Ég kann ekki dönsku.
Sjitt.
Ég var búin að skrifa langa færslu um dönsku og danskan framburð. Fyrir þá sem ekki vita er danskan erfiðasta evrópska tungumálið þegar það kemur að framburði. Ég var líka búið að skrifa niður ýmsar staðreyndir sem kennarinn sagði. Ég var líka búin að skrifa góða klausu um dönskukennslu á Íslandi. En svo spurði ég sjálfa mig "til hvers?". Og fann ekki neitt svar og strokaði færsluna út. Mamma og pabbi, ég segi ykkur þetta bara á skype :-)
Allavega, dönskuskólinn var æði. Reyndar sjöþúsund sinnum erfiðari en ég var búin að lýsa og það er 67% fall á fyrsta þrepinu... En ég gæti samt ekki verið þakklátari fyrir að fá tækifæri til þess að fara í þennan dönskuskóla og læra dönsku. En þetta verður púl og mun kosta blóð, svita og tár, en ég er samt svo hamingjusöm. Það er nefnilega ekki hægt að læra almennilega dönsku bara með því að fara á vinnumarkaðinn og taka þátt í félagslífi. Það er bara ekki þannig. Danska er svo miklu miklu meira en bara það sem maður heyrir. Oh, ég er svo glöð.
En ég hef svo sem ekki mikið meira að segja í dag, þarf að senda nokkra tölvupósta og svona og skella mér svo í rúmið. Ástarkveðjur, Anna sem verður bráðum snillingur í dönsku
mánudagur, janúar 29, 2007
Jeg hedder Jens
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, janúar 29, 2007
Flokkur: Danmark
laugardagur, janúar 27, 2007
Svo ástarheitó, er ekki nein í Mývatnssveitó
...og heyrðu, mig vantar kaupakonó
kanski hef ég vonó
ef þú heldur heim með mér, þá heila drápu kveð ég þér...
Góðan daginn herrar mínir og frúr!
Í gær fékk ég sms þar sem mér var sagt að mæta út á lestarstöð eftir 20 mínútur því ég væri að fara á djammið.
Kommon, það tekur minnst 20 mínútur bara í það að velja föt! En ég reddaði þessu þó og málaði mig bara í lestinni, hahaha. Kemur.
Allavega, ég skemmti mér konunglega í gær. Á leiðinni í bæinn var mikið sport að láta mig tala dönsku og mér var sagt að ég ætti bara að tala dönsku... Hósthóst. Ég sem missi niður orðaforða og málfræði í ensku eftir einn bjór, reynið þá að ímynda ykkur hvernig danskan hjá mér verður!!! Þannig að ég tók þá ákvörðun að þegja bara, haha. Samt þurfti ég að spjalla um eitthvert málefni við einhvern gaurinn og gat ekki með nokkrum hætti tjáð mig á dönsku (fj***ans bjór) og skipti yfir á ensku. Þá hrópaði einhver "Anna, hvorfor snak' du ik' dansk?". (Hvorfor snakker du ikke dansk?). Ég gargaði á móti á minni allra bestu Kaupmannahafnardönsku "Det e' jeg ik' go' til!!!" (Det er jeg ikke god til). Huhumm, akkúrat þessi setning virðist þó vera sú eina sem ég get sagt án þess að hafa minnsta vott af hreim, og þess vegna öskruðu allir í einum kór á móti "Jo!!!" (Jú). Svo sprungu allir úr hlátri. Ég talaði ekki meiri dönsku í bili.
Allavega. Ég þarf greinilega aðeins að dempa niður hollensku áhrifin og koma mér meira inn í danska lífið. T.d. þarf ég að breyta dansstílnum (þessi hollenski er nú samt flottur, hoj hoj!) og ég var skömmuð fyrir að vera flutt til Danmerkur og vera samt að drekka hollenskan Heineken bjór... Huhuhumm. Hvaða bjórtegundir eru eiginlega danskar?
En hey, ég átti alltaf eftir að gefa upp danskt heimilisfang og símanúmer á þessum opinbera vef! Værsgo!
Anna Björk Haraldsdóttir
Søndervigvej 47
2720 Vanløse
Danmark
Símanúmer: (0045) 60 64 30 62
Svo nú geta allir sem vettlingi geta valdið sent mér skemmtileg bréf og sms. Jájájá.
En best að fara og þvo þvott eða gera eitthvað af viti. Danskar kveðjur, Anna Islænding
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, janúar 27, 2007
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, janúar 25, 2007
Hertu upp huga þinn, hnýttu allt í hnút
... Leggur ekkert inn, tekur bara út...
Huhumm, sem er ansi satt þar sem ég á engan pening til að leggja inn, obbosí. Reyndar á ég heldur engan pening til þess að taka út... Sjúddirallirei!
Kóngulóafærslan gerði greinilega stormandi lukku meðal lesenda! ;) Frá því er þó skemmst að segja að ég er ekki ennþá búin að ryksuga baðherbergið. Geri það á morgun. Hósthóst.
Allavega, í dag gerði ég góða ferð í bæinn.
Lestirnar gengu eins og klukkur og ég í hinu besta skapi. Ég fór í strætó og klúðraði ekki neinu, og á ég hrós skilið fyrir það.
Ég fór semsagt sem leið lá í DanskeBank, því ég þarf jú auðvitað að eiga danskan bankareikning. Ég þurfti aðeins að bíða í 8 mínútur eftir afgreiðslu og spígsporaði létt að afgreiðsluborðinu þegar númerið mitt var kallað upp.
Frá því er skemmst að segja að létta lundin smitaði heldur betur út frá sér og við afgreiðsludaman svoleiðis reyttum af okkur brandarana hægri vinstri. Ég ákvað þó að tala ensku í þetta skiptið, því ég tel vera ansi mikilvægt að skilja um hvað málið snýst þegar það snertir grafalvarleg mál á borð við bankareikninga. Þegar líða tók á afgreiðsluna, þá spurði þessa bráðskemmtilega afgreiðsludama af hverju ég talaði ekki dönsku fyrst ég gæti lesið hana reiprennandi? Ég skipti þá yfir á dönsku, svona til þess að leyfa henni að heyra hvað það hefði í för með sér, því framburðurinn er kannski helst til alltof útlendingslegur. En gellan blés á allt slíkt kjaftæði og vildi endilega að við töluðum dönsku. Jájá, ég massaði það að sjálfsögðu upp og konan hló og skríkti yfir því hvað ég var skemmtileg.
Svo nú á ég tvo danska bankareikninga (mun gáfulegra en að eiga bara einn) og glæsilegan heimabanka. Reyndar fæ ég ekki aðgang að heimabankanum fyrr en í næstu viku. Sömuleiðis mun hraðbankakortið mitt (debetkort) koma í næstu viku. Tveimur dögum eftir að ég fæ hraðbankakortið fæ ég síðan PIN-númerið að kortinu. Uhhh, já. Humm.
Þegar bankabrasinu var lokið gekk ég 15 metra og kom við í KISS og borgaði skólagjaldið fyrir þrep eitt. Ég mun síðan mæta galvösk í skólann á mánudaginn, íha!
Annars er harla fátt að frétta, ég er ennþá atvinnulaus, en er að vinna í málinu og hef engar áhyggjur af þessu. Ég hef nefnilega aldrei lent í aðstæðum þar sem málin reddast ekki!
En best að skella sér í rúmið, á morgun byrjar helgin og við sjáum til hvort ég hangi bara heima og horfi á sjónvarpið eða hvort einhver drösli manni með á djammið. Finnst hið fyrra þó mun líklegra, en hið seinna er ekki útilokað...
Knus og kram og sov godt, Anna Bjørk
PS. Nú fer að styttast í úrslit úr kommentakeppni desembermánaðar og kommentakeppni ársins 2006... Klapp fyrir því!
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, janúar 25, 2007
Flokkur: Danmark
þriðjudagur, janúar 23, 2007
Hjólin á strætó snúast hring-hring-hring... Eða allavega stundum...
Sælt veri fólkið!
Í dag fór ég í afskaplega athyglisverða lestarferð. Já, ég ætlaði að vera gífurlega framtakssöm og skella mér niður í KISS (dönskuskólann) og borga eitthvað drasl.
Ég skellti mér út á lestarstöð og hoppaði upp í lest (mjög einfalt, því allar lestir frá þessu spori fara til Hovedbanegården og ekki séns á að villast). Frá því er skemmst að segja að ég var 50 mínútur að komast á Hovedbanegården í stað 15 mínútna!!! Því vegna tæknilegra vandamála fyrr um morguninn var allt lestarkerfið í hreinu hassi og við þurftum að stoppa billjón sinnum á leiðinni á milli þess sem við dóluðum áfram á lúsarhraða. Æði!
Ég ætlaði þó ekki út á Hovedbanegården heldur á Nørreport sem er tveimur stöðvum eftir Hovedbanegården. En hvað gerist?
"Lestin keyrir ekki áfram í þetta skiptið út af tæknilegu villunum, vinsamlegast yfirgefið lestina".
Svo allir þurftu að yfirgefa lestina.
Svo ég stökk út og hoppaði upp í næstu lest sem átti leið á Nørreport. Ferðin gekk vel framan af, en seinni hlutinn var ekki jafn skemmtilegur þar sem tæknilegar villur ætluðu allt um koll að keyra og við þurftum að stoppa tvisvar sinnum á leiðinni. Þannig að ég var 10 mínútur á leiðinni í stað 4 mínútna.
En loksins komst ég á Nørreport og ætlaði að skunda að næstu strætóstöð, því ég ætlaði ekki að leggja það á mig að ganga alla þessa leið að KISS, þetta er nefnilega dágóður spölur og það var ískalt úti.
Svo ég finn strætóstöðina, og hvað gerist? STRÆTÓBÍLSTJÓRAR FARNIR Í VERKFALL!!!
Ég nennti ekki að standa í þessari vitleysu lengur, fór aftur á Nørreport-lestarstöðina og fór heim. Sem betur betur fer gekk sú ferð eins og í lygasögu og engar tæknilegar villur sem trufluðu eitt eða neitt.
Hugsa að ég verði samt að fara aftur á morgun eða hinn því ég þarf virkilega að borga þessar 500 DKK! Vona að þetta gangi betur fyrir sig þá...
Allavega. Ég er ekki komin hingað til Danmerkur til þess eins að sitja heima með tærnar upp í loftið, svo ég hafði samband við eina Danann sem ég þekki í Kaupmannahöfn og við skelltum okkur á pitsustað og áttum afskaplega skemmtilegt kvöld saman. Ég gerði síðan heiðarlega tilraun þess að sýna honum gula sjónvarpið mitt, en sjá, gula sjónvarpið mitt vildi ekki vera gult og var ég því sökuð um lygi á háu stigi! Æ-æ. Allavega, nú hefur Dani þessi gert það að verkefni sínu að koma mér meira út, fyrst ég er farin að ímynda mér gul sjónvörp og allskonar... Huhumm. En ég lofa, sjónvarpið er virkilega gult, þegar ég er ein! Ég lofa!
Annars er allt frábært að frétta, eldhúsið er ennþá skínandi hreint og kóngulærnar hafa ekki látið sjá sig meira. Ég á samt eftir að ryksuga, geri það á morgun! Sagði hænan og lagðist á bakið...
Góða nótt, kæru lesendur! Og endilega látið vita ef þið vitið um einhverja Íslendinga í Kaupmannahöfn á mínum aldri (fyrir þá sem ekki vita er ég 19 ára, fædd 1987), svona svo ég fari ekki að sjá bleika fíla í vaskinum...
Bestu kveðjur, Anna gella Danabúi
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, janúar 23, 2007
Flokkur: Danmark
mánudagur, janúar 22, 2007
Hrollur! Ojjj....
Örvæntið eigi ástarpungarnir mínir! Ég er ekki alveg horfin úr sjónum ykkar... Bloggletin hefur bara verið einstaklega mikil undanfarið, það er svo margt að gerast í sjónvarpinu, þið skiljið...
Já, ég er með 32 stöðvar (eða bara 31 eftir að ég kastaði óvart MTV út, snøft), og alltaf hægt að finna eitthvað til að horfa á. Í sérstöku uppáhaldi þessa dagana er:
- Beverly Hills 90210, baby!!! Fyrsta sería eða svo.
- Skadestuen, öðru nafni ER eða Bráðavaktin, bæði nýlegir þættir og eldgamlir þættir. En af hverju getur mér ekki með nokkru móti fundist George Clooney kynþokkafullur?
- Extreme hjemmeservice, öðru nafni Extreme Makeover Home-edition. Sýnt oft á dag, jájá.
- DisneyChannel eins og hún leggur sig!!! Nema teiknimyndirnar, þær eru leiðinlegar. En leiknu þættirnir, maður minn sko, hahaha!
- Allar dásamlegu bíómyndirnar!
- Allir bandarísku þættirnir! Sér í lagi America's Next Topmodel, sýnt tvisvar á dag ef þannig liggur við. Jájá.
Svo þið sjáið að ég hef afskaplega lítinn tíma afgangs til bloggskrifa.
Allavega. Lífið gengur sinn vanagang, ég er ennþá atvinnulaus (kannski vegna þess að ég byrjaði fyrst í dag að leggja metnað minn og áhuga í leitina að draumadjobbinu) og ég hef ekki ennþá týnst alvarlega í þessari gígantísku borg. Fór að vísu út á vitlausri lestarstöð, en reddaði mér með minni gífurlegu rötunarhæfni.
Hef þó ekki ennþá þorað upp í strætó, en þetta kemur allt með kalda vatninu. Jájájá.
Ég er búin að þrífa eldhúsið og komast að því að sennilega bý ég nú með bestu greyjum. Að vísu hef ég bara hitt annan manninn sem er fertugur og afskaplega kammó og rólegur, en ég hef ekki séð tangur né tetur af hinum. Hann er þó þýskur og ætla ég að æfa þýskuna mína óspart á honum ef ég sé hann einhvern tímann. Greyið hann. Hann er þó alltaf í eldhúsinu að elda, en þar sem ég á ekki oft leið inn í eldhús, tjah, þá verður hann bara að vera áfram ókunnugi þýski gaurinn enn um sinn.
Allavega, ég tók mig til í gær og eyddi fjórum klukkutímum í eldhúsþrifin, takk fyrir pent, og er ekki búin enn! Komst að því í leiðinni að sambýlingarnir mínir bera sennilega ekki ábyrgð á sóðaskapnum, heldur 4 stykki af Kínverjum sem leigðu hér herbergi áður en ég kom. Og þar sem fólk er alltaf að flytja inn og út úr þessu húsi hefur enginn nennt að þrífa eldhúsið almennilega. En sambýlingarnir eru greinilega hæstánægðir með þessa langþráðu ræstingu og annar þeirra gerði sér meira að segja lítið fyrir og tók baðherbergið í gegn, meira að segja án þess að láta mig vita, svona svo ég yrði ekki ein um púlið. Yndælt, ég get ekki annað sagt.
Hins vegar tel ég það deginum ljósara að eitthvað hefur gleymst að ryksuga inni á baði, því að í gær þegar ég í mínu almesta sakleysi ætlaði að setjast á klósettið, þá sá ég þá stærstu kónguló sem ég hef augum litið sitja á heljarinnar kóngulóarvef á vinstri hlið klósettisins!
Ég er ekkert að grínast, gott fólk, þetta var heljarinnar flykki með margra sentímetra langar lappir! Klukkan var að nálgast tólf á miðnætti og ég kunni ekki við að kalla út slökkviliðið, svo ég tók málin í mínar hendur. Í fyrstu ákvað ég að fórna öðrum sandalanum mínum, en eftir nokkur högg, sem höfðu ekkert að segja annað en að pirra kóngulóna, var ég orðin svo skelkuð og viti mínu fjær (yfirleitt er ég nú ekki hrædd við kóngulær, ég meina halló! Ég bjó í Hollandi, paradís kóngulóa...) að ég tímdi ekki skónum mínum í frekari tilraunir til blóðúthellinga og greip því stóran brúsa af brúnsápu sem var þarna á gólfinu. (Til hvers notar maður annars brúnsápu?). Með honum reyndi ég svo að pota í kóngulóardrusluna sem vildi ekki drepast og skreið áfram þótt hún væri aðeins með þrjár lappir eftir. Ekki dugaði að kremja hana með brúsanum, því hún einfaldlega drapst ekki.
Þarna stóð ég lengi vel með lífið í annarri lúkunni og brúnsápuna í hinni og reyndi brjóta fleiri lappir af skrímslinu. Að lokum voru allar lappirnar farnar, en baráttan var ekki enn unnin, því kóngulóin var ekki ennþá dauð.
Þá fór ég að berja flykkið af öllum lífs og sálar kröftum og hef sennilega vakið hálft hverfið í leiðinni. Á tímabili var ég orðin svo hrædd um að fleiri svona kóngulær væru á baðherberginu og myndu nú aldeilis koma og hjálpa lífseigu kóngulónni að ég var næstum stokkin öskrandi fram á gang.
En hið góða vinnur alltaf hið illa og að lokum tókst mér að kála ógeðinu (afsakið orðbragðið, ó þið viðkvæmu sálir). Síðan stóð ég þarna lengi vel, titrandi af bræði og í mikilli geðshræringu og gat hvorki hreyft legg né lið um langa stund. En með gífurlega góðri jógaöndunartækni og góðum hugsunum um fjallmyndarlega Danagaura tókst mér loks að taka ró mína aftur og settist á klósettið, alveg gjörsamlega í spreng, enda tóku þessi átök þónokkra stund.
Ég var þó ekki fyrr staðin upp aftur þegar ég sá míníkónguló hlaupa á augnarhraða á stalli við vegginn. Ég sýndi enga miskunn, hóf sápubrúsann á loft og bamm bamm bamm! Þurfti sennilega um 9 högg og hef að öllum líkindum vakið afganginn af hverfinu í leiðinni. Fussumsvei.
Og það versta við þetta allt saman er að ég gleymdi að ryksuga baðherbergið (kóngulærnar og kóngulóarvefina) í dag!
Býst ég því við öllu því versta og hafa ógeðin ábyggilega fjöldfaldað sér á örskotsstundu til þess eins að ná sér niðri á mér...
Hvers á ég eiginilega að gjalda?
Ég minni á kommentakerfið, það er allt í lagi að skilja eftir sig spor. Og allar hetjusögur af ykkur í hlutverki kóngulóabana eru kærkomnar!
Ástarkveðjur frá Önnu Spiderman
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, janúar 22, 2007
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, janúar 18, 2007
NEI!!!
HVERS Á ÉG EIGINLEGA AÐ GJALDA?!?
Ég var í æði mínu að þurrka af sjónvarpinu og ákvað að þurrka takkana líka, og ég henti óvart MTV út!!!
Ég held að lífið sé búið. Sniff.
Ég tek við samúðarkveðjum í kommentum, blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Sorgarkveðjur, Anna sem mun aldrei brosa framar
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, janúar 18, 2007
Flokkur: Danmark
miðvikudagur, janúar 17, 2007
Skal vi snakke dansk?
Jæja liebe Leute,
Enn gengur allt vel í Danaveldi. Pabbi fór til Íslands í morgun og er ég því ein eftir. Ég ákvað að reyna að nota daginn í eitthvað skynsamlegt og hringdi því í KISS, dönskuskólann sem ég ætla í. Símatíminn var frá 11-13, en ég komst ekki að fyrr en rétt fyrir klukkan 13, mörgum krónum fátækari því ég þurfti að hringja svo oft og bíða og bíða.
Allavega, gellan sem ég talaði við í KISS spurði hvort ég gæti ekki komið í viðtal klukkan 14:30 í Nørrebrogade þar sem skólinn er. Ég bara "Eh, jújú" og stökk snarlega fram úr rúminu og hljóp út á lestarstöðina, meiköpplaus og með úfið hár og með gleraugun á nefinu. Ég get ekki ímyndað mér að ég hafi litið vel út, og stingur það í stúf við öll mín plön sem í stuttu máli sagt ganga út á að vera algjör gella við allar hugsanlegar kringumstæður.
En já, þarna hljóp ég og tók smá panikkskast með lestarkortið á lofti, hvurnig í ósköpunum átti ég eiginlega að koma mér á Nørrebrogade! En Anna snillingur reddar öllu og eftir allnokkur hlaup á brautarpöllunum á skiptistöðinni komst ég að lokum á leiðarenda. Eða já, "leiðarenda". Þegar ég steig út úr lestinni blasti við mér Nørrebrogade 230, og ég þurfti að fara í Nørrebrogade 32! Og þar sem ég hef nákvæmlega ekkert kynnt mér strætómál á svæðinu þorði ég ekki fyrir mitt litla líf að stökkva upp í næsta strætó, svo ég tók Íslendinginn á þetta og strunsaði sem mest ég mátti í u.þ.b. hálftíma. Já, þetta er engin smá gata, gott fólk!
En já, svo ég segi ykkur aðeins frá þessum skóla mínum, þá er þetta besti dönskuskólinn í Danmörku!!! Hvorki meira né minna! Hann er sá eini í Danmörku sem stenst ákveðna gæðastaðla og í honum er besta meðaleinkunnin í landinu. Í honum lærir maður námsefni fyrir 6 mánuði á aðeins 6 vikum og þetta er vinna vinna vinna. Ég þarf að mæta í skólann þrisvar sinnum í viku í þrjá og hálfan tíma í senn. Fyrir hvern einasta skóladag þarf ég að eyða minnst 3-4 klukkustundum í heimalærdóm.
Dönskuskólar í Danmörku skiptast í 6 þrep. Í öllum dönskuskólum er svo tekið viðtal við nemendurna og þeir settir á það þrep sem hæfir þeirra dönskugrunni hverju sinni. En ekki í KISS. Í KISS skiptir engu máli þótt þú sért búin að læra dönsku á Íslandi eða sért búinn að búa í þrjú ár í Danmörku. Í KISS eru nefnilega ALLIR settir á fyrsta þrepið þar sem byrjað er alveg frá grunni, og er það gert til þess að ná framburðinum alveg fullkomlega rétt. Enda gengur skólinn út á það að fólki náum fullkomnum tökum á dönskum framburði og tali eins og innfæddur og geti tekið þátt í öllum athöfnum daglegs lífs í Danmörku. Skilyrði þess að komast í skólann er að vera búinn með a.m.k. 12 ár í skóla (þannig að það er ekki nóg að vera bara búinn með grunnskóla) og maður verður að tala reiprennandi ensku. Ef maður missir tvisvar sinnum af tíma í þrepi þarf maður að taka allt þrepið aftur. Engin miskunn, sama hvaða afsökun maður hefur. Þetta er gert til þess að allir séu á sama róli svo allir geti fengið 100% kennslu út úr öllum þrepunum. Ef maður lærir ekki heima, þá er það sama og að hafa ekki mætt. Í hverjum einasta tíma er tékkað á því hvort nemendurnir hafi lært heima og er það gert með allskonar prófum og spurningum. Og jafnvel þótt maður mæti 100% og læri alltaf heima og nái prófinu í lok hvers þreps getur vel verið að maður þurfi að taka allt þrepið aftur, einfaldlega vegna þess að kennararnir vilja að maður hefði náð betri tökum á framburðinum eða einhverjum málfræðiatriðum
Það tekur 9 mánuði til eitt ár að fara í gegnum þennan skóla, og eftir það útskrifast maður með "studieprøve" (ef maður nær lokaprófinu) og fær skírteini upp á það að hafa lokið skólanum og þá eru manni allir vegir færir í hvaða háskóla sem er því studieprøven er viðurkenning upp á mjööög góða dönskukunnáttu.
Spennandi, ekki satt? :D Fyrsti skóladagurinn minn er 29. janúar, ég get ekki beðið!!!
Ég skráði mig í kvöldkúrsa frá 17:15 til 20:45 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Sem þýðir að ég verð að finna mér vinnu sem er á morgnana. Sem er fínt, því ég myndi ALDREI nenna að vinna á kvöldin, oj bara.
Allavega, þá ætla ég að skella mér í rúmið núna, ég þarf að brasa allskonar á morgun og betra að vera nokkurn veginn með fulde fem!
Góða nótt älsklingarnir mínir, Anna Bjørk (já dönskukallinn skrifaði nafnið mitt svona í dag!).
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, janúar 17, 2007
Flokkur: Danmark
þriðjudagur, janúar 16, 2007
Undskyld!
Goddag mine kære venner!
Ég er komin með lögheimili í Danmörku. Jahérnahér. Ég skellti mér á manntalsskrifstofuna í morgun og fékk mér danska kennitölu og þurfti þar af leiðandi að flytja lögheimilið mitt. Þetta tók aðeins 10 mínútur, og ég þurfti ekki að sanna það fyrir nokkrum manni með nokkrum hætti að ég virkilega byggi á Søndervigvej 47 og að ég væri hingað komin til þess að fá mér vinnu og þvíumlíkt. Nei, það eina sem gerðist var að vegabréfið mitt var ljósritað og ég þurfti að skrifa niður núverandi heimilisfang (Søndervigvej) og vúla! Málið var klárt og ég fékk kennitölu og heimilislækni upp í hendurnar. Jájá.
Annars hef ég það ósköp fínt, er farin að fatta lestarkerfið en þarf að læra á strætósamgöngur. Ég er búin að snakka dönsku villt og galið og skil flest það sem við mig er sagt, og sjá, flestir þykjast skilja mig!
Verkefni næstu daga eru þónokkur, ég ætla að skrá mig í dönskuskóla á morgun og helst kaupa danskt símanúmer líka (mælir einhver með einhverju símakerfi?). Síðan þarf ég að finna mér vinnu hið snarasta sem passar við tímatöflu dönskuskólans, er ekki of langt í burtu, krefst ekki of mikillar dönskukunnáttu, býður ekki upp á yfirvinnu af neinu tagi, er á skikkanlegum tíma sólarhrings og þarf starfsfólk eiginlega akkúrat núna. Að öðru leiti hef ég engar kröfur.
Ég bý á Søndervigvej í Vanløse sem er eiginlega í Rødovre. Hins vegar býður það upp á ýmis vandamál, þar sem ég hef lesið á öðrum bloggsíðum að það taki fólk allt upp undir ár að læra að bera fram orðið Rødovre! Æ-æ. En allavega, fyrstu kynni af götunni minni eru ljómandi fín. Þetta er mjög róleg íbúðargata með rólegu fjölskyldufólki og gömlum konum. Allt er mjög gamaldags og er gatan og gangstéttin mjög hlykkjótt og óslétt, ákaflega mikill smábæjarbragur á þessu. Ég er u.þ.b. 5 mínútur að ganga á næstu lestarstöð sem er rétt handan við horn götunnar. Þar má einnig finna hárgreiðslustofu, lágvöruverslunina Netto, uuunaðslegt bakarí (æ-æ, þurfti endilega að planta því þarna!), pitsustað og ýmislegt fleira sem ég hef ekki gefið mér tíma í að taka eftir.
Pabbi yfirgefur mig síðan á morgun, og þá tekur alvara lífsins við, með öðrum orðum: allasvaðalega window-shopping ferð! Ég gekk örlítið eftir Strikinu í dag, og ÚTSÖLUR eru í fullum gangi!!! Ó mæ gad! En ég ætla að halda aftur af mér fram að næsta launaseðli eða svo, nema þá að ég velji götuhornin... Neinei, ég hef fulla trú á að þetta reddist með einum hætti eða öðrum.
En jæja, best að halda vinnuflakkinu á internetinu áfram! Hilsen, Anna den danske
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, janúar 16, 2007
Flokkur: Danmark
mánudagur, janúar 15, 2007
Danmörk Baby!
Kæru hálsar og aðrir líkamspartar!
Hér sit ég í fyrirheitna landinu mínu í geggjað flotna herberginu mínu sem er með þrjúþúsund skápum. Ég er ekki að ýkja mikið með skápafjöldann. Allavega er ég með risastóran fataskáp sem er með fullt af hillum og herðatréshengiplássi og þremur risastórum skúffum. Svo er ég með einhverskonar tvöfalda hillusamstæðu með hillum og glerskápum og stórum lokuðum skápum. Yfir rúminu mínu eru fjögur stór hilluhólf inn í vegginn, hlið við hlið. Á einum stað er svo skápur/geymsla sem er tæplega einn fermetri í ummál og um 1,8 metri á hæð. Þar inni er hægt að geyma allt sem hugurinn girnist, auk þess sem þar er slá til þess að hengja herðatré á.
Rúmið mitt er 1,2 metri á breidd, sem er mun stærra en ég hafði vonast til. Ég er líka með heilan vegg þakinn stórum speglaflísum og sjónvarp sem er svolítið gengið til ára sinna. Allavega er það eitthvað bilað, því það er allt gult í því. Það er nokkuð skondið að sjá gula fréttamenn og Marge Simpson með gult hár... En í þessu fína fína sjónvarpi er samt fullt af sjónvarpsstöðum og allskonar fínerí. Sjónvarpið stendur á glerborði, og fyrir framan það er þessi fíni fíni leðurstóll. Ekki amalegt líf, onei. Að sjálfsögðu er ég með skrifborð með tveimur dásamlegum skúffum, og fyrir framan skrifborðið er korktafla sem er rúmlega fermetri að stærð! Dásamlegt.
Auk þess eru lampar og ljós út um allt og mjög auðvelt að gera kósí stemningu. Auk þess fylgir þvottakarfa, skrifborðsstóll, ruslakarfa og vatnsofn, sem þýðir það að ég má þurrka föt á honum! Já, þetta er ekki amalegt, það get ég sagt ykkur.
Reyndar er einn galli á gjöf Njarðar, og hann er sá að bæði eldhúsið og baðherbergið eru svo skítug, að mér (sem er ekki snyrtipinni) hefði ofboðið fyrir 9 vikum síðan. Ég hugsa að ég boði til húsfundar så snart som muligt með gaurunum tveimur sem búa í herbergjum hér einhversstaðar í húsinu og hafa aðgang að sama eldhúsi og baðherbergi og ég. Ég hef ekki hitt þá enn, en ég vona að þeir séu vænstu grey og vilji ekki fyrir nokkurn mun hafa það á samviskunni að ég bókstaflega deyi úr hungri því ég geti ekki hugsað mér að opna ísskápinn, hvað þá að nota "hreina" leirtauið. Ef þeir láta ekki til segjast, þá mun ég grínlaust flytja út eins fljótt og auðið er.
Og ég hef aðgang að þvottaaðstöðu, en má þó helst ekki þvo eina og eina flík í einu. Það eyðir svo miklu vatni. Held ég verði í alvöru talað að kaupa mér fleiri föt svo ég geti sett í allavega hálfa vél í hvert sinn...
En vegna þess að ég svaf bara í korter í nótt og 5 tíma nóttina þar áður, þá ætla ég að fara í rúmið núna, klukkan hálf ellefu að staðartíma, en hálf tíu á íslenskum tíma. Ég blogga aftur á morgun, ég er nefnilega með þetta yndislega internet í herberginu mínu. Myndir af herberginu koma síðar þegar ég er búin að ganga frá öllu dótinu.
Hej hej! Anna í Kaupinhavn
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, janúar 15, 2007
Flokkur: Danmark
föstudagur, janúar 12, 2007
Hvem kan sige nej til en engel med nylonstrømper på
Ó mæ gad! Ég var svo upptekin við að gera ekki neitt í dag, að ég gleymdi að horfa á Neighbours í hádeginu!!! Það er eins gott að ég muni eftir að horfa á það klukkan 17:53, annars verð ég eyðilögð manneskja.
Annars var ég að fá einkunnirnar mínar úr fjarnáminu í dag, 8 í spænsku403, 8 í sögu303 og 10 í frönsku103... Og er ég því með stúdentspróf upp á 176 einingar. Jahérnahér. En ég ætla þó ekki í meira fjarnám, ég ætla nefnilega að eyða öllum mínum lífs- og sálarkröftum í að læra 100% rétta dönsku og þá þýðir ekki að vera að dunda sér við eitthvað annað. Onei.
Síðan var ég afar hamingjusöm í gærkvöldi þegar ég komst að því að Hotel Gothia Towers (sem ég var að vinna á í sumar) hafði sent mér meðmæli! Ég hafði ekki hugmynd um það fyrr en mamma minntist á það, ég sem hélt að þetta blað væri bara staðfesting á að ég hefði unnið þarna. En sjá, þarna er þessu frábæru meðmæli sem ættu að geta þeytt mér áfram í hvaða ræstingarstarf sem er... Huhumm. Það þýðir víst ekki að vera of vandlátur fyrst um sinn, svo ég býst við að lenda í ræstingarstörfum í Danmörku... Áhugasamir geta reynt að stauta sig í gegnum þetta:
"Annas arbetsuppgift har varit att städa hotellrum vilket hon gjort med stor tillfredställelse. När Anna jobbade här på Hotel Gothia Towers var hon flexibel och arbetsvillig och vi önskar henne lycka till på framtida arbetsplatser. Självklart är Anna välkommen tillbaka hit til Hotel Gothia Towers."
Með öðrum orðum: Þetta eru ekki bara meðmæli, heldur er mér velkomið að vinna þarna aftur seinna. Öss. Svo er spurning: Geta Danir lesið sænsku? Allavega, í bréfinu er líka tekið fram að Gothia Towers sé stærsta hótel Norðurlandanna (fjögurra stjörnu hótel með 704 herbergjum), og hver vill ekki fá þrífingarmanneskju frá slíku hóteli til liðs við sig?
Annars er ég búin að gera ýmislegt í dag. Ég er allavega búin að troða fullt af drasli í töskur, en þó er slatti eftir sem ekki er hægt að pakka fyrr en á síðustu stundu. Dæs.
Nei. ég er svo stressuð yfir að missa af Nágrönnum sem byrja eftir 21 mínútu að ég get ekki bloggað meira. Vänliga hälsningar, Anna den danske
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, janúar 12, 2007
Flokkur: Ísland
fimmtudagur, janúar 11, 2007
Rödgröd med flöde
Ég var að lesa grein um það af hverju það reynist fólki svona erfitt að ná tökum á dönskum framburði. Ég ætla að lausþýða smá klausu:
"[...] flestir útlendingar þekkja þessar aðstæður: Þeir hlusta mjög einbeittir og vandlega á eitt orð, mörgum sinnum, og segja svo nákvæmlega það sem þeir heyrðu. Samt er það eitthvað öðruvísi sem þeir segja og þeir skilja ekki af hverju. Þeir sögðu jú akkúrat það sem þeir heyrðu!".
Ég mæli með því að allir sæmilega dönskulesandi lesi þessa grein, hún er alveg þrælgóð og svei mér þá, ég lít á dönskunám öðrum augum en ég gerði áður en ég rakst á þessa grein. Þá er ég ekki að tala um viðhorfbreytingar, því ég hef alltaf elskað dönsku, heldur hvers vegna það er erfiðara en raun ber vitni að ná dönskum framburði rétt og hvað ég þarf í rauninni að laga og bæta hjá mér.
Annars er ég búin að ákveða í hvaða dönskuskóla ég ætla, og það er ekki nema einn sem mér finnst koma til greina. Meira um það síðar.
Adiós, Anna Haraldsdottir
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, janúar 11, 2007
Flokkur: Ísland
miðvikudagur, janúar 10, 2007
Fullt af allskonar gagnlausum upplýsingum
Hey, ég sá svolítið sniðugt á blogginu hennar Mörtu sem ég ætla að stela! Nei, ég ætla ekki að stela Mörtu sjálfri, heldur bara smá svona spurningalistum... Og ég ætla að taka mér það bessaleyfi að snara þeim yfir á íslensku. Reyndar er enski orðaforðinn minn ekkert alltaf að brillera, og þar sem ég nenni ekki að hlaupa og ná í orðabók, þá ætla ég bara að giska á það sem ég veit ekki hvað þýðir. Ljómandi!
Árið 2006...
(Þú)
- Breyttistu? Nja, mér finnst það ekki...
- Breyttist fatastíllinn? Ég er að vinna í því, þetta kemur allt saman með hækkandi sól og rýmri fjárhag!
- Mest niðurdrepandi tími ársins: Eftir á að líta var það skólinn! Allavega miðað við allt hitt
(Ástin)
- Varðstu ástfangin/n? Uss jájá, oft og mörgum sinnum!
- Hver var sumarskotið þitt? Híhí, segi ekki :P
(Árstíðir)
- Uppáhaldsárstíðin: Sumarið í Svíþjóð!
- Versta árstíðin: Tjah, skólinn?
- Afmælið: Besta afmæli í heimi!!! Eyddi deginum í paradís á jörð!
(Lokaspurningar)
- Náðir markmiðum þínum: Ég náði allavega mörgum af þeim, jahú!
- Varst handtekinn: Nei, pff! Ég hefði samt getað verið handtekin, hehe. Eða kannski ekki. Ég fékk bara lánaðan einn stól og tvo svarta ruslapoka... Hefði tæpast verið sett í steininn fyrir það svona miðað við aðstæður, bwahaha! Og nei, ég segi ekkert meira um þetta mál...
- Kysstir strák/stelpu: Já uss, er maður ekki alltaf að kyssa stráka! Og kyssa stelpur, huhumm, telst þumalputtagerfikossinn okkar Lieku með?
- Varst skotin í einhverjum: Já, svoleiðis upp og niður
- Var sagt upp: Nei, iss, það gerir enginn svoleiðis!
- Fékkst slæmar einkunnir: Já, haha, fékk eina fimmu! En náði samt að semídúxa svo það skiptir ekki miklu máli :P
- Fékkst þér "myspace": Nei, ég veit eiginlega ekki hvað það er... Ég veit að það eru einhverjar síður, en hvað maður gerir við þær? Tjah...
- Þagðir yfir leyndarmáli: Já
- Sagðir frá leyndarmáli: Bara þeim sem ég mátti segja frá
- Gerðir eitthvað sem þú sérð mikið eftir: Nei uss, þetta var geggjað ár! :P
Krossalisti fyrir 2006:
Árið 2006:
(>) Sveik ég loforð (hálfur kross, því ég man allavega ekki eftir því, en það hlýtur samt að hafa gerst)
(x) Eignaðist nýjan besta vin (já, en það þýðir ekki að hinir bestu vinir mínir séu ekki bestu vinir mínir lengur!)
( ) Varð ég ástfangin (Huhumm, alls ekki ágengar spurningar, já neinei... No comment! Hehe).
( ) Hætti að vera ástfangin (Nei uss, hættir maður því einhvern tímann?
(>) Laug ég (Hálfur kross, allavega ekki mikið)
( ) Grét ég yfir brotnu hjarta (Hojhoj, hefur fólk gaman af því að hnýsast í einkalíf manns eða hvað? No comment, hnje!)
( ) Olli ég einhverjum vonbrigðum (Veit ekki)
( ) Bjó ég yfir leyndarmáli (Neinei, ég hef engu að leyna, hahaha)
( ) Þóttist ég vera hamingjusöm (Ég þurfti sko ekki að þykjast neitt!)
( ) Kyssti ég regnið (Nei, en ég bölvaði því allhressilega!)
( ) Svaf ég undir stjörnunum (Nei oj, ég er sko EKKI útivistarmanneskja! Og þó, þegar ég hugsa um það, kannski svaf ég undir stjörnunum... fyrir utan það að það voru engar stjörnur... humm)
(>) Stóð ég við áramótaheitin mín (Hálfur kross, já nokkur)
(>) Gleymdi ég áramótaheitunum mínum (Hálfur kross, svona þegar það hentaði...)
( ) Hitti ég einhvern sem breytti lífi mínu (Allavega ekki á einhvern afgerandi hátt sko)
( ) Hitti ég einhverja af fyrirmyndum mínum (Nei, en ég fékk mér allavega nokkrar nýjar fyrirmyndir og kastaði mörgum gömlum... Juu minn eini!)
( ) Breytti ég sýn minni á lífið (Neinei)
(>) Sat ég heima allan daginn og gerði ekki neitt (Bara suma daga þegar ég var þreytt)
( ) Þóttist ég vera veik (Nei, enginn tími til þess að vera veikur nú til dags!)
(x) Fór ég til útlanda (Já, oft oft og mörgum sinnum)
( ) Gafst ég upp á einhverju mikilvægu (Nei pff, maður gerir ekki svoleiðis)
( ) Týndi ég einhverjum dýrum hlut (Nei alls ekki)
( ) Lærði ég eitthvað nýtt um sjálfa mig (Nje, það held ég varla)
( ) Prófaði ég eitthvað sem mér líkar ekki vel við venjulega, en líkaði svo vel við það (Neinei, það held ég ekki)
(x) Breytti ég lífi mínu (Já uss, ég flutti til útlanda!!!)
( ) Fann ég út hverjir mínu raunverulegu vinir eru (Neinei, ekkert slíkt drama)
(x) Hitti ég frábært fólk (Ójá, ójá, ójá, ójá! Alveg helling!)
(x) Var ég vakandi þar til sólin kom upp (Já, miklu oftar en einu sinni og tvisvar!!!)
( ) Fitnaði ég yfir sumartímann (Neinei, það var bara um haustið sko)
(>) Grét ég yfir fáránlegum hlutum (Hálfur kross, telst sjónvarpið með?)
(x) Djammaði ég oftar en fimm sinnum (Uhhh já!!!)
(>) Var ég aldrei heima um helgar (Hálfur kross, sumar helgar var ég einhverjum þvælingi út og suður!)
( ) Lenti ég í umferðaróhappi (Neinei, ekekrt slíkt)
(x) Vingaðist ég við manneskju sem ég hélt ég myndi aldrei vingast við (Já, ætli það ekki bara!)
(>) Átti ég vini sem fjarlægðust mig (Hálfur kross, veit ekki, maður náttúrulega flutti til útlanda og svona)
(x) Fékk ég háan farsímareikning (Ái já!!! Upp á 15.000 kall eða svo... ojoj! En það var bara því ég flutti til útlanda, bjakk!)
( ) Eyddi ég mestum hluta peninga minna í mat (Nei, ég tími sko ekki að eyða mínum peningum í mat!!!)
(x) Fór ég á ströndina (Já, oft og mörgum sinnum)
(x) Sá ég fræga manneskju (Ó mæ gad, já! Fullt fullt af þeim! Ronan Keating, Carolu, Sven Ingvars og svo skrilljón til viðbótar!!!)
(x) Varð ég veik (Nei, ég hvorki tíma né nennu til þess að vera veik)
(x) Líkaði mér vel við fleiri en fimm manneskjur samtímis (Huh, já!!!)
(x) Varð ég nánari einhverjum (Jájá, svoleiðis hægri vinstri)
En jæja, best að fara og horfa á Nikolaj og Julie! Adiós! Anna den danske
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, janúar 10, 2007
Flokkur: Ísland
And when the sun goes down we are having fun
...'Cause there will be a party going on...
In the heat of the night we are having a fiesta, We dance until siesta when the sun comes alive...
Já, gott fólk, hljómsveitin Aqua (gerði m.a. lagið Barbiegirl frægt) á mikið upp á pallborðið hjá mér þessa dagana. Ég veit, ég veit. Ég hlustaði á þetta þegar ég var 10 ára, en hey, allt danskt er gott, sama þótt það sé sungið á ensku.
Hrafnhildur, þú hlýtur að hafa farið á Aqua-gelgjuna í gamla daga eins og ég! ;)
Allavega, það styttist í Danmerkurferð. 4 dagar þar til ég fer suður og 5 dagar þar til ég fer út! Hjálpi okkur allir heilagir.
Annars var ég að uppgötva það að ég á eftir að birta úrslit úr kommentakeppni desembermánaðar, sem og kommentakeppni ársins! Sú/sá sem vann keppni ársins má eiga von á óvæntum glaðningi frá Danmörku þegar ég hef fengið launaseðil og svona, hvenær svo sem það verður. Hins vegar ætla ég ekki að birta þessi úrslit fyrr en ég er komin út, því við erum ekki með ókeypis niðurhalskvóta hér í sveitinni og því ansi hæpið að eyða mörgum prósentum í að skoða gamlar færslur og telja kommentin. En þetta kemur allt með kalda vatninu, jájá.
Talandi um kalda vatnið.
Hvorfor hedder kalde vandet kalde vandet? Fordi noget skal man kalde vandet!
Nei, þessi færsla var öll í ruglinu.
Hafið það gott, älsklingarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna Fiesta
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, janúar 10, 2007
Flokkur: Ísland
laugardagur, janúar 06, 2007
Stígum fastar á fjöl, spörum ei vorn skó
Níu dagar gott fólk, níu dagar! Og átta þar til ég fer suður...
Mig grunar þó sterklega að ég verði tæp á tíma með þetta alltsaman. Allavega á ég eftir að pakka mörgum tugum kílóa í töskur, skrifa ferilskrána mína, horfa á 10 þætti af Nikolaj og Julie, klára uppáhalds dönsku skáldsöguna mína (á dönsku að sjálfsögðu), reikna út fjárhaginn og vita hve skynsamlega ég þarf að eyða mínum peningum, senda nokkra tölvupósta, klára þrjár Rauðar ástarsögur, lesa eina þykka bók um reynslusögu konu sem lifði af þjóðarmorðin í Rúganda, klára upprifjun á dönsku óreglulegu sögnunum, lesa heila danska málfræðibók og skerpa á helstu atriðunum, laga til í herberginu mínu og ganga frá dóti...
Og þá er nú besti tíminn til þess að setjast niður og blogga! Jájá. Þetta reddast.
Hinsvegar hefst formlegt aðhald akkúrat núna. Ég borðaði víst aaaðeins of mikið af glassúrsnúðum í dag, og hafði ég hugsað mér að ná þeim af mér aftur ekki seinna en í kvöld. Held ég verði að dilla mér ansi mikið við Britney Spears ef það á að takast...
Best að fara og leggja sig. Adiós! Sykursukkkveðjur, Anna hin fatalausa sem á bara eina peysu og einar buxur.
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, janúar 06, 2007
Flokkur: Ísland
föstudagur, janúar 05, 2007
Så længe skuden kan gå, så længe hjertet kan slå
Tími til kominn að skutla inn einni færslu.
Ég fór inn á Akureyri í dag og gerði ýmsa nytsamlega hluti. Ég fór m.a. í sjónmælingu og er nú með sjónskekkju á báðum augun og eitthvað flókið á hægra auganu. Það er ekkert skrítið þótt jólaljósin hafi öll runnið saman fyrir augunum á mér! Síðan verð ég að minnast eina ferðina enn á það hvað ég dýrka konurnar í Geisla á Glerártorgi mikið. Ég fæ ALLTAF góða þjónustu þar ... Mæli tvímælalaust með Geisla ;)
Síðan hitti ég hana Elínu mína, í fyrsti skipti í 7 mánuði eða svo! Jahérnahér :D Ég náði þó bara að stoppa stutt, enda þurfti ég að mæta á aðra staði og láta einhverja lækna pota í mig. Doh.
Síðan eru rándýru Ecc0-sandalarnir mínir aftur orðnir nothæfir, jei! Ég sparkaði nefnilega í svo marga hurðastoppara í vinnunni í sumar, að festingarnar aftan á báðum skónum brotnuðu ... Vúps! En ég skellti þessu í viðgerð í dag, jájá.
Annars er harla fátt í fréttum. Friðrik litli bró er hinsvegar 8 ára í dag og í tilefni að því verður hér stóreflis barnaafmæli á morgun... Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að þá fæ ég heimabakaða ekta súkkulaðiköku, en slíkt hef ég ekki fengið í 7 mánuði!.
En best að fara og beygja danskar sagnir! Við hittumst heil, khlh! Anna Haraldsdottir
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, janúar 05, 2007
Flokkur: Ísland
þriðjudagur, janúar 02, 2007
København - PAS PÅ!!!
Jæja, flugmiðinn er keyptur! Ég flýg til Kaupmannahafnar frá Keflavík þann 15. janúar klukkan 7:15. Jíha!
Það er líka búið að bóka miðana hans pabba, sem ætlar að fljúga með mér út og passa að ég fái ekki of mikið panikkskast í flughöfninni. Hann ætlar sem sagt að vera 2 daga með mér í Kaupmannahöfn, sem er nú aldeilis ágætt því ég kann ekki sjitt á hvernig maður borgar í lestarnar og hvernig maður reddar sér leigubíl á Kastrup. En pabbi er nokkuð sjóaður í þessu öllu saman, og auk þess fær hann ferðina tæknilega séð frítt! Því sjáið til, ég er með svo mikla yfirvigt, að það kostar jafnmikið að borga miða fram og til baka fyrir pabba og það kostar fyrir mig að borga yfirvigtina eina og sér. Þannig að með því að taka hann með fæ ég auka 28 kíló, sem er akkúrat yfirvigtin sem ég hafði hugsað mér að taka með. Og þar sem hvert kíló af yfirvigt kostar um 1.000 ISK, þá er þetta einfalt reikningsdæmi, því flugið hans kostar um það bil 27.640 krónur. Plús það að ég fæ ókeypis burðarmann. Jahú!

Við pabbi í Kaupmannahöfn í sumar
Já, undirbúningur er hafinn af fullum krafti. Ég er vissulega örlítið taugaveikluð yfir þeirri staðreynd að ég get ekki sótt um vinnu fyrr en ég er komin út, og hef ég því setið sem fastast fyrir framan tölvuskjáinn í allan dag og kynnt mér hvernig maður skrifar danskar ferilskrár og umsóknarbréf. Auk þess kann ég núna að fara í atvinnuviðtal, og það er nú ekki lítið mál skal ég ykkur segja! Maður má t.d. ekki fá sér einn sjúss áður til þess að minnka stressið, því það gæti fundist á lytkinni. Ó boj. Og síðan er ég náttúrulega útlendingur, og hef satt best að segja ekki hugmynd um á hvaða stigi danskan mín er. Miðað við aðra Íslendinga er danskan mín á hæsta stigi. Miðað við Dani er hún að sjálfsögðu á allt öðru stigi. Ráða Danir útlendinga til vinnu?
Eins er ég byrjuð að pakka, og er þegar komin með hálfa ferðatösku. Já, nú er gaman að pakka, því samtals má ég hafa með mér 28+28 kíló, eða 56 kíló! Reyndar þarf pabbi kannski að hafa eitthvað smá dót líka, en iss...
Síðan er ég að sjálfsögðu í fullum gangi í að æfa dönskusnakkeríið! Ég á mörg djúp og grafalvarleg samtöl við sjálfa mig dag hvern um veðrið og sæta stráka. Þarf maður að kunna eitthvað meira?
Fyrir þá sem eitthvað vit hafa á Kaupmannahöfn, þá mun ég búa í Rødovre. Þaðan tekur 15 mínútur fyrir mig að fara í miðbæinn, en til þess þarf ég að taka bæði S-tog og Metro. Ég veit fátt um húsakynni mín, annað en að ég bý á fyrstu hæð í húsi hjá kalli sem er vel menntaður og hefur breytt fyrstu hæðinni í húsinu sínu í nokkur herbergi sem hann leigir síðan út. Herbergið sem ég verð í er 12 fermetrar og búið húsgögnum og ég hef að sjálfsögðu aðgang að eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi ásamt stað til þess að geyma hjól. Rétt fyrir utan húsið er garður sem tengist öðrum garði með litlu vatni og er þetta tilvalið fyrir þá sem vilja fara út að skokka.
Einnig er að ýmsu öðru að huga. Ég hugsa að ég kasti bunka af fötum í mömmu sem þarf aðeins að gera við (fötin alltså, ekki mömmu, og að sjálfsögðu mun ég biðja móður mína undurblítt um þennan greiða í stað þess að heimta líkt og setningin gæti gefið til kynna), og síðan á ég leið inn á Akureyri á föstudaginn að vesenast hingað og þangað í ýmsu sem gera þarf áður en ég fer af landi brott.
Síðan hef ég sökkt mér vel og vandlega í Kaupmannahafnarbókina mína til þess að læra sem mest um sögu svæðisins og Nikolaj og Julie eru góðir vinir mínir þessa dagana. Eins les ég danskar skáldsögur af miklum móð og skrifa langa pistla fyrir sjálfa mig á dönsku.
Ég verð allavega ekki illa undirbúin þegar allt kemur til alls.
Danmark, pas på, I'M ON MY WAY!!!
Venlig hilsen, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, janúar 02, 2007
Flokkur: Ísland