miðvikudagur, apríl 30, 2008

Hættu nú þessum látalátum

Nei hættu nú alveg! Hópþrýstingur af verstu gerð! Piff.

Áðan sat ég í mínum mestu makindum hérna í Vanlöse og var að horfa á Disney Channel og sauma út. Og þá hringir hún Hildur Eva og tilkynnir mér að ég og hún og Ágústa séum að fara á djammið. Á MIÐVIKUDEGI!!! Foj.

En þar sem ég er hlýðin stelpa og áhrifagjörn, þá samþykkti ég að lokum með semingi og miklum trega ásamt hausverk að kíkja kannski pínu.

Babb í bátnum: Allt draslið mitt er niðri í Kastrup, þar sem ætlunin var nú bara alls ekki að fara á djammið á næstu dögum! Mér til mikillar blessunar á ég þó eitt par af hælaháum skóm hérna liggjandi einhversstaðar, annar skórinn er allavega við lappirnar á mér og hinn er kannski undir rúmi? Engan hef ég hárblásarann og ég hef ekki farið í sturtu í þrjá daga, svo ég verð að skella mér í sturtu heima hjá Gústu beib, ekki í fyrsta skipti svo sem ;) Og djammföt hef ég engin, nema gallapils og já, engan efripart. Sjitt. Er ekki viss um að Peter yrði hrifinn færi ég berbrjósta út...

En ég ætla núna að drífa mig. Note to myself: Muna eftir að taka Razz-flöskuna hennar Hildar með sem hún á hérna hjá mér. Sjálf á ég næstum heila vodkaflösku heima hjá Ágústu.

Later! Bestu kveðjur, Anna Djammsen

laugardagur, apríl 26, 2008

Broskall

Mikid rosalega er vedrid dejligt! Ég sit hérna inni í sumarføtunum vid opnar svaladyr og er vægast sagt ad stikna. Spurning hvort madur verdi ekki smá sólbrúnn í leidinni?

Já sumarid er ad koma og tví ekki seinna vænna ad panta sér fyrstu utanlandsferd ársins, vúhúú! Júbb, vid Peter erum búin ad panta midana, og dagana 9.-12. maí munum vid heimsækja bestu borg í heimi, nefnilega GAUTABORG!!! Tangad hef ég ekki farid sídan ég var ad vinna tar sumarid 2006. Og vitid tid hvad er enntá betra? VID MUNUM BÚA Á HOTEL GOTHIA TOWERS, JÚHÚÚ!!! :D

Fyrir tá sem ekki vita, tá er tad einmitt akkúrat hótelid tar sem ég var ad vinna 2006, fjøgurra stjørnu háklassa hótel, tad er ekkert minna ;) Og mikid óskaplega verdur gott ad mega loksins vera gestur tar og fá best lyktandi sjampó í heimi (ég sniffadi sjampóid oft á dag tegar ég var tarna...) og mega kasta sér í rúmin og turfa ekki ad hafa pirra sig á tví hvad gestirnir nota mørg handklædi og ad teir turfi nú endilega ad nota kaffibollana líka...

Ég er eins og lítid barn á jólum. Jemundur minn. Vid fljúgum út á føstudagskvøldi (madur tarf náttúrulega ad mæta í vinnuna og svona fyrst) og fljúgum aftur heim á sunnudagskvøldi, svo vid náum tarna ágætis túr. Reyndar veit ég ekki alveg hvad verdur opid af verslunum, enda hvítasunna eda eitthvad álíka, en tad skiptir svo sem ekki mestu máli, mestu máli skiptir ad heimsækja aftur borgina mína og ekki finnst mér leidinlegt ad gista í turnunum mínum elsku elsku. Og nú skulum vid rifja upp nokkrar bloggfærslur.

22. febrúar 2006
"Já, þá er það komið á hreint! Ég er að fara til GAUTABORGAR í sumar að vinna við herbergisþrif á stærsta hótelinu á Norðurlöndunum! Hótelið heitir "Hotel Gothia Towers" (sjá mynd hér) og er alls 23 hæðir, eða 72 metrar á hæð. Í byggingunum eru m.a. 11 svítur, 704 herbergi og 46 ráðstefnusalir svo fátt eitt sé nefnt! Hótelið var byggt árið 2001 og er verið að vinna að því að stækka það upp í 1200 herbergi og verður það þá ekki aðeins stærsta hótelið á Norðurlöndunum heldur stærsta hótelið í allri Evrópu! Haha, ég er eiginlega svolítið fegin að það sé ekki búið að stækka það, þá væri ég að þrífa allan daginn! (O jæja, við skulum nú gera ráð fyrir að það verði einhverjir fleiri en ég ráðnir til ræstinga...)."

11. apríl 2006
"Stundum get ég verið alveg óskaplega forvitin. Eins og t.d. áðan þegar ég fékk lista með þeim Nordjobburum sem munu vera að vinna á sömu deild/hluta (avdelning) Hotel Gothia Towers og ég í sumar. Ég lagðist að sjálfsögðu í persónunjósnir med det samme og gúglaði öllu fólkinu upp. Komst ég að því að 18 Nordjobbarar af þessum 27 eru FINNAR!!! Já takk pent fyrir! Svo eru þarna 3 Svíar, 3 Íslendingar, 2 Danir og 1 Norðmaður. Af þessum rannsóknum mínum dreg ég eftirfarandi ályktun:AÐEINS ÞEIR SEM TALA SÆNSKU VORU RÁÐNIR!!! Jesúsminnallamalla, hjálpi mér allir heilagir! Ég held ég verði virkilega að fara að leggja mig fram við sænskusjálfsnámið, því líklegt er að vinnuveitendur mínir haldi að ég sé seig í sænskunni... Enda tók ég það fram á umsókninni minni að ég kynni alveg hreint sæmilegustu sænsku..."

11. júní 2006
"Annars hef ég ekkert yfir vinnunni að kvarta, annað en að ég verð svo rosalega þreytt í fótunum að ég er alveg ónýt eftir vinnudagana. Og samt á ég alveg geggjað góða skó. En fólk segir að þetta venjist fljótt, og eftir að ég er búin að venjast fótaverkjunum, þá fari ég að finna til í bakinu. Vá ég hlakka til."

14. júní 2006
"Annars var ég nú bara í vinnunni í allan dag. Ég fékk 17 herbergi. Hvert herbergi tekur hálftíma. Vinnudagurinn á að vera 8 klst. You do the math... ;) "

26. júní 2006
"Svo virdist vera sem adeins of margt fólk hafi verid rádid til vinnu á vinnustad mínum tetta sumarid. Satt best ad segja er svo margt fólk ad vinna tar ad tad er svolítid svona happa-glappa hvort madur fái ad vinna eda ekki tessa dagana. Ég er ein af teim heppnu: Ég var ad koma úr fjögurra daga fríi í gaer og fae ad vinna heila trjá daga ádur en ég fer í frí. Sumir Núrjobbarar voru ad koma úr fjögurra daga fríi, fengu ad vinna í dag og eru svo aftur komnir í fjögurra daga frí. Reyndar myndi ég aldrei í lífinu fara ad kvarta yfir of fáum vinnudögum, ónei! En ég gaeti hins vegar vel hugsad mér ad kvarta yfir peningaleysi... "

4. júlí 2006
"En hins vegar er staðreyndin sú að ég ætla annað hvort á ströndina á morgun ("ströndin" samanstendur af klöppum og engum sandi) eða í einhvern listigarð og liggja í sólinni allan daginn með Britney Spears í eyrunum og nesti í hönd. Og þar sem ég er með frekar viðkvæma húð, þá er ég nokkuð viss um að ég þoli ekki sólbað í marga daga í röð, og því ætla ég að halda mig að mestu leyti innandyra í dag.Og já, þið heyrðuð rétt. Britney Spears! En ég meina, halló! Ég hlusta/horfi á MTV allan daginn í vinnunni og er þetta sjálfkrafa afleiðing þess. Ég á t.d. ansi bágt með að grípa mér ekki klósettrúllu í hönd (hljóðneminn, þið skiljið) og dansa og syngja "Oops I did it again" eins hátt og ég get fyrir framan stóru speglana í herbergjunum. Mig grunar nefnilega að einhver gestanna myndi kvarta."

7. júlí 2006
"Og já, pff, ég er nú eiginlega orðin algjör sænskusnillingur! Þegar fólk er farið að skilja mig alveg fullkomlega í síma án þess að þurfa að segja "Hvad säger du?" svona sjö sinnum, þá tel ég það vera merki um stórkostlegar framfarir.Í dag skildi t.d. þvottamaðurinn á hótelinu þetta þegar ég hringdi í hann: "Heijj, der fínns ínga stúra handdukjar úbbe po voníng tolv í vest... taggj so míggje!" ("Där finns inga stora handdukar oppe på våning tolv i West... tack så mycket!"). Reyndar er ég ekki alveg klár á hvort maður segir "úbbe" eða "obbe", en mér finnst skemmtilegra að segja hið fyrrnefnda svo ég held bara áfram að segja "úbbe" þar til ég veit betur. En allavega, þvottamaðurinn kom eftir hálfa mínútu með vagn stútfullann af stúrum handdúkum, ú je!"

10. júlí 2006
"Ég hef ekki oft á ævinni brotið glas, en í gær tókst mér að brjóta tvö. Annað vægast sagt SMASSAÐIST á ganginum á fjórðu hæð í vinnunni (það var ekki gaman að ryksuga það upp, oj) og hitt braut ég hérna heima voða pent. Það var sem sagt tunnburstaglasið hennar Venlu sem brotnaði mjög fallega og fundum við alla bitana nema einn."

1. ágúst 2006
"Annars er fátt að frétta, fyrir utan að ég er orðin einbýlingur aftur. Venla fór aftur til Finnlands í morgun eins og plön gerðu ráð fyrir, enda byrjar skólinn hjá henni eftir tvær vikur. Reyndar skemmdi ég óvart hjá henni flotta planið sem hún ætlaði að hrinda í framkvæmd núna í morgun!
Já, sagan er sú að ég gleymdi símanum mínum óvart í vinnupilsinu mínu á Gothia Towers í gær og uppgötvaði ég það í gærkvöldi að ég væri símalaus og þar með vekjaraklukkulaus með öllu. Fól ég Venlu því það verk að vekja mig núna í morgun, fyrst klukkan sjö, síðan aftur klukkan tuttugu mínútur yfir sjö og í síðasta skiptið klukkan hálf átta, alveg eins og síminn minn er vanur að gera. Frá því er skemmst að segja að ég vaknaði alveg sjálf (eða við umganginn í Venlu) klukkan tíu mínútur í sjö og fór á fætur. Þá varð Venla ekkert smá vonsvikin, enda var hafði hún ætlað sér að öskra "HOUSEKEEPING!!!" af öllum lífs og sálarkröftum, svona í kveðjuskyni!"

3. ágúst 2006
"Vinnudagurinn í dag byrjaði ekkert spes. Ég var á tuttugustu hæð í West, sem sagt Sky herbergi með flóknum míníbar (tveir vodka, tvö whiskey, tvö vín í svörtum umbúðum, eitt rauðvín, eitt hvítvín, tvær kókakóla, einn appelsínu Schweppes, einn öðruvísi Schweppes, tveir bjórar, ein dós salthnetur, ein dós kasjúhnetur, ein dós nammi, eitt kolsýrt vatn, tvö lítil áfengisglös, tvö venjuleg glös og tvö rauðvínsglös), flóknu baðherbergisdóti (tvö sjampó, tvær hárnæringar, tvö bodylotion, tvö skópúss, tvær sturtuhúfur, tveir pakkar með eyrnapinnum og bómull, tvö saumasett og tvær sápur) og í hverju herbergi á að finna morgunsloppa og inniskó, flösku af "himnesku vatni" og tvö Toblerone."

20. ágúst 2006
"JESS, ég er búin með síðasta daginn í vinnunni!Ég ætlaði nú samt varla að komast í gegnum daginn. Sunnudagar eru alveg skelfilegir dagar, enda allir gestirnir að fara sem þýðir alþrif á öllum herbergjunum. Ó svei.Síðustu 5 herbergin voru sérlega erfið, því þá fann ég virkilega hvernig öll vinnuþreyta sumarsins flæddi yfir mig: Endalaus hlaup fram og aftur um hótelgangana, þungir vagnar, rúmfataskiptingar á fleiri hundruð rúmum, stigahlaup þegar báðar lyfturnar voru í notkun, löng ganga í matsalinn, að þurfa að tala 2-4 tungumál á dag, þungir handklæðabunkar, að þurfa að ryksuga undan rúmunum, að þurfa að færa til húsgögn, að þurfa að bograst yfir baðkörunum, að þurfa að flýta sér óendanlega mikið, að leita að týndum hlutum s.s. baðsloppum og auka kaffibollum, að þurfa að eyða síðustu orkudropunum í að fylla á vagninn fyrir næsta dag... [...]
Jájá. En þetta hófst nú allt saman að lokum og ég táraðist næstum þegar ég þurfti að skila öllum mínum skrilljón lyklum. Ætlaði svo enganveginn að komast út úr hótelinu, enda lyklalaus með öllu, en tókst það þó með því að taka einhverja lyftu eitthvert og ganga síðan út um aðalinnganginn... Mér varð þá hugsað til þess að þetta var í bara annað skiptið sem ég kom þangað, en þangað hafði ég einmitt komið fyrsta daginn minn, allslaus og vitlaus með öllu og kunni ekki stakt orð í sænskri tungu. Í þetta skiptið gekk ég út, með tvö Toblerone að skilnaðargjöf, pró í hótelberbergjaþrifum og blaðrandi sænsku hægri vinstri :)"


Upprifjun lokid. Jæja, best ad fara ad gera eitthvad, er buin ad sitja ansi mikid a minum allra heilagasta rassi í dag, enda var djammid í gær ansi villt og svo var rise and shine eldsnemma í morgun. Púff.

Vid heyrumst ástarpungarnir mínir! Bestu kvedjur, Anna Dammsuga

föstudagur, apríl 25, 2008

Útsí útsí

JÁ JÁ JÁ!!! HOV HOV HOV!!!

Já, gott fólk, í kveld verður góðvinur minn hann Lauritz Betjent heimsóttur!!! Við Hildur mín kæra kæra ætlum að taka seinasta ekta Lauritz-djamm vetrarins, og svo verður víst pása þangað til næsta haust því hún Hildur ætlar að yfirgefa mig í sumar :( Eeen þá er bara um að gera að gera þetta almennilega: Drykkja heima í Vanlöse, popp og flödeboller, Razz og vodki. Taka svo góðan tíma í græjerí og hlaupa svo á harðaspretti út á lestarstöð klukkan 00:40 til þess að ná seinustu lest í bæinn. Svo þurfa náttúrulega sumir að pissa á bakvið stytturnar við ónefnda fræga byggingu hér í bæ (hún stendur við Kóngsins Nýjatorg, ég segi ekki meir...) og svo verður farið inn á klósett á Lauritz að skipta um skófatnað, svo Hot'n'Sweet og Razz og svo eru það bara gluggakisturnar fram á rauðanótt!!! Og svo þarf náttúrulega að öskra JÁ JÁ JÁ og HOV HOV HOV á svona fjögurra mínútna fresti, en það er víst einkahúmor sem ég nenni ekki að útskýra hér.

Já, spenningurinn er gífurlegur og hér getið þið, kæru lesendur, komið ykkur í gírinn, því þetta er brot af því besta á Lauritz. Hækkið nú allduglega í græjunum og sveiflið ykkir smá fyrir framan spegilinn, eins og ég er búin að gera seinasta klukkutímann eða svo. Værsgo:

- Þetta lag þýðir aðeins eitt: GLUGGAKISTAN Í SNARHASTI OG EKKI SEINNA EN NÚNA: Love don't me go

- Það er stuð að dansa við þetta lag: Put your hands up for Detroit

- Þetta lag er ævafornt, allavega var það það heitasta þegar minn elskulegi var hvað virkastur á IN þarna 18 ára í den... mér reiknast til að það séu 6-7 ár síðan og já ókei, kannski ekki alveg ævafornt... en allavega frekar gamalt sem verður alltaf vinsælt aftur og aftur ;) L'amour Toujours

- Og svo er þetta lag líka algjört must: Living on video

- Þetta er líka fínasta lag, gott að fá sér smá sæti ellegar ná sér í annan drykk... Kernkraft 400

Jæja, best að skjótast út í búð og kaupa flödeboller, við heyrumst hress og kát ;) Bestu kveðjur, Anna Hov

fimmtudagur, apríl 17, 2008

Helvitis skyr!

Godan daginn! Juju, klukkan er 08:24 og eg er hress og komin a fætur. Her var sko rise (and shine...) fyrst klukkan 5:15 tegar klukkan hja kallinum hringdi og svo aftur klukkan 07:00 tegar klukkan min hringdi og svo aftur klukkan 07:08 tegar Hildur Eva hringdi i mig hress ad vanda og svo klukkan 07:15 tegar klukkan min hringdi aftur og eg akvad ad sofa ekki lengur tvi eg atti ymis verk fyrir hondum.

I dag er fimmtudagur, sem sagt fridagur tvi eg er i frii alla fimmtudaga og a morgun er lika fridagur, tvi ta er Stori bænadagurinn, vuhuu! Ta a madur vist ad borda serstakt braud (sem eg smakkadi einmitt a Stora bænadeginum her i DK arid 2003...), og eg komst ad tvi i gær ad tad braud heitir Hveder. Tad kom sem sagt einn kunninn til min og spurdi hvort vid ættum nokkud Viðar, og eg bara ha? Sem betur fer var tetta einn fastakunni sem er alltaf ad gefa mer uppskriftir og godar hugmyndir i matargerd (eg hika ekki vid ad spyrja kunnana tegar eg sit a kassanum hvad madur noti hitt og tetta i, t.d. kann eg nuna ad bua til supu med heilum beikonklumpum i (ætla einmitt ad profa hana vid fyrsta tækifæri, tetta er svona tomatsupa)) svo eg gerdi mig ekki ad algjoru fifli tegar eg spurdi hvad i oskopunum Viðar væri. Ju, i ljos kom ad tetta er bænabraudid og tad heitir vist hveder eda hvedeknopper. Ta vitid tid tad ;)

I næstu viku ætla eg svo ad baka lagkoku (lagkage). Tad er alveg hrædilegt ad sitja a kassanum og sja alltaf alla vera ad kaupa lagkokubotna og vanillulagkokukrem og hafa aldrei sjalf smakkad svona ekta danska lagkoku. Svo ad i gær eftir vinnu akvad eg nu ad versla sma i Nettobudinni minni, svona fyrst vid erum med hjartalaga lagkokubotna til solu i tessari viku. En ta var nu stora spurningin, hvernig bakar madur eiginlega lagkoku? (Eg helt ad tad væri ekkert mal ad baka svoleidis, bara botnar og vanillukrem og hafdi tess vegna ekki spurt kunnana. En eg sa fljotlega eftir ad hafa lesid a vanillukremspakkann ad kremid væri til tess ad setja ofan a kokuna en ekki a milli botnanna, og ta voru god rad dyr). En malid leystist farsællega, tvi tegar eg stod og deildi ahyggjum minum med einum vinnufelaganum (sem skellihlo tvi hann gat ekki imyndad ser ad tad væri til einhver sem aldrei hefdi smakkad lagkoku) og kvartadi yfir tvi ad vid ættum ekki jardarberjasaft i jardarberjakremid sem stod i uppskrift utan a lagkokubotnunum, ta vatt einn kunni ser ad mer og romsadi ut ur ser miklu snjallari leid til tess ad utbua lagkoku med jardarberjakremi! Hvar væri eg stodd an kunnanna minna...

Nyjustu frettirnar eru svo tær ad hann Peter minn er farinn ad tala islensku. Hann sagdi einmitt fyrstu tveggja orda setninguna sina i gær og eg var jafn stolt og modir barns sem tekur sin fyrstu skref :D Vid satum sem sagt og vorum ad spila olsen olsen (vid erum buin ad troa bradskemmtilegan olsen olsen med tvi ad blanda saman ollum reglunum ur islenska olsen og danska olsen og sitjum tvi oft og spilum) og eg, sem oftar, sat og vann og vann og vann, enda loksins buin ad finna einn sem er oheppnari i spilum en eg og tad finnst mer ekki leidinlegt. Og Peter sat natturulega og blotadi og bolvadi i grid og erg a donsku (For satan da! For helvede! Nu må du kraftedme stoppe!) og eg akvad ad nota tækifærid og kenna honum ad blota a islensku og segja "Helvitis". Og svo satum vid og spiludum meira og sigurgongu minni var hvergi nærri lokid og ta gellur allt i einu i minum "Helvitis skiiir!!!". Og nu hefjast allar islenskar setningar hja honum a helvitis, hann tykist m.a. vera buinn ad troa tad ad tegar hann segir "Helvitis stor bjor" og bankar i bordid, ta eigi eg ad hlaupa fram i eldhus og na i bjor handa honum. Eg held nu sidur! Eg er hins vegar buin ad banna honum ad ganga um gotur Islands i sumar og segja "Helvitis bobbingar"...

Jæja, ta er loksins buid ad opna Islenska sendiradid og eg a hringja aftur eftir korter. Vegabrefid mitt er nefnilega utrunnid og kemst eg tvi hvorki lond ne strond, sem getur nu vart talist gafulegt fyrir ferdalog sumarsins.

En nu ætla eg ad fara og sauma ut, hringja svo aftur i sendiradid og bida eftir ad Hildur min kæra risi ur rekkju (i tridja skipti, tvi hun hringdi i mig klukkan 07:08 og eg hringdi i hana klukkan 08:06 og nu bid eg eftir ad hun vakni og hringi i mig), vid eigum nefnilega hitting i dag.

Eigid godan dag rjomabollurnar minar! Bestu kvedjur, Anna lagkaka.

mánudagur, apríl 14, 2008

Aber ja

Og áfram líður tíminn. Það er tekið að vora hér í kóngins Köbenhavn, sláttur hófst í seinustu viku og graslyktin fyllir vitin, allavega hérna niðri í Kastrup því það eru ekkert nema stór tún allt í kring (nei, ég bý ekki út í sveit).

Ég hef svo sem engar fréttir handa ykkur, en það helsta sem búið er að gerast í mínu lífi er að:
- ég varð veik um daginn (fékk Gullfoss og Geysi, vúhú) og var tæpa viku að ná mér eftir þau ósköp.
- ég fór út að borða á fondú-stað ásamt fullt af vinapörum Peters (guð hvað maður er fullorðinn), og eftir það var staðurinn Den glade Gris uppgötvaður!
- ég er búin að vera að vinna alveg í lágmarki undanfarið, fyrst voru náttúrulega páskarnir og svo varð ég veik og svo er búið að raða vöktunum mínum upp á nýtt (og reyndar bæta við nokkrum tímum) á þann hátt að mér finnst ég alltaf vera í fríi og svo núna á föstudaginn er Stóri bænadagurinn, sem sagt frí ;) Sem að er nú aldeilis ágætt.
- ég er himinlifandi yfir að vera búin að fá þvottavél hingað á heimilið, því það er leiðinlegt að nota þvottakjallara og þvottakarfan höndlar ekki meiri þvott. Ástandið er meira að segja svo slæmt, að um daginn þegar Peter ákvað að skella í nokkrar vélar niðri í kjallara, þá átti hann allt í einu fullt af fötum daginn eftir sem ég hafði aldrei séð áður! Jú, hann hafði nú bara ákveðið að grafa neðst í þvottakörfuna svona til tilbreytingar...
- ég fór í Brunch með Hildi, Café Stella klikkar ekki :)
- ég fór í all laglega ferð í Fields með Hildi Evu, þar sem ég náði m.a. annars að fjárfesta í skóm, sokkabuxum, leggings, 9 pörum af sokkum, 11 brókum og eyrnalokkum.
- ég sendi kallinn í fótbolta/bjórdrykkjuferð til Þýskalands eina helgina og notaði tækifærið og gerði vorhreingerningu hér á bæ. Bauð svo Hildi og Ágústu í heimsókn eitt kvöldið og skellti í muffins (úr pakka), kryddköku (úr pakka) og pönnukökur (ekki úr pakka!) og bauð einnig upp á hvítvín (sem stóð inni í ísskáp og starði á okkur, tek það fram að ég átti ekkert í víninu...) og bjór og fleira. Svo var skundað í bæinn á Grísinn glaða.

Og þar hafið þið það!

En núna verð ég að hætta, ætla að sauma pínulítið út áður en ég geri mig klára fyrir vinnuna.

Adiós! Anna bökunarmeistari