miðvikudagur, desember 31, 2008

Annáll 2008

Jæja, þá er árið brátt á enda og því kominn tími á hinn árlega annál. Einhvern veginn finnst mér að ég hafi frekar fátt að segja, annað en Peter Peter Peter, en við skulum sjá til hvort ég geti ekki grafið eitthvað meira upp.

# Í janúar 2008 vorum við Peter farin að tala um, að það væri nú kannski ekki svo galið ef ég myndi pakka niður í ferðatösku og hálfpartinn flytja til hans. Okkur fannst fjarlægðin á milli Vanlöse og Kastrup alveg óhugnaleg, og ákváðum við að hafa kerfið þannig að ég væri slatta af dögum hjá honum og nokkra hjá mér, slatta af dögum hjá honum og nokkra hjá mér og svo framvegis. Í lok mánaðarins kastaði ég svo drasli í tösku og arkaði heim til hans í litlu sætu 40 fermetra íbúðina hans, þar sem við vorum fram á sumar.

# Í febrúar kom Ingi minn svo í stutta heimsókn, í hálfan sólarhring eða svo, og var svo veðurtepptur í 26 klukkutíma á Kastrup-flugvelli. Fátt annað fréttnæmt gerðist þann mánuð, ég var bara að vinna og rólegheit.

# Í mars gerðist ekkert markvert, fór samt oft út að borða með Peter mínum og allskonar dúllerí.

# Í apríl keyptum við Peter okkur þvottavél í litlu litlu íbúðina okkar. Sú þvottavél hefur verið mikið notuð alla tíð síðan, enda vitum við ekkert leiðinlegra en þvottakjallara... Eitthvað var farið á skemmtistaði borgarinnar þennan mánuð.

# Í maí fórum við Peter í helgarferð til Gautaborgar. Sú ferð var algjör snilld, og erum við ennþá að vitna í hana, því mikið af einkahúmor varð til í þeirri ferð. Við gistum á uppáhaldshótelinu mínu, Hotel Gothia Towers þar sem ég var að vinna sumarið 2006.

# Í byrjun júní var frekar heitt og ómögulegt að sofa. Eftir miðjan júní varð svo skítkalt aftur. Hann Ingi minn kom aftur í heimsókn, vúhú! Við sóttum líka um nýja íbúð í þessum mánuði. Peter var búinn að búa í 2 ár í litlu íbúðinni og myndi því lenda ofarlega á forgangslista. Það voru allavega ekki neinar ýkjur að við myndum lenda ofarlega á forgangslista, því 3 dögum eftir að við fengum umsóknina okkar staðfesta, þá fengum við tilboð um íbúð. Allajafna er um 2 ára biðlisti eftir íbúðarstærðinni sem við sóttum um (sóttum um 3 herbergja, ef maður sækir um 2 herbergja íbúð er 7 ára biðlisti! Peter þurfti að bíða í 2 ár eftir litlu íbúðinni, enda er biðlistinn ca. 2 ár þar). Til allrar lukku voru nefnilega tvö pör búin að skoða íbúðina á undan okkur og bæði sagt nei (annað parið því þeim fannst svalirnar ekki nógu stórar og hitt parið því þeim fannst eldhúsinnréttingin ekki nógu nýleg). Svo við nutum góðs af og skelltum okkur á íbúðina, enda stór (86 fermetrar), björt og rúmgóð. Í lok júní fékk ég að vita að mig vantaði einn þýskuáfanga og háskólaumsóknirnar mínar því ógildar. Ég tók þó til þess ráðs að hafa samband við Versló í snarhasti, smjaðraði pínu og sagði frá glæsilegri tíu-sögu minni í þýsku, og sjá, ég fékk að fljóta með í fjarnámið, þrátt fyrir að vera nokkrum vikum á eftir hinum nemendunum.

# Við fengum nýju íbúðina afhenta 1. júlí. Við höfðum hálfan mánuð til þess að tæma gömlu íbúðina okkar, en það gekk nú greiðlega þar sem að nýja íbúðin var einungis 300 metrum frá þeirri gömlu, hentugt! Svo máluðum við og græjuðum og gerðum þetta voða fínt og flott. Ég sagði einnig upp herberginu mínu í Vanlöse og tæmdi það. Ótrúlegt hvað maður sankar alltaf að sér mikið af drasli. Ég átti afmæli 29. júlí og varð hundgömul, sem sagt 21 árs. Í lok júlí fékk ég líka svar um að ég væri komin inn í Humanistisk informatik í Álaborgarháskóla í Kaupmannahöfn, vúhú!

# Í ágúst keyptum við Peter okkur viftu til þess að geta sofið í sumarhitanum. Reyndar var þetta sumar frekar kalt, en það var samt alltaf alveg ægilega heitt á nóttunni svo ekki var hægt að sofa. Þessi vifta er eitt af því besta sem við höfum fjárfest í, með fjarstýringu og tímastilli og svefnstillingum (blæs smá og stoppar, og blæs smá og stoppar) og skiptandi stillingum og hraðastillingum og hvað veit ég. Í byrjun ágúst skelltum við okkur svo til Íslands og gerðum okkur margt til dundurs þar, fórum í hvalaskoðum og baðlónið og út á vatn að veiða og allskonar sightseeing um sveitina. Svo lentum við í 11 tíma seinkun á flugi á Akureyrarflugvelli og rétt svo misstum af fluginu okkar til Portúgal. Við keyptum samt bara nýja (rándýra) miða og skelltum okkur til Algarve í Portúgal, enda búin að leigja hús þar ásamt vinum okkar. Í Portúgal var slappað af í einkasundlauginni, farið í risastóran sundlaugargarð og í sædýragarð, á ströndina og allskonar.

# Skólinn byrjaði í september. Það gekk nú ljómandi vel allt saman. Ég minnkaði alllaglega við mig vinnu, og fór að mæta annan hvern laugardag, 10 tíma í senn.

# Í október var farið í vísindaferð með bekknum. Við fórum til fjandans, nánar tiltekið til Haderslev á Suður-Jótlandi. Ægilega löng rútuferð. En þetta var samt mjög gaman allt saman. Ég tók einnig vikulangt heimapróf í þessum mánuði, það gekk nú ljómandi vel. Ég fór einnig partí með vinnufélögunum, fórum í keilu og keyptum svo óheyrilegt magn af búsi og drukkum duglega heima hjá einum vinnufélaganum. Gaman gaman. Mig minnir líka að það hafi verið í þessum mánuði sem ég fór í stóra Nettó-veislu, þar sem allir Nettó-starfsmenn Kaupmannahafnar voru samankomnir. Það var stuð, matur og ókeypis drykkir, en það allra besta var að Nik & Jay komu að spila, og spiluðu í ca. hálftíma, vúhú! Við Peter áttum svo ársafmæli þann 6. október.

# Nóvember= hópverkefni. Fyrst upptökur á stuttmynd og svo löng ritgerð. Átti mér þar af leiðandi ekkert líf í desember, fór reyndar einu sinni á Lauritz með henni Hildi minni.

# Desember= átti mér heldur ekkert líf, allavega ekki fyrr en þann 17. desember, þegar við skiluðum loksins ritgerðinni okkar. Það var mikill gleðidagur! Við Peter fórum svo út að fagna með Leu úr bekknum mínum og Martin kærasta hennar. 3. desember varð Peter einnig 25 ára, og við fórum að borða í tilefni þess. 6. desember vorum við svo með afmælisveislu þar sem fjölskyldu Peters var boðið í kökur og pitsu. 21. desember flaug ég svo til Íslands í jólafrí, borðaði yfir mig af smákökum og fór í partí með félögunum á Akureyri svo fátt eitt sé nefnt.

Já, ágætis ár að baki.

Hafið það gott älsklingarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna panna.

mánudagur, desember 29, 2008

Leti

Á morgun ætla ég að hefja próflestur. Þegar við í hópnum mínum gerðum ábyrgðarlistann í ritgerðinni okkar, þá var einfaldast að ég tæki á mig einhverja þemagreiningarkenningu (sem ég hafði absolút ekki komið nálægt) til þess að ábyrgðarlistinn yrði ekki einn stór hrærigrautur. Ég er einnig ábyrg fyrir allskonar röksemdarfærslukenningum og sannfæringarkraftskenningum og allskonar málfarskenningum og guð má vita, hvað sem er gott og gilt því það er eitthvað sem ég kann, en þemagreiningarkenningunni var sem sagt skellt á mig líka. Ekkert mál, ég get vel lesið og lært þessa blessuðu kenningu fyrir prófið og kynnt mér málið. En svo var ég að lesa hver ætti að vera yfirprófdómari í prófinu og það er enginn annar en höfundur þemagreiningarkenningarinnar!!! Sjitt og fokk. Formlegur prófalestur hefst strax í fyrramálið. Gúlp.

Í gær fór ég til Akureyrar í partí hjá mínum kæra fyrrverandi sambýlingi, sem sagt honum Inga. Þar var gott samansafn af fallegu og skemmtilegu fólki og drykkirnir runnu ljúflega niður. Ég var gerð að yfirkórstjóra í fjöldasöngnum, því einhverra hluta vegna virtist ég vera sú sem kunni alla textana... Ekki skil ég af hverju, ég er aldrei í gítarpartíum. Einhversstaðar milli hins Ranga manns og frábærs einsöngs í Álfheiði Björk, með smá viðkomu hjá Bjarnastaðarbeljunum, þá var mér byrlað Jägermeister í orkudrykk (fjandi gott!) og ég man ekki mikið hvað gerðist eftir það. Man þó óljóst eftir mér á Kaffi Ak með alla strákastöppuna með mér, sem gerðu sitt besta til að halda mér á löppunum á milli þess sem ég þeytti þeim fimlega í marga hringi með mér í tangó. Svo við lokun staðarins uppgötvaði ég að lappirnar á mér höndluðu ekki meiri hæla og þá tók ég til þess ráðs að rífa af mér stígvélin og ganga um skólaus (samt í sokkabuxum). Eftir þynnkumat í sjoppu (sem ég keypti en nennti ekki að borða svo ég gaf einhverjum strákstaula pylsuna mína) þá var haldið heim til Inga sem býr blessunarlega í sjálfum miðbænum. Herramennirnir mínir 6 sem eftir voru (ég veit ekkert hvað varð um hina) voru ekta séntilmenn og héldu á frökeninni heim til Inga. Þar komst ég að, mér til mikillar skelfingar og sorgar, að vindsængin mín var óuppblásin. Ingi og Stymmi gengju til rekkju í sínum herbergjum og sófinn í stofunni var samstundis hertekinn af tveimur öðrum sem voru í svipuðu ástandi og ég og nenntu ekki heim. Þeir hættu allt í einu að vera herramenn neituðu að blása vindsængina mína upp. Svo ég svaf á gólfinu. Og er núna með marblett á mjöðminni og aumt bak. Ái.

Á morgun hefst sem sagt formlegur prófalestur og heilsuátak. Mamma, feldu smákökurnar.

Hilsen! Anna "Álfheiður" Björk.

mánudagur, desember 22, 2008

Heima

Jæja, nú er ég komin heim í heiðardalinn. Er nú þegar búin að borða óhóflega af smákökum, en sem betur fer er til þrekhjól hér á bæ, svo ég býst við að eyða ágætum tíma jólanna þar. Læknirinn minn er nefnilega búinn að skipa mér að fara í aðhald, því ég er greinilega í miklum áhættuhópi offitusjúklinga með allar mínar eggjastokkablöðrur, og verð ég því með öll mín 58 kíló að hætta allri óhollustu og kaupa mér kort í ræktina. Dæs. Það verður allavega í kjólinn fyrir jólin á næsta ári, nema að ég verði hreinlega horfin...

Ferðalagið í gær gekk ljómandi vel. Vélinni seinkaði bara um 25 mínútur, en aftur á móti var svo mikill mótvindur á leiðinni heim að þar bættust við 20 mínútur. Ég hitti svo færeyskan vinnufélaga minn í flugstöðinni í Kastrup og hann sagði farir sínar ekki sléttar, hann var á leiðinni til Færeyja í jólafrí en það var svo mikið rok í Færeyjum að fluginu var allavega seinkað um 5 tíma. Hann tók því samt rólega og fékk sér bjór.

Pabbi og Einar stóribrósi komu svo að sækja mig, enda er ég alltof illa brennd af seinkuðu flugi til þess að ég taki séns á að fljúga ef hægt er að keyra.

Ég verð nú samt að segja eins og er að ég sakna hans Peters mín alveg ógurlega. Við höfum ekki verið eina einustu nótt í burtu frá hvort öðru síðan við fengum nýju íbúðina okkar í júlí og því alveg ómögulegt að sofa einn. Peter gat til dæmis ekki hugsað sér að sofa einn í rúminu okkar í nótt svo hann var vakandi fram á rauðamorgun og bjó svo um sig á sófanum og býst við að sofa þar þar til ég kem aftur...

Og svo þarf maður náttúrulega að venja sig á íslenskuna aftur. Í bílnum á leiðinni heim í gær sat ég í aftursætinu á meðan Einar og pabbi sátu fram í. Ég dottaði eitthvað og vaknaði svo aftur og þá átti eftirfarandi sér stað:
Anna: Hvor er vi henne?
Einar og pabbi: Ha??
Anna (ennþá hærra): Hvor er vi henne!!!
Einar: Uhhh, Holtavörðuheiði?

En jæja, best að fara og dúlla pakka (fast orðasamband hér á bæ: dúlla pakka=pakka inn og skreyta með allskonar dúlleríi) því ég þarf að koma pakkanum hennar Lilju minnar í póst á morgun... er löngu búin að kaupa gjöfina, en þar sem ég er ekki alltaf neitt rosalega framtakssöm, þá fær Lilja pakkann sennilega á milli jóla og nýárs... sorrí Lilja mín ef þú lest þetta!

En allavega, hafið það gott ástarpungarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna Björk

sunnudagur, desember 14, 2008

Smá pása

Nei hæ, tú hér!



Í dag er sunnudagur. Og í dag er fyrsti dagurinn í margar vikur sem ég sit ekki vid verkefnaskrif, vúhú! En á morgun tekur harkid aftur vid, og allt sett í botn, tví vid eigum ad skila verkefninu á midvikudaginn. Tad verdur mikill gledidagur. Svo er medal annars búid ad skipa mig sem málfrædinördinn í hópnum, tví ég er eini útlendingurinn í hópnum (og reyndar sú eina í öllum bekknum) og er tví einhverra hluta miklu betri í hinum ýmsu hlutum danskrar málfrædi en Danirnir. Til dæmis eiga Danirnir mjög erfitt med ad átta sig á endingum á lýsingarordum og svoleidis, og tar kem ég til hjálpar tví ég tarf virkilega ad pæla í svoleidis hlutum á hverjum degi og er tví gódvinur reglanna sem nota skal. Jájájá.



Hugsanlega ætla ég tó ad slaufa verkefnaskiladjamminu á midvikudaginn, tví ég hef nú varla séd kærastann minn seinustu tvær vikur (hef sagt gódan daginn á morgnana og góda nótt á kvöldin en hef ekkert getad talad vid manninn af rádi vegna annríkis) og tví ætla ég ad tileinka Peter ca. 4 daga og svo flýg ég af landi brott. Á fimmtudaginn ætlum vid sem sagt ad hafa tad virkilega hyggeligt og skreppa til Malmö í hygge-tur. Ég hef aldrei komid til Malmö ádur, eda jú ég skipti einu sinni um lest tar tegar ég fór á milli Gautaborgar og Kaupmannahafnar, svo ég ætla ad túristast med myndavél og tala sænsku, jätte bra!



Á laugardaginn 20. desember ætlum vid Peter svo ad halda okkar eigin litlu-jól. Tad verdur jólabad og jólamatur og jólalög og spariföt og pakkar svo tad verdur kósí :)



En jæja, best ad skella sér í sturtu, hef ekki haft tíma til ad háreyda á mér lappirnar undanfarnar vikur (en tad kemur tó ekki ad sök tví ég hef hvort sem er ekki séd Peter seinustu vikur og hef tví ekki fundid mig knúna til tess ad flagga hárlausum löppum) en í kvöld fær draslid ad fjúka, nema einhver geti kennt mér ad gera fastafléttu?



Vid heyrumst! Hilsen, Anna hin daudtreytta

fimmtudagur, desember 04, 2008

Gærdagurinn

Jæja, 4. desember og tíminn týtur áfram. Í gær átti hann Peter minn afmæli og er tar med kominn "öfugu megin á trítugsaldurinn", sem sagt ordinn 25 ára, Peter til mikillar mædu. Peter var búinn ad segja mér hvernig svona danskir afmælisdagar eiga ad vera, og tví vard ég ad gjöra svo vel og laumast út í bakarí um hánótt og kaupa allskonar bakkelsi í morgunmatinn, leggja fínt á bordid og allskonar dúllerí. Svo á madur ad setja afmælispakkann á eitthvad annad bord tar sem afmælisbarnid getur horft á hann á medan tad bordar morgunmatinn. Mér fannst samt stofubordid okkar adeins of langt frá bordstofubordinu okkar tar sem vid bordudum morgunmat, svo ég skellti bara pakkanum á tvottagrindina okkar sem stód inni í stofu og vonadi ad ég yrdi ekki rekin úr afmælisdekrarahlutverkinu. Svo átti ég ad fara og vekja afmælisbarnid med afmælissøng. Frá tví er skemmst ad segja ad afmælisbarnid var sátt vid allt umstangid og afmælispakkann á tvottagrindinni og er ég tví ordin einum hæfileikanum ríkari: Ad geta vakid afmælisbarn á danskan hátt.


Ég gaf Peter svo úlpu í afmælisgjöf og hann nýtir núna hvert tækifæri til tess ad vera útivid, enda var gamla úlpan hans ekki upp á marga fiska og henni var hent rakleitt í ruslid...
Svo skellti ég mér upp í skóla eftir morgunmatinn og fór í munnlegt próf í digital videoproduktion, var eilítid stressud enda fyrsta háskólaprófid mitt og yfirprófdómari enginn annar en Ulrik Skotte sem er stór kall á DR-sjónvarpsstödinni sem er ríkisrekin stöd hérna í Danmörku, sem sagt svona eins og RÚV heima. En stressid nádi ekki yfirhöndinni (enda tjáist ég sem betur fer ekki af alvarlegum prófkvída) og ég rúlladi tessu prófi upp eins og rúllupylsu og fékk fullt af gódum kommentum á bord vid ad kynningin mín í upphafi prófsins hafi verid svo skemmtilega og ödruvísi uppbyggd ad ég hafi hreinlega vakid prófdómarana upp frá daudum eftir ad hafa setid í fleiri daga og hlustad á kynningar á verkefnum sem allar hljómudu eins... Tad var líka augljóst ad ég vissi upp á hár um hvad ég var ad tala og fékk ég alveg ljómandi góda einkunn, vúhú! :) Tetta var svo gaman ad ég væri til í ad endurtaka tetta, svei mér tá :) Plís minnid mig á tessi ord mín í janúar tegar ég fer í RISAstórt og mikilvægt próf...!
Eftir ad ég var búin í prófinu dreif ég mig heim og sjænadi mig og svo fórum vid Peter út ad borda, ægilega huggó :) Vid vorum samt mjög óheppin med almenningssamgöngur bædi á leidinni á veitingastadinn og á leidinni heim, sem var ekki mjög gaman tví tad var skítavedur úti, rigning og slabb og jökulkuldi, sem var ekki mjög snidugt ad ég er búin ad vera veik sídan á sunnudaginn (er samt ad hressast í dag). En tá var nú gott ad kallinn var búinn ad fá almennilega úlpu, sjá mynd:

Á laugardaginn fáum vid svo ættingja Peters í heimsókn í smá afmælisbod, ég er búin ad fá tad hlutverk ad baka bollurnar, tví lagkökuna snerti ég ekki! Finnst svona danskar afmælislagkökur ekkert spes (örtunnir svampbotnar, vanillukrem og rjómi og bananar á milli laga og helst makkarónukökur líka...) og tad er tví midur ekki hefd fyrir alvöru súkkuladikökum í svona afmælum svo tad eina sem ég fæ ad baka eru b0llur. Tad eiga ad vera svona pakkabollur, eda eins og Peter segir: "Madur kaupir bara svona pakkaduft og setur smá vatn og olíu útí og hnodar og skellir á plötu og svo inn í ofn, pís of keik!". En heyrdu minn kæri, af hverju gerirdu tetta ekki bara sjálfur fyrst tú kannt tetta svona vel ;) Sú athugasemd var látin um eyru tjóta... En tetta verdur mjög huggulegt allt saman :)

En jæja, ritgerdarlufsan er farin ad kalla á athygli, bara verst ad pólitíski lesendabréfatextinn sem ég er ad vinna med fellur undir tvær mismunandi kenningar og tad má bara alls ekki gerist, tarf ad reyna ad leysa tetta mál svona ádur en ég fer yfirum :)

Vid heyrumst! Bestu kvedjur, Anna panna

laugardagur, nóvember 29, 2008

Lau-Lau-Lauritz ;)

Tetta verdur skemmtilegt kvøld, ójá!!!

Byrjadi á upphitun í vinnunni, tad var einn vinnufélagi sem splæsti einum (eda tremur...) Cult á mannskapinn eftir vinnu, svo fór ég heim og er núna búin ad æfa Benny Lava danssporin (sjá hér) ásamt Hildi Evu og svo verdur stanslaust stud ad eilífu á LAURITZ BETJENT í kvøld. Naglalakkid er í vinnslu og drykkir á bordi, og gluggakisturnar bída eftir okkur... Um ad gera ad taka einn gamlan og gódan Lauritz á tetta, nú fer hver ad verda sídastur á tessu ári tví ég sit ca. 14 tíma vid tølvuna vid ritgerdarskrif á dag og mun halda tví áfram fram ad 17. desember, og tví verdur tetta sennilega sídasti Lauritz ársins... snøft :(

Vona ad tid skemmtid ykkur vel í kvøld og hugsid til mín snemma í fyrramálid tegar ég tarf ad fara á fætur og hittast med hópnum mínum og halda áfram med ritgerdarskrif!!! :D

Bestu kvedjur, Anna Lárits

þriðjudagur, nóvember 25, 2008

Ohh

Týpiskt ad fara út og versla og adamálid á listanum er hakk svo hægt sé ad elda spaghettí í kjötsósu. Hakkid er uppselt í búdinni og madur ætlar ad hoppa í búdina vid hlidina á til ad kaupa hakkid. Madur gleymir ad fara í hina búdina. Svo tegar heim er komid og undirbúningur eldamennsku hefst, tá fattar madur ad madur gleymdi hakkinu.

Tad verdur tví spaghettí med pylsubitum hér í kvøld, høfum aldrei útbúid svoleidis ádur svo tad verdur spennandi ad sjá útkomuna...

Hafid tad gott! Bestu kvedjur, Anna Ritgerd Haraldsdóttir

fimmtudagur, nóvember 20, 2008

Ógöngur

Guten Tag!

Rétt í tessu var ég ad koma heim úr afar spennandi bíltúr. Ég var í skólanum og bekkjarsystir mín hún Lea spurdi hvort mig vantadi ekki far heim, svona fyrst hún væri med bíl í láni tennan dag og vid búum í nágrenni vid hvor adra. Ég var nú ekki lengi ad segja já vid tví, enda adeins hálftíma leid med bíl (meira en klukkutími med lest).

Svo vid hlussudum okkur inn í bílinn og Lea dró fram glæsilegt kort sem hún hafdi prentad af netinu tá um morguninn, enda í fyrsta skipti sem hún keyrir í skólann sem er í Ballerup. Gallinn vid kortid var bara sá, ad tad var ekkert kort heldur bara leidbeiningar á bord vid "keyrdu í 0,7 kílómetra eftir tessum vegi og beygdu tá til vinstri nidur tennan veg". Og enn meiri galli var sá, ad kortid leidbeindi bara leidina heiman frá Leu og í skólann, en ekki øfugt. Og svo sátum vid og ræddum um hvort allar beygjurnar ættu tá ad vera øfugt vid tad sem stædi á kortinu, sem sagt beygja til hægri tegar tad stædi til vinstri og svo framvegis, en komumst ekki ad neinni nidurstødu (treyttar eftir skóladaginn). En vid ákvádum ad vid myndum nú redda tessu og løgdum af stad.

Frá tví er skemmst ad segja ad stundum beygdum vid eins og kortid sagdi og stundum øfugt vid tad sem kortid sagdi og ádur en vid vissum af (og eftir nokkrar kolóløglegar beygjur til ad redda okkur úr ógøngum) tá vorum vid loksins komnar á rétta hradbraut. En bara í vitlausa átt!!! Sjitt, og hvergi hægt ad beygja út af! Vid høfdum nú ekki mikinn áhuga á ad lenda í Hillerød eda Helsingør eda einhverju tadan af verra svo vid fundum seint og um sídir stad tar sem hægt var ad beygja út af hradbrautinni. Tá vorum vid staddar í Gladsaxe sem er nú aldeilis slatta frá Kastrup! Lea fann gamla kortabók í bílnum og stúderadi tad á medan ég skaust inn á bensínstød ad kaupa súkkuladi til ad róa taugarnar og til ad nota sem nesti, svona ef vid kæmumst aldrei aftur heim. Ég sagdi gaurnum á bensínstødinni frá óførum okkar og ég held ad hann sé enntá hlægjandi.

Núnú, en tegar ég kom í bílinn aftur var Lea búin ad grandskoda kortid og eftir ad hafa safnad í okkur kjarki og spæna í okkur súkkuladi tá héldum vid aftur af stad. Í tetta skiptid gekk tad betur og eftir heljarinnar vegaslaufu tá komumst vid aftur inn á hradbrautina (í rétta átt!) og gátum keyrt beina leid nidur til Kastrup. Hálftíma bíltúrinn tók sem sagt rúma tvo tíma...

Tad má alveg segja eins og er ad óheppnin eltir mig tegar tad kemur ad samgøngum. Ég sit føst í metrónum næstum dag hvern vegna bilunar á spori eda vegna vidvørunarbjallna (sem hafa enga ástædu til ad hringja) eda vegna tæknilegra ørdugleika og fastrar hurdar. Svo er S-lestinni oft aflýst og allskonar vesen. En ég toppadi tad nú samt allt um daginn.

Ég var sem sagt uppi í skóla seint ad kveldi ad klippa til stuttmynd. Ég var nú reyndar ekki í mínum skóla heldur Verkfrædiháskólanum sem er skammt frá og er med samstarf vid Álaborgarháskóla. Og tess vegna turfti ég ad taka strætó til tess ad komast í lestina til ad komast heim (get venjulega gengid í lestina, en vegna fjarlægdar tá var æskilegra ad taka strætó). Og tegar ég kom út úr Verkfrædiháskólanum sá ég ad tad var strætó vid strætóskýlid skammt frá skólanum. Ég hljóp eins og fætur togudu ásamt bekkjarsystur minni ad strætónum, dró strætókortid mitt upp í miklum flýti, skellti mér inn í strætóinn og sagdi hátt "HEJ" vid strætóbílstjórann um leid og ég sýndi honum strætókortid mitt. Strætóbílstjórinn horfdi á mig eins og ég væri geimvera og ég stód bara og stardi á móti, hissa á ad hann hvorki segdi hej á móti né liti á strætókortid mitt. Tá hnippti bekkjarsystir mín í mig og sagdi "Heyrdu Anna, ég er ekki viss um ad tetta sé réttur strætó!". Tá tók ég eftir tví ad tessi strætó liti nú eitthvad undarlega út, tetta leit meira út eins og rúta. Ég afsakadi mig ringlud og hrøkkladist út og leit á hlidina á strætónum/rútunni. Tar stód "Jettes Bus"en ekki 350S eins og á ad standa. (Vid nánari athugun á netinu, tá eru Jettes Bus strætóar sem hægt er ad sérpanta fyrir sérstøk tilefni, en alls ekki strætóar sem keyra fyrir almenning í Kaupmannahøfn). Tad hefdi ekki verid neitt sérstaklega fyndid hefdi ég endad í ellilífeyristegaferd til Nordur-Jótlands eda eitthvad álíka... og bekkjarsystir mín er enntá hlægjandi ad mér.

Og svo er ég, Anna Björk Haraldsdóttir, búin ad fá NÝJAN SÍMA!!! Og tid skulud ekki láta ykkur detta tad í hug ad ég hafi keypt hann sjálf! Onei Hemmi minn, minn 5 ára gamli sími dugar enn og tví tími ég ekki ad spreda peningum í nýjan. Heldur er sagan sú, ad hann Peter minn fær nýjan síma á 9 mánada fresti fyrir adeins 1 DKK tví hann er med tannig símnotkunarsamning. Og tad eru nú ekki hvada sími sem er sem tolir tad ad vera í vinnunni hans Peters og augljóst mál ad tessi nýji myndi eydileggjast um leid, og tví fæ ég hann! Vid turfum reyndar ad láta aflæsa honum fyrst en svo ætti hann ad virka :) Fyrir tá sem ekki vita, tá skrifadi ég tetta á bloggid mitt tann 23. maí 2006 tegar ég var ad flytja til Svítjódar:

"Og já, eitt af mínum fyrstu verkum þegar ég kem út er að kaupa mér nýjan síma. Gemsagreyið mitt er víst aðeins farið að eldast með tilheyrandi hrörnun. Í fyrsta lagi er batteríið orðið ansi lélegt. Í öðru lagi sleppir síminn því stundum að sýna nafn þess sem hringir, jafnvel þótt viðkomandi sé í símaskránni hjá mér. Í þriðja lagi sé ég ekki alltaf þegar ég á "missed calls". Í fjórða lagi tekur síminn minn upp á að "blokka" fólk þegar honum sýnist, þ.e. fólk hringir en fær bara sóninn í eyrað, hvað eftir annað. Já, ég veit ekki ennþá hvort síminn svíki mig um smsin mín líka, þannig að ef þið sendið mér sms og ég svara ekki innan 6 klst, þá er ég annað hvort inneignarlaus eða síminn minn er með stæla... "

Og greyid hefur ekkert skánad sídan tá. Ef fólk hringir í mig, tá er alltaf tad fyrsta sem ég segi "Hæ ég er ad verda batteríslaus, svo vid skulum tala hratt". En loksins verdur ekki tørf á tví lengur ;) Hugsa ad ég noti nýja símann í minnst 5 ár, flýtur á medan ekki sekkur...

En jæja, núna verd ég ad drífa mig tví ég ætla ad hitta eina bekkjarsystur á kaffihúsi klukkan sautjánhundrud.

Hafid tad gott! Bestu kvedjur, Anna busy

föstudagur, nóvember 14, 2008

Fádu tér sæti, sæti

Var búin ad skrifa færslu, en hún var svo leidinleg ad ég eyddi henni. Ég er ordin svo hrædilegur penni ad ég get ekki sent svona texta frá mér. Annars er allt gott ad frétta hédan úr Kastrup og lífid gengur sinn vanagang.

Sjáum til hvenær ég skrifa aftur næst, gæti ímyndad mér ad tad lídi nokkrar vikur tangad til.

Bestu kvedjur, Anna panna

þriðjudagur, október 28, 2008

Halló halló

Jæja børnin gód, alltaf finnst mér eins og ég sé nýbúin ad blogga, en nei, svo gott er tad nú ekki...

Í dag er fagur tridjudagur, klukkan er 7:54 og ég búin ad sitja og føndra jólamerkimida frá tví klukkan 6 í morgun, ekkert smá huggulegt. Um ad gera ad vera tímanlega í føndrinu, svona fyrst desember mun allur fara í klára 100 bladsídna hópaverkefni.

Ég á ekki ad mæta í skólann fyrr en klukkan 12:30 í dag, mikil gledi. Tá fer ég á vídjómyndavélakúrsus, ekki seinna vænna fyrst hópurinn minn er ad fara ad taka upp stuttmyndina okkur núna strax í næstu viku. Tetta verdur glæsileg stuttmynd og verdur mjøg hugsanlega skellt á youtube svona um og eftir prófid í kúrsinum í byrjun desember. Tid getid byrjad ad hlakka til núna strax, tví ég fékk eitt af adalhlutverkunum (trátt fyrir ad reyna ad træta fyrir persónan sem ég á leika megi nú ekki tala med hreim, en tad var nú ekki til ad tala um tví ég er víst í réttri hæd?). Og ekki nóg med tad, heldur var ég send í tad ad búa til temalag myndarinnar sem á ad rúlla med kreditlistanum, tví ég er sú eina í hópnum sem hefur nokkurn tímann haft eitthvad med hljódfæri ad gera... hahahaha, ég er búin ad semja grindina og ég er ekki viss um ad gømlu píanókennararnir mínir myndu vera mjøg stoltir af gamla nemandanum sínum ef teir bærist tessi óskøpnudur í eyru...

Svo er ég búin med einn kúrsús sem fjalladi um gagnagrunn heimasída og upplýsingaøflun og úrvinnslu upplýsinga. Tad var tveggja daga kúrsús og til tess ad ná turfti madur ad vera til stadar 80% af kúrsinum og vúla, 5 ECTS einingar komnar á augabragdi ;)

Tannig ad eins og tid sjáid er tetta nám blanda af øllu møgulegu. Svo hef ég eytt óóóóóótalmørgum klukkutímum í ad lesa bækur um vísindasøgu og fagurfrædi og røksemdarfrædi (Peter minn á ekki séns í røkrædunum núna, hahahaha!!!) og danska málfrædi og kvikmyndafrædi og bladamennskufrædi og bara you name it sko. Og svo er ég líka búin ad semja harmleik og setja á svid, tad var spennandi upplifun...

Annars verd ég nú ad vidurkenna tad ad ég er ansi fátæk akkúrat núna, tví ég var búin ad ákveda ad borga sjálf fyrstu tvo mánudi annarinnar og fá svo alla næstu mánudi á yfirdrætti frá Íslandi (fæ peningana frá LÍN í lok annar fyrir tá sem ekki eru mikid inn í tví hvernig tetta kerfi virkar), en nei Hemmi minn, Danmørk verslar ekki med íslenskar krónur :D Og nú er tad víst adeins of seint ad fara og nuda í dønsku bønkunum um ad fá ad taka ønnina (og allar tar á eftir) á yfirdrætti frá teim, tví sem ádur segir, tá verslar Danmørk ekki med íslenska peninga og vill ekki taka sénsinn med neitt sem frá Íslandi kemur ;) Ádan fékk ég svo skilabod frá SÍNE (Sambandi Íslenskra Námsmanna Erlendis) um ad teir ætli ad reyna ad vega upp á móti ástandinu med ad reyna ad fá tilløgu sína um neydarlán um allt ad 500.000 ISK samtykkta á Altingi, en ég sé ekki alveg hvad madur á vid neydarlán ad gera ef peningarnir eru pikkfastir á Íslandi ;)

En ég er nú ekki alveg á flædiskeri stødd, verd bara ad lifa á honum Peter mínum tar til ástandid batnar og taka nokkrar aukavaktir í vinnunni og svona... og fá svo fallega summu frá LÍN í lok annar, tví tad segir sig sjálft ad ef ég get ekki tekid yfirdrátt tá hef ég enga peninga til ad eyda og eydi tar af leidandi ekki í ótarfa og verd tví rík í febrúar, vúhú! Vonum bara ad ég geti millifært LÍN peningana í febrúar, annars verd ég mjøg vonsvikin tví mig langar svo í ný føt ;)

Svo var nú gaman hjá mér á laugardaginn. Netto-búdin mín hafdi unnid einhverja keppni og fengid peninga sem átti ad eyda í starfsmennina... svo tad var ákvedid ad fara í keilu og drekka svo fyrir afganginn ;) Vid vorum átta á allt og héldum partíid í heimahúsi. Búsid var ad sjálfsøgdu keypti í Nettó og vid endudum med 3 vodkafløskur, eina bacardi apple, eina bacardi Razz, eina Kahlúa (sprútt), eina Fiskefjæs (lakkrísskot), 36 cultshaker (hálfgerdur gosbjór), 6 Sommersby (cider, líka svona gosbjór), 6 alvøru bjóra og 14 lítra af Coca-cola (tek tad aftur fram ad tad var Netto sem splæsti svo ég, fátæki námsmadurinn, eyddi ekki krónu tetta kvøld!). Ég skíttapadi í keilunni og var svo enntá allmikid ølvud tegar ég vaknadi klukkan 10 daginn eftir... og átti tá eftir ad lesa 140 bls. í røksemdarfærslu. Tad var skemmtileg lesning ;)

En jæja, best ad fara og hengja upp tvott, vid heyrumst ;) Bestu kvedjur, Anna sem neydist til tess ad vera á megrunarkúr, æjæj ;)

miðvikudagur, október 15, 2008

Leidinleg færsla

Goddag goddag!

Ég ætladi ad skrifa langa færslu um heimskar ordabækur sem fá mig til tess ad efast um íslenskukunnáttu mína, en sú færsla hefdi eflaust ordid afar leidinleg og óspennandi.

Tannig ad nú hef ég ekkert efni í tessa færslu.

Annars sit ég og er á fullu ad skrifa í heimaprófinu mínu. Ég er búin med greininguna (sendandi, móttakandi, tilgangur textans, markhópur, stílfrædi, yfirflokkar og undirflokkar stíls, hvad er og gott og hvad er slæmt séd frá bladamennskustílfrædum, setningagreining uppsett í skrilljón tøflum og samhengistøflur og ég veit ekki hvad og hvad) og núna er ég ad vinna í tví ad koma tessu í samhangandi texta. Á morgun mun ég ákveda hvernig ég umskrifa bladagreinina svo hún sé ætlud fyrir annad tímarit og safna gagna um tímaritid og demba mér svo í skrifstørfin næstu daga. Svo ætla ég ad múta honum sæta sæta sæææææta Peter mínum til tess ad lesa yfir á sunnudaginn, ætla ad baka handa honum køku í stadinn...

Jæja, best ad halda áfram!

Hilsen, Anna panna

sunnudagur, október 12, 2008

Helgi

Jæja, í dag er fagur sunnudagur. Sólin skín og Pési er úti í bakaríi ad kaupa braud í morgunmatinn. Vid sváfum bædi í einum dúr til klukkan 9 í morgun (sumum tykir tad nú kannski ekki mikid, en fyrir tvær A-manneskjur (morgunmanneskjur) tá er tad nú alveg slatti!) og vil ég meina ad fínu fínu gluggatjøldin okkar sem vid settum upp í gær eigi stóran hlut ad máli. Vid keyptum gluggatjøldin (sem eru svona láréttir breidir rimlar úr tykku døkku efni sem ná frá lofti og nidur í gólf) fyrir lifandis løngu sídan, en lentum í tví óhappi ad bora í gegnum rafmagnsleislur tegar vid reyndum ad setja tau upp, vúpsí. En í seinustu viku fengum vid til okkar rafyrkja sem kippti málunum í lag og gluggatjøldin voru tví sett upp í gær. Og loksins vøknudum vid í myrkri en ekki med sólina í augunum eins og alltaf, vúhú!

Í gær gerdum vid einnig margt annad. Vid vøknudum klukkan 8 og sløppudum af, og klukkan 11 hófst triggja tíma hreingerning! Og íbúdin var meira ad segja ekkert í drasli, en vid tókum í stadinn tad sem madur tekur venjulega ekki, t.d. flísarnar á badherberginu og allskonar smáverk. Og tad ætlum vid alltaf ad gera annan hvern laugardag, næst ætlum vid t.d. ad taka gluggana utan frá og svo framvegis. Og tad var hann Peter minn sem fann upp á tessu kerfi, held ad hann hafi fattad ad kærastan hans er ekki med hreingerningargen í sér... ;) Og svo stód ég í tvo tíma og bjó til heimabakada pitsu (bjó til sósuna og alles ad hætti Hildar Evu). Sídan sendi ég Peter ad heiman til tess ad horfa á fótbolta á medan ég sat ad sumbli med Hildi Evu langt fram á kvøld.

Í dag er planid ad slappa af og fara í tívolí. Tad er búid ad setja tívolíid í hrekkjavøkubúning svo tad verdur eflaust huggulegt ad ganga tar um.

Á morgun byrjar svo vikulanga heimaprófid mitt í Skriflegum samskiptum. Tad mun fjalla um setningagreiningar og fréttagreinar sem vid eigum sjálf ad snúa á alla kanta og skrifa tær upp á nýtt eins og tær væru birtar í einhverju ødru tímariti eda dagbladi. Spennandi.

Hafid tad gott elsku ástarpungarnir mínir! Bestu kvedjur, Anna Bjørk

föstudagur, september 26, 2008

Klukk

Jæja lesendur gódir! Hún Elín mín klukkadi mig svo ég ætla ad bregdast fljótt og ørugglega vid tví:

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina...
- Netto í Danmørku
- Au-pair í Hollandi
- Hreingerningardama á hóteli í Svítjód
- Samkaup Strax í Reykjahlíd

Fjórar myndir sem ég held uppá...
- Ástarmyndir
- Stelpumyndir
- Grenjumyndir
- Væmnar myndir

Fjórir staðir sem ég hef búið á...
- Ísland
- Svítjód
- Holland
- Danmørk

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar...
- Gilmore girls
- Footballers' wives
- Vinir
- Simpson

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum...
- Osló
- Kaupmannahøfn
- Gautaborg
- Portúgal

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggsíður...
- www.hotmail.com
- www.facebook.com
- www.youtube.com
- Skólatengdar sídur

Fernt matarkyns sem ég held uppá...
- Pizza
- Lasagne med hvítlausbraudi
- Kjúklingaborgari á Jensens Bøfhus
- Ís

Fjórar bækur eða blöð sem ég les oft...
- Skóladagbókin mín 7 sinnum á dag
- Snyrtibladid
- Ókeypis blødin í lestunum
- Vísindasaga fyrir skólann

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna...
- Sofandi uppi í rúmi
- Á sólarstrønd
- Heima í sveitinni
- Í útløndum

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna...
- Hrafnhildur Ýr
- Björg
- Valey Sara
- Kristinn (sem mér finnst ad eigi ad byrja ad blogga aftur)

En jæja, verd ad tjóta!

Hilsen, Anna Bjørk

mánudagur, september 22, 2008

Smá færsla

Nei ég er nú ekki alveg hætt, er bara pínu löt :)

Mánudagur, klukkan er 14 og ég er búin ad afreka tad ad fara á fætur klukkan 6 (svona eins og ég geri alltaf, alveg sama hvenær ég á ad mæta í skólann), hanga á netinu, finna Bókasafnsháskóla Danmerkur og fara tangad á fyrirlestur med frægum bandarískum frædimanni um Facebook og hvernig netid getur breytt atferli manna, kaupa smá gjøf handa Pésa (ekki ad neinu ødru tilefni en ad hann er besti kærasti í heimi) og koma heim og gera ekki neitt.

Já tad er gaman ad geta hangid og gert ekki neitt, sídustu vikur er búnar ad vera ansi strembnar í lestri en nú er tví brjálædi ad mestu lokid tessa ønnina og tví bara fyrirlestrar og hópavinna framundan fram ad jólum. Svo núna kíki ég bara í bók svona stundum og stundum, tarf ekkert ad lesa í tessari viku nema um afsannir á einhverjum kenningum í vísindafrædi og svo helling í Digital Videoproduktion, tar sem vid erum ad hamast vid ad læra hvernig kvikmyndahandrit eru byggd upp og hvada frædi liggja tar ad baki. Mjøg áhugavert allt saman.

Í byrjun október verdur svo farid í "rustur" (sem myndi sennilega útleggjast sem "vísindaferd" á íslensku). Stefnan er tekin á Sudur-Jótland (tad vill enginn taka ad sér ad leigja út húsnædi til slíks brúks hér á Sjálandi, tví tad er búid ad vera svo slæm umfjøllun um tessar vísindaferdir í fjølmidlum...) og tar verdur áfengi haft um hönd. Tó ætla ég ad gera tad ad markmidi mínu ad enda ekki eins og á pöbbaröltinu góda hérna um daginn, tar sem ég var ordin sótølvud klukkan hálfníu um kvøldid og enn skrautlegri klukkan tólf og stauladist tá heim og skildi eftir mig magainnihald á vandrædalega mørgum stødum. Vaknadi svo øll útkrøssud í grænum merkitúss (medal annars med risastórt tré á hálsinum, eitthvad bull á bringunni og fidrildi á framhandleggnum) og turfti ad fara í fjórar sturtur ádur en tússid byrjadi ad dofna... Ojojoj, aldrei aftur. Heppin ég samt ad verda ekki tunn ad ødru leiti en ad ég verd bara treytt og tung ;)

Annars er nú ekki neitt vodalega margt ad frétta, Hildur Eva ætlar ad koma í kvøld og strauja gluggatjøld á straubrettinu okkar Peters. Ég bad hana í gudanna bænum um ad koma ekki med straujárn, tví hér á bæ eru til tvø slík, annad teirra algjørlega ónotad og hitt hefur verid notad einu sinni... dugnadurinn ad gera út af vid okkur alveg hreint :) Svo verdur bara afslappelsi restina af vikunni, ég verd ein heima annad kvøld og svo kemur tengdó í mat á fimmtudaginn, og svo er ég ad fara í "Netto-fest" (Nettó-partí) á laugardaginn, tar sem starfsfólk í Nettóverslunum Kaupmannahafnar mun koma saman og hafa gaman. Ádur en haldid verdur af stad í tá gledi mun ég samt fara í sófaleidangur med kæró, vid erum ad vinna í tví ad mubla okkur upp í hálftómu íbúdinni okkar. Erum búin med svefnherbergid og hálfa skrifstofuna, næst verdur stofan tekin í pørtum. Vid erum líka búin ad kaupa okkur dósaopnara, svo nú fá nágrannarnir ad hafa sína í fridi :)

En best ad laga pínu til! Bestu kvedjur, Anna panna

laugardagur, september 13, 2008

...

Nenni ekki ad blogga tessa dagana. Skelli kannski inn færslu í næstu viku.

Bestu kvedjur, Anna Björk

fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Peanut

Goddag! Held tad sé kominn tími á nýja færslu.

Hédan er harla fátt ad frétta, ad vanda. Ég fór í klippingu í dag og missti trjú kíló af hári og var litud dööökkhærd, en tad voru allt saman mjøg naudsynlegar adgerdir tar sem sólin í sumar hefur ekki farid vel med hárid á mér og voru allir endar turrir og lélegir og liturinn á hárinu mér var svo upplitadur ad hárgreidslukonan sagdi ad eina leidin til tess ad jafna tetta allt saman út væri ad skella fjandi døkkum lit í mig, og svo blandandi hún einhverju raudu og ljósu í litinn líka svo ég er nú ekki alveg svarthærd. Og nei ég er ekki ordin stutthærd, tad voru teknir 2 cm af sídinni og svo 2,9 kíló af styttum og dúlleríi. En tetta lítur nú samt ágætlega út allt saman, hørku gód hárgreidslukona ;)

Svo er sídasti dagurinn minn á morgun sem fuldtidsassistent í Nettó, eftir tad verd ég bara helgardama annan hvern laugardag. Skólinn byrjar sem sagt á mánudaginn og ég er búin ad fá stundarskrá fram í nóvember. Ég á ad mæta í skólann á hverjum einasta virkum degi og stundataflan er aldrei eins frá viku til viku. Ég verd í fimm áføngum á tessari ønn og ég skil ekki áfangalýsinguna á tremur teirra svo tetta verdur virkilega spennandi :D Eins gleymdist ad segja mér frá tví ad øll verkefni í Álaborgarháskóla byggjast á tví ad tau séu leyst í hópum, já madur má ekki einu sinni ad prumpa án tess ad gera tad í hóp! En tad hefur sínu jákvædu hlidar tví tá get ég látid hina skrifa frædilegu dønskuna og ég get setid og látid ljós mitt skína á ødrum svidum (en tví midur fyrir mig heitir einn áfanginn einmitt "skrifleg tjáning" og gengur ad stórum hluta til út á tad ad fullkomna frædilega dønsku nemendanna og áfanganum lýkur med sjø daga einstaklingsverkefni, svitn, verd ad draga fram málfrædibækurnar!). Eins eru margir adrir hlutir sem koma mér rosalega á óvart (vissi t.d. ekki ad fyrsta ønninn yrdi svona svakaleg med vídjóverkefnum og allskonar, ég hélt ad háskóli væri bara svona lakka á sér neglurnar á fyrirlestrum og svona), en gera námid bara teim mun meira spennandi. Eins og ég segi, tetta var áhugaverdasta námid sem ég fann og tetta verdur bara gaman. En ég er samt øøørlítid stressud, ég neita tví ekki.

Annad er ekkert í fréttum. Ég skaust adeins til Ágústu ádan og svo kemur hún Hildur mín líka á morgun!!! Vid ætlum einmitt ad hittast heima hjá Ágústu annad kvøld, og hugsanlega verdur skroppid á kokteilbar...

En núna ætla ég ad hætta tessu tvadri og enda tetta á nokkrum vídjóum af youtube. Sjálf opna ég aldrei youtube-linka á heimasídum hjá ødrum nema á barnalandssídum og svoleidis, tví ég einfaldlega er búin ad ákveda tad fyrirfram ad teir séu leidinlegir. En here it goes:

- Ég GET EKKI hætt ad hlusta á tennan pilt, hann er búinn ad vera á repeat í tølvunni hjá mér seinustu tvo mánudina og get ekki hætt. Hann syngur sem sagt lagid "Zombie" med The Cranberries, og hann gerir tad 8 sinnum betur en The Cranberries, sem annars gera tad mjøg vel.
- Jeff Dunham er búktalari og hann er bara fyndnastur í heimi. Hér eru trjú vídeó, sem sagt part 1 og part 2 og part 3. Mæli med ad tau heima á Grænó skemmti sér yfir tessu, tau hafa ábyggilega húmorinn ;)

Góda nótt ástarpungarnir mínir! Bestu kvedjur, Anna Jalapeño

þriðjudagur, ágúst 19, 2008

Løng myndafærsla

Jæja, tá kemur smá færsla handa ykkur med myndum og allegræ. Flestar myndirnar eru frá Íslandi, tví søkum stuttrar ferdar og leti var ekki tekid mikid af myndum á Portúgal, og eru flestar tær sem tar voru teknar hvort sem er óbirtingarhæfar søkum lélegs útlits (augnblýanturinn minn týndist) og/eda drykkju. Vesgú:

Ég í flugstødinni á leidinni til Íslands, ad sjálfsøgdu var tveggja tíma seinkun á flugi.


Vorum alveg ad fara ad lenda á Akureyri, og ég turfti ad útskýra fyrir Peter af hverju áin liti svona út. Ekki eitthvad sem madur sér í Danmørku.

Vid lentum heil og á húfi og eftir smá rúnt á Akureyri var haldid heim í Mývatnssveit. Vid stoppudum vid Godafoss á leidinni í nístings kulda.
Fjárhúsin heima.
Og húsid mitt :)
Svona fyrirbæri hafdi Peter aldrei séd ádur og fannst tad voda merkilegt.
Peter heima vid Grænavatn.

Gamli bærinn heima, tókum ad sjálfsøgdu skodunartúr um hann.
Heima.
Vid á leid í hvalaskodun. Ég veit samt ekki alveg til hvada lands vid vorum ad fara tegar vid pøkkudum nidur, og tess vegna eru bádar úlpurnar sem vid erum í fengnar ad láni hjá Kristni litla bró...
Flottur jakki!
Jessör!


Og svo var haldid af stad.
Alltaf svo sæt og fín ;)
Vid sáum fullt af hvølum og høfrungum.
Tessi appelsínugulu vesti bæta ekki upp á útlitid...

Og svo var farid tvisvar sinnum í jardbødin, ljúft ljúft.



Skodunartúr um sveitina: Ég, Peter, Fridrik litli bró, Kristinn litli bró og Einar stóri bró.
Ég og Peter uppi á Hverfjalli.
Og svo var kíkt í Grjótagjá.
Peter og pabbi vid Grjótagjá.
Ég.




Ég og Kristinn.
Sprunga.
Ég og Peter í Grjótagjá.
Ønnur hópmynd.
Fórum líka í Krøflu.





Og á Hverarønd.
Peter ákvad ad skellla sér í gufubad, trátt fyrir "ógedslegu eggjalyktina"...

:)

Og svo vildi svo skemmtilega til ad hann Frikrik litli bró vann eitt sinn adalvinninginn í bingói, sem innihélt fimm rétta máltíd med drykkjum fyrir 6 manns, svo Fridrik baud fjølskyldunni út ad borda. Tar komst hann Peter minn í feitt tegar hann fékk allskonar "nýjan"mat ad borda. Í fyrsta forrétt var fiskiréttur sem samanstód af humar, silungi og einhverjum ødrum fiski. Í annan adalrétt voru rækjur. Í tridja rétt var ønd. Í fjórda rétt var hreindýr (og Peter bordadi bædi sinn skammt og minn...) og í eftirrétt var svo grilladur banani med ís. Jammí.
Sigrún (kærastan hans Einars), Einar, Kristinn, Peter, ég og Fridrik.



Pabbi og mamma.
Peter og ég.
Einn daginn fórum vid Peter í Høfda.

Peter í Høfda.
Og aftur í Høfda.






Alltaf jafn fallegt.
Peter og ég.
Peter ofan í sprungu.
Fridrik og Peter fóru í golf úti á túni.

Eitthvad sýnist mér turfa ad slá grasid, enda var Peter alltaf ad týna golfkúlunni sinni...



Svo var líka farid út ad veida í Grænavatni. Ad sjálfsøgdu turfti ad klæda sig í hlý føt og stíbbur, tví engin var sólin. Og tar sem frøken Önnu misminnti hvernig sumrin á Íslandi eru, tá turfti ég ad fá lánada flíspeysuna hennar mømmu, ekki í fyrsta skipti.

Vid Peter klár í veidina.
Glæsilegur fótabúnadur.
Ég og Peter.









Peter med eitt net af fjórum sem vid løgdum.

Pabbi og Peter ad róa.

Og svo fékk ég líka ad prófa, svona til ad pósa fyrir myndavélina... ;)





Svo voru netin løgd út.
Kristinn og Peter réru heim.

Og ég réri líka smá.
Morguninn eftir fórum vid og nádum í netin. Og sjá, tad var veidi!

Pabbi ad hálsbrjóta einn...




Tad veiddust 10 silungar í allt, meira en tad hefur veidst í vatninu í einni ferd í mørg ár! Viljum vid meina ad Peter sé lukkudýr í teim efnum :)

Og svo var farid med silungana heim til Ömmu Steingerdar. Á myndinni má sjá Peter, pabba, afa Helga, Kristinn og Fridrik.

Peter med silung.

Og ég med silung, eftir ad ég hafdi fengid smá panikkskast yfir ad turfa ad halda á silungi! Jakk.


Aflamenn.
Og hér má sjá veidina í heild sinni.

Amma slægdi svo tvo af silungunum sem voru hafdir í hádegismat. Restin var send á næsta bæ í reyk.
----
Og tar med líkur myndum af Íslandsferdinni. Vid gerdum samt ýmislegt fleira, t.d. fórum vid í sund og Peter fékk nádarsamlegast leyfi til tess ad smakka íslenskan bjór og svona og svo kom Hildur Eva í heimsókn og allskonar. Og svo seinkadi fluginu okkar svo mikid ad vid misstum af fluginu okkar til Portúgal, en trátt fyrir tad eru hér ørfáar myndir frá Algarve í Portúgal, tar sem vid leigdum íbúd med vinum okkar. Med íbúdinni fylgdi einkasundlaug og var hún mikid notud. Eins lá strøndin 150 metra frá íbúdinni, auk tess sem vid bjuggum á gøngugøtu bæjarins og tví allt innan handar. Jæja áfram med smjørid:
Sól og gott vedur, ljúft ljúft.


Fórum einn daginn í klikkadan vatnsrennibrautagard, myndin af klikkudu rennibrautunum hefur tví midur ekki komid inn og ég get ekki sett hana inn án tess ad tessi færsla fari øll í klessu.
Mie og Richard, tau sem vid fórum med.

Ég og Peter.


Ad sjálfsøgdu fengu nokkrir drykkir ad renna ljúflega nidur...


Vid Peter fórum í gøngutúr einn morguninn og rákumst á fjóra sæta kettlinga inni á einum veitingastad, mússímússí!

Svo var farid í sædýragard.
Tar sáum vid medal annars høfrungasýningu.
Og sæljónasýningu.
Eitt kvøldid tegar vid fórum út ad borda birtust fimm magadansmeyjar og dønsudu í kringum okkur megnid af kvøldinu.
---
En jæja, best ad fara ad gera eitthvad. Bestu kvedjur, Anna panna.