miðvikudagur, júní 28, 2006

Obbobbobb!

Á morgun fae ég karlmann í heimsókn. Um kauda veit ég ekkert annad en ad hann heitir Tobias, hann er algjör tölvusnillingur og er besti vinur Ragnars (gaursins sem ég leigi íbúdina af).

Sagan er nefnilega sú, ad lengst inni í laestum fataskáp í Odinsgatan 24B, fimmtu haed til vinstri, tar er ráter. Ráter tessi sér um ad senda internetid út til allra annarra rátera í hverfinu. Einmitt tess vegna megum vid Venla EKKI UNDIR NEINUM KRINGUMSTAEDUM taka einhverja hvíta snúru sem liggur inni í stofunni úr sambandi. Ekkert mál, vid höfum ekki komid nálaegt tessari blessudu snúru, svo vandamálid liggur ekki tar.

Ástaeda tess ad tessi tiltekni ráter er í fataskápnum hans Ragnars (sem er eiginlega ekki fataskápur heldur geymsla (allt svo fataskápurinn, ekki Ragnar)) er sú ad Tobias tessi vinnur hjá einhverju internetfyrirtaeki og einhversstadar turfti hann ad koma ráternum fyrir, og fannst honum tví tilvalid ad skella honum inn til Ragnars. Jájá.

Sídastlidinn fimmtudag biladi netid. Og nú fyrst EFTIR HEILA VIKU föttudu internetkarlarnir tad (eda ákvádu a.m.k. ad gera eitthvad í málinu) og fae ég tví tennan Tobias í heimsókn í fyrramálid, tví ráterinn nemur ekki internetsendingar lengur og er tví allt neiborhúddid búid ad vera internetlaust sídan á fimmtudaginn.

Og ég hlakka sko til ad fá elskulegt internetid aftur! Tid getid ekki ímyndad ykkur hvad ég er med margar snidugar bloggfaerslur í hausnum á mér sem ég get ekki bedid eftir ad fá ad deila med ykkur! T.d. getid tid átt von á myndafaerslu tar sem ég segi frá ýmsu sem ad á daga mína hefur drifid undanfarid, faerslu um tískuna hér í Gautaborg (sem er svolítid frábrugdin teirri íslensku á suman hátt), faerslu um íbúdina mína og götuna mína (tarf ad laga til svo ég geti látid myndir fylgja med!) og faerslu um tad hvernig á EKKI ad haga sér í hótelherbergjum.

Já, ég er í fríi á morgun. Og á hinn. Og á hinn. Sídan vinn ég í trjá daga og fae aftur tveggja daga frí. Svo ég get bloggad mikid á naestunni :D

Jaeja, best ad koma sér heim... Vona ad Venla sé ekki farin ad hanga í ljósakrónunum af leidindum yfir hörmulegri sjónvarpsdagskrá á ÖLLUM 12 STÖDVUNUM! Nei djók, tad ERU ENGAR LJÓSAKRÓNUR Í ÍBÚDINNI! ;)

Knús til ykkar allra! AnnaHaralz

PS. Kann einhver ad tengja mús aftan í PC tölvu? Ég kippti nefnilega einni úr sambandi á Ódinsgötunni tegar ég var ad athuga hvort ég kaemist til botns í internetsleysinu... Og ég get svoleidis svarid tad, tad er ekkert gat aftan á tölvunni til ad tengja músina í!!! Kannski ég bidji Tobias um ad hjálpa mér? Hmm. Spurning. Tölva tessi er nefnilega inni í FATASKÁP (ödrum fataskáp en teim sem ráterinn er í) og hún er alveg pikkföst tví tar eru svo margar snúrur sem eru tengdar í hana... Já, madur verdur ansi rykugur ef madur reyndir ad kíkja tarna bakvid!

mánudagur, júní 26, 2006

"Viiid skýin felum ekki sólina af illgirniii..."

Enn er netid á Ódinsgötunni bilad. Fussumsvei. Ef tad verdur enntá bilad á morgun, tjah, tá verd ég víst bara ad bída í nokkra daga í vidbót.

Svo virdist vera sem adeins of margt fólk hafi verid rádid til vinnu á vinnustad mínum tetta sumarid. Satt best ad segja er svo margt fólk ad vinna tar ad tad er svolítid svona happa-glappa hvort madur fái ad vinna eda ekki tessa dagana. Ég er ein af teim heppnu: Ég var ad koma úr fjögurra daga fríi í gaer og fae ad vinna heila trjá daga ádur en ég fer í frí. Sumir Núrjobbarar voru ad koma úr fjögurra daga fríi, fengu ad vinna í dag og eru svo aftur komnir í fjögurra daga frí.

Reyndar myndi ég aldrei í lífinu fara ad kvarta yfir of fáum vinnudögum, ónei! En ég gaeti hins vegar vel hugsad mér ad kvarta yfir peningaleysi... Já já. Oft á dag og alla daga. Í mörg, mörg ár. (Smá Karlakórinn Hekla hér á ferd!).

Já, margt er skrítid hér í Svíaveldi. T.d. fae ég ekki launin mín fyrir júní fyrr en um mánadarmótin júlí-ágúst, og gengur tad víst tannig fyrir sig á langtum flestum vinnustödum hér í Svíaveldi. Svo já, núna er ég komin ég komin í fjárhagslegt adhald, svona tar til eftir u.t.b. mánud ;) Reyndar er ég mun betur stödd heldur en margir Núrjobbararnir, sem lifa sumir hverjir eingöngu á núdlum og vatni og láni frá foreldrum sínum tessa dagana...

Í dag eftir vinnu (sem var búin klukkan trjú sökum verkefnaskorts vegna ofmönnunar) gerdist ég menningarlega sinnud og arkadi sem leid lá á borgarbókasafnid í mígandi rigningu med doppóttu regnhlífina mína (ég tímdi ekki ad splaesa í ferd med sporvagni... fjárhagslegt adhald, tid skiljid!) og heimtadi ad fá bókasafnskort. Ég hafdi eitthvad heyrt af tví látid ad bókasafnid sé tregt á ad láta Núrjobbara fá bókasafnskort, tví madur tarf víst ad dveljast í minnst trjá mánudi hér í Gautaborg til ad fá kort. Svo ég ad sjálfsögdu laug tví svona listilega vel ad ég myndi vera hér ad minnsta kosti fram ad jólum og rak sídan ökuskírteinid mitt og saensku kennitöluna mína upp í nefid á bókasafnskonunni og bad nádsamlegast um ad fá bókasafnskort. Kerla aetladi nú eitthvad ad ibba (ybba?) gogg og sagdist turfa ad sjá vegabréfid mitt, en ég hélt nú sídur! Enda er vegabréfid mitt einhversstadar vel og vandlega týnt undir stórri hrúgu af drasli á Ódinsgötunni... Og svo fór ad lokum ad ég fékk bókasafnskort á frekjunni einni saman, vúhú :D

Og tar sem ég er svo gífurlega bókmenntalega sinnud, tá dreif ég mig ad sjálfsögdu beint í unglingabókadeildina og tók tvaer "Eva och Adam" baekur ad láni :P Og ég er nú tegar búin med adra teirra (126 bls. á saensku, hallelúja!) og mun ad öllum líkindum klára hina á morgun...

En jaeja, best ad strunsa heim í rigningunni (er í lestarstödinni núna) og tékka á tví hvort Venla sé nokkud búin ad glata glórunni af leidindum yfir alveg einstaklega óspennandi sjónvarpsdagskrá... Eda kannski ég hoppi bara upp í naestu lest og skelli mér til Kaupmannahafnar? Vá, tad er svooo freistandi, tad fara svona fjórar lestir tangad á dag! Ekki tad ad ég hafi tad eitthvad slaemt hérna, ónei, en mikid óskaplega elska ég Kaupmannahöfn mikid :D

Hafid tad gott, elskid fridinn og kyssid á kvidinn og vonum svo ad sólin skíni á morgun :)
Anna Björk

sunnudagur, júní 25, 2006

Ég er saklaus!!!

Bloggleysi sídustu daga er EKKI mér ad kenna. Netid er bilad á Ódinsgötunni, eina ferdina enn... Tad er búid ad vera bilad sídan á fimmtudaginn, og tví midur virdast Svíar ekki vera mjög framtakssamir í tví tegar tad á ad gera vid eitthvad slíkt... Reyndar er helgi og midsumarfagnadur búinn ad vera í gangi núna um helgina, en tad vaeri samt löngu búid ad laga tetta heima á Fróni! Enda veit ég ekki alveg hvad Íslendingar myndu gera ef netid myndi bila í hálfa viku... Ha ha, spila lúdó? ;) Sem myndi týda barnabomba eftir níu mánudi og skólakerfid faeri eina ferdina enn í rúst vegna skyndilegrar offjölgunar... Svo ad sjálfsögdu gera Íslendingar vid netid um leid og tad bilar! :D

En já, hér sit ég á internet-café í lestarstödinni, tví ég er einfaldlega of hád netinu til ad geta slitid mig frá tví í nokkra daga. Nei djók (eda kannski ekki), ég turfti bara ad skrifa nokkur e-mail :P Og tar sem ad lágmarkstíminn hér er klukkutími (fyrir 19 SEK), tá nota ég bara afgangstímann minn í ad blogga.

Reyndar get ég nú lítid bloggad. Tad er alveg rosalega margt búid ad gerast sídustu dagana, en ég vil helst láta myndir fylgja med, og tad get ég ekki gert fyrr en netid kemst í lag.

En jaeja, best ad haetta tessu bulli, lesa nokkrar bloggsídur (margar taer sem eru á íslenskum serverum virka ekki hérna í tessari ofursaensku tövlu... einhver mismunun í gangi?) og skella mér sídan á útsölur sem eru í fullum gangi núna :D

Krossum nú öll fingur og vonum ad netid fari ad virka aftur á morgun! Kaerar kvedjur, Anna Björk

miðvikudagur, júní 21, 2006

Og núna er ég Ástralíubúi??

Myndalaust blogg hér á ferd, jájá. Netid hérna í Odinsgatan er nefnilega á gelgjunni. Ádan vildi tad bara ekki virka neitt, en núna er tad bara tölvan mín sem tad vill ekki virka í. Hmm.

En af tví ad fólk er eitthvad farid ad tala um ad ég bloggi of sjaldan, tá skelli ég einni faerslu inn og tad verdur bara ad hafa tad tótt tad séu engir íslenskir stafir í henni ;)

Nú er samt eiginlega komid ad tví ad ég turfi ad fara ad huga ad komandi vetri. Ég er viss um ad allir lesendur tessa bloggs hafi svona einhverja hugmynd um hvad teir munu gera naesta vetur. Eda teir vita í tad minnsta svona cirka hvar teir munu búa. Heh, ekki ég! Hef hvorki graenan grun né glóru! Tad er nefnilega svo margt sem í rauninni stendur til boda.

  • Aftur heim til Íslands: Nei, a.m.k. ekki alveg strax. Ég aetla ad vera a.m.k. eitt ár í vidbót í útlöndum. Tau gaetu tó ordid miklu miklu fleiri :) Tad er nefnilega svo GEGGJAD ad búa í útlöndum :D
  • Vera áfram í Svítjód: Kanske... Held samt ekki. Og tó. Eda nei. Eda kannski.Tad er alveg AEDISLEGT ad búa hérna á sumrin, en einhvern veginn ímynda ég mér ad tad sé ekki eins gaman á veturna. Og sídan er landid allt of stórt. Tad er einfaldlega of stórt fyrir litla Íslendinginn... Já, ég vil hafa svona kósí, eins og t.d. Danmörk :D
  • Hoppa yfir til Danmerkur: Ójá! Tad vaeri sko gaman :D En tá er ég komin í krísu. Hvar í Danmörku myndi ég vilja búa? Í aedislegu aedislegu Kaupmannahöfn, eda á hinu aedislega fallega Jótlandi? Í Århus eda í einhverjum smábae? Jeminn eini, ég get ENGAN veginn valid! Ég elska Danmörku bara svo mikid ad ég vildi ad ég gaeti búid bara út um allt :D:D:D Og ég elska dönsku! Og ég mun sennilega fara tvisvar sinnum til Danmerkur í sumar, ég er ad springa úr gledi! :D
  • Noregur: Já, tad er spurning... En ég held samt ekki. Tad er of mikill snjór tar og of mikid af fjöllum og of mikid af fjördum. Ekki beint minn stíll... ATH. Ísland er náttúrulega bara geggjad med sinn snjó og sín fjöll og sína firdi, en ég held ad tad sé bara svo yfirdrifid mikid af tví öllu í Noregi.
  • Au pair: Jájá! Tekkir einhver einhvern sem vantar au pair? Reyndar segir hún amma mín mér ad ég eigi sko ekki ad vera ad vinna vid ad passa börn, tad sé víst alveg nóg ad turfa ad passa sín eigin börn í framtídinni... En no worries, ég aetla ekkert ad eignast (aettleida) börn fyrr en svona upp úr trítugt... Svo já, ef einhvern hefur einhvern sambönd í einhverjum snidugum löndum, endilega hafid samband :D
  • Fara ein til Frakklands eda einhvers annars ókunnugs lands: Hmm, og vera tar ein og yfirgefin og kunna ekki sjitt í tungumálinu? Gaeti verid gaman, sjáum til svona eftir 5 ár tegar ég verd ordin adeins troskadadri :)
Svo já gott fólk, ég er í bobba. Ég veit bara hvad ég aetla ad gera naesta sumar, múhahaha! Já tad er ég búin ad plana :D Ég aetla samt ekkert ad segja frá tví strax, vid skulum bara segja ad ég turfi ad halda áfram med mitt nískupúkalíf í vetur... og finna einhvern sem vill nískupúkast med mér... Held ad allir geti núna giskad á hvad ég aetla ad gera ;)

Vá, hvad tad er gaman ad vera svona ung og frjáls! Eins og tid sjáid, tá get ég farid hvert sem ég vil og gert hvad sem ég vil! Í augnablikinu er EKKERT sem heldur aftur af mér! Ég meina, ég er 18 ára, heilsuhraust, karlmannslaus (ha ha, ég er samt ekki ad segja ad teir séu alltaf einhverjir dragbítar sko... jább, ég bara vard ad baeta tessum sviga inn í til ad fordast allan misskilning tegar framtídareiginmadurinn minn les tetta...), hress, myndarleg (svona tegar ég nenni ad hafa mig til, hí hí), jákvaed og opin og til í allt! Vá, tad er svo gaman ad vera ég :D Og svo á ég náttúrulega bestu foreldra í heiminum sem eru ekkert slaemur studningur sko ;)

Fyrir ykkur sem tekkja mig ekki nógu mikid til ad getid lesid á milli línanna, tá er ég alveg skaelbrosandi allan hringinn núna. Og ég er alltaf skaelbrosandi tegar ég fer ad paela í hvad ég skuli jöra naest :)

En nú skulum vid haetta ad paela í tessu í bili.

Hey, ef tid heyrid einhvern ordróm tess efnis ad ég sé frá ÁSTRALÍU, tá skulud til ekki trúa honum. Eftirfarandi samtal átti sér nefnilega stad í matsalnum í vinnunni í gaer milli mín og gaurs sem ég tala vid naerri daglega.

Gaur: Hey Anna! How is it going! Hey, you are from Australia, right?
Anna: AUSTRALIA???????? No, I'm from Iceland!!!
Gaur: You are from Iceland??? But I've told everybody that you are from Australia!
Anna: Australia!?!?!?
Gaur: (Hlaer mikid) Yeah... Some people were talking about you and that you were from Iceland... And then I said "No, she is not from ICELAND! She is from Australia!!! I talk to her all the time so I know she is from Australia!"...
Anna: (Hlaegjandi) But why to you think I'm from Australia??
Gaur: I don't know! I don't know where I got that idea from! But I've been telling everyone the past few days that you are from Australia :P

Jájá. Einu sinni var ég Finni, sídan Bandaríkjamadur, sídan Nordmadur... Og núna Ástralíubúi... Foreldrar mínir eignast nýja dóttur á hverjum degi!

Held ég segi tetta nóg af bulli í bili, ég kem med annad blogg kannski á morgun og vonandi med myndum og alles :D

Hej då! Anna Björk from Australia

mánudagur, júní 19, 2006

Vá, alltaf stuð í Gautaborg :D

Vá, það hefur SVO margt gerst síðustu dagana að ég er ábyggilega búin að gleyma helmingnum af því! En ég skal reyna að koma með færslu um hvað á daga mína hefur drifið undanfarið...

Fallega fallega Gautaborg


Um daginn hringdi mamma í mig.
Mamma: Hæ, hvað segirðu gott? Hvað ertu að gera?
Anna: Ég er stödd í Norskri sjómannakirkju að horfa á frekar klúra bíómynd...
Mamma: Ha? Ertu að horfa á klámmynd inni í miðri sjómannakirkju?


Allir í messu

En það var nú ekki svo gróft, ég var ekkert alveg í miðri kirkjunni, heldur frammi í einhverri kaffiteríu. Og þegar leið á myndin kom í ljós að hún var ekkert svo rosalega gróf, það var bara kynlífsatriðið í byrjuninni sem var gróft...

En messan sem við fórum í áður en við horfðum á myndina var alveg rosalega skemmtileg. Það var sérstaklega gamanað fara með faðirvorið á norsku og segja allt sem söfnuðurinn á að segja á norsku :D Og ég afþakkaði reyndar vínið og oflátuna... en þetta var sem sagt svona ekta messa, bara fyrir okkur Núrjobbarana :)

En við Venla höfðum reyndar ekki tíma til að horfa á alla norsku klámmyndina, heldur þurftum við að drífa okkur í Liseberg til að horfa á Sweden - Paraguay á risaskjá ásamt öllum myndarlegu gaurunum í Gautaborg... Úff, maður minn! ;)
Fyrir þá sem ekki vita, þá erum við Venla ekki neitt afskaplega fótboltalega sinnaðar. Við byrjuðum t.d. á því að rífast um hvort einn hálfleikur er hálftími, fjörtíuogfimm mínútur eða sextíu mínútur... Hmm, en ég hafði samt rétt fyrir mér, vúhú, hann er fjörtíuogfimm mínútur :D

Leikurinn var sýndur á risaskjá

Svíþjóð var oft næstum því búin að skora. Fyrri hálfleikinn fólst aðal skemmtun okkar Venlu í því að hlægja frá okkur allt vit því okkur fannst svo fyndið þegar fólk öskraði og hrópaði og púaði og hvatti... En í seinni hálfleiknum vorum við sko alveg með á nótunum og öll okkar fagnaðar- og sorgaróp komu beint frá hjartanu. Jájá. Og síðan þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum þá skoraði Svíþjóð. Og það var alveg rosalegt! Fólk hrópaði og kallaði og öskraði og grenjaði og faðmaðist og kysstist og stóð frosið og klappaði og skálaði og stappaði og söng...

Ég hins vegar...
- hrópaði bara því þetta þýðir að núna mun Svíþjóð leika fleiri leiki = meiri líkur á fótboltapartíum
- kallaði Sverige því allir hinir kölluðu Sverige
- öskraði ekki neitt
- grenjaði ekki neitt heldur, enda ekki það mikið þjóðarstolt enn sem komið er
- faðmaði ekki neinn, enda enginn sætur strákur sem gerði sig líklega til að faðma mig
- kyssti engan, enda enginn sætur strákur sem gerði sig líklegan til að kyssa mig
- stóð ekki frosin því þetta mark þýddi ekkert svo óskaplega mikið fyrir mig
- klappaði alveg fullt, enda var ég svona frekar glöð yfir að greyin skyldur hafa skorað og áttu það skilið eftir vel spilaðan leik
-skálaði ekki enda ekki með neitt til að skála með
- stappaði ekki, enda algjör óþarfi að ganga berserksgang...
- söng ekki, enda kunni ég ekki þessu sænsku stuðningslög

Jájá. Á laugardaginn var tungumálamaraþon hjá Núrjobburunum. Við fengum m.a. fyrirlestur frá einhverri konu sem kennir við háskóla sem er kenndur við Norðurlöndin og markmiðið er að hafa alltaf nemendur frá öllum Norðurlöndunum. Hún sagði að almennt séð tæki það nemendur sem kæmu til Svíþjóðar frá hinum Norðurlöndunum svona 12-14 daga til að smella í gang með tungumálið og eftir það lægi leiðin beint upp á við. Fólk yrði fljótt alveg altalandi. Og svei mér þá! Þann sama dag (þennan sama laugardag, 13. daginn minn í Svíþjóð) hafði ég nefnilega ákveðið að tala bara sænsku þann daginn, enda farin að skilja flest og geta tjáð mig! Svo ég fylgi greinilega kúrfunni! Og nú tala ég helst bara sænsku, vúhú :D

En já, tungumálakvöldið var alveg rosalega fínt og ég stóð mig vel í að svara öllum spurningum um íslenskuna... ýkti kannski stundum smá og lagaði hlutina svolítið til eftir mínu höfði, en annars gekk það mycket bra ;) Þegar tungumálakvöldið var búið ákvað ég að mig langaði ekki heim, og dró því alla með mér á einhvern skemmtistað. Allir voru að fara að vinna daginn eftir nema ég. Kvöldið fór síðan þannig að ég fór heim, bláedrú, um tólf-leytið á meðan hin drukku frá sér allt vit... Það hefur eflaust verið gaman fyrir þau að vakna eldsnemma til að mæta í vinnu daginn eftir, tíhí.

Í gær (sunnudag) kíkti ég síðan smá á opnunarhátíð "Göteborgtunnel", en Göteborgtunneln er einhver göng fyrir bíla. Þau eru um tveggja kílómetra löng og það tók ekki nema sex heil ár að byggja þau... hmm. Opnunarhátíðin hefur staðið yfir alla helgina. Í gær var eitthvað um lifandi tónlist á svæðinu (ég ELSKA lifandi tónlist) og síðan skellti ég mér á sjóðheitt Salsanámskeið... Alltaf eitthvað að gerast í Gautaborg! Um kvöldið skellti ég mér síðan í Liseberg, en tækið sem ég fór í var svo ógeðslega klikkað að mér varð svo óglatt að ég gat ekki meir... Ha ha.


Ég á opnunarhátíð Göteborg Tunnel

Í dag heimsótti ég bankann og lét virkja debetkortið mitt. Síðan fór ég á Dönsku ræðimannsskrifstofuna ásamt hinum Núrjobburunum og fræddist um starfið þar.

Við Venla fyrir framan Det danske konsulat

Já já, þetta ku vera ég

Eftir heimsóknina á Danska konsúlatið, þá ákváðumvið Núrjobbararnir að skella okkur á "Lilla Villakullan". Lilla Villakullan er kaffihús þar sem þemað er Lína langsokkur, og vá, ég hef bara aldrei á minni ævi séð jafn rosalega kósílegt kaffihús!!! Við skelltum okkur á kökuhlaðborð þar sem maður mátti borða eins mikið og maður vildi fyrir 65 SEK. Ekki amalegt það!!! En já, þetta var alveg æðislegt. Diskarnir þarna voru allir ósamstæðir og við sátum niður í einhverri stofu með ósamstæðum sófum og borðum og fullt af hlutum úr húsinu hennar Línu, t.d. koffortinu hennar og fleiru. Vá, hvað þetta var fullkomið! Og þvílík rólegheitastemning! Jeminn eini!!! Ég hef bara aldrei farið inn á annan eins stað, þetta var engin smá upplifun!

Lilla Villakullan

Við Hannah gripum í tafl

Ég alveg geðveikt einbeitt

Hannah vel einbeitt

Ég þurfti að máta píanóið

Þegar heimsókninni á Lilla Villakullan var lokið, þá fórum við Venla í einhvern lystigarð og nutum lífsins og góða veðursins. Já, sumarið er sko málið! Um að gera að njóta þess sem allra mest og best!

Ég sæt og sæl í Gautaborg


Íslenskir fætur í Gautaborg

Alltaf æðislega fallegt í Gautaborg

Held ég segi þetta nóg í bili :) Morgundagurinn verður síðan skemmtilegur, það get ég sagt ykkur! Knús og kossar, Anna Björk

föstudagur, júní 16, 2006

"Annaldsdottir Haraldsdottir"?

Nytt svensk telefonnummer! Nýtt sænskt símanúmer!

(0046) 73 572 66 94

Þið þurfið samt ekkert endilega að eyða gamla númerinu mínu, það verður ennþá gilt þegar ég kíki heim á klakann...

Blogga meira á sunnudaginn!
Kveðjur, Annaldsdottir Haraldsdottir

(Já, þetta nafn Annaldsdottir Haraldsdottir er virkilega skráð fyrir símanúmerinu mínu!!! Ha ha, asnarnir hjá ThePhoneHouse hafa nú einhverju klúðrað greyin... Ha ha, nema að þeir séu líka haldnir þessari "dóttir" veiki, þ.e. að elska alla sem eru dóttir... svo því ekki að nota það bara tvöfalt?)

miðvikudagur, júní 14, 2006

Trír kaffikanna, jájájá...

Kristinn litli bróðir minn er eflaust sá eini sem fattar brandarann í titlinum hjá mér. Ha ha ha, hvað þetta er ógeðslega fyndið :D
Og ég er orðin algjör gella, það get ég sagt ykkur! Hér í Gautaborg hef ég byrjað hvern einasta dag á því að mála mig alveg fullkomlega, velja alveg fullkomin föt miðað við veðurfar, velja alveg fullkomna skartgripi við fullkomnu fötin mín og gera hárið á mér síðan alveg perfect. Og Guð forði mér frá því að ég hlaupi í gáleysi mínu ómáluð út í Netto sem er 30 metra í burtu!


Ekki mjög gelluleg pósa... smá hvíldarpása í miðju búðarrápi

Já, ég er gella. Í gær keypti ég mérsvo mínípils við stæltu og brúnu leggina mína! (Það er by the way ekki fituarða á mínum leggjum, ég get svoleiðis svarið það!!! Já, íþróttaiðkun síðustu tvö árin, endalausar gönguferðir hingað og þangað, mótþróaskeið gagnvart notkun bíla, línuskautanotkun, stigahlaup og margt margt fleira hefur greinilega skilað einhverjum árangri!). Í morgun línuskautaði ég svo í vinnuna í öllu mínu veldi, vel léttklædd og í mínípilsi. Vá, það er svo gaman að vera ung :D

Nordstan, fremsta verslunarmiðstöð Svíþjóðar... nokkra metra frá íbúðinni minni ;)


Annars var ég nú bara í vinnunni í allan dag. Ég fékk 17 herbergi. Hvert herbergi tekur hálftíma. Vinnudagurinn á að vera 8 klst. You do the math... ;)


Nordjobbarar á róló

Spurning hvort maður eigi að hanga heima í kvöld eða hvort maður eigi að skella sér í Liseberg? Hmm, ég held ég hangi bara heima, það er nefnilega miklu svalara inni en úti :)

Ég í Vasaparken... held ég!

Og já. Vel á minnst. Hér í Svíaveldi þyki ég vera töff með eindæmum. Af hverju? Jú, allir sem ég hef hitt á förnum vegi og allir Nordjobbararnir segja að það að vera "son" og "dóttir" sé bara það flottasta sem hægt er að hugsa sér! Og öll vildu þau heita son eða dóttir! Hmm, ég hef nú ekki pælt þannig í þessu áður, að það sé alveg ÓGEÐSLEGA svalt að vera son eða dóttir, þó hef ég eitthvað heyrt um það í "gegnum árin" en hélt að fólk væri bara mestmegnis að reyna að finna eitthvað fallegt til að segja um Íslendinga... En nei, fólk virkilega dýrkar þetta og lítur liggur við upp til fólks sem heitir son og dóttir! Sem er nú ekki amalegt ;) Enda hef ég alltaf borið mitt "Haraldsdóttir" með stolti, það er nefnilega ekki amalegt að vera dóttir hans pabba míns :D

Og já. Það virkar að senda mér póst á:
Anna Björk Haraldsdóttir
Odinsgatan 24B
411 03 Göteborg
Sweden

Ég var nefnilega aldrei viss um hvort það væri hægt að senda mér eitthvað beint hingað í Óðinsgötuna, því það eru svona 12 íbúðir sem heita Odinsgatan 24B í þessu húsi hérna ;) En hin gáfaða ég ákvað að láta á það reyna og bað þess vegna bankann minn hérna úti um að senda mér nýja og útlenska maestro-kortið mitt hingað beint inn um bréfalúguna, og svei mér þá, ég fékk kortið mitt inn um bréfalúguna í dag! Vúhú! :D Reyndar svona eftirá að líta var það kannski ekki mjög sniðugt að gera svona póst-tilraunir á nýja debetkortinu sínu... Ég meina, það hefði nú alveg getað týnst ;) Svo mamma og pabbi, setjið ykkur í startholurnar beint fyrir framan heimabankann og ekki millimetra fjær! Því um leið og ég fæ mér frídag á virkum degi (gætu liðið einhverjar vikur þangað til) þá fer ég og læt virkja kortið mitt og þá megið þið millifæra pening af íslenska reikningnum mínum... ;) Ekki það að mig vanti peninga núna sko, það er allt svo ódýrt hérna að ég eyði varla krónu!!!

Núrjobbarar :) (Nordjobbarar)

Og já, ó þið kæru lesendur, nú vantar mig aðstoð ykkar. Á laugardaginn verður "tungumálamaraþon" hjá Nordjobburunum. Nordjobbhópurinn í heild sinni þessa stundina samanstendur af mér og svona 20 Finnum. Já, ég er eina manneskjan sem EKKI er finnsk! En já. nú bið ég ALLA lesendur þessa bloggs, vini jafnt sem óvini (ha ha, djók, ég á enga óvini, þetta er bara svo flott laglína með Pöpunum!), kunnuga jafnt sem ókunnuga, um að skrifa a.m.k. eina setningu (á íslensku) í komment hjá mér sem gaman væri að kenna Finnunum að segja. Koma svo! Þið megið skrifa nafnlaust eða undir dulnefni ef þið viljið ekki að ég viti að þið skoðið bloggið mitt...

Venla

Kveðjur úr Svíaveldi, Haraldsdottir Anna (já, núna heiti ég Haraldsdottir Anna, samkvæmt nýa debetkortinu mínu!).

Haraldsdottir Anna

mánudagur, júní 12, 2006

Brjálaður hiti!

Ég held ég sé í vitlausu landi. Ég held allavega að ég sé ekki í Svíþjóð! Og ef ég skyldi nú vera í Svíþjóð, þá gleymdist eitthvað að vara mig við veðrinu hérna... Ó boj. Í dag var alveg skrilljón stiga hiti (mamma segir að það hafi verið 26 gráður í Stokkhólmi um hádegi... Jájá, hún mamma veit meira um veðrið hérna en ég!).
Svona var veðrið í dag
Annars er næsta mál á dagskrá að kaupa hitamæli. Ég er nefnilega svo mikill Íslendingur að ég er alveg föst í því að á morgnana og á kvöldin eigi að vera svalt og gott. Og þess vegna klæði ég mig alltaf vel og vandlega, alveg eins og ég væri á Íslandi. En nei. Hérna er steikjandi hiti frá klukkan fimm á morgnana (og ábyggilega fyrr) til klukkan 23 á kvöldin, svo að á morgnana er best að spara sér tíma og fara bara strax í pils og hlýrabol, því það er ekki líft að vera í öðrum klæðnaði.
Best að vera bara í bikiníi!
Í dag var gaman. Ég vaknaði klukkan eitt, skrapp útí búð og keypti mér fullt af sólarvarnardóti og fór síðan í Liseberg! Ég var komin þangað um þrjú-leytið en fór aftur heim um sex-leytið því mér var orðið svo óglatt af öllum snúningunum og veltunum og að vera á hvolfi og rússíbönunum og risarólunum og öllu því. En það er allt í lagi þótt ég hafi bara verið þarna í þrjá klukkutíma, því ég keypti mér nefnilega "Guldpas" á 1095 SEK :) Guldpas þýðir það að ég get núna farið í Liseberg hvenær sem ég vil ókeypis og farið í öll tækin sem ég vil, ókeypis! Held að málið sé algjörlega að fara þangað á hverjum einasta degi eftir vinnu og taka eins og eina sallíbunu í stærsta trérússíbana Norðursins... Ég sá reyndar í dag að það voru komnar sprungur í flesta trjádrumbana sem eru í rússíbanabrautinni og fannst það ekki neitt afskaplega traustvekjandi... Hmm. En það var samt alveg ógeðslega gaman :D
Þarna sjáið þið trérússíbanann
Þessar pósur geta drepið mann og annan ;)
Hey, vissuð þið að þegar maður fer út í búð í Gautaborg, þá þarf maður að borga 5 SEK til að fá svona alvöru innkaupavagn? Reyndar fær maður peningana til baka þegar maður skilar vagninum, en þetta er engu að síður mjög furðulegt. "Hey, við skulum stela innkaupavagninum!". Án gríns held ég nú samt að ef einhverjum dytti á annað borð í hug að stela innkaupavagni, þá myndi hann ekki láta 5 SEK stoppa sig í þeirri iðju! En maður má samt fá svona litla körfu sem maður heldur á ókeypis, svo maður er ekki alveg fatlaður er maður er ekki með 5 krónur á sér akkúrat þá stundina.
Þessi er ekki fyrir hjartveika og mömmu... Hann fer oft á hvolf!
Á morgun er svo spáð 25 stiga hita. Planið er að kaupa sér nesti og sænska ástarsögu og skella sér síðan í einhvern lystigarð og sóla sig! Þarf reyndar eitthvað að kíkja í búðir (kaupa hitamæli...) og brasa eitthvað, ef ég nenni. Ég held reyndar að þetta sé ekki spurningin um að "nenna", heldur er eiginlega alveg lífsnauðsynlegt fyrir mig að endurnýja fataskápinn minn! Mín íslensku föt (fóðruðu buxur, þykkar peysur) passa bara því miður ekki við veðurfarið hér! Ohh.
Mér var skipað að vera í bol í flestum tækjunum...
Jæja, má ekki vera að þessu, ég ætla að fara að hlusta á finnska geisladiska...
Kveðjur úr hitanum í Gautaborg og endilega sendið mér kalda strauma! (Ha ha ha). Anna Björk

Ég á framtíðina fyrir mér sem handamódel... ;)

sunnudagur, júní 11, 2006

Allt að gerast í Gautaborg!


I am disappearing!!! Og ég er ekki að grínast! Vá, talandi um fínan megrunarkúr, jább, bara að skella sér til útlanda :D Annars fer ég nú alveg að verða hrædd við/um sjálfa mig, mín náttúrulega þyngd hlýtur að vera að nálgast 56,5 kílóin, en hún hefur verið 58 kíló í ca. eitt ár. Við Venla ætlum að kaupa okkur vigt við fyrsta tækifæri, hún finnur það nefnilega líka að hún er eitthvað að léttast. Það er nú samt kannski ekkert skrítið að ég léttist miðað við hvað ég borða ekkert rosalega mikið (sænskur matur er ekki góður...) og hreyfi mig allt of mikið!!! Ó boj. En um leið og mín náttúrulega þyngd verður 55 kíló, þá byrjar formleg fitun. Bara svo við höfum það á hreinu!

Vinnan í dag var alveg biluð. Nenni samt ekki að tala meira um það, segjum bara að ég sé alveg útsprungin (ha ha ha, útkeyrð og sprungin myndar saman orðið útsprungin!).

Annars hef ég ekkert yfir vinnunni að kvarta, annað en að ég verð svo rosalega þreytt í fótunum að ég er alveg ónýt eftir vinnudagana. Og samt á ég alveg geggjað góða skó. En fólk segir að þetta venjist fljótt, og eftir að ég er búin að venjast fótaverkjunum, þá fari ég að finna til í bakinu. Vá ég hlakka til.

Og vinnuskipulagið þarna er alveg GEGGJAÐ! Já, ég má bara taka mér frí þá daga sem ég vil og ég má vinna þá daga sem ég vil! Og ef ég vil ekki vinna neitt, tja, þá vinn ég ekki neitt! En maður fær að sjálfsögðu ekki peninga fyrir það. En annars eru bara nöfn allra sem vinna við þrif á Gothia Towers uppi á töflu og svo skrifa vinnuveitendurnir "A" við einhverja daga sem þýðir að þeir eru að stinga upp á að maður vinni þá daga, og maður getur annað hvort skrifað "ok" eða krassað yfir reitinn, eftir því hvort maður vill vinna eða ekki. Og svo getur maður sjálfur gert punkt á þá daga sem maður vill alveg endilega vinna á! Og ef maður segir nei við uppástungum yfirmannanna, þá er það alveg MINNSTA mál í heimi, það er svo margt fólk þarna sem getur unnið í staðinn fyrir mann! Þetta er svo klikkað flott kerfi að ég er alveg að missa mig yfir því!

Og já. Fyrir 35 SEK (350 ISK) á dag má maður borða eins mikið og maður vill yfir vinnudaginn! Það er meira að segja gert ráð fyrir morgunmat frá klukkan 9:00-9:15 í vinnutímanum (maður mætir til vinnu klukkan 9:00) svo við fáum borgað fyrir þetta korter sem gert er í ráð fyrir í morgunmat! Og síðan er alltaf eldaður hádegismatur, alltaf einhverjir rosalega fínir réttir (sem er reyndar yfirleitt aðeins of flóknir fyrir minn smekk svo ég fæ mér alltaf bara ávexti, brauð og grænmeti nema að það sé eldað eitthvað sem ég borða). Og maður má fara eins oft í hádegismat og maður vill ;) Og borða alveg endalaust mikið. Og síðan tekur fólk sér yfirleitt kaffipásu þegar líða tekur á daginn, og það sem er svo fyndið við það er að þá er ennþá sami matur á borðum og var í hádeginu, svo fólk getur fengið sér hádegismatinn allan daginn! Og við fáum alltaf borgað fyrir matartímana, því við þurfum bara að skila af okkur visst mörgum rúmum og erum á tímakaupi allan daginn, og bara hið allra besta mál ef við höfum tíma fyrir marga matartíma!

Eins er líka hægt að fá ýmislegt að drekka með matnum, já, þú getur ráðið hvort þú færð þér mjólk, vatn, appelsínusafa, epasafa, ananassafa, kaffi, te, léttöl... Já, ég sagði LÉTTÖL!!! Ha ha ha.

Og enn heldur starfsfólkið á hótelinu að ég sé finnsk, því allir Nordjobbararnir koma frá Finnlandi. Og síðan í dag þegar ég var að spjalla við einhvern gaur í lyftunni á minni allra penustu sænsku, þá spurði hann hvort ég væri frá Noregi... Og ein kona sem ég talaði við á ensku í gær, hún spurði hvort ég væri nokkuð Bandarísk, því ég er víst með alveg fullkominn Bandaríkjahreim!! Jájá, og síðan talaði ég líka við einn gest á hótelinu í gær sem kemur frá Bandaríkjunum og hann sagði að ég talaði klikkað góða ensku með alveg fullkomnum hreimi, ég hlyti jú að hafa búið í Bandaríkjunum einhvern tímann... Hmm.

Í gærkvöldi fór ég ásamt Venlu að hitta einhverja Nordjobbara sem komu til landsins í fyrradag og ég hafði ekki hitt áður. Við skelltum okkur á kaffihús og sátum úti í góða veðrinu með kakó og kökur og töluðum og töluðum og töluðum og hlógum og hlógum og hlógum... Vá, ég hef ekki hlegið svona mikið síðan, tja, ég veit ekki hvenær!

Það var reyndar svolítið strembið að ramba á réttan sporvagn til að hoppa inn í á leiðinni á kaffihúsið, því sporvagnaupplýsingamiðstöðin var lokuð og það eru alltaf tveir sporvagnar með sama númeri sem fara á sinnhvorn enda bæjarins svo við vissum aldrei hvaða vagn við áttum að taka þrátt fyrir að vera með sporvagnakort. En eftir að hafa stökkið upp í fjóra vagna og spurt hvort þessi vagn færi til Vasaplatsen, þá fundum við loksins einn sem átti leið þar um.

Ég og Venla í traminu. Sjáið þið hvað ég er að verða brún og sæt? :D


Í sporvagninum settumst við Venla á móti alveg sæmilega myndarlegum gaur. Ég stóðst að sjálfsögðu ekki mátið og fór að spjalla við kauða um daginn og veginn og einhverra hluta vegna, þá á ég mynd af honum? Ha ha, við Venla vorum eitthvað að taka myndir af okkur og fannst mér því tilvalið að smella einni á hann ;) Þegar við Venla komum út úr vaginum á Vasaplatsen þá spurði Venla alveg gáttuð: "Gerirðu þetta alltaf? Að tala við svona bláókunnugt fólk í sporvögnum? Og þetta bara rann út úr þér! Og ÞÚ VARST EKKI EINU SINNI FULL!!!". Tja, ég geri þetta nú ekkert alltaf, bara ef það sitja myndarlegir gaurar á móti mér ;)


Gaurinn í traminu

En já. Ýmislegt skemmtilegt kom svo í ljós þetta kvöld hjá okkur Nordjobburunum. Jújú, ég bý að sjálfsögðu í snjóhúsi á Íslandi og veiði fisk í gegnum vök. Síðan fer ég í skólann í fínu fjöðrunum mínum og pelsinum og skinnunum mínum. Ég er gift víkingi og er búin að vera það síðan ég var þrettán ára. Jájá. En við erum samt svo nútímaleg í snjóhúsinu að við erum með þráðlaust internet, svo kallinn geti nú lesið bloggið mitt á meðan ég er í útlandinu. En af hverju skyldi ég karlinn eftir heima á Íslandi? Jú, hann var alltaf að lemja mig svo ég tók eitt taekwondospark á hann, rotaði hann og hoppaði síðan upp í næstu flugvél...

Við bjuggum líka til flottustu pikköpp-línu sem finnst á þessari jörðu. Við gerðum að sjálfsögðu heilmikið grín að því að ég gæti ekki talað um veðrið eða stjórnmál á sænsku, en ég gæti sko romsað út úr mér öllu sem tengist þrifum á einn eða annan hátt. Ég spurði síðan stelpurnar (það voru bara Nordjobbarastelpur þarna) hvernig í ósköpunum maður segði annars "ryksuga" á ensku, því ég kunni það bara á sænsku. Og ein stelpan svaraði að bragði: "dust-sucker"... Ha ha ha! Þetta hefði allt eins getað komið úr mínum munni! Svo já, eftir það barst talið að Robbie Williams því hann mun vera með tónleika í Ullevi -leikvanginum (þar sem EM í frjálsum íþróttum verður haldið í sumar, nokkur hundruð metra frá íbúðinni minni) dagana 1. og 2. júlí. Og þá varð til þessi flotta pikköpp-lína: "Hey Robbie, do you want come home and look at my dust-sucker?". Verð að prófa þetta við tækifæri ;)

Nordjobbarar (Finnar)

Og enn einu sinni var ég aðalbrandari kvöldsins og hrókur alls fagnaðar (það er búið að gerast ansi oft hér í Svíaveldi...). Ég byrjaði kvöldið nefnilega ansi glæsilega! Jú, sjáið til. Ég var að skoða kökur á kaffihúsinu og gat ekki valið hvað mig langaði í, því mig langaði í allt þarna. Og þá þurfti ég að sjálfsögðu að skoða allar kökurnar gaumgæfilega til að reikna út hvaða köku ég ætti að kaupa til að fá sem mest fyrir peningana mína. Og þarna stóð og ég beygði mig áfram og skoðaði og skoðaði, og síðan leist mér ansi vel á eina og vildi endilega skoða þykktina á henni aðeins betur. Svo ég teygði mig aðeins lengra, en fattaði ekki að það var gler fyrir kökunum og bara BAMM, beint með ennið í glerið!

Og ekki nóg með það, heldur þegar líða tók á kvöldið og klukkan var að verða ellefu, þá var orðið svolítið kalt úti. Allt í einu tók ein stelpan upp teppi og spurði hvort einhver vildi. Ég sagði strax já, enda í pilsi. Síðan spurði ég hvar hún hefði eiginlega fengið þetta teppi. "Ha já, ég er alltaf með teppi með mér því mér er alltaf svo kalt." Það tísti eitthvað í hinum stelpunum, en ég hélt það væri því þeim fyndist þetta svo sniðugt. Eftir smá stund tók ég eftir því að önnur stelpa var líka komin með teppi! Og ég, asninn, spurði með mín bláu augu galopin hvort hún gengi líka alltaf með teppi ár sér! Og þá sprungu þær allar úr hlátri og bentu mér á að það voru teppi á öllum stólbökunum þarna sem fólk gæti notað þegar kólna færi í veðri... Hemm. En ég er samt með brúnt hár sko...

Í kvöld ákváðum við Venla að elda okkur spakk og hagettí. Eða nánara sagt hakk og pastaskrúfur. Maturinn bragðaðist alveg brilljant! Og svei mér þá, við erum alveg jafn miklar apar þegar það kemur að eldamennsku ;) Ha ha.


Eldað í Odinsgatan


Á morgun er svo klárlega planið hjá mér að fara í Liseberg (tívolíið). Þeir sem til þekkja hafa sagt mér að Liseberg sé mun brjálaðra en Tívolíið í Köbenhavn. Gaman gaman :D Og ég er búin að ákveða að fá mér líka frí á þriðjudaginn, svona svo ég geti aðeins hvílt mig eftir erilsama fyrstu viku í Gautaborg.

Segjum þetta gott í bili, en samt er svo margt fleira sem mig langar að segja ykkur :D Geri það bara seinna ;)

Kossar og kveðjur frá Gautaborg, Anna Björk

föstudagur, júní 09, 2006

Sænskusnillingur

Munið þið eftir því í "gamla daga" þegar fólk var alltaf að bítta öllu? Bítta körfuboltamyndum, bítta poxi, bítta Spice Girls myndum... Já, gleðifréttir, því nú get ég bíttað rúmum!!! Og lömpum!!!

Neinei sagan er nú sú að maður "bíttar" á rúmunum þegar maður skiptir um sængurföt og maður bíttar á lömpunum þegar maður skiptir um ljósaperu upp á svenska tungu. Afskaplega sniðugt.

Já, ég er sem sagt byrjuð í vinnunni, og er búin með fyrstu þrjá dagana. Fyrstu þrír dagarnir fara einmitt í það að maður fær "lærimeistara" sem kennir manni allt um hótelherbergjaþrif. Fínt, flott og frábært! Tjah, kannski ef litið er framhjá þeirri staðreynd að alla þrjá dagana fékk ég lærimeistara sem tala ekki ensku... Svo ég lærði bara allt upp á svensku! Ég nefnilega skil svo gott sem alla sænsku ef hún er töluð úberhægt, það er ekkert mál. Og svo er ég búin að læra alveg fullt af nýjum og skemmtilegum orðum á þessum þremur dögum: Städningsrum (herbergi sem fólk býr í en á að þrífa), avresarum (herbergi sem er tómt), dammsuga (ryksuga), damma (þurrka ryk af einhverju), tvål (sápa), snabbare (sneggri, mikið notað á mig í vinnunni, ha ha) og svo miklu miklu meira sem tengist þrifum á hótelum á einn eða annan hátt. Frábært. Ég get talað um þrif, en ég hef ekki orðaforða í að tala um veðrið.

Ég eldaði mér hamborgara í Odinsgatan... dugleg ;)


Annars verð ég nú að segja það, að þetta er alveg geggjaður vinnustaður!!! Vá, segi ég nú bara! Þvílíkur starfsandi fyrirfinnst ábyggilega ekki á neinum stað í heiminum og þótt víðar væri leitað! Úff. Það er alltaf allir brosandi, og maður segir "hej" við gjörsamlega og fullkomlega alla starfsmenn sem maður mætir einhversstaðar á hótelinu... Fólk segir brandara non-stop og hlær að öllum sköpuðum hlutum... Enn sem komið er þekki ég nú reyndar ekki marga á hótelinu, en margir virðast þó vita hvað ég heiti? Hmm.
Margir standa líka pikkfastir í þeirri trú um að ég sé Finni. Enda eru líka að koma um 30 Finnar að vinna þarna í sumar, svo það er kannski ekkert skrítið. Það var líka sagt við mig í dag: "Ó, ég hélt þú værir finnsk, því þú talar svo finnska sænsku!". Ha ha. Frábær Anna! En ég er sko enginn Finni, jag er en islänning! ;)

Góðar pósur alltaf hreint ;)

Og já. Ég "má ekki" tala ensku í vinunni. Alltaf þegar ég byrja að tala á ensku, spyrja um hitt og þetta, hrópar UNDANTEKNINGARLAUST einhver: "Nej, hun forstår svenska! Du måste prata svenska med henne!". Annars eru nú ekkert margir enskumælandi í þrifadeildinni á þessu hóteli. Flestir eru inflytjendur og tala reyndar allir sænsku, en t.d. í einum matartímanum í dag (þegar ég sat á borði fullu af fullorðnum konum...) þá gaf þar á að líta eina íranska konu, eina frá Malaví, aðra frá Taíwan, eina frá Kína og eina pólska og eina frá einhverju Asíulandi sem ég man ekki hvað er. VÁ! Og þær eru ekkert endilega að vilja læra ensku, því núna eru þær í Svíþjóð og þá læra þær sænsku. En annars er nú eitthvað af ungum Svíum þarna, talaði t.d. við einn í dag þegar ég TÝNDI BÆÐI SJÁLFRI MÉR OG LÆRIMEISTARANUM Á HÓTELINU!!!

Já, það er nú saga að segja frá því, ekkert merkileg samt sko :) En já. Lærimeistari minn var írönsk kona sem hefur búið á landinu í átta ár. Klukkan korter yfir eitt ákváðum við að það væri kominn tími á lunch (berist fram sem lúnhghg, æ svona kokhljóð) og ég fór í matsalinn en hún fór eitthvert annað því hún var með nesti. Og mér fannst hún endilega segja að við ættum að hittast klukkan tvö. Og svo varð klukkan tvö og ég búin að borða hádegismat með gaur sem heitir David (berist fram sem Dovid). Það var bæ ðe way mjög furðulegur matartími því samtalið fór svona:

Anna: Hej! Kann jag sitta här hos dig?
David: Javisst! (Geðveikt hress)
Anna: Hvad heter du?
David: Hvad säger du?
Anna: Hvad heter du?
David: Jag heter David. Og du?
Anna: Hvad säger du? Du måste prata langsamt for jag kommer från Island.
David: Hvad heter du?
Anna: Jag heter Anna. Hur gammel er du?
David: Hvad säger du?
Anna: Hur gammel er du?
David: Jag er 17. Og du?
Anna: Jag er 18, nästan 19 år.
- Smá þögn-
David (mjög æstur): Hur många rum har du städat (þrifið)?
Anna: Hvad säger du?
David: Hur många rum har du städat?
Anna: Det er bara dag nummer 3, så jag har städat 5. Og du?
David (mjög hreykinn): Jag har städat 9 :D

Og þar með var samtalinu lokið. Ég hafði ekki orðaforða í meira spjall og hann hafði ekki hugmyndarflug.

En aftur að mér villtri á hótelinu. Klukkan varð tíu mínútur yfir tvö og ekkert sást í lærimeistarann, en ég vissi að við ætluðum að þrífa eitt herbergi á hæð númer 18 (sem var ekki okkar hæð) og klára síðan það sem eftir var á hæð 20 (okkar hæð). Í mjög stuttu máli sagt, þá hissaði ég mig upp á 20. hæð (hissa=lyfta), hitti þar um tvítugan gaur að nafni Fredrik sem sagði samstundis "Hej Anna" þrátt fyrir að ég minnist þess ekki að hafa séð hann áður (ég er ekki enn það hátt sett að ég beri nafnspjald), spjallaði smá við hann, hissaði mig niður á 18. hæð, læsist "úti" og komst ekki aftur í lyftuna, fékk konu til að opna fyrir mig, hissaði mig upp á 20. hæð, talaði meira við Fredrik, ákvað að taka brunastigann niður á 18. hæð, komst ekki inn um dyrnar á 18. hæð og komst heldur ekki aftur inn um dyrnar á 20. hæð, bankaði og Fredrik kom og bjargaði mér.

Og þá var klukkan orðin 14:20 og lærimeistarinn kom afskaplega rólegur upp með lyftunni. Við ætluðum sem sagt ekki að hittast fyrr en klukkan 14:20... Vúps!

En já. Ég keypti mér línuskauta í gær, því lappirnar á mér voru að gefa sig. Bæði iljarnar því ég var búin að ganga marga tugi kílómetra á nokkrum dögum og hnén á mér, sem höndluðu ekki meira. Þessa glæsilegu línuskauta keypti ég á 199 SEK í dótabúð sem er í Nordstan (frekar stórri verslanamiðstöð 7 mínútur frá Odinsgatan) og ég elska þá. Einhver má samt segja mér hvernig í fj***anum ég á að stoppa í brekku... Sem betur fer er Gautaborg tiltölulega flöt...

Flottu línuskautarnir mínir :D

Og í morgun vakti ég, tjah, við skulum bara segja ÞÓNOKKRA athygli þegar ég rúllaði mér svona líka fínt eftir göngunum (á starfsmannahæðinni) þegar ég mætti til vinnu í morgun... Því, ótrúlegt en satt, þá eru nánast engir á línuskautum í Gautaborg!!! Ég fékk alveg fullt af kommentum á sænsku frá öllum sem ég rúllaði framhjá og ég sagði bara "Jaja!" því ég skildi náttúrulega ekki boffs ;)

Og síðan rúllaði ég mér inn á husfrurkontoret, miðstöðina þar sem öllu þrífingarliðinu er stjórnað og yfirmenn mínir eru allan daginn. Ég geymi fötin mín þarna inni því ég á engan skáp enn sem komið er. Eftirfarandi samtal átti sér stað þegar ég rúllaði inn í öllu mínu veldi og sýnir þetta samtal jafnframt hversu gífurlega góð ég er orðin í að tjá mig.

Yfirm: Nej, hvad har du der!!!
Anna brosir bara.
Starfsm: Nej, det måste være svårt! Þetta hlýtur að vera erfitt!
Anna: Nej, det er veldig trevligt! Nei, þetta er mjög gaman!
Yfirm: Nej, det måste være svårt! Nei, þetta hlýtur að vera erfitt!
Anna: Nej, det går mycket bra! Nei, þetta gengur mjög vel!
Starfsm: Men det måste jo væra livsfarligt! En þetta hlýtur að vera alveg lífshættulegt!
Anna: Nej, det går mycket bra, det er veldig trevligt!

Og svo skyldi ég ekki meira og brosti bara.

Jæja, vá, ég gæti bloggað í allan dag og alla nótt, en nú er tími til kominn að fara að sofa, má nú ekki halda vöku fyrir Venlu í alla nótt ;)


Ég og Venla

Hafið það mycket bra, elsku ástarpungarnir mínir! :D
Anna hin ofursænska

þriðjudagur, júní 06, 2006

Sveriges Nationaldag


Já, í dag er Sveriges nationaldag (þjóðhátíðardagur Svíþjóðar). Að því tilefni fór ég ásamt hinum Nordjobburunum og Nordjobbfulltrúanum (ég hitti þau öll í fyrsta skipti í gær þegar við fengum okkur vínarbrauð í tilefni af þjóðhátíðardegi Dana) í Liseberg sem er tívolíið hér í Gautaborg. Þar hlustuðum við á hátíðarprógrammið sem samanstóð af æðislegum karlakórssöng, lúðrasveit, skemmtilegum ræðuhöldum og óperusöng. Ræðuhöldin voru svo fyndin að allir sænskumælandi áheyrendur veltust um af hlátri allan tímann. Ég veltist bara stundum um af hlátri, því ég skildi bara suma brandarana :) Ha ha. Og síðan hrópaði ég fjórfalt húrra ásamt allri mannmergðinni fyrir sænska fánanum. Ég held að aldrei hafi verið hrópað fjórfalt húrra fyrir íslenska fánanum á 17. júní, svo þetta var nokkuð spes.


Og svo var þóðsöngurinn sunginn og hann er mjög fallegur (það jafnast samt enginn á við þann íslenska) og að gamni mínu ætla ég að skrifa upp textann af honum hér svo þið getið lesið hann. Ekkert smá flott.


Nationalsången


Du gamla, du fria, du fjällhöga Nord
du tysta, du glädjerika sköna.
Jag hälser dig, vänaste land uppå jord
din sol, din himmel, dina ängder gröna
din sol, din himmel, dina ängder gröna.


Du tronar på minnen från fornstora dar,
då ärat ditt namn flög över jorden.
Jag vet, att du är och du blir, vad du var
Ja, jag vill leva, jag vill dö i Norden
Ja, jag vill leva, jag vill dö i Norden.

Eftir formlega dagskrá fengum við Nordjobbhópurinn okkur smá göngutúr um tívolíið og settumst síðan á grasflöt og töluðum saman. Ég er orðin ansi góð í því að skilja einfaldar setningar og er meira að segja farin að svara ýmsu á sænsku. Og ég er alltaf að læra eitthvað nýtt, það er ekkert smá gaman að læra nýtt tungumál svona á staðnum!


Og síðan settust nokkur af okkur fyrir framan stóra sviðið og hlustuðu á sinfóníuhljómsveit spila nokkur lög. Þetta var algjört klúður hjá grey hljómsveitinni. Hún ætlaði aldrei að geta byrjað þetta almennilega því hljómsveitarstjórnandinn var alltaf að stoppa hana af engri sjáanlegri ástæðu. Og síðan þegar hún loksins byrjaði af einhverri alvöru, þá komu fullt af verkaköllum upp á sviðið með risastórar svartar tréplötur og byrjuðu að reisa vegg fyrir framan hljómsveitina!!! Ég held reyndar að það hafi verið gert því sólin skein svo mikið á fiðlurnar og sellóin og allt það, en svona hiti verður einmitt til þess að hljóðfærin verða fölsk... Ég nennti nú ekki að sitja þarna lengur en í samtals fjörutíu mínútur, því þetta var eiginlega alveg skelfilegt! Svo allir Nordjobbarar ákváðu að fara bara heim til sín.

Ég við Liseberg-innganginn. Sést smá í Gothia Towers fyrir aftan mig

Hey, vissuð þið að það eru ekki nein pósthús í Gautaborg? Neibbs, þau voru lögð niður því enginn notaði þau! Svo núna fer maður víst út í búð eða eitthvað til að senda póstinn sinn... á enn eftir að fatta hvernig það dót virkar, svo mamma og pabbi, þið fáið póstkortið sem ég skrifaði til ykkar í gær bara einhverntímann! Kannski!

Og hey, vissuð þið að það má ekki reykja á NEINUM almennum stöðum hérna? Ekki einu sinni á pöbbunum og næturklúbbunum á kvöldin og á næturna!!! Ég fór á einhvern pöbb í gær með Nordjobbliðinu og þau sögðu mér frá þessu (ekki það að ég hafi eitthvað verið að reykja sko, ha ha, heldur þurfti einn gaurinn að fara út til þess). Vá, þetta er alveg ótrúlegt! Ekki það að ég ætli neitt að kvarta sko ;)

Ég skellti þessari pizzu í ofninn hér á Odinsgatan, og fannst ég ekki geta annað en að skreyta hana smá í tilefni af Sveriges nationaldag...


Þið verðið að afsaka það að myndirnar með þessari færslu voru ekki upp á tíu fiska, en málið er að myndavélin mín var nánast batteríslaus greyið, og vildi þess vegna ekki sýna mér myndefnið á stóra myndavélarskjánum og ég fattaði ekki að nota litla skjáinn og skaut þess vegna bara út í loftið! Ha ha.

Bið að heilsa öllum! Bestu kveðjur, Anna Björk

PS. Kannski er ég í vitlausu landi?? Rakst nefnilega á þetta á förnum vegi í dag:

Spásserað um bæinn

Ritað mánudaginn þann 5. júní klukkan 18


Ég við Rosenlund kanalinn

Já það er margt skrítið og skemmtilegt sem gerist hér í borg Gautanna! En vá, hvað ég skemmti mér vel, þrátt fyrir að þekkja ekki eina einustu manneskju og vera varla bjargálna á tungumálinu! Ég held það sé ekki hægt að láta sér leiðast hérna, eða a.m.k. ekki yfir sumartímann. Veðrið er náttúrulega búið að vera alveg stórkostlegt og svei mér þá ef ég er ekki bara orðin alveg heví brún! Það skein sól í allan gærdag og það er búið að skína sól í allan dag, hitinn er alveg passlega mikill og varla ský á himni.

Rosenlundkanallinn


En það er margt sem þarf að læra, því þetta er svo allt öðruvísi en Ísland nokkurn tímann. Eða a.m.k. fyrir mig, því ég hef aldrei búið í borg áður. Í gær þegar ég var að ganga um bæinn með Ragnari, þá sagðist hann sjá það á mér að ég væri ekki vön að ganga þar sem svona margt fólk væri. Það sá hann á því að ég gekk alltaf á fólkið eða brussaðist klaufalega framhjá því á meðan hann sjálfur skaut mjöðmunum fimlega í allar áttir og klessti ekki á neinn. (Af hverju hef ég það á tilfinningunni að mamma sé hlægjandi núna...?).

Lifandi tónlist í Brunnsparken

Í Netto, sem er hérna í Odinsgatan (berist fram sem Úðínsgodan), er skilti sem á stendur að allt búðarsnatterí sem bannað. Ég, íslenski Íslendingurinn, hélt að sjálfsögðu strax að það mætti ekki biðja búðarfólkið um að snattast fyrir sig, þ.e. spyrja það hvar maður fyndi klósettpappírinn o.s.frv. Núna, eftir að ég las betur og sá að allt snatterí er tilkynnt til lögreglu, þá giska ég á að búðarsnatterí þýði búðarstuldur.

Hér í Gautaborg gengur fólk yfir göturnar þegar því sýnist svo. Reyndar eru sumsstaðar gangbrautir, en alls ekki allsstaðar og þá gengur fólk bara yfir götuna (tékkar reyndar fyrst á því hvort nokkur bíll sé á leiðinni). Þetta er sko miklu verra en á Akureyri nokkurn tímann! Sjálf reyni ég að passa mig voða vel og reyni að lenda ekki undir neinum sporvagni eða risavöxnum strætó... það yrði nú ljóta klandrið.

Sporvagnamiðstöð Gautaborgar á Drottningtorget

Svenskan er samt öll að koma til hjá mér (eftir tveggja daga dvöl, ha ha) og ég skil þegar fólk í búðum spyr mig hvort ég eigi skiptimynt eða hvort ég vilji eitthvað fleira og svara að sjálfsögðu á minni allra penustu sænsku (ja, nej, tack ska du ha!). Ég skildi líka tungumálið þegar ég þurfti að bíða í rúman klukkutíma á góflinu í röð í bankanum og einhver kall hélt að ég og gaurinn sem sat við hliðina á mér værum kærustupar. Humm.

Ég fyrir framan Central station- spurning um að læra að brosa á sjálfsmyndum?

Og já. Það eru númeravélar gjörsamlega út um allt hérna! Í morgun þegar ég skellti mér í sporvagnamiðstöðina til að spyrjast fyrir um sporvagnakerfið (eftir að hafa ráfað um í villu míns vegar í maaargar mínútur í lestarstöðinni og leitað að sporvögnunum, ha ha ha) þá ætlaði ég að sjálfsögðu að skella mér bara í röðina á eftir næsta manni. En nei, ég komst fljótlega að því að ég átti að taka miða.
Það er líka miðakerfi í Skatteverket. Þegar ég gekk þar inn hélt ég að ég myndi aldrei fatta hvernig þetta virkaði allt saman, skrilljón skilti og skrilljón afgreiðsluborð og skrilljón númer allsstaðar... En að lokum fattaði ég þó að kerfið var sáraeinfalt og fékk ég að lokum afgreiðslu (eftir að hafa tekið "vitlausa gerð" af miðum og farið þar af leiðandi í vitlausa röð því ég skildi ekki alveg hvað stóð á miðavélinni...).
Og það er líka miðakerfi í bankanum, þar sem ég þurfti að bíða í rúman klukkutíma á gólfinu, svaka fín í pilsi og allt. Ha ha. Enda voru líka 56 manns sem voru á undan mér í röðinni! Mér var sagt að þetta væri ekki alltaf svona brjálað, en oft kæmi það þó fyrir. Úff. Bankinn lokaði klukkan 15 en ég fékk ekki afgreiðslu fyrr en um hálffjögur og var þá EIN eftir í bankanum því allir hinir höfðu gefist upp á að bíða. En það var allt í lagi, því þá fékk ég líka alveg brilljant þjónustu, ekkert stress í gangi og svona ;)

Odinsgatan

Maturinn hérna er furðulegur. Í gær keypti ég mér ost og í morgun sá ég að það er elgur utan á umbúðunum. Ef þessi ostur er gerður í elgsmjólk, þá æli ég akkúrat núna! Þess vegna fór ég í dag og keypti mér nýjan ost. Brauðið hérna er líka furðulegt. Það er sett rúgmjöl í gjörsamlega allt brauð og ég borða ekki rúgmjöl. Æ-æ.


Annars fann ég í dag ódýra búð sem heitir HemKöp og er alveg frábær. Þegar ég kom að kassanum og gellan sagði hvað matvörurnar kostuðu, þá sagði ég bara "ursäkta" (afsakið) því ég sá hvergi trúanlega tölu á skjánum og hún endurtók töluna 203,5 krónur. Þá fattaði ég að ég hafði hugsað þetta í vitlausum gjaldmiðli og haldið að hún ætti eftir að ýta á samtalstakkann... Ha ha ha.

Og já. Mér finnst það alveg fáránlega fyndið að afgreiðslufólkið í búðunum hérna skuli bara segja "hej" þegar það býður góðan daginn en ekki "góðan dag". Ha ha.

Held ég segi þetta gott í bili, ég þarf að drífa mig á Nordjobbskrifstofuna og taka þátt í að halda upp á danska þjóðhátíðardaginn...

Hälsningar, Anna Björk

sunnudagur, júní 04, 2006

Ferðasagan



Jæja gott fólk, þá er komið að því! Ég er komin til Gautaborgar og er því vel við hæfi að taka alveg flunkunýja síðu í notkun :)

Ferðasagan? Tjah, nokkuð skrautleg á köflum en allt gekk þó upp að lokum. Og hér kemur hún í mjög styttu máli:

Við Ingi brunuðum suður alveg heilum hálftíma á eftir áætlun sem sumum (Inga) fannst vera nánast algjörlega óviðunandi. Jesúskristur. Við byrjuðum á að skutla vinkonu Inga heim til sín, en hún hafði fengið að fljóta með okkur suður. Síðan var komið að því að skutla mér í heimsókn til hennar Lilju minnar. Frá því er skemmst að segja að við villtumst, og villtumst, og villtumst pínu meira. Við vorum sem sagt á villigötum í rúman klukkutíma og vil ég meina að það hafi frekar verið ökumanninum að kenna heldur en kortalesaranum. Hehemm.

Ég að missa mig í kortalestrinum

En allt tókst þetta þó að lokum og átti ég alveg frábært kvöld með Lilju, þar sem ágæt slúðurskorpa var tekin, ég fékk nýbakaðar vöfflur og pitsu og dvaldist þarna í miklu yfirlæti. Og síðan var hún Lilja mín svo yndisleg að gefa mér stúdentagjöf, og það var bikiní! Og það er alveg sjúklega flott og smellpassar!!! Núna skil ég líka af hverju hún hafði svona mikinn áhuga á rauða bikiníinu mínu um daginn, hahaha. Takktakk Lilja mín :*:D

En einhvern tímann hlaut þó að koma að því að við Ingi þyrftum að fara til Keflavíkur, og fannst okkur klukkan eitt um nótt vera alveg ágætis tími til þess. Í Keflavík gistum við á gistiheimili sem heitir Bed&Breakfast, og mæli ég fastlega með því að fólk skelli sér þangað þegar það þarf gistingu fyrir flug, því þetta er alveg æðislegur staður.


Herbergið okkar Inga í Keflavík

En já. Við Ingi sváfum aðeins um tvo tíma þessa nótt, enda bæði að missa okkur úr spenningi og við þurftum að vakna klukkan fjögur.

Við mættum út á völl klukkan rétt rúmlega fimm og þurftum að standa í ansi langri röð til að komast að innritunarborðinu. Ég var að sjálfsögðu með allt of mikinn farangur, en við Ingi fengum leyfi til þess að vigta bæði hans töskur og mínar töskur í einu sem þýddi að yfirvigtin varð miklu minni en hún annars hefði orðið (nenni ekki að útskýra það reikningsdæmi, þið fattið það eflaust sjálf), en með þessu móti varð yfirvigtin aðeins 5 kíló í stað 10. Og síðan spurði gellan í innrituninni hvað ég væri með sem handfarangur og ég sýndi henni bara fartölvutöskuna mína og myndavélatöskuna mína og var ekkert að vekja athygli á stóra og allt of þunga bakpokanum sem ég var með... hahaha. Þar slapp ég við smá yfirvigtarborgun í viðbót ;)

Við Ingi fengum okkur síðan rándýran morgunmat í fríhöfninni. En Ingi greyið náði þó ekki að borða nema helminginn af beikoninu sínu (ég fékk mér bara skyr sko...) því þá sá ég að fólk átti að fara að hliðinu og vildi að sjálfsögðu ekki fyrir nokkurn mun missa af fluginu svo ég dró Inga hálfgrenjandi úr hungri af stað... En að sjálfsögðu þurftum við að bíða við hliðið svo hann hefði allt eins getað klárað matinn sinn, vúpsí ;)

Ég borða skyrið af áfergju

Flugið var ágætt. Reyndar vorum við Ingi ósýnileg og flugfreyjurnar löbbuðu alltaf fram hjá okkur... nema þegar við föttuðum að það þarf bara að arga og garga á þjónustu og þá komu flugfreyjurnar á hlaupum og færðu okkur allt sem við vildum :D

Við Ingi með allt sem við vildum...

Og já. Hjartað missti úr nokkur slög þegar flugstjórinn tilkynnti að við myndum lenda í Stokkhólmi eftir klukkutíma og 20 mínútur... En þá hafði karlinn bara ruglast á nöfnum og við lentum að lokum nokkuð heil á sál og líkama í Gautaborg 15 mínútum fyrr en áætlað var. Og síðan lenti í ég rifrildi við flugþjóninn um hvort klukkan væri 10:50 (eins og hann vildi halda fram og var margsinnis búinn að tilkynna í kallkerfinu) eða 11:50 (eins og ég vildi halda fram). Ég vann þessar deilur og hann sagðist ætla að muna eftir því næst að það munar tveimur tímum en ekki bara einum. Góður strákur.

Kata systir hans Inga tók á móti okkur á flugvellinum og mér var skutlað í the Central station, það var hreinlega ekki hlustað á mig þegar ég sagðist vel geta tekið bara flugvallarrútuna... en ég var satt best að segja mjög fegin, ég hefði eflaust týnst ;) Ragnar hitti mig síðan á the Central Station. Og ef þið endilega viljið vita það, þá er Ragnar vafalaust fallegasti gaurinn í Gautaborg... bara svo við höfum það á hreinu ;) Við fórum í Odinsgatan (íbúðina) og hann sýndi mér allt þar inni (set inn myndir af íbúðinni seinna) og mér líst bara mjög vel á! Síðan fórum við í skoðunartúr um miðbæinn, og VÁ ÉG ELSKA GAUTABORG!!! Set inn nánari ástarjátningar á Gautaborg síðar.

Í dag er ég síðan búin að dunda mér við eitt og annað, en nánari lýsingar á því koma inn sennilega á morgun. So stay tuned ;)

Svo ég bið að heilsa héðan úr hinni frábæru borg Gautaborg! Ég bið alveg sérstaklega vel að heilsa Friðriki litla brósa og þakka honum kærlega fyrir myndina sem hann gaf mér, ég er strax búin að hengja hana upp á vegg fyrir ofan rúmið mitt :D

Hälsningar, Anna Björk Haraldsdóttir