Garg, ég er með bit á bingóvöðva vinstri handar, hægra augnlokinu, þumalfingri hægri handar og á vinstra brjóstinu. Bara svo þið vitið. Gefum okkur 3 sekúndur í að vorkenna mér, byrja núna.
Takktakk. Já, hér í Hollandi eru pínulitar flugur á sveimi sem bíta. Ég hef reyndar aldrei séð þessar flugur, en efast svo sannarlega ekki um tilvist þeirra. Einhver ráðlagði mér að leita vel og vandlega í herberginu áður en ég fer að sofa og drepa þær allar, en þar sem ég á það til að vera svolítið löt, þá nenni ég því ekki. Ég hef tvisvar sinnum lent í því að elta risastórar hlussuflugur upp um alla veggi rétt fyrir svefninn og dúndra í þær skónum mínum (og vekja alla í húsinu í leiðinni, eða svona næstum því) og miðað við hvursu pirruð ég varð af þeirri iðju, þá ætla ég ekki að leggja geðheilsu mína í hættu við leit að ósýnilegum flugum. Svo hlýtur nú bráðlega að kólna aðeins í veðri, og þá drepast þær... Vetur, hvar ertu?
Já, veðrið hérna er alveg hreint ótrúlegt. Ég lenti á löngu spjalli í dag við konuna í föndurbúðinni um þetta mál og sagði hún þetta haust vera algjört einsdæmi hvað góðviðri varðar. Tjah, það er náttúrulega ekkert eðlilegt að 30. september sé ennþá 24 stiga hiti og sól! Svo segja má að ég hafi tæplega farið í síðbuxur í heila 4 mánuði! Gúlp.
Svo er nú planið fyrir október að finna mér líkamsræktarstöð og sundlaug og hrista spikið örlítið, ekki veitir af. Hmm, planið var nú reyndar að halda áfram í taekwondo, en þar sem klúbburinn vill ekki svara ímeilinu mínu, þá, tjah, er nokkuð augljóst að ég get ekki mætt á æfingu. Þannig að nú verð ég að finna mér einhversstaðar eróbik eða einhverja svona skemmtilega hóptíma, því ég veit af gamalli reynslu að sjálfsagi minn á hlaupabrettinu er nákvæmlega enginn. Ég get vel farið út að skokka í náttúrunni og sprett vel úr spori þar, en mér finnst líkamsræktarstöðvar bara svo ferlega niðurdrepandi að ég stend frekar og bora í nefið heldur en að taka vel á því í öllum tækjunum. Því er ég að vona að eróbik sé eitthvað fyrir mig, allavega fannst mér eróbikspólan sem var til heima á Grænavatni í gamla daga ekkert leiðinleg sko... Og sagði ég virkilega "í gamla daga"?
Annars minni ég á að í dag er síðasti dagur septembermánaðar (ap jún sept nóv þrjátíu hver), og fer því hver að verða síðastur í að láta til sín taka í kommentakeppni mánaðarins. Koma svo!
Jæja, best að fara og gera eitthvað ógáfulegt. Ástarkveðjur, Anna van Bosch.
laugardagur, september 30, 2006
Strax aftur kominn laugardagur, gúlp!
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, september 30, 2006
Flokkur: Holland
fimmtudagur, september 28, 2006
Umvafin karlmönnum alveg hreint!
Fuss og svei segi ég nú bara. Sagan er sem sagt þessi:
Ég fór, líkt og aðra morgna, með börnin þrjú á leikvöllinn í morgun. Þar sem aðeins er tekið að kólna í veðri (ég þurfti að fara í peysu svona í morgunsárið!) þá vorum við alein á leikvellinum. Allt í einu sá ég ungan mann koma á leikvöllinn (sem er allur afgirtur og því auðvelt að fylgjast með mannaferðum), en fannst það þó í meiralagi grunsamlegt þar sem hann var ekki með nein börn. Ég fór að sjálfsögðu samstundis í viðbragðsstöðu (smalaði börnunum saman svo lítið bar á og fór yfir nokkur vel valin taekwondospörk í huganum) og fylgdist grannt með manninum, sem fór að einu leiktækinu og bograði eitthvað yfir það. "Dópisti" hugsaði ég og færði mig og börnin nær hliðinu á leikvellinum. Síðan gekk maðurinn að rennibraut sem var skammt frá okkur og bograði eitthvað yfir hana líka. Hvað í fj***anum var maðurinn eiginlega að gera?
Núnú, allt í einu leit maðurinn upp og reyndist nú ekki vera maður heldur ungur og SÆTUR piltur á aldur við mig! Innskot: Ungir piltar á aldur við mig eru ekki menn, ekki frekar en að ég er kona. En allavega. Gæinn brosti alveg sykursætt til mín (og ég kiknaði alveg í hnjánum sko!) og ég sá að hann var með myndavél í höndunum en ekki dóp.
Gaurinn: Hi :)
Anna: Hi :) What are you doing?
Gaurinn: Ehh, me? I'm just doing some project for school. I'm supposed to take photos of bright colours :)
Anna: Oh, I see :) Yeah, I guess this is the right place to be then :)
Gaurinn: Yeah :) Uuuhhm, well, I better keep going :)
Anna: Ok :)
Broskallarnir eiga að undirstrika hversu flirty þetta var hjá okkur. Jesúsminn og allir hans lærisveinar! Og ég að sjálfsögðu eins og ég veit ekki hvað, í skítugri peysu, ómáluð, ógreidd og óaðlaðandi með öllu.
Svo ég bara spyr: Er maður hvergi óhultur hér í bæ? Því sagan er nefnilega ekki búin enn. Já, eftir leikvallarævintýrið þá sat ég hérna heima í rólegheitunum með krakkana og allt í einu var dyrabjöllunni hringt. Ég fór til dyra, ennþá í skítugu peysunni, ómáluð og ógreidd, og voru þá ekki þessir tveir ofboðslega myndarlegu gaurar fyrir utan! Ég átti skemmtilegasta spjall við þá, en þeir voru að ganga hús úr húsi og selja einhver afsláttarkort á 5 evrur. Ég afþakkaði það boð pent þar sem ég verð hér bara þar til 14. desember eða svo, en mikið óskaplega voru þeir myndarlegir greyin! Ojoj.
Já, svo núna rétt í þessu var verið að hringja dyrabjöllunni og ég stökk að sjálfsögðu til dyra og vonaði náttúrulega að þarna væri prinsinn á hvíta hestinum kominn, en nei. Það var þá bara löggan sem hafði farið dyravillt! Gúlp.
Jæja, ég má ekki vera að þessu, ég þarf að læææra...
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, september 28, 2006
Flokkur: Holland
miðvikudagur, september 27, 2006
Let's be happy and let's be gay
Vegna áskorana lítur ný færsla nú dagsins ljós.
Humm, get ég þó ekki sagt að eitthvað markvert hafi gerst síðan í síðustu færslu.
Jú djók, ég fór í bæinn í gær og spanderaði peningum alveg hægrivinstri. Ég fékk nefnilega útborgað fyrir tveimur dögum síðan, og það er nú algjör óþarfi að eiga launin sín of lengi!
- Ég keypti mér t.d. hvíta geggjað flotta prjónaða peysu á 70% afslætti, svo hún kostaði ekki nema um 900 íslenskar krónur.
- Ég keypti mér líka gráa prjónaða flotta peysu á 70% afslætti og kostaði hún um 450 íslenskar krónur.
- Síðan keypti ég mér svartan hlírabol með fullkomnu sniði á 450 íslenskar krónur.
- Og svo keypti ég mér brúnan geggjaðan stuttermabol á 720 íslenskar krónur.
Þess má geta að þetta fellur allt að ströngum skilyrðum hugmyndafræðinnar um grunnfataskápinn góða. Nema það að ein prjónuð flott vetrarpeysa átti að duga. Vona að ég hafi ekki klúðrað þessu algjörlega með að hafa keypt tvær! Djók.
Í dag skundaði ég svo í bæinn og keypti mér skype-síma, því headfónadrasl virkar ekki í tölvunni minni. Og sjá, síminn virkar!!! Talaði ég því af áfergju í heilar 9 mínútur og 50 sekúndur við foreldra mína í dag, án þess að fá dúndrandi samviskubit yfir alltof háum símreikningum... Hoho!
Annars fékk ég nú skondið símtal í gærkvöldi.
Kona: Goedeavond, blablabla blabla blablablabla?
Anna: Uhh, sorry, I don't speak Dutsch...
Kona: Uhh... ehh... what about your husband?
Anna: HUSBAND? Ehh, I don't have a husband, I'm only nineteen! And this is my private mobilenumber...
Kona: Ahhh... ohhh... allright...
-Þögn-
Anna: Ehh, are you doing some kind of a research or something?
Kona: Ehh, yes.
-Þögn-
Kona: Well, bye.
Humm, fleira markvert hefur ekki gerst. Eða jú, en ekkert sem ég nenni að skrifa hér... maður setur nú ekki allt á netið sko!
PussOchKram älsklingarnir mínir, Anna van Bosch
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, september 27, 2006
Flokkur: Holland
sunnudagur, september 24, 2006
Svo glatað!
Annars sit ég hérna við eldhúsborðið og er að gera alveg æsispennandi spænskuverkefni um Madrid. Ég er ennþá svolítið fúl yfir því að kennarinn skuli hafa klúðrað málunum í síðustu viku og látið mig skila verkefni fyrir spænsku303 (ég er í 403), og ætlast svo til að ég geri svo rétta verkefnið og skili því! Það fara nú alveg margir klukkutímar í svona verkefni skal ég ykkur segja... En ég þori hins vegar ekki að kvarta, ég fékk nefnilega A fyrir fyrsta verkefnið mitt á önninni sem kom vel að merkja RAUTT til baka af allskonar málfarsvillum, og tel ég því um að gera að nota smjaðursaðferðina mína ofurlítið og athuga hvort ég sleppi ekki svona vel það sem eftir lifir annar... Ég tek það samt skírt fram að ég hafði ekki notað spænsku í rúmt hálft ár þegar ég skilaði fyrsta verkefninu og mundi þess vegna ekki sjitt, en þetta er allt að koma til. Ætla allavega ekki að fá aftur svona rautt verkefni til baka, jadúdd bara!
Úff, ég lenti nú í alveg vonlausri viðreynslu í dag! Þið megið samt alveg sleppa því að lesa þetta, þetta er nefnilega leiðinleg langloka. En sem sagt, ég fór í sakleysi mínu út að skokka í garðinum hérna hinum megin við götuna, klædd í alveg vonlaus föt, var með gleraugu, hárið út um allt, ómáluð og ósexí með öllu. Núnú, ég ákvað að taka hringinn í kringum vatnið á mettíma (tekur svona 20-25 mínútur að labba) og hljóp því sem mest ég mátti af stað og blés varla úr nös. Síðan kemur allt í einu gaur á lítilli vespu og keyrir framhjá mér og starir svo mikið aftur fyrir sig að hann keyrði næstum því útaf. Kauði brunar áfram dágóðan spotta, stoppar síðan og sest á bekk. Þar situr hann svo þegar ég kem skokkandi á milljón kílómetra hraða. Gaurinn var nú svo sem ekkert ómyndarlegur greyið, bara ekki mín týpa (sem sagt ekkert svo myndarlegur). Allavega, um leið og ég þaut eins og eldibrandur framhjá honum blístraði hann hátt og hrópaði svo "Hi!" á eftir mér. Ég þóttist að sjálfsögðu ekki heyra neitt, enda með mp3 spilarann í eyrunum, svo ég hélt bara áfram.
Jæja, alltaf gaman að láta blístra á eftir sér, svo ég fór að pæla í hvort ég hefði átt að stoppa og spjalla við gæjann. En svo mundi ég allt í eftir útganginum á mér og komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri gaur sem kæmi greinilega þarna reglulega og blístraði á eftir stelpum. Og áfram hélt ég á sprettinum og blés ennþá ekki úr nös. Þarna skokkaði ég lengi lengi og var næstum því komin hringinn, og sjá, kemur ekki kauði á hjólinu sínu úr gagnstæðri átt, og greinilega að tékka á því hvort ég væri ekki alveg örugglega ennþá í garðinum. Núnú, ég reyndi að láta sem ekkert væri og skokkaði þarna áfram. Þegar ég kom aftur að bekknum var gaurinn kominn þangað aftur og sat og starði á mig. Ég spítti í og hljóp framhjá honum (reyndi samt að vera þokkafull sko, gaur er jú alltaf gaur...) og eftir nokkurn spotta stoppaði ég og teygði á. Þá sá ég að gæinn var að keyra annan hring í kringum vatnið, greinilega til þess að tékka aftur á mér. Þá notaði ég tækifærið og hljóp heim. Pff, svona gaurar sko!
Ég tek það samt fram að undir venjulegum kringumstæðum (sem sagt ég í ofursexí íþróttafötum, máluð og með hárið perfect) hefði ég svo sannarlega farið og spjallað við gæjann. En þessi var sko greinilega bara að leita að einhverju kjöti...
Já, þannig er nú sagan af mínu lífi! En nú má ég ekki vera að þessu lengur, ég ætla að fara að fara í rúmið og liggja andvaka af áhyggjum (sjá síðustu færslu). Adiós mis amigos! Anna Espanjola
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, september 24, 2006
Flokkur: Holland
Er nýbúin að standa í svona veseni!
Ó-ó, hvað á ég eiginlega að gera eftir áramót?
- Au-pair? Nei, ég held ég sé því miður búin að útiloka þann möguleika, grenj. Í mig er nefnilega kominn smá háskólafílingur (obbobb) og græði ég sennilega meira á því að finna mér aðra vinnu og íbúð sjálf. Ég ætlaði samt að ráða mig aftur sem au-pair, damn...
- Finna íbúð og vinnu sjálf? Tjah, það kemur varla annað til greina... Það er samt ábyggilega hellings vesen, en ég hef nú eiginlega frekar gaman að því að púsla svona saman, svo það er nú ekkert óyfirstíganlegt.
- Heim til Íslands? Nei.
- Í skóla? Á ekki pening, og fyrr ferst heimurinn en að ég taki mér námslán!!! Auk þess hef ég ekki GLÓRU um hvað mig langar til að læra... sjúbbídú.
- Til Danmerkur? Ójá, ég ELSKA Danmörku svo mikið, snökt. En hvar? Århus eða Kaupmannahöfn? Ég get ekki valið, grenj.
- Til Svíþjóðar? Vegna tungumálsins, já. En annars ekki.
- Áfram í Hollandi? Nei, það er svona land sem maður heimsækir bara í fríum og í svona nokkra mánuði :)
- Grafa mig í fönn fram í júní og ráða mig þá sem Nordjobbara í einhverju landi? Huhumm, miðað við síðasta launaseðilinn minn (sem ég fæ útborgaðan á morgun, jess), þá græði ég meiri pening á því að fara bara heim og skrá mig í unglingavinnuna... grínlaust!
Garg, þetta er nú ljóta ástandið. Allar tillögur eru vel þegnar.
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, september 24, 2006
Flokkur: Holland
laugardagur, september 23, 2006
Nafnasafn
Hún Elín Ósk er að leita að nafni á tölvuna sína sem hefur, eftir þriggja ára notkun, ekki enn hlotið nafn. Þá fattaði ég að tölvan mín heitir heldur ekki neitt! Hrmpf, ég veit nú ekkert hvernig á því stendur.
En það er ekki þar með sagt að ég láti alla hlutina mína ganga um óskírða, ónei Hemmi minn!
- Lárus er bíllinn minn, Toyota Corola árgerð 1985, fjögurra gíra með sjálfvirku innsogi. Ég elska bílinn minn mjög mikið, enda kaggi af bestu gerð. Því miður varð greyið að vera eftir heima á Íslandi, enda kaupverðið 15.000 krónur (að mig minnir, gæti þó hafa verið 20.000) og fólk ætti að sjá í hendi sér að þá borgar ekki að taka hann með sér til útlanda... snökt. Og JÁ, hann gengur eins og klukka og gott betur en það (fékk hrós og alles þegar hann fór síðast í skoðun) og NEI, þótt hann skemmist einhvern tímann þá verður hann EKKI til sölu, hvorki til að láta gera hann upp né í bílapartasölu. Ég er búin að fá þónokkur tilboð...
- Matthildur er apinn sem ég keypti alls ekki í Tiger á sínum tíma. Heiða (fyrir þá sem ekki vita hver Heiða er, þá bjuggum við saman í tvö og hálft ár eða svo) á svo apann Dúdda sem er heldur alls ekki keyptur í Tiger og er alls ekki með brunablett á rassinum því hann sat aðeins of lengi á lampa... Reyndar gangast Matthildur og Dúddi einnig undir nöfnunum Dútthildur og Maddi en ég mismælti mig víst einhvern tímann...
- Heima á Grænavatni er gullfiskur sem ég kýs að kalla Stellu en hinir í fjölskyldunni kalla Skúla. Fiskinn höfum við átt ég veit ekki hvað lengi (ábyggilega tvö ár eða svo, mamma?) og við vitum ekki ennþá kynið.
- Við Heiða áttum líka einu sinni vekjaraklukku sem hét Matthías. Síðan fannst okkur nafnið ekki alveg passa og breyttum því yfir í Leifur...
- Já, við Heiða eigum líka flotta önd sem er alls ekki keypt í Rúmfó. Öndin hefur vakið upp svona tvöhundruðogsjö hlátursköst (það er bara SVO fyndið þegar hún gargar brabrabra) og hlaut nafnið Andó. Sumir myndu ætla að hún (hún er karlkyns) héti Andó því að hún er önd, en það er nú alls ekki svo, heldur liggur þvílíkur einkahúmor á bakvið að ég segi ekki nokkrum manni frá! Og það þýðir heldur ekkert að tuða í kommentunum...
- Hehemm, við Heiða létum ekki eitt einasta tækifæri framhjá okkur fara þegar það kom að því að skíra hluti, og skírðum við því klósettið í HrafnaSex Gottskálk... Það ætti nú hvert mannsbarn að geta áttað sig á þeirri tengingu (þið vitið, góð skál...) og óþarfi að útskýra nánar.
Ég held að það sé óþarfi að telja fleira upp, þið skiljið hvert ég er að fara.
En svo verð ég því miður að lifa við þá reginhneisu að tölvan mín heitir ekki neitt! Já, skömm er að, en ég held því miður að það passi ekkert nafn við greyið... ég þarf að hugsa þetta mál örlítið betur!
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, september 23, 2006
Flokkur: Holland
föstudagur, september 22, 2006
Ég er svo dugleg
En ég lét mig samt hafa það að rísa úr rekkju stundvíslega klukkan níu, því samkvæmt fyrri yfirlýsingum, þá ætlaði ég að nota daginn í eitthvað skynsamlegt. Eftir að hafa hangið á netinu í tvo klukkutíma byrjaði hið skynsamlega. Ég fór út að skokka (í nýja íþróttatoppnum mínum og brjóstin á mér högguðust ekki) og lagðist smá í sólbað, enda var skínandi sól og steikjandi hiti.
Og síðan hófst Extreme Makeover! Já, ég ákvað að láta loksins slag standa og reyna að gera eitthvað til að fríska upp á herfilegt útlit sem hefur verið mér viðloðandi síðustu dagana/vikurnar. Allir kvenkyns lesendur vita væntanlega hvað felst í svona yfirhalningu. Vax, plokk, klipp, rakstur, háreyðingarkrem, þrjár mismunandi gerðir af kornmöskum, djúphreinsikrem í lítratali, pússun og slípun á nöglum, naglalökkun, allsherjar fegrunaraðgerð á fótum, allskonar sturtusápur, nokkrar gerðir af lotionum, nudd og nostur og svo framvegis og svo framvegis. Þess má geta að ég sá um allt þetta sjálf, og tók ferlið ekki nema rétt tæpa þrjá tíma. Ég ætti kannski að leggja þetta fyrir mig?
Eins náði ég að þvo öll fötin mín og ilma ég því eins og blóm í heiði. Hins vegar mæli ég ekkert sérstaklega með því að setja óvart hvítan g-streng í þvott með svörtum og gráum sokkum, nema náttúrulega að þið viljði eignast flottar grábláar nærbuxur, svona eins og ég!
Margir skyldu nú ætla að eftir allt þetta puð hefði ég lagst niður og neitað að hreyfa svo mikið sem litlafingur það sem eftir væri dags. En hvað gerði ég? Jú, ég skundaði að sjálfsögðu í bæinn í þeim tilgangi einum að eyða peningunum mínum í algjöran óþarfa. Og sjá, mér tókst að eyða heilum 750 íslenskum krónum í eitthvað alveg vita tilgangslaust á borð við snyrtivörur. Dugleg!
Og síðan kom ég aftur heim, fékk mér fjórða skammtinn af Kornfleksi í dag (mamma, EKKI hljóta bráðan bana, en það er nýjasta æðið hjá mér þessa dagana... grenj) og hef síðan setið hér og safnað spiki í nokkra klukkutíma. Hmm, já. Fyrir þá sem ekki vita, þá var ég ein heima í allan dag og fyrir þá sem eru algjörlega úti að aka, þá hef ég ekki borðað kornfleks frá því ég var fjögurra ára...
Í þessu húsi bý ég, þriðju dyr frá hægri. Eins og glöggir taka eftir, þá er húsið aðeins á þremur hæðum. En ef vel er rýnt í myndina, þá sést hvít rönd efst á húsinu, og þar ku glugginn á herberginu mínu á fjórðu hæð vera... Hemm já. Þetta er sem sagt svona mínígluggi. Gluggaveggurinn minn og svalirnar eru hinum megin við húsið. 
Matvöruverslunin sem er rétt hjá húsinu mínu

Brúin sem fer alltaf upp þegar maður er að flýta sér...

Einhver stytta. Eins og þið sjáið skín sólin ekki lengur, en þvílíkur hiti samt...

Þarna er ég alveg að verða komin í miðbæinn, en kirkjan þarna framundan er einmitt í miðbænum
Það eru flottar byggingar hérna, þetta er skóli sem maður gengur framhjá á leið sinni í bæinn

Maður gengur líka framhjá þessu. Hmm, ekki væri ég til í að eiga herbergi sem væri með svona gólfi, hahaha...

Þessi er tekin út um eldhúsgluggann - myndavélin mín er ekkert að brillera í þessari birtu... kannski kominn tími til að læra á stillingarnar?

Þessi er tekin úti á svölunum mínum

Og önnur, jii hvað ég er listræn!
Kærar kveðjur, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, september 22, 2006
miðvikudagur, september 20, 2006
Jibbí jei!
Í gær fór ég í bæinn og kom, sá og sigraði. Ég FANN íþróttatopp!!! Reyndar var hann skítugur (meik eftir einhverja stelpuskjátu) en ég fékk á hann þvottaábyrgð sem þýðir að ég má skila honum ef það fer ekki úr í þvotti. Reyndar stórefast ég um að ég myndi skila honum, ég hef nefnilega engan sérstakan áhuga á að stofna geðheilsu minni aftur í hættu. Eins hef ég ekki lengur fordóma gagnvart Hollendingum. Þeir eru vænstu grey.
Annars gerði ég nú líka góða ferð í bæinn í dag. Já, ég keypti mér skó! Það tók ekki nema 4 klukkutíma að finna skó sem hægt er að skokka í (sem sagt mjúkbotna) og á viðráðanlegu verði. Ég giska samt á að það séu cirka 20-30 skóbúðir í miðbænum (og ábyggilega gott betur en það, grínlaust! Ætla að telja þær einhvern daginn...) og flestar eru jú á vel viðráðanlegu verði. En þær selja því miður ekki strigaskó, heldur bara stígvél og "venjulega" skó. Venjulegir skór eru "fínir skór" á mínum mælikvarða, maður fer ekki út að skokka í svoleiðis.
En þetta tókst. Og ég var svo dauðþreytt þegar ég kom heim eftir þessi ósköp að mér dettur ekki í hug að fara út og skokka einn hring í kringum vatnið. Geri það bara á morgun...
Svo þarf ég nú einhvern daginn að heimta trefilinn minn, sem hún Lilja gaf mér, úr helju. Með öðrum orðum: Ég þarf að hitta Spánverjann sem talar varla ensku og koma honum í skilning um að ég hafi gleymt treflinum heima hjá honum um daginn. (Neinei, ekki fara að ímynda ykkur neitt dónalegt!). Reyndar hitti ég Spánverjann í gær, en ég var að fara niður rúllutröppur og hann upp, svo ég taldi að þá væri ekki rétti tíminn til að garga á eftir honum "Hey, I forgot my scarf at your apartment!" svo það verður að bíða betri tíma.
Ég þarf svo endilega að fara að taka fleiri myndir til að sýna ykkur, þarf að sýna ykkur herbergið mitt og hjólið mitt og miðbæinn og brúnna yfir skurðinn sem fer alltaf upp þegar maður er að flýta sér og ýmislegt fleira. Stefni jafnvel á það verkefni núna á föstudaginn, en það verður 3 daga helgi hjá mér og ætla ég mér að reyna að koma einhverju gáfulegu í verk. Lofa samt engu.
Hafið það gott älsklingarnir mínir! Kærar kveðjur, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, september 20, 2006
Flokkur: Holland
Myndir, loksins!
Hósthóst, ég hef ekki alveg verið að standa mig í myndafærslunum undanfarið. En hér með verður bætt úr því, eitt stórt klapp fyrir því! Já, ég á enn eftir að skella inn nokkrum myndum af íbúðinni minni í Svíþjóð (var reyndar búin að tæma og þrífa íbúðina þegar myndirnar voru teknar) og fleiru, svo ég segi bara njótið vel :)
Venla, nu er det dags att posta några fotos! Och titta, Odinsgatan har inte varit så fin sen i början av juni... ;)
Lilja mín var stödd í Svíþjóð í ágúst og við skelltum okkur í Liseberg :)
Þarna einhversstaðar á sviðinu er SVEN INGVARS, ó mæ gad sko! "Jag ringer på fredag" og "Säg inte nej, säg kanske kanske kanske" eru náttúrlega góðir smellir...
Ylva við sögufrægan steingvegg í einhverju bíói. Þetta var víst hluti af múr sem umlukti borgina á árum áður.
Það var búið að skreyta múrinn svona listilega vel...
Eldhúsið góða í Odinsgatan 24B, eftir tiltekt... Venla titta, såå fint :)
Jájá, allt til alls. Eldavélin var held ég notuð þrisvar sinnum... Venla, hur många gånger lagade vi mat? Tre? Eller två? ;)
Það er langur gangur fyrir svanga Manga... Þessi gangur var í íbúðinni á milli eldhússins og stofunnar. Á ganginum á vinstri hönd er klósettið og á hægri hönd er forstofan, þótt það sjáist nú reyndar ekki á þessari mynd.
Baðherbergið, hreint og fínt og tómt
Sturtan góða :) Reyndar er einn galli á gjöf Njarðar, og hann er sá að það var enginn sturtubotn svo vatnið flæddi um ALLT baðherbergisgólfið þegar maður fór í sturtu...
Forstofan. Þarna gefur á að líta farangurinn minn, alls 53 kíló takk fyrir pent!!! Enda var ferðalag mitt til Hollands líka ansi skrautleg... lenti í vandræðum á Kastrup og allskonar, vúps! Venla, titta, min bagage var 53 kilo!!! Det var också jätte svårt att åka till Holland, haha :)
Stofan góða :) Þarna í sófanum áttum við Venla heima... Þarna til hægri sjáið þið líka hornið á rúminu hennar Venlu. Nej men Venla, soffan! Kom ihåg, vi var där hela dagen :P
Venla svaf undir bókahillu... ekki mjög traustvekjandi! Venla, "hyllan" (hahaha) föll inte ner ;) Och hylla er faktist ett ord :)
Tölvuhornið. Þarna ofan á er rúmið sem ég svaf í... ef vel er rýnt í myndina má sjá tröppurnar þarna hægra megin.
Og þarna uppi svaf ég
Og sjónvarpið okkar indæla
Það var crowded á Kastrup
Ég lenti í HELLIDEMBU í Hollandi
Sól og sumar
Garðurinn sem er hinum megin við götuna hér í Hollandi
Bjútí bjútí
Ég fann þennan skurð í einum hjólatúrnum
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, september 20, 2006
þriðjudagur, september 19, 2006
Kalt kalt...
Æ, æ. Ég horfði á Holland's next Topmodel í gær og formleg fitun er hafin.
Ég er annálaður aðdáandi Topmodel þátta, hvort sem þeir America's- England's eða Australia's next topmodel, og hef mjög gaman að því að sitja heim í stofu og gefa mitt fagmannlega álit á holdafari, pósum og göngulagi. Og yfirleitt er ég manna síðust til að viðurkenna að einhver þátttakendanna sé of grannur, en í gær varð mér illt í rifbeinunum. Stúlkurnar eru allar á aldrinum 17-21 árs (fyrir utan eina 26 ára), og svo sjúklega óeðlilega fáránlega grannar að ég fór eiginlega að skæla þegar ég sá það! Hefi ég því tekið skyndilegu ástfóstri við öll mín þrjú aukakíló og stefni jafnvel á að bæta á mig nokkrum í viðbót. Snökt.
Annars er það helst að frétta að ég vaknaði með sængina ofan á mér í morgun og EKKI í svitabaði! Sem telst nú til stórtíðinda því slíkt hefur ekki gerst síðan en heima á Íslandi forðum daga, sem sagt í júníbyrjun. Já, í dag voru 14,5 gráður úti klukkan átta og ég hélt ég myndi frjósa í hel, svona þar sem heill veggur í herberginu mínu er gluggi og enginn ofn er til staðar. Ég man kannski eftir því að sofa með lokaðan glugga næst...
Annars hef ég fátt að segja á þessum kalda, gráa en fagra þriðjudegi. Ætlaði að skella inn nokkrum myndum handa ykkur, en þar sem ég gæti misst nokkur grömm af því að skokka upp á fjórðu hæð og ná í myndavélina (ég elska aukakílóin mín, remember), nú eða vegna þess að ég er svo fruntalega löt, þá fáið þið engar myndir fyrr en í fyrsta lagi í kvöld.
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, september 19, 2006
Flokkur: Holland
mánudagur, september 18, 2006
Fatalufsur
Ég á ennþá mínar 50 evrur. Ég fór í bæinn á laugardaginn og keypti ekki neitt. Markmið dagsins var að kaupa mér íþróttatopp, en þegar slíkt fæst ekki í íþróttavöruverslunum, nærfataverslunum, almennum fatabúðum og búðum með blönduðu drasli (á reyndar eftir að leita í matvöruverslunum, en þar sem matvöruverslanir hér eru ekki með drasl líkt og Hagkaup, Nettó og Bónus þá er ég ekki bjartsýn), þá hreinlega veit ég ekki hvar ég á að leita. Neyðist sennilega á endanum til að kaupa þann EINA sem ég fann, en hann var því miður allt of allt of þröngur þrátt fyrir brjóstasmæð mína. Reyndar var brjóstmálið fínt, en hann er gerður fyrir eitthvað aðeins fíngerðari rifbein en mín, og þó eru mín ekkert huges. Held að Hollendingar ættu að skammast sín fyrir að stuðla að óþarfa sliti á brjóstum. En eitt er víst: Ég hreyfi mig ekki eitt hænufet fyrr en ég fæ íþróttatopp. Og hananú. Verð sennilega svona 10 kílóum þyngri þegar ég kem heim í jólafríinu, en það er óneitanlegra auðveldara í meðhöndlun en slit á brjóstum...
Já, biturleiki minn er mikill. Reyndar stórefast ég um að ég fengi slit af því að hoppa pínu um íþróttatoppalaus (eins og áður segir er ég blessunarlega brjóstasmá), en þar sem útlitsdýrkun mín er meiri en góðu hófi gegnir, þá tek ég að sjálfsögðu enga sénsa!
Eins ákvað ég að nú yrði ég að láta slag standa og kaupa mér stígvél og vera þar með komin einu skrefi nær því að breytast í gellu. En þegar ég var búin að máta hver ein og einustu stígvél í allri búðinni (sem er nú ekkert lítil), og ALLIR botnarnir voru harðir, nú eða það var hæll á stígvélunum sem stuðlaði að óþarfa sársaukafullu álagi á tábergið, þá hætti ég snarlega við. Ég skal svo sem láta mig hafa það að ganga í óþægilegum efripörtum og alltof þröngum buxum, en óþægilega skó skal ég aldrei nota á djammið. Hrmpf.
Núnú, fyrst ég fann engan íþróttatopp og engin mjúkbotna stígvél, þá ákvað ég að eyða mínum 50 evrum bara í einhverja bölvaða vitleysu, enda búin að lofa móður minni því að eyða þeim öllum í föt og fara ekki aftur heim í Geldersedam fyrr en því verkefni væri lokið. En svei, ég er bara svo nísk að ég tími ekki peningunum mínum í einhver gelluföt, þegar ég á eitthvað af þeim fyrir! Eins tímdi ég ekki að kaupa mér sokka (vantar eiginlega sokka en frekar tilgangslaust að kaupa fleiri þegar maður á nokkur pör fyrir), g-strengi (vantar eiginlega fleiri en frekar tilgangslaust að kaupa fleiri þegar ég á slatta fyrir) og hlíraboli (því ég á nokkra fyrir).
En sjá, ég er eiginlega alveg guðslifandi fegin að ég eyddi þessum 50 evrum mínum ekki í sokka, g-strengi og hlíraboli! Því ég fór nefnilega heim og í þunglyndiskasti mínu fór að ég vafra um á netinu, og vitið þið hvað! Ég rakst á bestu grein allra tíma (að mínu mati allavega) sem segir manni allt um það hvernig maður á að búa til hinn fullkomna "grunnfataskáp", eða "basisgarderob" (greinin er á dönsku). Þessi grein er ætluð þeim sem eiga aldrei neitt til að fara í á mánudagsmorgnum þrátt fyrir að kaupa býsnin öll af fötum reglulega. Og þegar maður á svona grunnfataskáp, þá er ódýrara en allt að tolla í tískunni, því það eina sem þarf eru aukahlutir og svo kannski bolir og hálsklútar, og þá er maður svo svakalega móðins að það hálfa væri nóg! Svo nú er ég hætt að spandera mínum peningum í bölvaða vitleysu, ég er farin að búa til basisgarderob... Minn mun sennilega koma til með að kosta 40.000 þegar allt er komið í hann. Ég komst nefnilega að því að það er ekkert skrítið þótt ég eigi aldrei nein föt. Ég á nefnilega EKKERT sem er á þessum lista... vúps!
Og nei, ég ætla ekki setja linkinn að þessari grein hingað á netið. Þið getið sent mér e-mail ef þið viljið fá hann, skrifað það í komment hjá mér (ásamt e-maili), nú eða sent mér sms ;) Ég veit nefnilega ekki hvaða fólk kíkir hingað inn á síðuna (nema náttúrulega þeir sem kommenta) og ég vil nú ekkert að einhver Gunna úti í bæ njóti góðs af... nema náttúrulega að Gunna úti í bæ kommenti, þá er henni það guðvelkomið... ;)
En allavega, fyrir þá sem eru löngu búnir að gleyma um hvað þessi færsla er, þá á ég ekki ennþá íþróttatopp og stígvél, er nísk og hef séð ljósið. Merkilegra var það nú ekki.
Bið að heilsa ykkur öllum! Ástarkveðjur, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, september 18, 2006
Flokkur: Holland
laugardagur, september 16, 2006
Til pabba - Flókin fjármál
Þessa færslu á pabbi að lesa.
- Að bera fé: Afklæða kind
- Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap
- Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur
- Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur
- Fégirnd: Afbrigðileg kynhneigð (Að girnast sauðfé)
- Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket
- Féhirðir: Smali
- Félag: Lag sem samið er um sauðfé
- Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé
- Félegur: Eins og sauður
- Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki
- Fjárdráttur: Samræði við kind
- Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé
- Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé
- Fjárlög: Mörg lög sem samin eru um sauðfé
- Fjármagn: Þegar margar ær koma saman
- Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm
- Fjármálaráðherra: Yfirsmali
- Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda
- Fjárnám: Skóli fyrir kindur
- Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beytt fyrir plóg
- Fjársöfnun: Smalamennska
- Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin
- Fjárvarsla: Það að geyma kindur
- Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðaket í matarboðum
- Fjáröflun: Smalamennska
- Fundið fé: Kindur sem búið er að smala
- Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli
- Grímsá: Kind í eigu Gríms
- Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér
- Hlutafé: Súpukjöt
- Langá: Einstaklega löng kind
- Lausafé: Kindur sem eru lausar á afréttinum
- Norðurá: Kind að norðan
- Opinbert fé: Fé í eigu ríkisins
- Sauðburður: Þegar handbært fé er borið að á milli staða
- Sparifé: Kindur sem ekki eru notaðar hversdags
- Stofnfé: Fyrstu kindurnar sem maður eignast
- Tryggingafé: Öruggt sauðfé
- Veltufé: Afvelta kindur
- Þjórfé: Drykkfelldar ær
- Þverá: Þrjósk kind
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, september 16, 2006
Flokkur: Holland
Ó sveiattan
Nei, nú hlýtur ykkur að vera illt í augunum. Innsláttar-, málfræði- og málfarsvillurnar eru nefnilega orðnar svo svakalegar hjá mér að það liggur við að ég flytji aftur heim til Íslands! Liggur við.
Annars er planið í dag að fara í bæinn með mínar 50 evrur (4500 íslenskar krónur) og reyna að finna mér íþróttatopp, tölvumús og einhvern annan óþarfa. Ég segi ykkur svo kannski í kvöld frá afrekum dagsins, ef ég nenni.
Talandi um alveg fullkomlega tilgangslausa færslu!
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, september 16, 2006
Flokkur: Holland
föstudagur, september 15, 2006
Sól sól skín á mig
Í gær ætlaði ég í alveg geðveikt langan hjólatúr og lagði af stað með fullan vatnsbrúsa og myndavél. Ég taldi ekki þörf á að hafa kort með í för, enda lærir maður best á því að villast sem mest. (Speki í boði Önnu Bjarkar klikkar aldrei!). Frá því er skemmst að segja að ég hjólaði lengst út í buskann, beygði og beygði og beygði og var svo óvart komin heim aftur eftir 20 mínútur. Ég hafði sem sagt hjólað í hring og hef því engar myndir handa ykkur í dag. Já, svona er það að vera frábær!
Annars skín sólin í dag líkt og undanfarna daga, þegar ég fór að sofa í gærkvöldi um ellefuleytið var ennþá 23 stiga hiti úti...
En ligg ég úti í sólbaði? Nei, mér hundleiðist að liggja í sólbaði! Þess í stað ætla ég að einbeita mér að því að bera saman Sókrates og Jesú í sögu303... Já, svei mér þá, mér finnst saga skemmtileg! Ætli áhuginn á því ágæta námsefni hafi ekki vaknað á öllum mínum ferðalögum í sumar. Maður verður nú að auka víðsýnina smá svo maður geti tekist á við heiminn sem þroskaður og heilsteyptur einstaklingur. Nei djók. Þroskuð og heilsteypt verð ég ekki svo lengi sem ég lifi.
Jæja, best að halda áfram að læra!
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, september 15, 2006
Flokkur: Holland
miðvikudagur, september 13, 2006
Jag känner en bot...
Nei hættu nú alveg. Ég fer slíkum hamförum á þessu bloggi mínu að þið eruð eflaust í fullu starfi við að lesa þetta allt saman. Því ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir að þið látið ekki eina einustu færslu framhjá ykkur fara, það væri nú synd og skömm.
Ég verð nú samt að segja ykkur eitt! Ég held ég sé nú aðeins meiri Svíi en ég vil vera láta. A.m.k. tekur mitt Svíahjarta allduglegan kipp í hvert sinn sem ég heyri "Boten Anna" spilað í búðunum hérna! Jii, ég vissi ekki að þetta væri svona agalega þekkt lag svona fyrir utan Svíþjóð og Danmörku! (Veit ekki hvernig vinsældum lagsins er háttað á Íslandi). En fyrir ykkur sem hafið ekki grænan grun um hvað í ósköpunum ég er að tala, þá getið þið kíkt hingað (virkar ekki í Opera), en hún Hrafnhildur Ýr sendi mér þennan link fyrir löngu síðan. Ég hélt reyndar að þessi þýðing á textanum myndi MURKA ÚR MÉR LÍFIÐ, en ég sem sænskumælandi veit hvursu fáránlega fyndið þetta er. En allavega, þetta lag er eitt af mínum uppáhaldslögum, þrátt fyrir að hafa fyrir löngu fengið ógeð á því (mistök að setja það í mp3 spilarann!) enda langbestu minningar sumarsins beintengdar þessu lagi... Sjæse hvað ég ég skemmti mér fáránlega vel í sumar :)
En kannski ég fari að tygja mig í háttinn, ef ég nenni að ganga upp stigana það er að segja. Herbergið mitt er nefnilega uppi á fjórðu hæð! Ég er reyndar á annarri hæð núna svo þetta er kannski engin órafjarlægð, en miðað við hvað ég er búin að borða mikið í dag þá er ég ansi þungstíg. Allavega ætla ég ekki að hlaupa upp eins og ég gerði í gær, því ég var nú farlama í lengri tíma eftir það tröpppuhlaup! Stigarnir hér í húsinu er nefnilega svona svakalega brattir að mér tókst að dúndra hnénu á mér í eina tröppuna, ótrúlegt en satt! Í gær var líka dagurinn sem ég skar mig allsvaðalega á brauðhnífnum og fékk flís úr hárburstanum mínum sem er nú annars úr plasti...
Nei nú er ég hætt. Ætla að vakna klukkan 8 í fyrramálið og drífa mig svo út í sólina með krakkana klukkan 9 eða svo. Spurning um að vera samt ekki í of flegnum bol þar sem nýjasta áhugamál þeirrar yngstu er að troða vallhumlum ofan í hálsmálið á mér... Og ég sem ætlaði nú bara að kenna henni að finna lyktina af blómunum...
Góða nótt og hagið ykkur skikkanlega, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, september 13, 2006
Flokkur: Holland
Monnímonnímonní
Ó ég er svo nísk. Fór í bæinn áðan og ætlaði svo aldeilis að eyða 50 evrum í einhverja bölvaða vitleysu til að halda upp á ódýra hjólið mitt. Ég fann nú reyndar alveg fullt af geggjuðum fötum á spottprís, en tímdi ég að kaupa þau? Nei. Meðal annars fór ég og fann þessi fínu fínu stígvél á 29 evrur (geggjuð útsala í skóbúðinni) en svo fór ég að pæla. Hvurn fjandann (afsakið orðbragðið) á ég að gera við gellustígvél? Ég á engin stígvélahæf pils og ég á þaðan af síður gallabuxur! Svo ég sleppti því að kaupa mér stígvélin og splæsti þess í stað í háreyðingarkremi. Góð bæjarferð það!
Hins vegar fatta ég það núna að ég hefði átt að kaupa mér nýja tölvumús, því mín er því miður látin. Fyrst var hún sturluð í einn dag og svo hlaut hún þessi grimmilegu örlög í gær. Ó svei því öllu saman.
Nei nú er letin alveg að gera út af við mig. Ég ætla að fara og leggja mig smá...
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, september 13, 2006
Flokkur: Holland
þriðjudagur, september 12, 2006
Jólahjól
Neinei, nú er bannað að kvarta undan of mörgum bloggfærslum á einum degi.
Hey, ég keypti mér hjól í dag. Gleði gleði! Þvílíkur eðalgripur, ryðgaður með hálfbilaðar bremsur og ónýtt framljós. Kjarakaup alveg hreint! Skelli inn myndum af elskunni þegar ég er búin að taka þær. Eins á hjólið eftir að fá nafn við hæfi, ég þarf aðeins að hjóla á því fyrst og kynnast persónuleikanum.
Humm. Ég verð þó að viðurkenna að ég er strax orðin leið á netinu og nenni ekki að sitja hér í marga mánuði samfleytt líkt og fyrri yfirlýsingar gefa til kynna. Látum nægja svona klukkutíma á dag. Enda hef ég nú ekki tíma í að hanga endalaust á netinu, maður þarf víst stundum að læra heima líka í þessum 9 einingum...
En iss, þetta var nú tilgangslaust færsla. Ég ætlaði bara að láta vita að ég er búin að kaupa mér hjól :)
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, september 12, 2006
Flokkur: Holland
Lesandi ágústmánaðar
Hey, er ekki komið að því að krýna lesanda ágústmánaðar? Í þetta skiptið var ansi mjótt á munum sem endranær, en hérna koma niðurstöðurnar...

Björg María Jónsdóttir tók keppnina í nefið og vann eins og ekkert væri. Þessi mynd er alls ekki stolin, hósthóst...
2. sæti:

Kristinn Björn Haraldsson, a.k.a. litli bróðir minn, barðist hetjulega og hafnaði í öðru sæti, aðeins einu kommenti á eftir Björg. Þessa mynd tók ég af okkur í Danmörku í ágúst.
3.-4. sæti:

Í 3.-4. sæti er Baldvin Dagur Rúnarsson, en hann laumaði sér öllum að óvörum í eitt af toppsætunum. Hann var aðeins einu kommenti á eftir 2. sæti. Þessa mynd af okkur tók ég sjálf í tjaldútilegu sumarið 2005, þrátt fyrir að dagsetningin á myndinni segi eitthvað allt annað.

Og í 3.-4. sæti er einnig Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings sem kommentaði af miklum móð í ágúst og lenti aðeins einu kommenti á eftir 2. sæti. Þessi mynd er alls ekki stolin, nei ó nei...
Ef það eru fleiri sem vilja sjá sín fögru andlit hér á síðunni, tjah, þá er bara að taka sig til og massa upp septembermánuð...
Kærar kveðjur, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, september 12, 2006
Flokkur: Lesandi mánaðarins
Komin í netsamband!
Í dag er mikill dýrðardagur bæði fyrir mig og ykkur. Já, ég lýsi því formlega yfir að hér við eldhúsborðið í Geldersedam 42 mun ég sitja sem fastast í nokkra daga, ef ekki vikur eða mánuði, til þess að bæta upp netleysi mitt síðustu þrjár vikurnar. Reyndar sé ég fram á að þurfa stundum að standa upp til að passa krakkana og þess á milli skella mér í sólbað, en annars ætla ég að sitja hér á mínum allra heilagasta rassi og gera fullt af skandölum á netinu.
Merkilegt samt hvað það er alltaf fátt í fréttum, eða með öðrum orðum, hvað ég nenni ekki að þylja upp hvað á daga mína hefur drifið undanfarið. Segjum bara sem svo að ég á ekki enn hjól, en er samt að fara að kíkja á eitt hvítt í dag með biluðu framljósi á spottprís. Íha! Kíkti einnig á flottan bílskúrsflóamarkað í síðustu viku. Þar kenndi ýmissa grasa, en vegna þess hve snobbuð ég er (ég held því miður að það sé kominn tími til að viðurkenna það) þá dettur mér ekki í hug að kaupa notað dót á flóamörkuðum. En vegna netleysis undanfarnar vikur var ég orðin hundleið á lögunum í mp3 spilaranum mínum og keypti þess vegna fjóra diska með hollenskum pöbbalögum á 5 evrur (450 íslenskar krónur), svona svo ég hefði eitthvað til að hlusta á. En nú er netið hins vegar komið aftur, svo ef einhvern langar að kaupa þessa hundleiðinlegu geisladiska mína á 8 evrur, þá er það guðvelkomið.
Og myndablogg? Hmm, kannski seinna þegar ég er búin að taka einhverjar myndir sem varið er í... sem sagt þegar ég er búin að eignast hjól.
Og svo um leið og ég er búin að kaupa mér íþróttatopp (sem virðist nú ekki vera á hverju strái í íþróttavöruverslununum hér), þá ætla ég að fara að grennslast fyrir um taekwondoiðkun hér á svæðinu. Félagslíf mitt er nefnilega með allra sorglegasta móti þessa dagana. Nei djók, hvað er ég að kvarta. Það er oft á tíðum alveg heilmikið stuð að spjalla við hollensku húsmæðurnar á leikvellinum, og veit ég núna alveg hellings slúður um hverja og eina... Hemm já, íþróttatoppur segið þið?
Hey, ég er komin með hollenskt símarnúmer. Ef einhvern langar til að hringja í mig/senda mér sms, þá er númerið: +31 625105990.
Og eitt enn. Ef þið vitið hvað ég ætla að gera eftir áramót þá megið þið láta mig vita med det samme, því ég hef nefnilega ekki hugmynd.
Kærar kveðjur, Anna Björk
Till Venla: Nej men hej mamma! Har du? Vilken affär? Nej vad fint. Men i alla fall, jag har fått internetconnection i min dator nu! Det har varit svårt inte att ha den, du vet hur mycket jag älsker internettet ;) Hur gik det med svenskan i skolen? Och mit telefonnummer er nu +31 625105990 :) Ha det så bra!
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, september 12, 2006
Flokkur: Holland
miðvikudagur, september 06, 2006
Smá samtíningur
Jaeja, kominn tími til ad láta heyra pínu í mér.
Í dag skín sólin og tad er eiginlega alveg ferlega heitt úti, eda a.m.k. í samanburdi vid alla rigninguna sem hefur verid undanfarid. Í fyrradag ákvad ég ad nota góda vedrid í eitthvad gáfulegt og lagdist út á risasvalirnar í herberginu mínu og fór í langt og gott sólbad á bikiníu einum fata í gódum félagsskap allra hollensku paddanna. Dásamlegt alveg hreint.
Ég er ekki enn búin ad kaupa mér hjól. Sem betur fer, segi ég eiginlega, tví hjólin sem tau hin eiga hér í Geldersedam 42 hafa verid ad hverfa eitt af odru (tjófnadur)... Og tar sem forstofan hérna er svo lítil, tá er ekki haegt ad geyma hjólin inni. En ég aetla samt ad kaupa mér hjól, annad er ekki haegt. En ég aetla bara ad kaupa mér ódýrt, notad og alveg forljótt hjól svo enginn vilji stela tví... og helst spreyja tad bleikt eda appelsínugult, tví tá er bókad mál ad enginn stelur tví! Eda a.m.k. eru tau hjól alveg látin í fridi eftir tví sem ég best fae séd.
Hvad fleira? Jújú, ég er vonandi loksins ad ná mér upp úr all heiftarlegu kvefi sem ég hef verid med í viku núna. Tetta er samt eitthvad furdulegt kvef, tví í stad tess ad fá óstodvandi hornos, tá hefur allt verid stíflad einhversstadar annarsstadar (ábyggilega í ennisholunum eda eitthvad, ég get svoleidis svarid tad!) sem veldur tví ad ég hef ekki getad andad med nefinu í heila viku! Sem er slaemt, tví tá er ég alltaf vid tad ad kafna tegar ég borda og bursta í mér tennurnar, garg!
Og tad er ekki enn búid ad tengja Geldersedam 42 vid internetid. Reyndar erum vid búin ad blanda naestum ollum nágronnum okkar í málid og eru teir allir af vilja gerdir, en tad er samt alltaf eitthvad vesen. Einn er ad nota internet fyrirtaekisis konunnar sinnar og getur tví ekki tengt neinn annan vid tad, annar, tjah, ég man ekki af hverju vid getum ekki tengst netinu hans og vid erum ad bída eftir tví ad sá tridji hringi eitthvert og komi svo í heimsókn til okkar og geti tengt okkur vid netid í svona trjár vikur. Nágranni númer eitt aetladi svo ad hringja eitthvert í dag og tékka á hvort ekki sé haegt ad setja upp ráter í húsinu okkar og borga bara fyrir 5 mánudi, en hér í Hollandi tarf alltaf ad borga fyrir netid í minnst eitt ár. Ekkert smá bras!
En ég er allavega búin ad kaupa mér trádlaust netkort sem mér sýnist aetla ad virka, svo núna býd ég bara eftir ad nágranni númer trjú komi faerandi hendi!
Já, og svo er tad alveg spurning hvort madur skelli sér ekki bara í taekwondo hérna í Den Bosch? Sá nefnilega auglýsingu frá einu félagi og ég aetla ad kynna mér tad mál adeins betur. Tví einhvern veginn verdur madur nú ad fara ad tví ad hitta fólk hérna, eller hur? Ég aetla hins vegar ad losa mig vid tetta ljóta ljóta kvef fyrst, tví ekki aetla ég ad maeta á aefingu og kafna naestum tví, tad er ekki mjog toff svona á fyrstu aefingu...
Hmm. Jú, ég fór í smá sundlaugargard á sunnudaginn, tad var alveg geggjad gaman! Svo aetla ég ad svipast um eftir venjulegri sundlaug, tad hlýtur ad vera ein slík einhversstadar í baenum. Úff, ég hef ekkert synt í sundlaug (bara í sjó og votnum) sídan heima á Íslandi! Ég er komin med alvarleg fráhvarfseinkenni.
En jaeja, best ad ég fari og leiti mér ad hárgreidslustofu! Tarf nefnilega alveg naudsynlega ad komast í litun og klippingu, ég lít út eins og ég veit ekki hvad... Ef enginn tími er laus í dag, tá aetla ég allavega ad panta mér tíma. Sídan tarf ég ad kaupa mér ýmislegt, eins og t.d. einhverja yfirhofn, en ég á enga slíka! Mamma bannadi mér nefnilega ad taka med mér úlpuna sem ég hef átt sídan ég var 12 ára, damn! Aetla ég tví ad fara og leita mér ad flottri kápu, hoho.
Segjum tetta gott í bili! Hafid tad gott elskurnar mínar, Anna Bjork
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, september 06, 2006
Flokkur: Holland