fimmtudagur, mars 27, 2008

Gratur og gnistran tanna

TILKYNNING!

Siminn minn frabæri, fallegi og fimm ara gamli er biladur. Sem tydir ad:

- eg fæ ekki smsin sem mer eru send fyrr en um tad bil halfum solarhring seinna
- ef tid hringid og eg svara ekki (vegna tess ad eg er i vinnunni eda heyri ekki i simanum) ta ekki buast vid ad eg hringi fyrr en eftir halfan solarhring, tvi siminn minn er stilltur tannig ad i stadinn fyrir ad sja "one missed call" a skjanum, ta fæ eg alltaf sms sem segir "12 34 56 78 hringdi klukkan 17:15" eda eitthvad alika. Og tar sem ad eg fæ ekki smsin fyrr en halfum solarhring sidar, ta get eg natturlega ekki sed fyrr en ta ad tid hafid hringt...

Ætla bradum ad kaupa mer nyjan sima. Draumurinn er ad eignast sima med myndavel! Tangad til verdid til annad hvort ad sina mer tolinmædi eda senda mer e-mail...

Verd ad tjota!

Bestu kvedjur, Anna simalina

laugardagur, mars 22, 2008

Botninn er suður í Borgarfirði

Ný færsla, ég endurtek, NÝ FÆRSLA!!! Já, ég veit ekki alveg hvað hefur hlaupið í mig núna, kannski af því að karlinn ákvað að stinga af í fimm klukkutíma eða svo og ég veit ekkert hvað ég á af mér að gera. Ég er líka inneignarlaus og því úr öllu sambandi við umheiminn, og ég sem ætlaði að hringja í nokkra vel valda aðila og fá djammslúðursögur gærkvöldsins beint í æð, en nei, það verður að bíða betri tíma.

Já, margt að gerast og margt búið að gerast. Undanfarinn mánuð er ég búin að fara í 517 matarboð og 648 sinnum út að borða. Dýragarður, sædýrasafn, sleep-over sinnum 27, djamm, vorhreingerning, versla, þvo þvott, baka, vinna, ólsen-ólsen og allskonar bras voru líka á dagskránni núna seinustu vikur. Alltaf nóg að gera :)

Núna er ég í páskafríi og ó þú ljúfa líf! Það var að sjálfsögðu villt páskadjamm á fimmtudaginn (fyrradag) þar sem sumir (já eða hreinlega allir) fengu sér allhressilega í báðar tærnar og fór gærdagurinn því að langmestu leiti í þynnku hjá öllum sem að djamminu komu. En ég reif mig þó upp á rassgatinu og lagaði til og bakaði köku og bauð svo Hildi Evu til mín í X-factor gláp, júhú :) Þetta er orðið ægilega spennandi og ég veit hreinlega ekki hvað ég geri ef Martin vinnur þetta ekki, sennilega leggst ég í þunglyndi og mun aldrei sjá sólarglætu í lífi mínu aftur. Já, hér koma nokkrir linkar á hann, ég mæli með að þið hækkið allduglega í græjunum! (Og hafið það í huga að hann er bara 15 ára!!!).

- Hérna syngur hann Queen-smellinn Somebody to love. Þessi frammistaða hans hefur vakið heimsathygli og ekki að ástæðulausu! http://www.youtube.com/watch?v=qrnfMyOIJ2c

- Hérna syngur hann Kiss From a Rose http://www.youtube.com/watch?v=C84WFzBMugQ

- Og þetta söng hann í gærkvöldi, What Goes Around með Justin Timberlake, mammamía! http://www.youtube.com/watch?v=9QKhff0yge8&feature=related

En jæja, ég nenni ekki að blogga meira, ég þarf nefnilega að skella mér útí búð í snjókomunni. Minn ágæti kærasti var nefnilega rétt í þessu að hringja og biðja mig um að fara í SuperBrugsen og kaupa meira skiiir og múslí... Ég hrærði nefnilega skyr handa okkur núna í vikunni og vakti það mikla lukku.

Anna: Og núna er ég búin að hræra þetta, þetta er svona eiginlega íslensk jógúrt, og værsgo.
Peter: Já þetta lítur vel út.
Anna: Já, og núna gerirðu bara eins og ég og setur mjólk út á.
Peter: Nei ég ætla ekki að fá mér mjólk. MMMMM þetta bragðast vel elskan!
Anna: Já, en hérna er mjólkin, maður setur hana alltaf út á líka.
Peter: Nei þetta er geggjað svona. Hey, eigum við nokkuð múslí?
Anna: MÚSLÍ???
Peter: Já, af því að það eru 11 grömm af próteini í hverjum 100 grömmum af þessari jógúrt og með smá múslíi væri þetta fullkomið fyrir mig sem matur fyrir ræktina!
Anna: Jamen min kære skat, maður borðar þetta ekki með múslíi!
Peter: Jújú, þetta er geggjað gott. Já nú veit ég hvað við eigum að setja á innkaupalistann: SKUJR!!!
Anna: BWAHAHAHAHA þetta heitir ekki skujr!!!
Peter: Jú víst, það stóð utan á dollunni!
Anna: Haha, já en á íslensku segir maður "skir" því y segir i en ekki uj eins og á dönsku.
Peter: Núúú, skjííír!
Anna: Nei, skir!
Peter: Skiiir!

Þannig að núna ætla ég að strunsa útí búð og kaupa skiiir og múslí.

Hagið ykkur vel! Bestu kveðjur, Anna Lauritz

sunnudagur, mars 02, 2008

Men snälla Pippi!

Jæja góðir hálsar, ný færsla stútfull af engum fréttum!

Ég vil byrja á því að þakka Elísu fyrir að hafa heimtað nýtt blogg, ég var farin að halda að enginn saknaði mín.

Eina fréttin sem ég hef að færa í dag er að ég er hér með orðin opinber meðlimur facebook. Já, ég læt alltaf undan hópþrýstingi, og það er augljóst mál að myspace er ekki jafn kúl og facebook.

En svo við komum okkur að kjarna málsins þá:

a) megið þið endilega búa ykkur til facebook ef þið eigið ekki svoleiðis nú þegar og adda mér inn hjá ykkur
b) skulum við það hafa það á hreinu að ég fatta ekkert hvað þetta er og út á hvað þetta dót gengur. Allt í einu veit tölvan hverjir eru vinir mínir og hverja ég þekki og svo er fólk alltaf að segja hvernig maður þekkir hvort annað (sé ekki alveg tilganginn í fljótu bragði?) og svo hef ég ekki glóru um hvernig maður talar við fólk þarna, ef maður á þá að gera svoleiðis. Í stuttu máli sagt þá finnst mér gaman að taka persónuleikaprófin en hitt draslið fatta ég ekki.

Fleira var það ekki að sinni. Hafið það gott! Ástarkveðjur, Anna Bókarfés