Jæja, núna er fyrstu önn í skólanum lokid, peace of cake! Svo ég er í fríi til 2. febrúar og er tví búin ad tilkynna yfirmanni mínum ad hann megi misnota mig ad vild næstu tvær vikurnar (nei, ekki á tann hátt sódabrækurnar ykkar). Svo núna er ég komin í fulla vinnu og var medal annars send út í buskann í einhverja búd í dag til tess ad bjarga tilbodsvörudeildinni (sem hafdi verid vanrækt í smá tíma vegna veikinda starfsmanna) og gekk tad ljómandi vel. Alltaf gaman ad koma í adrar Netto-búdir og sjá hvernig hlutirnir ganga fyrir sig tar. Svo er tad bara vinna vinna vinna í minni búd næstu dagana.
---
Tegar ég kom aftur til Danmerkur eftir jólafríid tók ég med mér statífid fyrir hljómbordid mitt (sem ég tók med mér til Danmerkur tegar vid Peter fórum heim í sumar (30 kílóa flykki (hljómbordid alltso, ekki Peter)). Hljómbordid hafdi bara stadid á gólfinu sídan í sumar en er núna komid á gódan stad inni á skrifstofu. Núna undanfarna daga er Peter svo mikid búinn ad tala um ad hann langi til tess ad læra ad spila smá og ég hef svona hálfpartinn ýtt tví undan mér, enda verid frekar treytt og upptekin vegna prófalesturs og svo langra vinnudaga. Nema hvad, ad núna ádan kom ég heim úr vinnunni (algjörlega uppgefin) og lofadi hálfsofandi ad ég myndi kíkja á bókasafnid á föstudaginn og ná í einhverjar byrjendabækur og hefja kennslu. En Peter nennti nú ekki slíku dóli svo hann hvarf inn á skrifstofu og kom svo aftur skömmu sídar, búinn ad gúggla byrjendanótur fyrir píanó og prenta tær út. Svo byrjadi hann ad spyrja allskonar spurninga, t.d. hvad týdir tessi klessa og hvad týdir tessi klessa og hvernig veit madur hvada klessa er hvad og af hverju er gat á tessari klessu og strik undir tessari klessu en ekki hinum. Ég útskýrdi eftir bestu getu og sagdi svo ad vid myndum kíkja á tad annad kvöld, enda uppáhaldssjónvarpstátturinn minn ad byrja og svona. Allt í lagi med tad, nema ad svo hverfur Peter og svo heyri ég allt í einu "Mæja átti lítid lamb" innan úr skrifstofu. Talandi um ad redda sér!
Jújú, undir nótunum hafdi nefnilega stadid tölustafir sem sagdi hvada putti átti ad vera hvar og hvada putti átti ad ýta hvenær, haha. Og tá gat ég náttúrulega ekki bara setid og horft á sjónpvarpid svo ég fór og hóf kennslu ;) Og turfti ad rifja upp allt sem ég lærdi tegar ég var 6 ára, tví ég turfti náttúrulega ad útskýra allt frá byrjunarreit og útskýra tagnir og takta og af hverju madur veit ad C er C en ekki D og svo framvegis. Núna, tremur tímum seinna er Peter byrjadur ad spila lag fyrir 5 putta (Upp upp upp á fjall, upp á fjallsins brún) og tad er ekkert lát á áhuganum. Hann gerdi til dæmis tilraun til tess ad horfa á uppáhaldssjónvarpstáttinn sinn en entist bara í 3 mínútur tví tá turfti hann ad fara og halda áfram ad spila... Núna er Upp upp upp á fjall ordid fullkomid, mjög "mjúkt" og rennandi, og ég voda stolt, enda er hann allavega taktfastari en ég nokkurn tímann, hendurnar í réttri stödu og er mjög efnilegur byrjandi :) Hins vegar er ég búin ad hóta tví ad ef hann verdi ekki búin ad skipta um lag tegar ég kem heim úr vinnunni annad kvöld, tá kaupi ég handa honum heyrnatól...
En jæja, best ad fara og draga kallinn frá hljómbordinu, nágrannarnir verda nú ad fá smá pásu... Bestu kvedjur, Anna píanókennari
þriðjudagur, janúar 20, 2009
Madur deyr ekki rádalaus
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, janúar 20, 2009
Flokkur: Danmark
miðvikudagur, janúar 14, 2009
Próf
Á morgun er próf. Í dag er ég kærulaus og nenni ekki ad lesa meira. Ég er samt búin ad búa til trjú plön fyrir morgundaginn, og fer tad eftir vedri og vindum hvad ég ákved ad nota.
Plan A: Nota eftirfarandi setningar í gegnum allt prófid:
- Ég neita ad tjá mig.
- Spurdu Sidsel (eda Leu, eda Chrestine eda...).
- Ég er ad bída eftir lögfrædingnum mínum.
Plan B: Ef ég verd spurd um eitthvad sem ég kann ekki skil á tá segja eftirfarandi:
- Sko jú, vid ákvádum ad skrifa tetta í verkefnid, en vid skulum spjalla um tad seinna, tegar ég er búin ad spjalla um rökfrædina (sem ég er gód í).
Plan C: Ljúga prófdómarana fulla af allskonar vitleysu, gera tad af mikilli innlifun og sannfæringarkrafti. Ég er hvort sem er sú fyrsta sem fer í prófid, og hinar í hópnum verda eflaust gladar ad turfa ad reyna ad laga og útskýra allt bullid sem ég hef sagt...
Nú, eda tá bara nota plan D, sem segir ad ég viti nú ansi margt og kunni grundvallaratridin í 130 bladsídna ritgerdinni okkar (170 í uppsetningu) og ætti nú ad geta reddad mér, svo framarlega ad ég nái ad stýra prófdómurunum frá themagreiningunni... Annars gríp ég til plans A eda B.
Bestu kvedjur, Anna súkkuladirúsína
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, janúar 14, 2009
Flokkur: Danmark
sunnudagur, janúar 11, 2009
Ófarir
Í dag er ég með dásamlega fallegar hendur.
Ástæða númer eitt: Þetta byrjaði allt saman í síðustu viku þegar ég fór að finna fyrir miklum handþurrki, sem ágerðist með dögunum og enginn handáburður vann á. Í gær skellti ég mér svo í vinnuna en þá versnaði þurrkurinn um helming, hendurnar á mér urðu hrúðurlagðar og um hádegi voru hendurnar á mér orðnar svo sprungnar og aumar og með svo miklum bjúg að ég gat varla setið á kassanum lengur. Þá splæsti Nettó í handáburð handa mér (datt ekki í hug að þetta yrði svona slæmt svo ég tók ekki slíkt með sjálf) og þá varð vinnan aftur þolanleg. Ofnæmi, sagði ein sem er að vinna með mér og er að læra hjúkrun. Frostexem, segi ég. Hef oft fengið svoleiðis á litla putta vinstri handar, en aldrei á allar hendurnar! Sjitt, þetta er vont, en þó skárra í dag en í gær, þótt það virðist sífellt bætast á krókódílahúðina. Kynþokkafullt.
Ástæða númer tvö: Áramótaheitið mitt 2009 ber yfirskriftina "Tútta tvöþúsundogníu". Sem felur meðal annars í sér langar og fagurlega lakkaðar neglur ásamt fleiru. Nema hvað að fröken Anna hafði gleymt því að hún vinnur ekki neitt voðalega naglavænlega vinnu og braut 4 neglur upp í kviku á fyrsta klukkutímanum þegar hún sveiflaði 84 stykkjum af 15 kílóa mjólkurkössunum fram og aftur og aftur og fram, þrátt fyrir að vera með hanska. Þær neglur sem ekki brotnuðu upp í kviku við mjólkurtilþrifin klofnuðu þegar ég sat á kassanum seinna um daginn.
Ástæða númer þrjú: Í dag skellti ég mér á bókasafnið hérna niðri í Kastrup og náði mér í fullt af bókum um röksemdafærslu og pólitísk samskipti sem undirbúningsefni fyrir stórt próf sem ég er að fara í á fimmtudaginn. Ég nældi mér í 7 hnausþykkar bækur og skellti í ferðatöskuna mína (já, ég fór með ferðatösku því frostexemahendurnar á mér höndla ekki að halda á neinu þungu, slíkur er sársaukinn) og ætlaði svo að æða heim, þegar ég gekk framhjá hillu þar sem stóð skrifað með stórum stöfum "Áramótaheit". Ég hægði ferðina og kíkti á hilluna og sá þá að þetta voru allskonar blöð og dvd-diskar sem fjalla um hreyfingu af allskonar tagi. Ég hugsaði til áramótaheitisins góða og greip með mér einn eróbikk-disk í anda Ágústu Johnson og strunsaði svo heim. Þegar heim var komið dró ég fyrir gluggana og skellti disknum í leikjatölvuna (og átti svo í löngum rökræðum við fjarstýringuna, Peter ekki heima og ég kann ekki á svona tæknidót en tókst þó með herkjum að koma disknum í gang) og fann mér viðeigandi íþróttaföt. Svo byrjaði hasarinn. Hér á bæ er nefnilega stór og rúmgóð stofa með fullt af gólfplássi og hentar því vel til eróbikks. Það voru þó ekki liðnar nema tvær mínútur af upphituninni þegar mér tókst að dúndra vísifingri vinstri handar í loftljósið (sem brotnaði guðs blessunarlega ekki!) og skóf skinnið að hálfum puttanum. Svo byrjaði blóðið að fossa úr fingrinum. Ég, full af eldmóði vegna áramótaheitisins, hljóp fram í eldhús og náði í plástur og hélt svo æfingunum áfram. Eftir hálftíma voru æfingar dagsins búnar og ég búin að skipta tvisvar um plástur. Það fossblæddi svo í hálftíma í viðbót. Svo núna er puttinn á mér hálfskinnlaus og ljótur, í stíl við útbrotin á handarbökunum og brotnu neglurnar.
Sumum er ekki ætlað að vera fallegir...
Hafið það gott älsklingarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna hin handfagra.
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, janúar 11, 2009
Flokkur: Danmark