sunnudagur, desember 31, 2006

Annáll 2006

Árið 2006 var viðburðarríkt með eindæmum.

Fátt man ég frá fyrri hluta ársins, en var ég þó upptekin allan sólarhringinn við lærdóm, taekwondoæfingar og hangs. Ég eignaðist nýjan meðleigjanda þegar hann Ingi ákvað að það væri gaman að búa með mér og flutti í HrafnaSex, með þeim samningum að hann fengi stærra herbergið og ég fengi afnot af bílnum hans. Í janúar tók ég appelsínugula beltið í taekwondo og í maí tók ég græna beltið. Mér tókst síðan að útskrifast sem semídúx frá VMA þann 20. maí, þar sem ég gjörsamlega rakaði að mér verðlaununum og stóð síðan í klukkutíma í allskonar myndatökum. Það fannst mér engan veginn leiðinlegt.

Svo var komið að stóru stundinni. Þann 4. júní flaug ég af landi brott og kom ekki heim aftur fyrr en eftir 6 mánuði og 1 dag. Hojhoj!

Fyrst lá leið mín til Svíþjóðar þar sem ég dvaldi í 2 mánuði og 20 daga. Ég bjó í miðbæ Gautaborgar og leigði íbúð með Venlu frá Finnlandi. Við urðum góðar vinkonur og húmorinn oft á tíðum að fara með okkur. En það er Venlu að kenna. Brandararnir renna áreynslulaust út úr henni. Allavega. Í Gautaborg vann ég á Hotel Gothia Towers sem städerska, öðru nafni cleaning-lady eða house-keeping.

Þetta sumar var algjört æði frá A-Ö. Ég lenti í mestu hitabylgju sem sést hefur á þessum slóðum í fleiri áratugi, sem lýsti sér einfaldlega þannig að það var 26-33 stiga hiti á hverjum einasta degi í allt sumar. Sem varð að sjálfsögðu til þess að ég sprangaði um á bikiníinu einum fata við hvert einasta tækifæri, og gilti þá litlu hvort ég var í tívolíinu Liseberg eða í almenningsgörðum. Og sjá, ég varð brún!

Ég var dugleg við það að taka mér frí frá vinnu (sem var mjög einfalt, bara krassa á eitthvað blað) og gera eitthvað skemmtilegt í staðinn. Ég fór oft í Kungsparken þar sem ég flatmagaði með góða bók, í Liseberg þar sem ég tók góðar sallíbunur í rússíbönunum, á kaffihús með hinum Nordjobburunum, í verslunarferðir í Nordstan (fremstu verslunarmiðstöð Skandinavíu skammt frá íbúðinni minni) og á ströndina í Saltholmen.

Ég fór í einsdagsferð til Óslóar, helgarferð til Kaupmannahafnar og einsdagsferð til Kaupmannahafnar. Af öllum ferðalögum þetta sumar stendur þó ferðin til Hunnebostrand á Vesturströnd Svíþjóðar mest upp úr. Hunnebostrand er paradís á jörð! Þar eyddi ég tveimur yndislegum dögum með fjölskyldu gaursins sem leigði mér íbúðina í Gautaborg. Ég ferðaðist um á spíttbát fjölskyldunnar, synti um í sjónum með sundgleraugu og öndunarpípu, kynntist fullt af fólki sem ég held ennþá sambandi við, lá á ströndinni, sat á sænskum skerjagarði og hlustaði á angurværa munnhörputónlist við sólsetrið og upplifði sænska drauminn eins og hann leggur sig. Verð ég fjölskyldunni alltaf þakklát fyrir að hafa boðið mér í heimsókn.

Fleira gerði ég þetta sumar. Ég tók virkan þátt í skipulagðri tómstundadagskrá Nordjobb, og fór meðal annars í bráðskemmtilega kanóferð þar sem ég synti í vatninu í blíðskaparveðri. Ég tók þátt í kräftskiva (sem er einhverskonar krabbadagur). Ég mætti alltaf galvösk í Slottskogen og spilaði “kubb” af miklum móð. Ég fór í heimsókn í norsku sjómannakirkjuna. Ég fór á söfn og í bátaskoðunarferð og naut lífsins í botn.

Ekki er hægt að telja upp allt sem ég gerði í sumar, en fleira má þó nefna. T.d. fór ég og heimsótti sænska vinkonu mína í Lerum, bæ rétt fyrir utan Gautaborg. Þar synti ég í ferskvatni og hélt á frosk. Ég fór í ýmsar skoðunarferðir á eigin spýtur um Gautaborg. Ég borðaði óhóflega mikið af snúðum á næstum því hverjum einasta degi. Ég fór á opnunarhátíð EM í frjálsum og var fremst af öllum í 100.000 manna þvögu.

Og síðan var sænska ævintýrið búið, og ég fór sem leið lá til s’Hertogen-bosch (Den Bosch) í Hollandi og passaði börn á milli þess sem ég naut Hollands sem mest ég mátti.

Ég fór í ófáar verslunarferðir í miðbæinn, hjólaði um, djammaði tvisvar sinnum í viku, lærði að spila póker, kynntist fullt af fólki, fór í vatnagarð, skokkaði á hverjum degi, fór í Gospel-messu og var næstum étin upp til agna af ofsatrúarfólki, braut nokkur hjörtu, fór loksins að íhuga að breytast í gellu, upplifði hitabylgjur og var árið 2006 heitasta árið í Hollandi síðan mælingar hófust ári 1706, lærði að lesa hollensku og margt margt fleira skrítið og skemmtilegt bar á góma.

Ég elska Holland.

6. desember hélt ég síðan heim á leið og hélt jólin heima á Grænavatni.

Já, viðburðarríkt ár að baki. Samt er undarlegt að þegar ég lít til baka, þá finnst mér eins og þetta hafi aldrei gerst. Mér finnst eiginlega eins og ég hafi aldrei farið neitt. Hugsa ég þó að sú tilfinning sé tilkomin af þeirri staðreynd að ég virkilega bjó þarna í útlöndum, ég var ekki bara í vikufríi. Þetta er kannski merki um það hversu vel mér tókst að aðlagast, og ég fékk aldrei heimþrá, ekki einu sinni pínulítinn vott. Ekki þó misskilja þessi orð mín, því það er vissulega gott að koma heim í jólafrí og hitti fjölskyldu og vini. En útlandabrölti mínu er hvergi nærri lokið, og nú bíður mín spennandi ár 2007 sem verður fullt af ævintýrum og upplifunum. Það er svo auðvelt að vera sjálfur sinnar gæfusmiður.

Ég þakka öllum lesendum mínum fyrir samfylgnina á árinu og vona að þið hafið haft gaman af. Óska ég ykkur öllum gleðilegs nýs árs!

Hamingju- og heillakveðjur, Anna Björk Haraldsdóttir

And I said: What about breakfast at Tiffany's

Jæja. Það styttist í nýja árið í Ástralíu (sólarhring áður en herlegheitin hefjast á Íslandi). Allavega var ég að tala við hana Ylvu mína hina sænsku núna rétt áðan, og klukkan niðri í Eyjaálfu er víst aðeins á undan þeirri sem er hér ofar á jörðinni... Fyrir þá sem ekki vita, þá er Ylva á 6 mánaða bakpokaferðalagi um Ástralíu - ein. Og hún er jafngömul og ég. Sú er með bein í nefinu!

En allavega. Það styttist nú í mitt ferðalag, og í tilefni að því mun ég eflaust minnast á Danmörku í hverri einustu færslu þar til 15. janúar eða svo. Og reyndar líka í hverri færslu etir það. Jájá.

Já, það er að mörgu að huga. Áðan sat ég t.d. niðri í herberginu mínu og mátaði ALLA eyrnalokkana mína, enda algjör óþarfi að taka þá alla saman með út. Niðurstaða: Ég fer með 16 pör út og skil 2 pör eftir á Íslandi. Er ég gella eða hvað?

Annars eyddi ég öllu kvöldinu í það að æfa make-up kúnstir af miklum móð. Útkoman varð kannski ekki alveg jafnflott og í snyrtiblaðinu, en æfingin skapar meistarann! Vona ég...

En jæja, best að vinna í því að snúa sólarhringnum aftur við! Góða nótt mínir kæru vinir! Anna gella Grænvetningur

laugardagur, desember 30, 2006

'Cause in the end it all depends on whether you find...

... warm embrace when I replace the one you had in mind...

Já, rómantíkin alveg að fara með mig, gott fólk. Ég kenni Nikolaj og Julie alfarið um þá bölvuðu vitleysu. Reyndar á ég engan kærasta, en það er hægt að vera rómatískur þrátt fyrir það. Eller hur? Hugsa að ég verði að næla mér í einn danskan við fyrsta tækifæri. Vona bara að hann fari nú ekki að halda við sæta prestinn (kvk). Er ég hugsanlega að lifa mig of mikið inn í aðstæður?

Ég held ég þjáist af krónískri sólbrúnku. Allavega virðist ljóta sandalafarið mitt ekki vera á neinum faraldsfæti og farið eftir bikiníbrókina mun vafalaust vera fast á sínum stað það sem eftir lifir. Ég er náttúrulega himinlifandi yfir því að vera ekki skituhvít, en hugsa þó að næsta sumar muni ég spranga um Strikið allsber. Sandalaför og önnur för eru nefnilega ekki neitt óskaplega lekker.

Að öðru. Glöggir lesendur hafa vafalaust tekið eftir bloggleysi síðustu daga. Kenni ég andvaraleysi og skort á frjórri hugsun um þá krísu. En með hækkandi sól hlýtur eitthvað frásagnarvert að gerast. Ég trúi ekki öðru. Er ég þá ekki að vitna til þess að líf mitt sé óspennandi þessa dagana, heldur eru takmörk fyrir því hversu oft ég get birt sömu færsluna. Allavega er það svo ef ég ætla að halda lesendum mínum, sem búast að sjálfsögðu við að smellin bloggfærsla poppi upp á skjáinn í hvert sinn sem kveikt er á tölvunni. Ég er nefnilega að sjálfsögðu stillt sem upphafssíðan hjá öllum. Og ef svo er ekki, ekki þá segja mér frá því. Það er skemmtilegra að halda hið gagnstæða ;)

Allavega. Danmerkurferðin nálgast og ég get ekki á heilli mér setið. Spenningurinn er feikilegur. Hins vegar veldur það mér þónokkrum taugatitringi að samnorrænu flutningsvottorðin skuli ekki vera gefin út lengur. Hvað ef Danir vilja ekki fá mig í landið? Þá er ég í ljótum málum, trallalalalei!

Nei, það væri öllum fyrir bestu að ég færi bara að sofa. God nat, mine kære venner! Knus og kram, Anna den danske

mánudagur, desember 25, 2006

Þitt er mitt - en mitt er ekkert endilega þitt

Já, alltaf er eitthvað að gerast hérna í sveitinni!

Dagurinn í dag var með eindæmum rólegur framan af. Spilaður var póker og ég horfði á eina bíómynd eða svo. Um fjögurleytið sat ég svo í öllum mínum rólegheitum og spilaði RISK af miklum móð við bræður mína. Þá allt í einu hringir síminn, og okkur tilkynnt að Malarvinnslan, vinnan hans pabba, standi í ljósum logum! Ég þýt út í fjárhús og næ í pabba, við systkinin í útifötin og síðan brunað út í þorp (13 km). Við máttum að sjálfsögðu ekki fara alveg að brunanum, heldur stóðum nokkur hundruð metra frá og fylgdumst með slökkvistarfi í nístingskulda. Sem betur fer slapp skrifstofubyggingin (þar sem pabbi vinnur) og smíðaverkstæðið fyrir tilstilli eldveggs, en það er víst ekkert eftir af verkstæðinu. Jahérnahér. Ekki var þetta nú gaman.

Þegar heim var komið var smá sjæning og síðan fórum við heim til ömmu og afa (sem búa 200 metra frá okkur) í hangikjöt. Og síðan var að sjálfsögðu spilað púkk. Jájájá.

Annars held ég að ég ætli að stökkva niður í kjallara núna og dilla mér svolítið við Britney Spears, svona svo ég geti stimplað þyngdartapið á eitthvað annað en of hollan mat. Já, ég gjörsamlega hrekk niður í vigt þessa dagana án þess að gera neitt sérstakt, og eftir 100 grömm, já 100 grömm gott fólk, þá verð ég komin niður í markmiðið mitt, með öðrum orðum, 58 kíló! Já, mér tókst nefnilega að þyngjast um aaansi mörg grömm í Hollandi (það er alveg ótrúlegt hvað maður þyngist ef maður velur ekki sjálfur brauðið og ostinn sem manni finnst æskilegast að borða!!!). Mér tókst reyndar að sprikla af mér 800 grömmum í Hollandi í nóvember, og síðan er ég búin að ná af mér 1,8 kílói síðan ég kom heim 6. desember. Fyrir þá sem skilja ekki þessa útreikninga, þá var ég orðin 60,7 kíló (það ætla ég ALDREI ALDREI ALDREI í mínu lífi láta gerast aftur!!!) og er núna orðin dásamleg 58,1 kíló. Ojájá.

Nei, þetta voru nú gagnslausar þyngdarupplýsingar. En allavega, ég er samt farin niður að dilla mér við Britney ;)

Jólakveðja, Anna Haralds

Jólasveinn kæri - jólasveinn góði

Jæja, þá er aðfangadagur liðinn og jóladagur tekinn við.

Gærdagurinn var hinn frábærasti - ég greip í póker með bræðrum mínum eftir hádegi, og þar sem engir pókerspilapeningar voru til á heimilinu (enn sem komið var), þá notuðum við krónur, fimmkalla og tíkalla. Síðar um kvöldið komu síðan pókerpeningar inn á heimilið, svo það verður gaman að spila næst!

Ég fékk margt góðra gripa í jólagjöf. Já, ég get með sanni sagt að hver einn og einasti hlutur hafi hitt beint í mark og er ég alveg ferlega ánægð með þetta allt saman. Og þar sem að ég er svona ánægð, þá er ekki úr vegi að telja upp hvað ég fékk... ;)

- Gjafabréf upp á flugmiða til Kaupmannahafnar!!!
- Puma ilmvatn og Puma sturtugel, bæði úr Jamaica-línunni, dásamlegt alveg hreint!
- Nýja vettlinga, ekkert smá flotta!!!
- Geggjað make-up sett með fullt af augnskuggum, kinnalitum, púðri og glossi! Fyrir þá sem ekki vita hefur áhugi minn á förðun stóraukist undanfarið og þess vegna er þetta eins og Guðsgjöf þar sem ég átti nákvæmlega núll stykki augnskugga...!
- "Kaupmannahöfn - ekki bara Strikið", bók með tíu gönguleiðum í Kaupmannahöfn þar sem sagt er í stuttu og skemmtilegu máli frá stöðunum sem gengið er framhjá. Ég hlakka SVO til að fara til Kaupmannahafnar og fara þessar leiðir! Þessi bók hitti sko beint í mark!
- Jólatrésstyttu, algjört æði!
- Adidas-bol, sem svoleiðis smellpassar! Ég skil ekkert í því hvernig hún Lilja mín fer eiginlega að þessu! Takktakk, ef þú lest þetta :*:D
- Ungfrú Jóla, híhí, æðisleg jólabók!
- Geggjuð náttföt!
- Desemberpakkann af Rauðu seríunni - fjórar bækur alls! Vá, ég varð ekkert smá ánægð þegar ég opnaði þann pakka, ég komst nefnilega ekki á bókasafnið fyrir jólin, og fyrir þá sem ekki vita, þá er ég mikill aðdáandi Rauðu seríunnar... (Ekki samt segja neinum frá því!).
- Stóra snyrtitösku, rauða og með alls konar hólfum út um allt og tveggja ára ábyrgð! Ég hef einmitt lengi ætlað að kaupa mér einhverja svoleiðis tösku!
- Armbönd, ekkert smá falleg, ég starði á þau í allt gærkvöld!
- Síðan gaf stóri bróðir minn allri fjölskyldunni spilið Risk og Lord of the Rings-spilið, ég þarf endilega að læra Risk, enda hef ég aldrei lært það! Sjáum til hvað maður kemst yfir í dag ;)
- Peningar, jájájá! :D
- Jólasveinninn gaf mér svo 1000 krónur í skóinn, reyndar setti ég ekki skóinn út í glugga heldur sá jólasveinninn alfarið um það mál að setja hann í skrifstofugluggann... :P

Og ég held að ég sé ekki alveg örugglega ekki að gleyma neinu :) Og ef svo er, þá bæti ég því bara inn í seinna...

En allavega, Kristinn litli bró var að koma inn á skrifstofuna akkúrat í þessum töluðum orðum og boða mig í póker... Verð að þjóta!

Jólasveinakveðja! Anna Björk

laugardagur, desember 23, 2006

Ég fæ jólagjöf, búmm, jólajóla, jólajólagjöf, búmm, jólajóla

Jæja ástarpungar og aðrir pungar!

Dagurinn í dag hefur verið vægast sagt nokkuð þéttskipaður. Strictly Come Dancing búið, búhú. Síðan fórum við út í Reykjahlíð að heimsækja skyldmenni. Þegar heim var komið tók við jólagjafainnpökkun, en hún tók mettíma hjá okkur systkinunum í ár, við vorum ekki nema klukkutíma að þessu. Og akkúrat í þessum töluðu orðum sitja mútta og pápi í eldhúsinu og pakka inn í gríð og erg. Jájá. Allt við sama heygarðshornið.

Annars finnst mér blátt áfram hlægilegt að það séu að koma jól á morgun. Mér finnst ég ekki hafa verið lengur en eina viku í útlöndum, og nú sé tími til kominn að halda áfram þar sem frá var horfið og halda upp á gleðilegt sumarfrí. Mjög spes tilfinning get ég sagt ykkur. En ég er nú samt með smá svona jólafiðring, því er ekki að neita...

Og þar sem ég ætla ekki að eyða morgundeginum í tölvuhangs, heldur búa til súkkulaðimús og lesa hörkuspennandi skáldsögu á dönsku á milli Yatsi-spila, þá mun ég ekki blogga á morgun.

Óska ég því ykkur öllum, lesendum góðum, sama hvort um er að ræða fólk sem þekkir mig eða fólk sem þekkir mig alls ekki neitt, gleðilegra jóla.

Ástarkveðja, Anna a.k.a. snillingur í að dúlla pakka.


PS. Að dúlla pakka er vinsælt orðatiltæki hér á Grænavatni 1 þessi jólin, þar sem við mamma dúllum alla pakka sem við komum höndunum yfir. Dúlla pakka þýðir með öðrum orðum að skreyta pakka.

Á jólunum er gleð' og gaman, fúmm fúmm fúmm

Jæja, jólastressið er gífurlegt hér á bæ. Ég var meðal annars að enda við að lenda í öðru sæti í alveg hörkuspennandi Yatsi-spili, jájá.

Annars er nú allt í góðum gír hér á Grænavatni, fyrir utan kannski rokið sem gerði sér lítið fyrir um daginn og braut girðingarvegginn sem var fyrir framan garðinn okkar.

Eftir rétt tæpa tvo tíma byrjar síðan lokaþátturinn af Strictly Come Dancing á BBC. Hojhoj! Það verður nú ekki amalegt, þrátt fyrir að Emma Bunton hafi dottið út í síðasta þætti, mikil ósköp.

Hef ég annars harla fáar fréttir að færa ykkur, nema þá kannski þær að berjableikt gloss fer mér engan veginn. Og þá meina ég engan veginn! Já, þau ósköp fylgdu seinasta snyrtiblaði, og svei mér þá, ég held ég taki laxableiku varirnar fram yfir þetta...

En ég ætla ekki að tefja ykkur lengur frá amstri dagsins, ég er viss um að þið hafið nóg að gera við að leysa krossgátur, æfa áramótameiköppið, hlusta á jólalög og stelast af og til í smákökurnar. Og taka svo kannski eins og eitt og tvö og átta Yatsi-spil. Allavega er þetta minn verkefnalisti, og svo má að sjálfsögðu ekki gleyma Strictly Come Dancing! Einn klukkutími og þrjátíuogfimm mínútur gott fólk...

Elskið friðinn og kyssið á kviðinn, ég á ábyggilega eftir að skella inn einu bloggi áður en klukkan slær sex á morgun. Jólaknús og kossar, Anna Björk Haraldsdóttir

föstudagur, desember 22, 2006

Á Spán' er gott að djamm' og djúsa

Jæja börnin mín stór og smá.

Fréttir dagsins eru þær að ég er ekki lengur húsnæðislaus í Kaupmannahöfn, jíha! Já, ég er búin að redda mér dýrindis herbergi, mublerað og allar græjur, og er það laust frá 15. janúar. Jájá, mikil ósköp.

Annað mál og miklu verra er þó, að ég er á kúpunni. Nei, djók, ástandið er eiginlega miklu verra en svo. Ég er eiginlega alveg gjörsamlega gjaldþrota! Sé ég jafnvel fram á að þurfa að selja mig á götum úti í Kaupmannahöfn, svona ef ég næ að skrapa saman fyrir farmiðanum. En það er víst bara gaman, segja þær.

Eins mun ég að öllum líkindum vera atvinnulaus þegar út verður komið. Enda grunar mig að það sé lítið vit í að sækja um vinnu eins og staðan er akkúrat núna, enda er ég ekki með danska kennitölu og hreint ekki búin að skrá mig í danska skattkerfið. Ekki er hægt að stússast í slíkum málum fyrr en til Kaupmannahafnar er komið, og áður en ég get farið þangað verð ég að redda mér samnorrænu flutningsvottorði, hvernig sem ég ætla nú að fara að því. Vesen? Nei hreint ekki...

En ég lifi þó í góðri trú um það að mér takist að redda mér vinnu þegar ég er mætt á staðinn. Ég meina, einhver hlýtur að vilja ráða mig! Lítum aðeins á starfsreynslu mína:

- Ég kann að raka gras. Kannski er samt ekki mikið um grasvinnu að fá á veturna, en það er aldrei að vita.
- Ég kann að afgreiða á kassa í búð.
- Ég kann að búa til pylsu með öllu á örskotsstundu.
- Ég kann að díla við alveg óhemju leiðinlega viðskiptavini.
- Ég kann að steikja hamborgara.
- Ég kann að standa á bikiníinu einum fata tvo metra frá þjóðvegi eitt og planta trjám. (Hojhoj, flokkast þetta ekki sem góður undirbúningur fyrir að selja sig á götum úti?).
- Ég kann að þrífa hótelherbergi á methraða.
- Ég kann að passa börn, jájá. Ég er meira að segja svo leikin í þeirri list, að ég get gefið þremur hungruðum krakkagrísum að borða á sama tíma og ég fæ mér sjálf að borða!
- Ég kann að keyra bíl, svo framarlega að ég þurfi ekki að bakka í stæði.
- Ég kann að hjóla á milli bíla á miklum umferðargötum.
- Jeg kan godt snakke dansk!

Þannig að þið hljótið að sjá, að útilokað er annað en að einhver vilji fá mig í vinnu hjá sér. Góður starfskraftur, jájájá.

Men jeg smutter nu, jeg tror det er tid til at öve det danske sprog... måske kigge lidt på Nikolaj og Julie! Ja, ha' det så godt, mine kære venner! Jeg blogger igen i morgen :) Knus og kram, Anna den danske

Dönsum í kringum jólatréð þessu strumpaballi á

Jæja, þá er maður búinn að fara á jólabingó og þá mega jólin loksins koma.

Ekki samt láta ykkur detta það í hug að ég hafi unnið nokkurn skapaðan hlut, en Kristinn litli bró vann samt 5.000 króna gjafabréf frá Greifanum og svitaband frá Nikita. Hann gaf mér svitabandið. Jess!

Og að sjálfsögðu skemmtum við okkur konunglega á leiðinni á bingóið. Það vita nefnilega allir sem hafa einhvern tímann haft mig í bílstjórasætinu á þjóðvegum úti, að það er skylda að syngja þegar ég sit við stýrið. Sem við Kristinn og gerðum. Reyndar kunnum við bara strumpatextana við flest öll jólalögin í útvarpinu, en það kom ekki mikið að sök... Á leiðinni heim var komin svo mikil hríð og fréttir í útvarpinu að ég gat ekki gert neitt annað en að einbeita mér algjörlega að akstrinum og var því minna sungið þá leiðina. Oh.

Í dag fékk ég líka þá flugu í höfuðið að fara út að skokka, eftir nokkurra daga hlé vegna veðurs. Þvílík mistök, ég varð næstum því úti og mér er næstum því ennþá illt í eyrunum þrátt fyrir að hafa verið með bómull og húfu og hettu.

Annars fattaði ég það, þegar ég fékk nokkur jólakort með póstinum í dag, að ég gleymdi að senda öll mín! Huhuhumm, æ-æ og úps! Vá, ein greinilega að missa sig í jólastressinu... Því má fólk búast við að fá jólakortin frá mér í fyrsta lagi á milli jóla og nýárs... vúpsídúps! En ég hugsaði þetta samt og bjó til mjög ítarlegan jólakortalista í byrjun október... æ-æ.

En jæja, nú skuluð þið öll krossa fingur fyrir mig og biðja vel fyrir mér í nótt, jafnvel kveikja á nokkrum kertum og svona, ég nenni allavega ekki að leita að fleiri húsnæðum og vona þess vegna að ég fái þetta! (Ég er samt búin að fá allavega 8 húsnæði, en þar sem ég lifi ansi mikið eftir spekinni "þetta reddast og ég fæ nákvæmlega sem ég vil, ef ég fæ það ekki var það ekki meant-to-be og það hlýtur eitthvað fullkomið að detta upp í hendurnar á mér seinna", þá bíð ég alveg sallaróleg, en það væri nú samt óskandi að þetta meant-to-be færi að láta sjá sig...).

Hagið ykkur skikkanlega börnin góð! Howdoe (bæjó á hollensku)!. Anna som gider ikke lede efter flere værelser...

þriðjudagur, desember 19, 2006

Nú, allir í hlákubúninginn!

Jesúsminn allamalla! Það er svo ferlega margt að gerast í Valentínu á Stöð2 þessa dagana að ég ligg skælandi yfir hverjum einasta þætti! Ekki það að ég horfi á þetta rugl, nei það er kolrangur misskilningur. Og svo enginn þáttur næsta mánudag og þriðjudag. Ég er ekki viss um að ég lifi það af.

Allavega. Ég rumpaði af einu 100% frönskuprófi í morgun og sé tíuna koma siglandi til mín. Jájá. Je m'appelle Anna.

Og nú er ég komin í jólafrí og því ekki seinna vænna að taka upp úr töskunum! En ekkert stress samt, ég kom nú bara heim fyrir 13 dögum síðan... ástandið hefur oft verið miklu verra en svo! En ég tók nú samt það mesta upp í dag, nú á ég bara eftir að finna pláss fyrir það allt saman...

Nei, þetta gengur ekki lengur. Best að fara og gera eitthvað af viti!

Dag!!! (Dag, með hrákahljóði í stað g, þýðir bæjó á hollensku...). Knus og kram, Anna Björk

mánudagur, desember 18, 2006

Oops I did it again, so hit me baby one more time!

Harla fátt að frétta, en til þess að fólk haldi áfram að kíkja á mig á hverjum degi, þá ætti ég kannski að fara að taka mig örlítið á eftir þónokkra blogglægð undanfarið!

Dagurinn í dag er búinn að vera viðburðarlítill með eindæmum. Samt tókst mér að taka próf í sögu og ýta bíl sem var fastur í snjóskafli, en þar með er það upptalið.

Annars er ég búin að finna skothelda aðferð til þess að missa kíló á örskotsstundu! Já, og frábrugðið annarri líkamsrækt, þá er þetta meira að segja alveg stórskemmtilegt! Þú berð þig svona að:

1. Finndu alla gelgjudiskana þína og skelltu einum þeirra í græjurnar. (Ég mæli sérstaklega vel með Britney Spears! Hojhoj!).
2. Hækkaðu allduglega í gettóblasternum, og þá er nú sniðugt að vera með herbergi niðri í kjallara eins og ég, svona svo að aðrir fjölskyldumeðlimir haldi smá heyrn.
3. Ekki er verra að setja smá gloss á varirnar.
4. Gríptu svitalyktareyði (eða jafnvel hárbursta, eða eitthvað sem er hentugt í laginu) og notaðu það sem míkrafón.
5. Ekki er nauðsynlegt að syngja hástöfum, enda verður þú mjög fljótt móð/ur af öskrunum.
6. Hreyfðu mjaðmirnar.
7. Hristu hendurnar.
8. Æfðu öll flottu danssporin sem þig hefur alltaf langað til þess að prófa í Sjallanum, en aldrei þorað.
9. Hristu hausinn og fæturna, hoppaðu og kastaðu míkrafóninum frá þér, hann þvælist nefnilega fyrir og það er vel hægt að ímynda sér að maður sé með þráðlausan.
10. Áður en þú veist af ertu komin niður á gólfið í magaæfingar, bakæfingarnar og armbeygjurnar.
11. En sama hvað gerist, EKKI UNDIR NEINUM KRINGUMSTÆÐUM æfa taekwondospörk. Þá sparkarðu bara í stól.
12. Þegar þú ert búin/n að hoppa og skoppa að vild (í minnst 20 mínútur), hrista mjaðmirnar allduglega og taka heila sýningu á sviðinu, þá skaltu setjast niður og teygja á öllum mögulegum og ómögulegum vöðvum.
13. Fáðu þér góðan slurk af vatni og hugsaðu svo um hvað í fj***anum þú varst eiginlega að gera.

Endurtakist á hverjum degi, og helst tvisvar sinnum á dag. Þá megið þið eiga von á að missa 1,2 kíló á 13 dögum, satt og sannað! Góða skemmtun.

Puss och kram älskingarnir mínir, Anna Haralds

laugardagur, desember 16, 2006

Nei nei, ekki um jólin

Ó boj. Í gærkvöldi fékk ég örlítið sjokk þegar mér tókst ekki með nokkru móti að opna tölvupóstinn minn. Það virkaði ekki í neinum netvafra, og þaðan af síður í öðrum tölvum, og sá ég líf mitt hrynja fyrir augunum á mér. Eða nei, kannski var það ekki alveg svo slæmt, en allavega lifi ég og hrærist í innhólfinu mínu. En síðan eftir hálftíma hrökk þetta nú allt saman í gang aftur, hjúkket!

Já, mínir kæru lesendur, þið verðið að afsaka bloggleysið sem hefur ríkt á þessari síðu undanfarið, ég hef einfaldlega haft nóg annað að gera. Í gær skellti ég mér til að mynda í spænskupróf, þar sem ég fór að sjálfsögðu á kostum. Ég tók prófið í gamla grunnskólanum mínum. Mömmu og pabba fannst ekkert athugavert við að láta mig keyra þangað eina í myrkri og snjó, og ég hef ekki einu sinni snert bíl síðan í byrjun júní! En ég höndlaði aðstæður að sjálfsögðu mjög vel, stundum fór ég meira að segja alveg upp í 70 km/klst! Maður er ekki Íslendingur fyrir ekki neitt, það get ég sagt ykkur.

Núnú, hvað fleira? Já, í dag er ég í góðu skapi, og hugsa að ég verði í góðu skapi alveg þar til ég stelst í smákökurnar næst. Já, í dag er dagurinn sem ég sá loksins mjög hagstæða og fallega tölu á vigtinni! Ég hélt ég yrði ekki eldri, og steig grínlaust 5 sinnum á vigtina og vatnsmældi mig og alles til þess að ganga úr skugga um að þetta væri ekki bara vatnsskortur. Íha!

Nei, best að fara og bjarga heiminum, ellegar fara út að skokka.

Ástarkveðjur úr sköflunum, Anna gella Grænvetningur

þriðjudagur, desember 12, 2006

Doltið þreytt

Ég skil núna fólk sem þjáist af skammdegisþunglyndi. Reyndar er mér alveg sama þótt það dimmi snemma á daginn, en það að það skuli vera dimmt þegar ég vakna á morgnana er náttúrulega ekkert nema reginhneisa. Á allri minni ævi hef ég ávallt stokkið upp við fyrsta hanagal (eða um leið og vekjaraklukkan fer að væla), en það að fara úr sólskinsmorgnunum í Hollandi yfir í svartamyrkur er einfaldlega of stórt skref fyrir minn heila að meðtaka. Sem veldur því að ég get ekki með nokkru móti fengið það að mér að kveikja ljósið á morgnana. Sem veldur því að ég fer seint að sofa. Sem veldur því mín viðkvæma svefnrútína ruglast algjörlega og ég ligg í hálfgerðu sofandi móki þar til klukkan fjögur á næturna. Sem veldur því að ég vakna ennþá seinna á morgnana og það verður ennþá erfiðara að kveikja ljósið. Fussum svei. Ég ætla að rísa úr rekkju stundvíslega klukkan átta í fyrramálið og reyna að ráða bug á vandanum. Jahérnahér.

Annars skellti ég mér nú til Akureyrar í dag. Þar hitti ég hana Heiðu mína sætu sætu og fór síðan í klippingu og litun. Og sjá, Gulli á Passion gerði þvílíkt meistarastykki úr hárinu á mér (sem honum fannst vægast sagt hörmulegt þegar ég steig inn á stofuna) að ég held ég verði að læra á hárblásara upp á nýtt! Jömundur minn. En ég er allavega alveg þrusuánægð, enda var hárið á mér alls ekki upp á neina tíu fiska eftir klórblandað vatnið í Hollandi. Og Elín, ég hitti þig næst þegar ég á leið í bæinn!

En allavega. Klukkan er að verða níu og kannski það væri ráðlegast að skella sér í rúmið núna svo ég nái að vakna klukkan átta í fyrramálið. Já, ég vaknaði nefnilega klukkan sjö í morgun því ég þurfti að fara inn á Akureyri, og því er ég svo þreytt núna að ég er nánast með hausverk. Það er agalegt á manni ástandið!

mánudagur, desember 11, 2006

Er lækkar á lofti sólin

Það styttist í jólin, ó boj. Hins vegar finnst mér jólin vera svo langt í burtu að ég nenni ekki einu sinni að pæla í þeim! Já, eftir hálft ár í útlöndum er svo ferlega gott að koma heim að ég er miklu meira í "ég-er-komin-heim" skapi heldur en "jólin-eru-að-koma" skapi.

Á morgun fer ég síðan til Akureyrar í klippingu og litun og annað punt. Reyndar hefði ég viljað fara í slíkar fegrunaraðgerðir úti í Hollandi þar sem að klipping og litun kostar samtals 4.500 íslenskar krónur, en þar sem að ég yfirgaf landið í flýti, þá gafst ekki ráðrúm til slíks dundur. Damn. En hárið á mér þolir allavega ekki lengri bið, þar sem að allur litur er úr því horfinn og ég forðast spegla sem mest ég má, og er mælirinn þar með fylltur. Maður minn.

Hins vegar tel ég það morgunljóst að ég verð að gera mér ferð til Akureyrar einhvern tímann fyrir jólin til þess að komast yfir að hitta vini og kunningja! Og svo er ég líka búin að lofa að kíkja nokkrum sinnum á djammið og alls konar, en við sjáum til hvað tími, færð og peningar leyfa. Ég tek þetta þá bara með trompi í sumarfríinu, en ég geri ráð fyrir að kíkja allavega heim í vikufrí í sumar...

En jæja, best að fara og hafa smá "brainstorming", mér dettur nefnilega ekki í hug að fara út að skokka í -5,6 gráðum og verð ég því að finna einhverja smellna hreyfingu sem hægt er að framkvæma innandyra, og helst án þess að stofna húsgögnum og lífi annarra fjölskyldumeðlima í of mikla hættu. Allar hugmyndir eru vel þegnar!

laugardagur, desember 09, 2006

Það á að gefa börnum brauð

Jæja, þá er laufabrauðarbakstri lokið. Og ég verð að viðurkenna að ég er dulítið fegin. Við vorum 3-4 (manns) að skera út 100 kökur, og þar sem ég nennti ekki að vera allan daginn að þessu, þá dreif ég familíuna áfram á þreföldum hraða og þetta tók ekki nema eina klukkustund og 45 mínútur. Ágætt það. Reyndar tók það okkur ekki nema 10 mínútur að verða uppiskroppa með þrjú strik, þannig að það urðu minnst 8 kökur með stafnum "A"... En þess má geta að ég borða ekki laufabrauð (moment on the lips - forever on the hips), þannig að hinir fjölskyldumeðlimirnir verða að skemmta sér við að borða minn staf.

Og síðan tók við steikingin. Þar sem að ekki voru margir heima var ég sett í pressuhlutverkið. Ýmislegt græddi ég nú á því, því nú þarf ég ekki að setja á mig handáburð eða gel í hárið alla næstu daga, tólgin kemur alveg í staðinn fyrir svoleiðis gerfiþarfir.

Annars er allt gott að frétta. Það er spáð óveðri í kvöld og ég þori ekki fyrir mitt litla líf að fara út að skokka (klukkan hálf þrjú að degi til), ég tek enga sénsa á að verða úti skal ég ykkur segja...

Nei, best að fara og krulla á mér hárið eða gera eitthvað gagn með öðrum hætti! Bæjó!

föstudagur, desember 08, 2006

"Er ég kem heim í Búðardal, lalala"

Það er alveg ótrúlega margt sem maður afrekar þegar maður er kominn heim í sveitina. Hef ég t.d. sökkt mér óþarflega djúpt ofan í öll snyrtiblöðin sem mér hafa borist í fjarveru minni, og sit ég því hér með laxableikar varir og sólarpúður á viðbeinunum. Jájá.

Í gær fékk ég svo þá flugu á höfuðið að sauma mér kjól eftir sniði sem ég fékk úr hollensku Glamour-blaði. Þess má geta að kjóllinn góði verður gerður úr gömlu og forljótu sængurveri, en hann ætti að verða til við fyrsta tækifæri. Ef vel tekst til ætla ég að sauma mér annan úr flottari efni, m.ö.o. úr gömlum rauðum silkirúmfötum. Jahérnahér.

Í gær laug ég einnig að sjálfri mér að það væri hollt að fara út að skokka í frosti. Ég hugsa að ég verði að ljúga enn meira að mér í dag, því það er engum til gagns að ég sitji heima og safni spiki. Ohhh.

Og í dag greip um sig ofsagleði þegar búslóðarkassarnir mínir tveir, sem ég setti í póst á mánudaginn í Hollandi, létu sjá sig hér á Grænavatni. Samkvæmt mínum útreikningum átti ég ekki að fá þá fyrr en í næstu viku, en jess, núna get ég skipt um föt og alles!

Nei, ég segi ekki meira, ég er farin út að skokka!

fimmtudagur, desember 07, 2006

Lesandi nóvembermánaðar!

Jæja, þá liggja úrslitin fyrir úr kommentakeppni mánaðarins! Því miður fylgja engar myndir með úrslitunum að þessu sinni þar sem ekki er endalaust niðurhal hér á bæ og það gengur fljótt á birgðirnar ef ég ætla að fara að gúgla upp flottum myndum. En hér koma niðurstöðurnar:

1. sæti:
Kristinn Björn Haraldsson, öðru nafni litli bróðir minn, kom sá og sigraði í þessum mánuði með 26 skoðanir á 24 færslur! Það verður óneitanlega að teljast nokkuð gott... Til hamingju!
2. sæti:
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings stóð sig líka eins og hetja með 25 skoðanir á 24 færslur. Já, það var mjótt á munum á fyrsta og öðru sæti! Til hamingju með frammistöðuna!
3. sæti:
Elín Ósk Magnúsdóttir kommentaði líka eins og óð væri og var með 16 skoðanir þennan mánuðinn, til hamingju!
Já, þannig var nú það! Þakka ég jafnframt öllum öðrum fyrir hetjulega baráttu! :)

miðvikudagur, desember 06, 2006

Ísland, fagra Ísland!

Eigum við ekki að taka nokkra punkta á þetta?

- Ég fór út með ruslið í Hollandi klukkan sjö í gærmorgun í 16 stiga hita.
- Ég gaf internetnágrannanum hjólið mitt, hann var ósköp glaður.
- Ég tók lestina til Amsterdam.
- Ég var með 18 kíló í yfirvigt en þurfti bara að borga fyrir 13 kíló. Guði sé lof hafði ég vit á að senda rúmlega 30 kíló á undan mér með póstinum...
- Flugið var ljúft og gott, og góður matur og alles.
- Ég lenti á Íslandi eftir akkúrat 6 mánuði og einn dag í útlöndum, ég fór út 4. júní.
- Það var FROST á Íslandi þegar ég lenti!!! Ég hélt ég yrði ekki eldri.
- Ingi elskan, minn kæri fyrrverandi meðleigjandi, kom alla leið frá Akureyri og náði í mig.
- Ég skrapp í heimsókn til hennar Lilju minnar. Í þetta skiptið tók það okkur Inga aðeins 20 mínútur að finna götuna hennar, það tók eina og hálfa kukkustund síðast...
- Það var svo skemmtilegt hjá Lilju að við Ingi stoppuðum óvart í klukkutíma, við ætluðum samt bara að kíkja í dyragættina sko...
- Ég keypti mér epli í Borgarnesi sem kostaði 68 krónur. 68 KRÓNUR GOTT FÓLK!!! Ég fór samstundis að kjökra og bað Inga um að skutla mér aftur til Kelfavíkur MED DET SAMME, þar sem ég ætlaði að taka samstundis fyrsta flug út aftur. Rán um hábjartan dag, ég segi ekki annað.
- Ingi heimtaði að fá að skutla mér alla leið heim í Mývatnssveit, þrátt fyrir að upprunaleg plön hafi gert ráð fyrir að hann kastaði mér út á Akureyri.
- Óli og Styrmir slógust með í för á Akureyri.
- Ég skemmdist svolítið á sálinni á leiðinni frá Akureyri til Mývatnssveitar.
- Strákarnir fíluðu hollensku geisladiskana mína sem ég keypti á bílskúrssölu alveg í tætlur. Sérstaklega fíluðu þeir hollensku cover-lögin, á borð við Eminem með hollensku rappi og Village people.
- Ég kom heim í sveitina klukkan tvö í nótt.
- Það er svo gott að vera heima!!!
- Ég elska rúmið mitt.

Já, ég er komin heim! Jess :)

sunnudagur, desember 03, 2006

Æ-æ

Nei, ég skrifaði svo leiðinlega færslu að ég get ekki gert ykkur það að birta hana. Allavega, ég er búin að skrifa hana svo nú get ég farið að sofa.

Góða nótt ástarpungarnir mínir!

I'm in love with Holland

Já, það er alltaf eitthvað um að vera hjá manni hér í Hollandi.

Í gærkvöldi var ég í mínum mestu rólegheitum að taka mig til fyrir djamm og svona, og allt í einu heyri hina íbúa hússins tala um gas og gaslykt. Ég fór að sjálfsögðu fram til þess að tékka á því um hvað málið snérist, og þá var komin þessi svakalega gaslykt komin í húsið! Við að sjálfsögðum gerðum hið eina rétta í málinu, dúðuðum okkur og fórum út, hringdum í eigandann sem hringdi í gashjálparfyrirtæki og við létum einn nágranna okkar fara inn og athuga hvort hann finndi upptök gaslekans, en hann fann ekkert frekar en við. Við reyndum þá að hringja dyrabjöllunni frá öðrum nágranna okkar sem býr akkúrat undir íbúðinni okkar, en enginn svaraði. En seinna sáum við konuna samt í gegnum glugga og bönkuðum eins og óð værum á gluggann, enda algjör óþarfi að láta fólk springa í loft upp vegna gasleka. Og sjá, þegar kellan loksins kom út, þá tjáði hún okkur það að hún væri nú bara að prófa nýja fondú-pottinn sinn sem gengi fyrir gasi! Og þar sem að gas leitar upp, þá fór það allt saman upp til okkar í gegnum holur sem er á veggjunum... Þannig að við afpöntuðum gashjálparfólkið og fórum upp aftur. Þetta kostaði nú samt nokkur hjartaslög.

En allavega. Mér tókst að mæta tímanlega á djammið í þetta skiptið, nánar tiltekið klukkan rétt tæplega tíu!!! Nei, ég er ekki að ljúga. Fyrst lá leiðin á skíðabarinn, sem heitir nú reyndar Þrjár systur, þar sem við skelltum okkur á barinn. Mér fannst ég nú samt vera svolítið undarleg í hausnum og hélt að gasið fyrr um kvöldið hefði haft einhver áhrif. Eftir að ég var búin með hálfan bjór fór mig að svima og skyldi ekki af hverju, hélt kannski að ég hefði skyndilega breyst í algjöran hænuhaus og væri orðin full af hálfum bjór!!! Hahaha. Og síðan fór barborðið að hringsnúast fyrir augunum á mér. Ég var komin á fremsta hlunn með að fara bara heim, það gengi ekki að vera svona á djamminu. En loksins fattaði ég þetta! Það var þá raunverulega barborðið sem snérist í hringi!!! En barþjónninn sem stóð inni í miðjunni á barnum hreyfðist ekki neitt! Mér fannst þetta nú frekar furðulegt allt saman, og það sem ég skyldi engan veginn var hvernig ég færi eiginlega að því að fylgja bjórnum mínum á borðinu eftir án þess að taka eftir því að ég væri eitthvað að labba á eftir honum! Ég vakti til máls á þessu við Hollendingana sem voru með mér, en þeir hlógu og bentu mér á að horfa niður fyrir lappirnar á mér, haha, þá hreyfðumst við með borðinu því við stóðum á risastórum snúningsdiski! Ég hef nú bara aldrei séð þetta né heyrt áður.

En allavega. Eftir að hafa staðið þarna um stund og snúist, þá ákváðum við að fara á Lalalaa sem er dálítinn spöl frá skíðabarnum. Og þar sem að jakkarnir okkar voru allir saman í geymslu, þá fórum við út í kuldann á bolunum. Oj bara, hvað það var kalt. Eftirfarandi samtal átti sér stað:

Anna: It's sooooo cold outside!!! Why don't we run?
Hollendingarnir allir í kór: BWAHAHAHAHAHA!!! Run??? Where are you from??? People don't run when they go out!!!

Þannig að við hlupum ekki.

Við vorum mætt á Lalala um ellefu-leytið, og var staðurinn alveg gjörsamlega troðinn. Já, ég sagði klukkan ellefu!!! Við skelltum okkur að sjálfsögðu á gólfið og dönsuðum eins og við áttum lífið að leysa. En vá, fólk var alltaf að sulla áfengi út um allt, því fólk sest að sjálfsögðu ekki niður á meðan það fær sér í glas, nei, Hollendingar eru svo miklar dansfríkur að það hálfa væri hellingur. Ég fékk meðal annars minnst 10 bjórgusur á ökklana á mér, eina stóra á bringuna á mér og aðra álíka stór á bakið á mér... Oj bara.

En já, ég var komin heim um þrjúleytið eftir að hafa farið á Ali Baba og horft á hina borða Kebab.

Allavega. Ég segi þetta nóg í bili. Og hver veit, kannski blogga ég næst frá Íslandi? Sjáum til :)
Ástarkveðjur og knús til ykkar allra, Anna van Bosch, Hollendingur í húð og hár :)