fimmtudagur, september 20, 2007

Loksins ný færsla

Kræst, það er aftur að koma helgi! Hvað er málið?
---

Héðan er annars allt gott að frétta. Bara rétt rúmlega þrjár vikur eftir að dönskuskólanum í bili og ég strax farin að vandræðast hvað ég á að gera allan þann frítíma sem ég fæ. Einmitt þess vegna er ég búin að biðja múttu um að kippa með sér útsaumsmyndinni minni að heiman (sem ég byrjaði á fyrir tveimur árum síðan) þegar hún, pabbi og Friðrik litli bró koma hingað eftir akkúrat viku. Svo er ég líka búin að kaupa mér saumavél á spottprís í Netto svo kannski maður leggist hreinilega í föndur. Þið hafið nú öll séð myndina af páskaunganum mínum fallega...
---

Og svo skellti mér í klippingu og litun í morgun. Það var gaman. Ég er nefnilega búin að finna mér hárgreiðslukonu sem skilur hvað ég er að plana með hárið á mér, gerir akkúrat það sem ég segi, er góð í því að klippa og er bara fjári skemmtileg og veit núorðið allt um ævisögu mína og framtíðarplön... Ekki dónalegt!
---

En vá, nú er ég að falla á tíma, þarf að fara að sofa til að geta mætt í vinnuna til þess að græða meiri peninga til þess að geta keypt mér fleiri skó... Svo nú kemur lokahnykkurinn á þetta.
---

Um seinustu helgi lágu leiðir okkar Hildar nokkurrar saman og við ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt. Úr því varð all svakalegur djammtúr í bæinn (eftir smá hlaup á lestarstöðina) þar sem slett var aldeilis úr klaufunum. Verður þó að segjast eins og er að sumar (hóst*við*hóst) voru orðnar eilítið valtar á fótunum svona undir lokin, enda kannski aðeins fengið sér í aðra tánna og jafnvel í hina líka... Reyndar vil ég meina að mitt jafnvægisskyn hafi ekki verið jafn slæmt og raun ber vitni, heldur vil ég alfarið kenna hælunum á stígvélunum mínum um, því tappinn á öðrum hælnum ákvað að detta af í dansæðinu og var sá hæll því nokkru styttri en hinn... en það vissi ég ekki fyrr en út af skemmtistaðnum var komið og tími var til þess að skipta um skó. Var þetta rassadill hið fínasta og er planið að endurtaka leikinn annað kvöld. Lúkkið tékkað áður en haldið var af stað
---

Þannig að ég sé sem sagt fram á vægast sagt fjöruga helgi. Mér tókst nefnilega óvart að bóka mig á þrjú djömm á tveimur dögum, svo augljóst er að einhverju verð ég að slaufa og hef ég nú gert upp hug minn. Planið fyrir helgina er því þetta:

Föstudagskvöld: Hitta Hildi, snurfusa okkur heima hjá mér, halda í bæinn og gera góða hluti (við erum sko með ákveðið "verkefni" í gangi, tala ekki meira um það hér...), fara heim til mín og sofa.

Laugardagur: Vakna vonandi einhvern tímann, svo þarf ég að gera ýmis erindi í bæinn, fara heim aftur, hringja í mömmu, taka mig til fyrir kvöldið og halda heim til einnar úr vinnunni þar sem við ætlum að hittast nokkrar Netto-gellur og hafa stuð. Þaðan verður svo haldið í bæinn þar sem allt verður gert vitlaust. Ekki aðeins er búið að plana óhóflega áfengisdrykkju, heldur er einnig veðmál í gangi sem best er að ræða ekki meira um hér á þessum víðlesna vef... Þess má geta að ég hafði ekkert um það að segja hvort myndi mæta eða ekki. Ef það er Netto-djamm, þá er Anna. Það verður nefnilega að hafa einhverjar sögur að segja hinu samstarfsfólkinu, sem komst ekki, næstu vikurnar, og þar kem ég víst inn í myndina... Engin Anna - engar sögur! Veit ekki hvort ég að vera upp með mér eða sármóðguð...

Sunnudagur: Vakna og laga til. Slappa af áður en vinnuvikan byrjar aftur. Ljúft :)

En nú verð ég að drífa mig, bæjó! Hilsen frá Köben ;)

mánudagur, september 10, 2007

Oh what a beautiful mooorning

... oh what a beautiful day.

Ég vaknaði klukkan 05:13 í morgun og gat ekki sofið meir vegna of mikils svefns núna um helgina. En þar sem ég og rúmið mitt erum bestu vinir lá ég samt í mestu makindum aðeins lengur og fór ekki fram úr fyrr en klukkan 06:20, tíu mínútum á eftir áætlun. Þegar ég steig niður á gólfið sá ég alveg ógeðslega stóra kónguló hlaupa eftir gólfinu, oj oj oj! Og ég sem hélt að herbergið mitt væri kóngulóarfrítt! Reyndar verður að segjast eins og er að þetta var engin venjuleg kónguló með temmilegan búk og tíu cm langar lappir, bara ef svo væri. Nei, þetta var voðalega tarantúlulegt með feitar lappir og feitan og kjötmikinn búk (samt aðeins minna en tarantúla sko, sem betur fer!). Hjartað missti úr nokkur slög og ég horfði í örvæntingu minni í kringum mig í leit að einhverju til þess að drepa helvítið. Ég tímdi að sjálfsögðu ekki skónum mínum frekar en fyrri daginn, en rakst á glas með kanelsykri uppi í gluggakistu. Ég hellti kanelsykrinum í ruslið og spreyjaði svo hárlakki í glasið svo það var u.þ.b. tveggja centímetra djúpur hárlakkspollur í því, dró djúpt að mér andann og hvolfdi glasinu yfir ógeðið. Það tók kóngulóarskrattann ekki nema mínútu að drepast en mig tíu mínútur að ná andanum. Og þá voru öll tímaplön og morgunrútínan fokin út í veður vind svo ég hitaði mér hafragraut í stresskasti og borðaði í snarhasti.

Eftir að hafa sporðrennt grautnum (án kanelsykursins sem lá náðsamlegast í ruslinu) leit ég á klukkuna og fannst ég hafa nokkuð góðan tíma þrátt fyrir uppákomu morgunins. Svo leit ég í spegilinn og sá bara klessu. Sjitt, linsurnar! Svo ég greip linsuboxið og skellti linsunum í mig. Það fór þó ekki betur en svo hægri linsan datt á gólfið og fannst ekki aftur þrátt fyrir dágóða leit, svo ég þurfti að grafa ansi djúpt inn í alltoffulla snyrtivöruskápinn minn til þess að finna annað par. Sem ég fann og skellti í. En svo var vinstri linsan voða mikið að stríða mér og ég alveg að falla á tíma svo ég skellti bara nýrri í það auga líka. Og þá var klukkan 07:00.

Nei öss, ég hef alveg böns af tíma, best að skella sér fram í eldhús og "smyrja nesti" (sem sagt skella fjórum sneiðum af osti í tilbúnum sneiðum ofan á fjórar þurrar brauðsneiðar og fylla vatnsflöskuna) og fara svo inn í herbergi og snurfusa sig smá. Um leið og ég gekk aftur inn í herbergið mitt klukkan 07:07 hringdi síminn minn.

# Yfirmaðurinn (hress eins og alltaf): Góðan daginn Anna!
# Anna (voða hress á móti): Nei góðan daginn!
# Yfirmaðurinn: Hvar ertu?
# Anna: Ég? Ég er nú bara heima sko...
# Yfirmaðurinn (glettinn): Núú, og hafðirðu ekkert hugsað þér að mæta í vinnuna eða?
# Anna: Já en Tommy minn, ég á ekki að mæta fyrr en klukkan átta svo það er algjör óþarfi að örvænta.
# Yfirmaðurinn (hissa): ÁTTA? Nei, það stendur á vaktaplaninu að þú eigir að mæta klukkan sjö!
# Anna (voða róleg): Neinei, ég dobbúltékkaði þetta á föstudaginn. Nema náttúrulega að þú hafir breytt tímunum mínum um helgina þegar ég var ekki í vinnunni...
# Yfirmaðurinn: Bíddu, ég ætla að hlaupa og tékka á þessu. (Kemur eftir smástund). Nooh, ég leit óvart á síðustu viku í staðinn fyrir þessa... Var ég nokkuð að vekja þig?
# Anna: Neinei, ég vaknaði fyrir löngu síðan og er búin að drepa kónguló og hvaðeina síðan þá. En nú hef ég ekki tíma til þess að tala við þig lengur ef þú vilt að ég mæti í vinnuna klukkan átta...

Og svo mætti ég í vinnuna klukkan átta.

Og svo fór ég í dönskuskólann eftir vinnu. Gekk það ljómandi eins og alltaf, nema að mér brást örlítið bogalistin í einni æfingunni sem kallast "udskiftningsövelser" eða "substitutional drills" og ég nenni ekki að eyða tíma í að útskýra hér. En já, það allavega klikkaði eitthvað hjá mér í einni setningunni og þá stökk kennarinn upp úr stólnum, setti báðar hendur í superman-stellingu upp í loft og hrópaði svo í glumdi "JESS VIÐ NÁÐUM ÍSLENDINGNUM!!!!". Og svo klappaði bekkurinn. Söguleg stund ;)

En já, best að fara að sofa, ætla að skella mér í bæinn á morgun fyrir vinnu (sem hefst klukkan 14) og kaupa mér skordýraeitur og tæki sem lokkar skordýr að og drepur þau svo með rafmagnsstraumi. Þá þarf ég allavega ekki að eyða hárspreyinu mínu í vitleysu.

Góða nótt kæru vinir! Bestu kveðjur frá Köpenhamn, Anna Björk kóngulóabani.

sunnudagur, september 09, 2007

Afsakið hlé

Ég skrifaði svo leiðinlega færslu að ég get ekki gert ykkur það að birta hana.

Blogga aftur seinna.

Yfir og út.

Hilsen, Anna Köbenskvísa

laugardagur, september 01, 2007

Copenhagen city

Jú, alltaf nóg að gerast hér í Danmörku! Morguninn byrjaði þó ekki alveg nógu vel. Ég átti að mæta í vinnu klukkan átta, og var því mætt út á lestarstöðina klukkan 7:24, svona eins og vera ber. En nei, vegna tæknilegra bilana GENGU ENGAR S-LESTIR Í BORGINNI! (Ekki "ganga" í bókstaflegri merkingu þó...). Bara alls engar! Overhovedet! Sjitt, og engar nothæfar strætóstoppistöðvar í margra kílómetra radíus. Og það var ekki búið að manna S-lestarstrætóana sem eiga að ganga þegar S-lestirnar bila, svo ég hringdi í yfirmanninn og sagðist vera föst á lestarstöðinni minni og kæmi sennilega frekar mikið of seint í vinnuna, þar sem ég þyrfti að ganga langa leið til þess að finna næstu Metro-lestarstöð. Yfirmaðurinn sagði mér að hringja bara á taxa í boði Netto, sem ég og gerði. "Góðan daginn, þetta er leigubílastöðin blablabla, þér eruð númer 13 í röðinni". Eftir þrjár mínútur var ég ennþá númer þrettán í röðinni og inneignin mín að klárast svo ég prófaði að hringja á aðra stöð. Sama sagan þar. Og svo var inneignin mín búin. Meira sjitt. En ég dó þó ekki ráðalaus og skundaði inn í næsta bakarí og spurði hvort ég mætti nokkuð aðeins nota símann þeirra gegn greiðslu. Ha jújú, 5 kall takk! Svo ég hringdi aftur í yfirmanninn og sagðist þurfa að skunda á næstu metrostöð því það væri engin leið að ná í taxa og svo var ég líka nýbúin að spjalla við einn mann sem var búinn að bíða í 20 mínútur eftir sínum taxa og taxinn hvergi nærri sjáanlegur... Svo ég arkaði af stað. Eftir heilmikið labb (hálftímaleið) og nestistopp í 7-eleven (kommon, hefði ég vitað af þessu labbi hefði ég borðað þrefaldan skammt af morgunmat í staðinn fyrir bara tvöfaldan!) tókst mér að koma bara hálftíma of seint í vinnuna. Þá hafði brauðið komið alltof seint og allar hinar vörurnar alltof snemma og búðin stöppuð af kúnnum (allir nýbúnir að fá útborgað) og allt í stressi. Æði! Sjá frétt um lestarvandamálið hér.
---

En nóg um það. Hér koma nokkrar myndir frá því Lilja var hér í seinustu viku.
Lilja og ég að versla, hojhoj! (Ég veit, ég veit, vitlaus notkun á sögninni "að versla"...).

Í sól og sumaryl á Strikinu :)

Á sunnudeginum var farið í Tívolí! Þar voru öll tækin prófuð nema tvö (sem var ákveðið að slaufa sökum ógleði og almennrar tækjaþreytu) og dagurinn var hinn allraskemmtilegasti. Eftir tívolíferðina var að sjálfsögðu haldið í Kristjaníu að fá sér að borða, svona eins og vera ber :)

Lilja og Snævar
---

En já, mikið óskaplega var gaman að fá hana Lilju mína í heimsókn! Lilja, komdu fljótt aftur :)
---

Núnú, á mánudeginum brunaði ég beint úr vinnunni og út á flugvöll að sækja Yukinu frá Japan. Þar voru miklir fagnaðarfundir og gaman gaman :) Og svo var komið að því að koma flykkinu (ferðatöskunni hennar Yukinu sem var bæði kingsize og í heljarinnar yfirvigt) inn í bæinn. Eftir að hafa dröslað ferlíkinu upp í lest með hálp sterkra manna sem glottu óþarflega mikið að óförum okkar við að reyna að koma töskunni upp tröppurnar í lestina, komumst við loksins í bæinn. Þar tók við heljarinnar svaðilför yfir götur og ofan í polla á leiðinni á gistiheimilið sem var 500 metra frá Aðalbrautarstöðinni. Eftir check-inn og lyftuferð í fyndnustu lyftu í heimi var komið að mér að láta ljós mitt skína og reyna á leiðsögumannahæfileika mína. Fyrst var skundað á Ráðhústorgið, og þá var sumum orðið ansi kalt því þeir föttuðu ekki að það væri kalt í Evrópu (hósthóst) svo ég fórnaði mér og lánaði Yukinu úlpuna mína og stökk svo inn í næstu búð og keypti eitt stykki flíspeysu. Og svo héldum við túrnum áfram.
Það var þó ekki svo kalt að það væri hægt að sleppa því að fá sér heita vöfflu með ís... Eftir ísinn fórum við í Kristjaníu (fjórða skiptið mitt á fimm dögum, geri aðrir betur) sem var með því svalasta sem Yukina hefur séð, hehe. Eftir túrinn í Kristjaníu bauð ég Yukinu út að borða á Jensens böfhouse, þar sem við fengum okkur fáránlega góða og fáránlega stóra hamborgara (minn var kjúklingaborgari, algjört æði!). Yfir matnum fattaði Yukina að hún átti afmæli (20 ára) og við spurðum því þjóninn hvort við fengjum ekki ókeypis eftirrétt, þrátt fyrir að hafa ekki náð að torga borgurunum ;) Eftir heilmikinn rannsóknarleiðangur kom þjónninn svo til baka og tilkynnti okkur leiður að það væri því miður ekkert slíkt í boði, en við gætum svo sem fengið þennan fína fána á borðið hjá okkur í tilefni dagsins, hahaha :P


Yukina með fánann fína.

Eftir matinn var klukkan orðin rúmlega tíu og ég fylgdi Yukinu aftur á gistiheimilið og fór svo heim.

Daginn eftir hitti ég Yukinu á gistiheimilinu klukkan tíu. Við komum töskuskrímslinu í farangurshólf á Aðalbrautarstöðinni og héldum svo í smá skoðunarferð um Nyhavn.
Yukina og ég á Nyhavn, þarna fyrir aftan okkur sést glitta í Óperuhúsið alveg til vinstri.

Og svo þurftum við að drífa okkur til baka og koma okkur út á flugvöll, því Yukina átti flug til GAUTABORGAR klukkan tvö. Já, stelpan er að fara í háskóla þar, flottasta borgin sko :P Og svo var komið að kveðjustund, snökt. En hver veit nema að maður skelli sér bara til Gautaborgar í heimsókn? ;)
---

En já, best að fara og horfa á sjónvarpið!
Ástarkveðjur, Anna hin þreytta sem þarf að vinna á morgun (sunnudegi!).