hinar, enda finnst mér þessar langmest spennandi. Og ef þið viljið að ég kaupi eitthvað hérna úti og komi með heim í jólafríinu eða sendi ykkur (þið getið kíkt á linkana sem ég setti með búðunum), þá er bara að hafa samband...
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, október 08, 2006
laugardagur, október 07, 2006
Er ég norðlensk eller hur?
Og svei, ég sem hélt að það væru engar mállýskur á Íslandi. En það er greinilega einn stór misskilningur! Eftirfarandi samtal átti sér stað áðan á milli mín og annars stráksins sem ég er að passa. Athugið að samskonar samtal fer fram að meðaltali fjórum sinnum á dag á milli mín og strákanna.
Aron: Á hvaða síðu ertu?
Anna (ekki alveg að hlusta): Haaa...
Aron: En Anna, á hvað síðu ertu?
Anna: Ha, ég? Uh, ég er á síðu hjá steLpum sem ég þekki...
Aron: En af hverju segirðu alltaf steLpum?
Anna: Af því að ég lærði að tala svoleiðis.
Aron: Jáá... Og þú segir líka alltaf mjóLk og skiNga!
Anna: Nei, skiNKa.
Aron: Já, skiNKa.
Anna: Já.
Aron: Af hverju?
Anna: Því ég lærði að tala svoleiðis. Ég segi líka úLpa..
Aron: ÚLpa? Hvað þýðir úLpa?
Anna: Það er svona úhlba.
Aron: Jáá...
Anna: Og svo segi ég líka báNki. (banki)
Aron: BáNki? Hvað er það eiginlega?
Anna: Það er það sama og báhngi.
Aron: Jáá... og svo segirðu líka pylsa í staðinn fyrir pulsa.
Anna: Já.
Aron: En ekki ég. Ég segi pulsa í staðinn fyrir pylsa.
Já, þetta er bara svona smá tóndæmi :) Þetta vekur sem sagt mikla athygli hér á bæ, og hafa strákarnir tekið upp á því að segja alltaf mjóLk þegar þeir biðja um mjóhlg, svona svo ég skilji þá alveg örugglega... Æh, þessi börn :)
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, október 07, 2006
Flokkur: Holland
Fleiri myndir
Jæja, núna ætla ég að sýna ykkur nokkrar myndir úr herberginu mínu hérna í Hollandi og gefa ykkur um leið smá innsýn í hugarheim hollenskra arkitekta.
Myndin er tekin í gegnum svalardyrnar


Náttborðið mitt elskulega! Gaman að segja frá því, að ég set alltaf vekjaraklukkuna mína ofan í efstu skrifborðsskúffuna á kvöldin, til þess að vekja ekki alla í húsinu þegar hún hringir á morgnana...

Skrifborðið mitt. Reyndar á ég engan skrifborðsstól... hahaha. Já, það er ýmislegt sem vantar, enda leigir fólkið sem ég bý hjá húsnæðið bara í 5 mánuði því það (fólkið) er skiptinemar...

Að sjálfsögðu er sænski fáninn með í för

Hitamælirinn góði á gólfinu - sjónglöggir sjá að aðeins eru 14,3 gráður á mælinum... já, það er tekið að kólna ansi mikið í veðri!

Hluti af skónum mínum - skór í misjöfnu ástandi. Hvítu skórnir eru útskriftarskórnir mínir og notaðir þegar kíkt er í bæinn á kvöldin. Þeir voru keyptir í Bónusskóm á sínum tíma á 2000 kall eða svo, kjarakaup fyrir flotta skó! Sandalarnir eru Ecco-skór sem ég keypti í Svíþjóð á 750 sænskar krónur (7500 íslenskar), en hefðu kostað þónokkuð mikið meira heima á Íslandi. Glöggir sjá að þeir eru MIKIÐ NOTAÐIR (svona 10 klukkutíma á dag á hverjum einasta degi í allt sumar). Festingarnar sem festa böndin aftan á eru báðar brotnar, enda sparkaði ég í svona 14 hurðarstoppara á hverjum einasta vinnudegi í allt sumar... Nike-skórnir eru flunkunýjir, keyptir á 35 evrur eða rétt rúmlega 3000 íslenskar krónur (áttu að kosta 55 evrur). Þá nota ég í ræktinni og eru þeir með bestu skóm sem ég hef eignast á ævinni.
Nei, en fín teppi á gólfinu! En af hverju þarf eiginlega tvö teppi?

Jú, því að undir teppunum er nefnilega RISASTÓR gluggi!!! Reyndar er litað gler þarna einhversstaðar undir yfirglerinu svo það sést ekkert í gegn... vona ég... því það er nefnilega íbúð nágrannans sem er þarna undir glerinu! Haha. Fatta ekki alveg tilganginn með þessu. Annars væri nú gaman að geta starað inn til nágrannans, ég er nefnilega svo hnýsin! Djók.

Það er annar gluggi undir náttborðinu mínu, en undir honum er stigagangurinn á þriðju hæðinni í íbúðinni okkar. Þegar kveikt er ljós á ganginum ljómar allt upp í herberginu mínu... Ef einhver getur giskað á trúanlega skýringu þess að þessir gluggar séu í herberginu mínu má sá hinn sami kommenta hjá mér hið snarasta!

Þetta svarta er ekki djöfladýrkendabúningurinn minn, heldur gluggatjöldin sem duttu í gólfið um daginn...

Hárblásarinn sem áður var ljósið í lífi mínu hangir nú nær ónotaður á einum af tveimur nöglum í herberginu mínu. Ástæða? Jú, afskaplega þunnir veggir og ég tek enga sénsa á að vekja börnin á kvöldin...

Og þarna er svo fataskápurinn minn, sem samanstendur af einni hillu undir súð og fjórum biluðum rennihurðum sem virka bara stundum. Því hef ég tekið á það ráð að geyma bara öll fötin mín á gólfinu (ég skellti þeim nú samt inn í skáp svona fyrir myndatökuna!)...

Þarna er gluggatjaldalausi glugginn minn

Og þarna er hurðin á herberginu mínu, sko innihurðin! Já, það eru GLUGGAR á öllum innihurðunum í íbúðinni, meira að segja á báðum klósettunum og alles... Og hver sá sem veit hugsanlega skýringu á þessu gluggaæði má, eins og áður segir, kommenta hið snarasta!

Og þarna er kærastinn minn í öllu sínu veldi, en gæinn þekur heilan vegg í herberginu mínu

Bakvið rúmið mitt - hvergi ryk og drasl! (Tjah, allavega ekki á þessum klukkutíma sem myndatakan fór fram!)

Og þarna er hitt hornið, blái IKEA-pokinn er þvottakarfan mín...

Venla titta! The cleaninglady keeps me company ;) HOUSEKEEPING!!!

Ljósið í herberginu mínu - lýsir ekkert smá vel þrátt fyrir smæð sína!

Og að lokum: þessi beddun (bädda=búa um) er í boði Gothia Towers.
Ástarkveðjur, Anna van Bosch
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, október 07, 2006