þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Á bókasafninu

Jaeja, núna sit ég á bókasafninu góda. Netid er ekki enn komid í Geldersedam 42 og ég er tadan af sídur búin ad athuga hvort tad fáist netkort í tolvuna mína. Ég er heldur ekki búin ad kaupa mér hjól og ég er heldur ekki búin ad senda póstkort heim. Fyrir ykkur sem ekki hafid tekid eftir tví, tá gerast hlutirnir ekkert alltaf hratt í kringum mig...

En annars hef ég tad óskop gott hér í 's-Hertogenbosch. Ég er m.a. búin ad eignast nýjan kaerasta , en tessi gutti tekur heilan vegg í herberginu mínu.

Setning dagsins: Ik praat niet Dutch.

En núna aetla ég ad fara og ráfa pínu um! Ástarkvedjur, Anna Bjork

föstudagur, ágúst 25, 2006

Komin til Hollands!

Jaeja, er komin til Hollands. Aetladi ad skella inn tessari svakalegu faerslu í gegnum mp3 spilarann minn (sem haegt er ad nota sem usb) en nei, tá tarf tad ad vera alvoru usb-lykill...

En já. Stadan er sem sagt svo ad eftir nokkra daga fáum vid trádlaust samband í íbúdina (fáum ad nota net nágrannans), en fyrir tá sem ekki vita, tá haetti innbyggda trádlausa netkortid í tolvunni minni ad virka fyrir svona tveimur og hálfu ári... En tad er nú taekniold svo ég trúi ekki odru en ad haegt sé ad kaupa einhver utanáliggjandi netkort sem passa í raufirnar á tolvunni minni...

Sem sagt, ég komst á leidarenda (skelli inn bloggfaerslu um tessa svadalegu ferd sídar) og allt er í ljómandi gódu standi hér :) Aetla svo ad kaupa mér hjól vid fyrsta taekifaeri (helst strax á morgun) og fá flottan hjólarass svona fyrir jólin...

Kaerar kvedjur, Anna í Hollandi!

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Ó svei

Klukkan er rétt tæplega tvö að nóttu til og mér er eigi svefns vant. Hefur það hugsanlega eitthvað með það að gera, að ég legg af stað til Hollands eftir svona 29 tíma.

Já, ég hlakka svo til að ég get ekki legið kyrr! Hélt að ég væri orðin alveg ofboðslega þreytt eftir lítinn svefn undanfarið (sem hefur einmitt orsakast af tilhlökkun) og fór því í bjartsýniskasti í rúmið um tólfleytið. Æ-æ. Og ég sem ætlaði svona eiginlega að vakna aftur klukkan fjögur til að gera allt sem ég þarf að gera. Æ-æ.

En eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði! Með öðrum orðum, nú get ég nýtt nóttina í eitthvað skynsamlegt, á borð við að læra meiri hollensku (ég er orðin algjör snillingur í því hrognamáli skal ég ykkur segja!) og kíkja einu sinni enn á flugmiðann minn, sem er ekki til á pappírsformi heldur bara sem viðhengi í tölvupóstinum mínum, og athuga hvort ég sé ekki alveg örugglega að fara út á fimmtudaginn en ekki í dag (miðvikudag)... Það væri nú ljóta klúðrið að ruglast á dögum!

Og áhyggjur líðandi stundar eru eftirfarandi:

- Að mér takist að missa af lestinni til Kaupmannahafnar. Veit nú reyndar ekki alveg hvernig það á að vera hægt...
- Að ég komi ekki öllu draslinu mínu ofan í ferðatöskurnar mínar. Þetta lítur vel út eins og er, en þó er alltaf eitthvað sem maður gleymdi að gera ráð fyrir og þá þarf að taka allt upp úr aftur og raða upp á nýtt... ojoj.
- Að ég verði eins og algjör asni með risastóru ferðatöskurnar mínar tvær (sem munu samtals vega um, tjah, meira en tuttugu kíló...), fartölvutöskuna, handfarangurstöskuna mína (sem er nú ekkert af minnstu gerðinni), myndavélatöskuna mína og stóra pokann með línuskautunum mínum í. Jii, hvar er hann Ingi minn núna?
- Að mér verði ekki hleypt um borð í vélina því ég á ekki miðann minn á pappírsformi, auk þess sem yfirleitt er gert ráð fyrir hjá SAS að sá sem borgi miðann ferðist með honum... Hmm, eitthvað þurfti ég að komast í kreditkortið hans pabba til að borga miðann (ég, eða réttara sagt hann, fær það samt allt endurgreitt seinna), vúps! Reyndar á þetta að reddast ef ég hef vegabréfið mitt (sem er by the way hvar?) og önnur skilríki með, en það er engu að treysta nú til dags!
- Að ég geti ekki borgað yfirvigtina mína því íslenska debetkortið mitt virki ekki á Kastrup. (Það á nú samt ekki að gerast, en hvað veit maður?). Hmm, hvort á ég að skilja stóru ferðatöskuna með fötunum í eða stóru ferðatöskuna með öllu snyrtidraslinu mínu í eftir?
- Að einhver steli draslinu mínu því ég verði svo þreytt vegna svefnleysis að ég taki ekki eftir þótt ein, tvær töskur hverfi...

Já, áhyggjum lokið. Því einhvern veginn held ég að þegar ég verð komin til Hollands, þá sé þetta leikur einn. Lestarmiðinn minn þar er nefnilega opinn, sem þýðir að ég hef tíma alveg til 11. október að koma mér um borð í lestina... hah! Reyndar gæti ég hugsanlega óvart farið úr á vitlausum stað, en það ætti nú samt ekki að gerast, því ég veit að lestarferðin tekur akkúrat einn klukkutíma og tvær mínútur... verð sem sagt með skeiðklukkuna tilbúna!

Nei, nú verð ég að fara að sofa! Ætla nefnilega að vakna klukkan fjögur sama hvað tautar og raular, læra smá meiri hollensku áður en ég skila disknum á bókasafnið, fara í sturtu, fara á pósthúsið, kaupa mér nesti fyrir ferðalagið, þvo þvott, klára að pakka, þrífa íbúðina, hitta Ylvu (sem kemur í bæinn spes á morgun til að hitta mig! Við vorum reyndar búnar að kveðjast og svona, en það er nú eiginlega alveg ómögulegt að hittast ekkert fyrr en ég veit ekki hvenær), þrífa meira og þrífa meira, blogga smá, taka óvart kæruleysiskast (ég get ekkert að því gert, það gerist bara), verða alveg ofboðslega stressuð því ég á enn eftir að þrífa svo mikið, hitta Ragnar (eiganda íbúðarinnar) sem ætlar að kíkja á íbúðina og athuga hvort hún sé nokkuð alvarlega skemmd (held að allt sé í heilu lagi, fyrir utan að ég held að eitt blómið sé dáið og ég braut einu sinni eitt glas...), blogga meira, fara að sofa.

Jæja, góða nótt! Ætla að skella Indjánadisknum mínum ferðageislaspilarann og hugsa um árnið (ár-nið, sem sagt nið í á) og sexí Indjána... Kærar kveðjur, Anna Björk

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Útskýring

Ég fékk komment á síðustu færslu þar sem stóð: "Anna að nenna ekki einhverju? Klípið mig, ég hlýt að vera sofandi :o "

Nei, sko, þið skiljið ekki. Þetta er í genunum og ég get ekkert að þessu gert!

Já, móðir mín er nú alveg hörkudugleg kona, en þegar það kemur að því að pakka niður í ferðatöskur, tjah, þá á kæruleysið það til að ná yfirhöndinni.

En þetta reddast alltaf, sjáið til! Oftar en ekki hefur heyrst í okkur mömmu daginn fyrir ferðalög:

"Nei, eru að koma gestir? En gaman! Eigum við ekki að baka vöfflur og pakka svo bara í kvöld?"

"Jæja, núna er klukkan orðin 22... eigum við ekki bara að klára þetta í fyrramálið?"

Og fleira í þeim dúrnum. Þó verður að viðurkennast að mamma er aðeins duglegri í niðurpökkuninni en ég, enda eldri en ég, og kann skipulagningu þar af leiðandi aðeins betur. Ég stend yfirleitt eins og hauslaus hæna og veit ekkert hvar ég á að byrja.

Ég held samt að mamma kunni alveg að pakka upp úr töskum. Það kann ég ekki. Hell no!

Ég man eftir því í fyrrasumar, þegar skólanum slúttaði um miðjan maí, að ég tók ekki upp úr töskunum heima í Mývatnssveit fyrr 27. júlí, en þá bara vegna þess að ég átti von á gestum á afmælinu mínu þann 29. júlí... Dugleg?

Svo þannig er staðan í dag. Ég nenni þessu ofureinfaldlega ekki. EN í dag er næstsíðasti dagurinn minn hérna og ég á eftir að þvo þvott og pakka helling og þrífa alla íbúðina, svo ég held ég reyni nú að taka daginn með trompi. Já, I´m a strong, powerful woman og ætti nú að geta það, held ég?

Kærar tiltektarkveðjur, Anna Björk

mánudagur, ágúst 21, 2006

Niðurpökkun!!!

Í dag þarf ég að hefja niðurpökkun og þrif af mikilli alvöru, ó svei.

En ég er samt alveg byrjuð, er búin að pakka niður einhverjum fötum og búin að þrífa ofan af eldhússkápunum... Dugleg!

Æi mamma, nennirðu ekki að koma ef ég borga flugið? Ég nenni þessu ekki!!!

Og fyrir þá sem eru búnir að gleyma því hvenær ég fer út (fæ þá spurningu reglulega), þá fer ég út á fimmtudaginn. Á lest til Kaupmannahafnar klukkan 7:20-11:37, flug til Amsterdam frá 14:55-16:20 og svo lestarferð til Den Bosch þegar mér sýnist svo, en ég giska á að það verði frá 17:13-18:15. Annars fer lestin á hálftímafresti svo það er ekki svo nauið.

Svo fyrir þá sem vilja hugsa til mín, munið bara að ég er tveimur tímum á undan ;)

Jæja, ég má ekki vera að þessu. Mamma, komdu fljótt!

Kærar kveðjur, Anna Björk

sunnudagur, ágúst 20, 2006

JESS JESS JESS!!!

JESS, ég er búin með síðasta daginn í vinnunni!

Ég ætlaði nú samt varla að komast í gegnum daginn. Sunnudagar eru alveg skelfilegir dagar, enda allir gestirnir að fara sem þýðir alþrif á öllum herbergjunum. Ó svei.

Síðustu 5 herbergin voru sérlega erfið, því þá fann ég virkilega hvernig öll vinnuþreyta sumarsins flæddi yfir mig: Endalaus hlaup fram og aftur um hótelgangana, þungir vagnar, rúmfataskiptingar á fleiri hundruð rúmum, stigahlaup þegar báðar lyfturnar voru í notkun, löng ganga í matsalinn, að þurfa að tala 2-4 tungumál á dag, þungir handklæðabunkar, að þurfa að ryksuga undan rúmunum, að þurfa að færa til húsgögn, að þurfa að bograst yfir baðkörunum, að þurfa að flýta sér óendanlega mikið, að leita að týndum hlutum s.s. baðsloppum og auka kaffibollum, að þurfa að eyða síðustu orkudropunum í að fylla á vagninn fyrir næsta dag...

Já, ég er alveg búin á því. Hef samt ekki fundið fyrir þessari þreytu fyrr en bara núna í dag, enda hefði ég ekki komist í gegnum sumarið hefði ég leyft mér að vorkenna sjálfri mér. Og margir á hótelinu hafa unnið við hótelherbergjaþrif í fleiri fleiri ár, hugsið ykkur!

En um Hotel Gothia Towers hef ég ekkert annað en gott að segja, öll vinnuaðstaða er til fyrirmyndar og yfirmennirnir síkátir, maturinn vandaður (bara verst hvað ég er matvönd) og andrúmsloftið létt og skemmtilegt. Þannig að ef fólk hefur áhuga á að hótelherbergjaþrifum, þá mæli ég með Turnunum.

Eins er ýmislegt sem hægt er að hlægja að, a.m.k. svona eftir á.

Stresstakkinn: Í lyftunum er takki, sem á að loka lyftudyrunum ef maður ýtir á hann. Það vita allir ósköp vel að þessi takki virkar ekki, en ef fólk er stressað, þá hann óspart notaður. Lyftudyrnar hlusta hins vegar ekki á skipanir af nokkru tagi og lokast þegar þeim sjálfum sýnist. Flottur takki!

Klósettdansinn hennar Hönnu: Við Nordjobbaranir vorum einu sinni að búa til dans með þrífingarhreyfingunum okkar. Hanna ákvað að búa til spor við klósettþrifin, en þau eru svona: Hægri hönd lyft upp í naflahæð og snúið í litla hringi (lárétt) á góðum hraða. Colgate-bros á meðan. Þetta dansspor var óspart notuð í sumar, þrátt fyrir að ég leggi ekki í vana minn að þrífa klósettin lárétt...

Óverdós á MTV: Það voru oft fjörugar umræður í hádeginu um myndböndin á MTV. Sérstaklega gerðum við mikið grín að Paris Hilton. Flott lag, en af hverju getur manneskjan ekki staðið kyrr?

Klaufaskapur: Vitlausubeinin voru alltaf á vitlausum stað þetta sumarið. Oftar en ekki kom fólk farlama niður í hádegismat, því það hafði rekið vitlausabeinið allhressilega í rúmstokk... Ég var líka flott á því einn daginn þegar ég var að flýta mér extra mikið. Jú, sjáið til, við vorum í stuttermaskyrtum í vinnunni. Ég var að strunsa út úr einu herberginu til að fara með glas fullt af einhverjum vökva fram í þrífingarvagninn, og vildi ekki betur til en svo að ég kræki hægri skyrtuerminni í hurðarhúninn á herberginu, hrasaði og ALLT innihald glassins sullaðist yfir skyrtuna mína... Einkar ánægjulegt!

Anna Ástralíubúi: Það ganga ennþá sögur þess efnis að ég sé frá Ástralíu... mér hreinlega tókst ekki að kveða þann orðróm niður, sama hvað ég reyndi!

Að ganga inn á nakið fólk: Sem betur fer gekk ég aldrei inn á fólk sem var alveg kviknakið, en ýmsir aðrir lentu þó í því. Fyndnasta innágangan mín var þó vafalaust þegar ég hafði bankað allhressilega á dyrnar á einu herberginu, því ég þóttist vita að það væri maður þar inni og vildi vita hvenær ég gæti komið og þrifið. Enginn kom til dyra og gekk ég því inn. Alltaf þegar ég kom inn í herbergi var mitt fyrsta verk að opna baðherbergisdyrnar, og rykti ég því allduglega í dyrnar og opnaði þær með látum (var eitthvað að flýta mér). Stendur þá ekki maðurinn þar inni og er að raka sig í rólegheitunum, vúps! Ég, algjörlega óviðbúin, gargaði upp fyrir mig: "URSÄKTA, JAG KOMMER TILLBAKA SENARE!!!" þrátt fyrir að vita mætavel að maðurinn var enskur og hljóp út. Ætlaði svo varla að þora að þrífa herbergið hans þegar hann loksins fór út úr því...

Jájá. En þetta hófst nú allt saman að lokum og ég táraðist næstum þegar ég þurfti að skila öllum mínum skrilljón lyklum. Ætlaði svo enganveginn að komast út úr hótelinu, enda lyklalaus með öllu, en tókst það þó með því að taka einhverja lyftu eitthvert og ganga síðan út um aðalinnganginn... Mér varð þá hugsað til þess að þetta var í bara annað skiptið sem ég kom þangað, en þangað hafði ég einmitt komið fyrsta daginn minn, allslaus og vitlaus með öllu og kunni ekki stakt orð í sænskri tungu. Í þetta skiptið gekk ég út, með tvö Toblerone að skilnaðargjöf, pró í hótelberbergjaþrifum og blaðrandi sænsku hægri vinstri :)

Þetta var sem sagt fín sumarvinna. En við skulum samt hafa það á hreinu að ég ætla að vinna mitt framtíðarstarf á skrifstofu. Ég nenni ekki svona púli ;)

Jæja, best að fara og læra hollensku! Það er ekki seinna vænna...

Ástarkveðjur älsklingarnir mínir :) Og ég þakka innlitið, það er gaman að sjá á fína fína teljaranum mínum hversu margir kíkja hingað :) Nú, og ef tölurnar á teljaranum skírast af því að það er alltaf sama fólkið sem kíkir hingað mörgum sinnum á dag, þá þakka ég kærlega fyrir forvitnina og hvet ykkur til að halda áfram uppteknum hætti :D Puss och kram, Anna Björk

laugardagur, ágúst 19, 2006

Oslo baby!

Eins og dyggir aðdáendur vita, þá fór ég til Óslóar í gær.

Í samanburði við hraðann og brjálæðið Kaupmannahöfn, þá er Gautaborg sveitó. Í samanburði við Gautaborg, þá er Ósló lummó.

Neinei, ekkert neikvætt lummó sko :) Bara svona sætt lummó.

Í Ósló búa um 520.000 manns sem er væri nú alveg feikinóg á íslenskum mælikvarða, en á öllum öðrum mælikvörðum, þá jaðrar það við að vera ekki neitt. Sem sást glögglega í gær, en í Ósló ganga allir hægt og tala lágt. Sem sagt alveg afskaplega hæg stemning.

Já, mér tókst að komast slysalaust til Noregs. Eftir að hafa snúist í marga hringi í Sentralstasjóninu í Ósló, þá tókst mér að finna hraðbanka svo ég gat farið og keypt mér samloku, til þess að fá smá klink til að geta fengið mér farangursbox fyrir teppið mitt og koddann. Fór ekki betur en svo að ég læsti samlokuna mína inni í boxinu. Jájá.

Svo þurfti ég að finna einhverja leið út úr Sentralstasjóninu, en það var nú ekkert auðvelt. En það hófst allt saman. Þegar út úr byggingunni var komið, þá var ég verri en hauslaus hæna, enda hafði ég aldrei á ævinni séð götukort af Ósló og hafði þess vegna ekki Guðmund um hvar í heiminum ég væri eiginlega stödd. En ratvísi mín (hehemm) kom mér þó til hjálpar og ég fann verslunarmiðstöð þar sem ég fann götukort. Jess.

Engin plön hafði ég um hvernig ég ætlaði að eyða deginum, enda ekki manneskja sem nennir að þræða söfn í marga klukkutíma, svo ég fór og rambaði óvart á stærstu verslunargötu Óslóar (eða ég held það), sem var hreint ekki svo risastór, ef miðað er við Strikið í Kaupmannahöfn og Kungsportsavenyen í Gautaborg. Þar spásseraði ég um í góðu gamni og fór svo og fann mér einhvern garð sem heitir bæði Slottsparken og Dronningsparken, lagðist óvart undir tré og sofnaði í 45 mínútur, enda þreytt með eindæmum.

Þegar ég rumskaði aftur nuddaði ég stírurnar úr augunum og hélt sem leið lá yfir í annan garð sem heitir Frognerparken. Það er listigarður af einhverju tagi, þar sem þemað er höggmyndir af nöktu fólki. Íha!

Restin af deginum fór svo í að dandalast eitthvað og taka myndir. Ég hitti m.a. Englending sem spurði hvaðan ég væri og ég svaraði að bragði: "Sweden, and you?". Fattaði svo hvað ég hafði sagt og leiðrétti mig. Vúpsí!

Þegar ég fór og leitaði að rútuSentralstasjóninu aftur, þá ætlaði ég aldrei að finna það. Ég gekk nefnilega fyrst inn á lestarSentralstasjónið, sem er nú ekkert lítið sko! Það er nefnilega alveg heil verslunarmiðstöð inni í byggingunni. Svo ég fór út úr þeirri byggingu og gekk inn í eitthvað annað sem ég hélt að væri rétta byggingin. En nei, var það þá ekki verslunarmiðstöð á 5 hæðum! Klukkan var níu og allr búðirnar ennþá galopnar, takk fyrir pent! En ég mátti nú ekki vera að því að kíkja í búðirnar (peningarnir búnir, þið skiljið) svo ég fór og fann loksins réttu bygginguna. Beið þar svo í einn og hálfan tíma og var komin heim klukkan þrjú í nótt. Jess.

Ég get hins vegar ekki með góðu móti gert greinarmun á norsku og sænsku. Ég hef lent í því áður hér í Svíþjóð í vinnunni að tala sænsku við Norsarana eins og ekkert sé, enda hef ég haldið að þeir væru Svíar. Ég heyri heldur ekki þegar það er töluð norska í sjónvarpinu og undra mig alltaf á því að það skuli vera texti á skjánum! Og í gær heyrði ég engan mun. Eftir að ég fattaði að maður pratar ekki norsku heldur snakkar hana, þá gat ég talað við hvern sem er. Og tölurnar eru meira að segja eins og alles.

Hins vegar verð ég að segja, að mér finnst skemmtilegra að fara í búðir í Gautaborg. Þar er nefnilega sagt "Hej!!!" við þið eins og þú sért aldargamall vinur búðarstarfsfólksins. Í Ósló er ekki sagt "Hej" nema í svona 1/5 tilvika og þá á svo áhugalausan hátt að þú heyrir það varla.

Og ég myndi ekki mæla með því að fólk fari í verslunarferðir til Óslóar ef það langar í flott tískuföt. Tískan í Ósló er nefnilega, tjah, ekki jafn flott og í Svíþjóð skulum við segja... Hún er eiginlega frekar lummó, ef ég á að segja alveg eins og er. Og meira að segja í búðum sem eru GEGGJAÐ flottar í Gautaborg, s.s. BikBok, HM, VeraModa og fleiri, þá eru þær eiginlega frekar hallærislegar í Ósló. Bara só sorrí. Og fötin er MARGFALT dýrari í Ósló!

Annars er Ósló alveg geggjuð borg. Reyndar frekar furðulega skipulögð þar sem hvergi finnst bein gata í allri borginni, en hún er mjög falleg, kyrrlát, afslappandi og sveitaleg.

Og þá er komið að myndunum:


Þessi mynd er nú reyndar tekin í Svíþjóð, út um gluggann í rútunni. Þetta er alveg týpískt sænskt landslag, vatn og tré og smá hólar, ekkert smá fallegt!

Dómkirkjan í Ósló

Einhver bygging við verslunargötuna, það voru búðir og kaffihús á neðstu hæðinni

Séð yfir verslunargötuna

Ég í Ósló - augnblýanturinn hafði víst eitthvað farið úr skorðum í rútunni...

Stortinget

Studenterlunden

Ég í Studenterlunden

Universitetet

Blómlegt og fallegt

Flottur gosbrunnur

Höllin í Slottsparken/Dronningsparken

Þarna lagðist ég undir tré og sofnaði

Í Frognerparken

Veit ekki alveg hvað þessi gella er að pæla

Þessi slær mig alveg út í pósunum

Það var fullt af rósum í garðinum

Gosbrunnur

Allt í blóma

Séð yfir Frognerparken

Þessi súla var búin til úr nöktu fólki

Bjútí bjútí

Ég

Tekið við bryggjuna

Þessi voru flott. Maðurinn var þarna með kassagítar (með magnara og tilheyrandi) og dóttur sína sem er nýorðin 6 ára. Þarna sungu þau saman allskonar ballöður. Ástæða þess að ég set mynd af þeim hingað? Jú, þið sjáið það kannski ekki svo skírt á þessari mynd, en karlinn er með bundinn spotta í hægri löppina svo hann gat spilað á trommuna sem hann sat á. Á vinstri fætinum var hann svo með einhverskonar hristu sem heyrðist í þegar hann hreyfði fótinn. Síðan er hann með munnhörpustatív um hálsinn. Mig langar til að verða eins og þessi kall!

Já, þannig var nú það! Kærar kveðjur, Anna Björk

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Föstudagurinn þrettándi?

Nei, en frábær dagur!

Nú er "hausttíðin" skollin á í vinnunni (hljómar eins og fengitíð!) sem þýðir færra starfsfólk=fleiri herbergi á dag sem hver þarf að þrífa. Planið er sem sagt svo fyrir veturinn: Á virkum dögum þrífur maður 17 herbergi, á laugardögum þrífur maður 16 herbergi og á sunnudögum þrífur maður 14 herbergi. Það er MIKIÐ að þrífa 17 herbergi, hef verið að þrífa svona 14 á dag núna í sumar. En þar sem ég nennti ekki að pirra mig á þessu, þá rimpaði ég bara mínum 17 stykkjum af á mettíma og var farin heim um fjögurleytið. Geri aðrir betur! Svo gladdist ég yfir því að eiga bara tvo daga eftir, laugardag og sunnudag.

Á leiðinni heim kom ég við í Nordstan og keypti mér "headset" (hvernig útfærist það á íslensku?) til að geta loksins fengið mér Skype. Tölvan mín vill hins vegar ekki með nokkru móti leyfa "voice recording" að virka (þrátt fyrir að ég sé búin að reyna allt sem hægt er að reyna!) og á ég því ekkert Skype, og mun kannski ekkert eiga Skype fyrr en ég kaupi mér nýja tölvu, sem er ekkert á þriggja ára planinu sko... Nema náttúrulega að ég finni eitthvert tölvufyrirtæki úti í Hollandi sem kann að laga þetta fyrir morðfjár. Eða að ég finni eitthvert tölvufyrirtæki heima á Íslandi í jólafríinu sem kann að laga þetta fyrir morðfjár. Ó svei. En mamma og pabbi, ég heyri þá bara í ykkur um jólin...

Síðan hringdi ég í StenaLines til að spyrjast fyrir um ferðina til Danmerkur. Bæði þarf ég að fá að vita hvernig ég get sagt tölvunni að ég vil borga í reiðufé og hvar í ósköpunum StenaLine-skipið leggur úr höfn. Eftir að hafa eytt góðum tíma í símsvaranum (vinsamlegast veldu einn ef þú vilt þetta, vinsamlegast veldu tvo ef þú vilt þetta o.s.frv.) þá allt í einu: "Því miður eigum við við tæknilega örðugleika að stríða í augnablikinu, vinsamlegast hringdu aftur síðar." Og svo var skellt á mig. Og ég hringdi aftur og aftur og ekkert virkaði. Skrifstofan lokaði svo klukkan átján, og ég hafði ekki fengið samband við nokkra manneskju. En ég hringi þá bara á laugardaginn...

Og svo er launaseðillinn minn týndur einhversstaðar hjá sænska póstinum. Ég vissi reyndar að póstnúmerið mitt í tölvukerfinu á Gothia Towers var vitlaust, en launaseðillinn skilaði sér seinast eins og ekkert væri, svo ég nennti ekki að láta breyta því. Það er heldur ekki eins og það séu margar Óðinsgötur hér í Gautaborg... Þetta hlýtur að skila sér í næstu viku, annars verð ég alveg spinnegal. En kannski er þetta bara góður hlutur, því ef ég veit ekki hvað ég á von á mikilli peningasummu þann 25. ágúst, þá get ég ekki planerað hvernig ég ætla að eyða henni! Já, held að það sé bara langbest að hafa þetta svona, íha! Ef þetta verður hins vegar ekki komið á mánudaginn, þá ætla ég að arka niður í Gothia og biðja um endurprentun, á maður nefnilega ekki alltaf að geyma svona launaseðla?

En þrátt fyrir allt þettta, þá er ég í ljómandi góðu skapi í dag :) Óþarfi að pirra sig á svona smáatriðum ;)

Jæja, best að fara og laga til og pakka fyrir Ósló baby!
Kveðjur úr Gauraborg, Anna Björk

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Fór í banka - ekki banka

Já, ýmislegt gerði ég í dag, en betur má ef duga skal! Tek listann með trompi núna á næstu dögum. Nema á föstudaginn, þá fer ég til Ósló. Og á mánudaginn, þá fer ég til Danmerkur ef þetta ljóta bókunarkerfi á netinu vill náðsamlegast leyfa mér að borga um leið og ég stíg um borð í skipið, en það stendur einmitt á síðu StenaLines að það eigi að vera hægt. Hvernig, fæ ég hins vegar ekki skilið, því mér er bara boðið upp á tvo greiðslumöguleika: Kreditkort (þeir sem þekkja mig vita alveg hvaða skoðun ég hef á kreditkortum) og póstgíróseðill (sorrí, en tek enga sénsa á að ég verði á landinu þegar hann kemur inn um lúguna hér í Óðinsgötunni!). Svo ég ætla að hringja í StenaLines eftir vinnu á morgun og spjalla aðeins við fólkið þar. Frábært.

Ég fór svo í bankann í dag og fékk þrjú tonn af pappírum og leiðbeiningum um hvernig í ósköpunum ég fari að því að loka bankareikningnum mínum þegar ég verð farin úr landi. Síðasta launagreiðslan mín kemur nefnilega ekki fyrr en í lok september. Iss.

Einnig keypti ég bolinn handa litla brósa og glanstímarit handa sjálfri mér, stútfullt af hausttísku, íha! Tímaritinu, sem heitir annars Solo, fylgdi þetta dýrindis sólarpúður. Sólarpúðrið var reyndar allt brotið og bramlað og fór ég því og fékk nýtt eintak af blaðinu og púðrinu. Reyndar þurfti ég að gramsa svolítið í ógeðslegri ruslatunnu fyrst til að finna kvittunina mína, en það er svo önnur saga... Hins vegar kem ég sennilega aldrei til með að nota þetta púður, enda gert fyrir konur með aaaðeins dekkri húðlit en ég... ó svei. En það er samt alltaf gaman að fá ókeypis dót, með síðasta tölublaði af Solo fékk ég til dæmis 3 dýrindis augnblýanta sem ég hef notað mikið. Einn var svartur, einn gylltur og einn hvítur, ekki amalegt það!

En nú verð ég eiginlega að fara og laga smávegis til, það falla nefnilega skriðuföll af og til á fína göngustíginn sem ég er búin að búa til úr stofunni og inn í eldhús! Tel ég það merki um að eitthvað þurfi að gera í ástandinu áður en alvarlegar náttúruhamfarir eigi sér stað...

Ástarkveðjur, Anna Björk

Stressuð?

Í dag eru akkúrat 8 dagar þar til ég fer til Hollands. Sem þýðir að ég á eftir 7 daga hér í Gautaborg. Einn dagur fer í Óslóarferð og annar vonandi í Danmerkurferð svo ég á bara eftir 5 daga. Þar af fara þrír í vinnuna svo ég á bara eftir 2 heila daga hér í Gautaborg.

Og er ég stressuð því ég er að falla á tíma með allt sem ég þarf/ætla að gera? Tjah, ég var það ekki í morgun þegar ég vaknaði, en þá mundi ég eftir þessum fína fína to-do-lista sem ég hafði búið til fyrir nokkrum vikum síðan og hef ég ekki gert einn einasta hlut sem á honum stendur. Hefi ég því flokkað listann niður eftir mikilvægi og lítur hann þá svona út:

Númer 1=MUST DO

  • Pakka
  • Þrífa íbúð
  • Fara í bankann
  • Vökva blómin (vúps, hihh...)
  • Skila drasli á bókasafnið
  • Skila Tobiasi buxunum sínum (don't ask...)
  • Þvo þvott, tvisvar
  • Skrifa niður símanúmerin sem eru á sænska SIMkortinu mínu
  • Fara til Óslóar
  • Fara til Frederikshavn í Danmörku
  • Kaupa fótboltabolinn handa Kristni með Gautaborgarliðinu
  • Taka myndir af íbúðinni (minningar, þið skiljið)
  • Ganga um í Slottskogen og taka myndir
  • Skoða dýragarðinn í Slottskogen
  • Fara á áður ókunnugar slóðir Gautaborgar og taka myndir
  • Hitta Lilju
  • Læra hollensku (af hollenskukennsludisknum sem ég þarf að skila á bókasafnið...)
  • Kaupa skemmtilegan geisladisk (svo ég missi ekki vitið á leiðinni til Hollands)
Númer 2=Frekar mikilvægt og ég vil helst koma í verk
  • Ganga um í Haga (svæði hér í Gautaborg)
  • Senda nokkur póstkort
  • Fara hálfa leið til Lerum og taka myndir af Aspensjön (Aspenvatni)
  • Kaupa Skype

Númer 3=Ekki svo nauðsynlegt, en langar samt til að gera

  • Fara í sólbað (bjartsýn Anna, hitabylgjan hér er löngu búin!)
  • Skila "pant"flöskum, þ.e. flöskum sem maður fær peninga fyrir, íha!
  • Fara nokkrum sinnum í Liseberg
  • Taka myndir af Göta älv (Gautelvur, stóra áin sem rennur í gegnum bæinn og ég hef næstum aldrei séð, enda er mér sagt að skuggahverfin séu handan hennar og þangað þori ég ekki fyrir mitt litla líf að fara!)
  • Fara aftur í Lilla Villakulan á kökuhlaðborð, namminamm
  • Kaupa risastóran snúð í Haga (þeir stærstu í Svíþjóð er mér sagt?)
  • Niðurhala skemmtilegum lögum af netinu í mp3 spilarann minn, svo ég hafi eitthvað að gera á leiðinni til Hollands
  • Kaupa mér sænskt glanstímarit (er að bíða eftir að hausttískutímaritin láti sjá sig) svo ég hafi eitthvað að gera í flugvélinni
  • Skrifa lokabloggfærslu sumarsins

Jæja, verð að rjúka! Ætla í bankann og fleira skemmtilegt... Kærar kveðjur, AnnaHaralz

þriðjudagur, ágúst 15, 2006

Jii minn eini!

Í dag langaði mig allt í einu til þess að byrja í skóla í næstu viku. Ég meina, ég hef gert það á hverju einasta hausti í 13 ár, takk fyrir pent! Og alltaf hef ég hlakkað jafn mikið til!

Einmitt þess vegna sit ég núna og get ekki gert upp við mig: Hvort á að ég taka dönsku í fjarnámi frá VMA eða frönsku?

Danska
Kostir: Þarf svo sannarlega á upprifjun að halda, þar sem danskan mín er orðin óskaplega sænskublandin. Gæti líka verið skemmtilegt þar sem ég þarf að skila fullt af verkefnum og svona :) Og ekki má gleyma því að danska er mitt líf og yndi...
Gallar: Ég held að danskan mín jafni sig sjálfkrafa þegar ég fer til Danmerkur (því ég mun svo sannarlega flytja þangað einn daginn), enda mjög góður grunnur til staðar. Auk þess er ég búin að lesa aðra bókina sem á að lesa í DAN212 (áfanganum sem ég færi í), en það er Gule handsker sem ég las svoleiðis sundur og saman í DAN102 í MA... Ég get líka hreinlega reddað dönskunni minni sjálf með því að lesa danskar bækur, verð ábyggilega ekki lengi að ná þessu upp aftur! Fengi pottþétt 10 í áfanganum hvort sem er án þess að þurfa að hafa neitt fyrir því=tilgangslaust.

Franska
Kostir: Hefur alltaf langað til að læra frönsku, það er nefnilega enginn maður með mönnum nema hann kunni frönsku! En þegar ég ætlaði að byrja að læra frönsku í VMA, þá var hún ekki kennd lengur, takk fyrir pent! Spænskan hafði nefnilega tekið yfir frönskuna! (Og já, ég tók 3 áfanga í spænsku!).
Gallar: Að læra bæði frönsku og hollensku á sama tíma gæti orðið svolítið trikkí og ruglingslegt, eða hvað? Veit nú ekki heldur hvernig það verður að læra framburðinn í gegnum fjarnám, enda sýnist mér ekkert hlustunarefni fylgja námsefninu. En það skiptir kannski ekki svo miklu máli, ef maður lærir að lesa og skrifa, þá er ekki erfitt að læra framburðinn almennilega síðar meir :) Engin pressa á verkefnaskilum, því það er 100% lokapróf. Spurning hvort aðhaldið sé nógu gott með því móti?

En svei. Ég trúi ekki einu sinni að ég sé að pæla í þessu. Ég sem ætlaði ekki að koma nálægt neinu skólatengdu í að minnsta kosti ár! En ég sé það bara því miður ekki gerast, sorrí! Ég er strax komin með fráhvarfseinkenni því ég var ekki í neinu fjarnámi í sumar, og er eiginlega alveg miður mín út af því!

En haha, það eru eflaust margir að pæla: "Hvur fjandinn! Var hún ekki að útskrifast núna í vor á þremur árum með sprengdan einingafjölda?" (Og sem semídúx, þið munið! Já, mér finnst afskaplega mikilvægt að minna fólk á það svona af og til...).

En ég bara get ekki meira. Ég verð að fara í fjarnám. Ég sakna þess í raun alls ekki að fara í skólann sem slíkan, það er bara svo mikil stemning yfir því að sitja og læra heima! Er satt best að segja alveg óskaplega fegin því að vera ekki að fara í skóla í vetur... En langar samt til að læra heima ;)

Jæja, franska - danska, ef þið hafið einhverja skoðun á málinu, endilega látið vita :) Eins ef þið hafið einhverjar aðrar uppástungur að skemmtilegum áföngum, látið þá í ykkur heyra :)

Kærar kveðjur, hin skólasjúka Anna

Köpenhamn :)

Ég fór eins og kunnugt er til Kaupmannahafnar á mánudaginn. Gekk það ósköp vel allt saman. Nema þegar ég var komin til Kaupmannahafnar og gleymdi að skipta um gjaldmiðil og tróð því sænskum krónum af miklum móði í farangursgeymslurnar á Hovedbanegården. Skyldi svo ekkert í því af hverju þetta ljóta drasl virkaði ekki! Þegar ég svo fattaði að nota danskar krónur, þá fór allt í klikk og ég borgaði óvart fyrir einhvern annan karl. Já já.

Fann síðan fjölskylduna mína, íha! (Fjölskyldan=Pabbi, mamma, Kristinn litli brósi og Friðrik litli brósi. Einar stóri brósi var heima á Íslandi). Dagurinn fór í rölt um bæinn, heimsókn í Believe it or not safnið og ýmislegt fleira. Allir voru á útopnu og brandararnir ruku út úr eyrunum á okkur, svona eins og vill oft gerast...

Brandara dagsins átti þó tvímælalaust mamma þegar hún bauð Kristni hovedbanepiller... Ha ha ha! Veit nú ekki hvort hún var búin að eyða löngum tíma í að semja þetta... (Fyrir þá sem ekki fatta, þá var mamma að meina höfuðverkjatöflur. Og fyrir þá sem fatta þetta ekki enn, þá heitir Aðalbrautarstöðin í Kaupmannahöfn Hovedbanegården. En mömmu fannst svo flott að kalla höfuðverkjatöflur hovedbanepiller, því "bane" er jú næstum eins og "bani" á íslensku, sem sagt eitthvað sem banar höfuðverknum...).

Og jesús, á ég að segja ykkur? Ég sá flottan karl á Strikinu sem tók það að sér að giska á aldur og þyngd fólks gegn borgun. Ef hann giskaði á rétta þyngd eða aldur (fór eftir því hvort maður vildi að hann gerði), þá þurfti maður að borga honum. Ef mismunurinn var hins vegar meiri en tvö kíló plús eða mínus eða tvö ár plús eða mínus, þá þurfti maður ekki að borga honum neitt. Ég sá að sjálfsögðu gullið tækifæri þarna með að fá hlutlaust álit á þyngd minni! Reyndar hafði ég ekki GRÆNAN GRUN um hversu þung ég væri í rauninni, enda ekki búin að stíga á vigt síðan heima á Íslandi. Grunaði samt að ég væri komin eitthvað yfir 60 kílóin (60 kíló=bannorð! 60=STRANGT átak), enda ekkert búin að hreyfa mig síðan ég kom hingað til Svíþjóðar.

En sem sagt. Ég bað karlinn um að giska á þyngd mína. Hann sigtaði mig út og pældi vel og vandlega og skrifaði síðan niður töluna. Og vitið þið á hvað hann giskaði? Fimmtíuogfjögur kíló. takk fyrir pent!!! Og hann náttúrulega vildi vera öruggur með sín tvö kíló í plús og mínus og hann tók það með í reikninginn að ég væri í frekar þungri peysu og í skóm og alles, svo ég lít út fyrir að vera á milli 52 og 56 kíló! Enda fékk karlinn líka nett sjokk þegar ég steig á vigtina, því hann var svo viss í sinni sök... En vigtin sýndi akkúrat 59 kíló, íha! Sem þýðir það að ég er í rauninni svona 58 kíló og jafnvel minna, því ég var náttúrulega búin að borða alveg helling þennan dag... Og ég segi íha, því ég er undir 60 kílóunum sem er miklu betra en ég þorði að vona, og líka því ég hef greinilega ekki þyngst um gramm síðan ég kom hingað!

Svo ég held því fram að spegillinn hér í Óðinsgötunni sé bilaður. Því ég lít sko ekki út fyrir að vera nein 58 kíló að mínu mati, hvað þá 54. Spurning um að fá hluta húsaleigunnar endurgreiddan fyrir að hafa svona bilaðan spegil?

En hvað um það. Ég er bara svo glöð með að líta út fyrir að vera grönn að ég bara varð að básúna þetta. Og þar sem mér finnst svo gaman að líta út fyrir að vera svona létt, þá sit ég núna og narta í epli... Er hér með hætt að borða brauð nema bara í vinnunni. Kannski maður komi sér þá niður í 56-57 kíló í raunþyngd? Ætla út að skokka á morgun ;) Jess maður :D

Og já. Ég er móðgaðist nú líka "örlítið" á mánudaginn. Við fórum sem sagt á "Believe it or not" safnið og ég sagði miðasölukarlinum að ég væri 15 ára til að fá ódýrara inn... og hann trúði því!!! Foreldrar mínir urðu samt himinsælir, því nú eiga þeir "loksins" tvíbura! Kristinn er nefnilega líka 15 ára, svo við gætum við jafngömul!!! Fyrir þá sem ekki vita, þá er ég fædd 1987 og hann árið 1991... Jeminn, hvað ég er hrikalega móðguð! Hefði kannski bara átt að segjast vera 19 ára, úff, maður minn sko! Annars er ég nú alveg vön þessu, ég er oft spurð hvort ég sé yngri eða eldri en 16 ára í rútum og svona...

Að sjálfsögðu reyndi ég að tala mína albestu dönsku í á mánudaginn, sem gekk þó eitthvað furðulega framan af því ég er orðin svo rosalega sænsk. En þegar líða tók á daginn, þá taldi ég mig vera orðna ansi vel dönskumælandi. Síðan talaði ég við einhvern karl. Hann var ekki lengi að spyrja: "Kommer du fra Sverige??". Yfirleitt spyrja Danir "Kommer du fra Island?" þegar Íslendingar tala dönsku, enda framburðurinn nokkuð augljós. En nei, ég er greinilega orðin eitthvað sænskari en það... ó boj.


En núna er kominn tími á nokkrar myndir, njótið vel :)



Ég fór í ástarmælingarstól

Ég er "passionaite" (jeminn, hvernig á eiginlega að skrifa það?), bara svona ef þið vilduð vita ;)

Ég káfaði á rassinum á stærsta manni heims... Ég er 164 cm, karlinn er svona skrilljón cm

Held að mamma þurfi að gefa okkur meira að borða... þetta er engin frammistaða hjá henni!!!

Ég og Kristinn. Ég með þetta líka fína fína myndavélabros

Þessi var í göngum... þið megið hlægja núna, hahaha

Einhver skurður


Ég í einhverri kirkju - rigningin og rakinn úti gerðu það að verkum að ég lít út eins og Fiðri frændi...

Þetta svæði kallast Bókasafnsgarðurinn eða eitthvað álíka

Í kirkju

Kristinn Björn og ég - tvíburar?

Mamma og pabbi

Pabbi og ég - hárgreiðslan eitthvað að fara út um þúfur hjá mér!

Litli sæti bróðir minn - í réttu litunum að sjálfsögðu :D

Eitthvað danskt

Man ekkert hvaða bygging þetta er - æ vá, hvað ég er eitthvað léleg í nöfnunum í þetta skiptið! Ég þurfti nefnilega að tala svo mikið að ég tók ekkert eftir því hvað við vorum að gera... vúps!

Og þannig var nú það!

Kærar kveðjur, Anna den danske

laugardagur, ágúst 12, 2006

LEIKUR!

Nei, ég nenni ekki að gera mig klára fyrir væntanlega Kaupmannahafnarferð svo ég ætla að dunda mér við að stela skemmtilegum bloggleik frá Björg. Hins vegar ætla ég að taka mér það bessaleyfi að íslenska leikinn...

LEIKUR:
Farðu á bloggsíðuna þína og gerðu lista yfir þær níu manneskjur sem kommentuðu seinast á færslurnar þínar. Þótt einhver hafi kommentað tvisvar, þá fer hann aðeins einu sinni á listann.

1. Björg
2. Lilja
3. Baldvin
4. Elín
5. Sólrún
6. Venla
7. Hrafnhildur
8. Kristinn
9. Marta

Sp: Hefurðu einhvern tímann kysst númer 6?
Sv: Nei, ekki minnist ég þess

Sp: Hver er besta minning þín með númer 9?
Sv: Dimmiteringin ;) Og ég ætla ALDREI í lífinu að syngja Bjarnastaðarbeljurnar aftur :S

Sp: Er númer 8 falleg/ur?
Sv: Jahá, enda er hann litli bróðir minn :)

Sp: Hvernig leist þér á númer 7 fyrst þegar þið kynntust fyrst?
Sv: Bíddu, var það ekki í Íþróttum202 eða eitthvað? Haha, minnir að við höfum deilt hatri okkar á íþróttum... en mér leist bara mjög vel á hana, mjög hress og fannst gaman að tala :D

Sp: Hvernig kynntistu númer 3?
Sv: Í taekwondo :P Lifði reyndar lengi í þeirri blekkingu að hann héti Leifur en ekki Baldvin (EKKI spyrja mig af hverju!!!)...

Sp: Heldurðu að númer 5 gæti drepið einhvern?
Sv: Tjah, hún hefur nú lært ýmislegt í taekwondo... En svona siðferðislega séð, nei, hún gæti það ekki.

Sp: Er númer 2 besti vinur þinn?
Sv: Hún er ofarlega á listanum :D

Sp: Hefurðu séð númer 4 nakin/nn?
Sv: Tjah, ég er nokkuð viss um það, man það samt ekki svo glöggt...!

Sp: Heldurðu að númer 3 sé skotin/nn í þér?
Sv: Já :)

Sp: Hvað er það síðasta sem þú gerðir með númer 1?
Sv: Hugsihugsi... bókfærslutími? Ha nei djók, kom ég ekki og kastaði nammi í þig þegar ég var að dimmitera og þú varst í bókfærslu með svona tveimur öðrum? Æh, ég man það ekki alveg...

Sp: Hefurðu komið heim til númer 3?
Sv: Tjah, á meðan hann bjó í Akurgerðinni já :) Og núna býr hann í gamla herberginu mínu í HrafnaSex, svo já aftur :D

Sp: Myndirðu einhvern tímann kyssa númer 8?
Sv: Tjah, hann er nú litli bróðir minn... svo bara koss á kinn ;)

Sp: Hefurðu sofið í sama rúmi og númer 5?
Sv: Hugsihugsi... nei... Heyrðu jú víst! Djók!!! Hún kom einu sinni og gisti hjá mér í HrafnaSex :D Eða er það ekki annars? Jú, ég er alveg sjúr á því, minnir að hann Ingi okkar hafi komið því í kring vegna ýmissa ástæðna sem við skulum ekki nefna hér ;)

Sp: Finnst þér númer 4 vera kynæsandi?
Sv: Jahá :) You sexy beast :*

Sp: Hvenær muntu næst hitta númer 9?
Sv: Ó jiminn, hef hvorki grænan grun né glóru!!! :S

Sp: Eruð þið númer 1 náin/nánar?
Sv: Nei því miður ekkert svakalega :(

Sp: Hefurðu farið í bíó með númer 3?
Sv: Jábbs, man samt ekkert hvaða mynd það var! Einhver svona bregðumynd samt...?

Sp: Hefurðu komist í vandræði með númer 2?
Sv: Hugsihugs, nei... annars man ég það eigi svo gjörla... held samt ekki...

Sp: Veistu yfirhöfuð hver númer 6 er?
Sv: Haha já, við bjuggum jú saman ;)

THE END!
Over and out, Anna Björk

Köbenhavn baby á morgun!!!

Hey, kannski ég segi ykkur frá því að ég er að fara til KÖBENHAVN BABY Á MORGUN!!!

Já, ég veit, aftur! Og í þetta skiptið til að hitta fjölskylduna sem er nú stödd í Danmörku, íha!

Ég ákvað þetta bara áðan og strunsaði á Centralstationið og keypti miðana... Fer með rútu og í allt kostar ferðin 524 sænskar krónur sem ekkert nema skítur á priki!

Í næstu viku ætla ég svo til Osló, en sú ferð verður ennþá ódýrari heldur en ferðin til Köben. Já, maður verður nú að fara til Noregs fyrst maður er staddur hér!

Annars finnst mér þetta alveg frábært, að geta skellt sér svona til útlanda þegar manni sýnist. Gleymið því að þetta sé hægt á Íslandi... Eða þetta er kannski hægt, en bara aðeins meira vesen, maður þarf að panta flug og svoleiðis rugl...

En jæja, ég er farin að hlakka til! Kærar kveðjur, Anna Björk

PS. Venla, jag skall til Köpenhamn i morgon, igen! Skall träffa min familj, men bara for en dag, for jag måste jobba på mandag... Och det kostar nästan ingenting, bara 524 svenska kronor! Näste väcka skall jag så til Oslo for en dag, det er så jätte billigt :)

Kräftskiva

Ég fór á Kräftskiva í gærkvöldi ásamt hinum Nordjobburunum. Kräftskiva er eitthvað alveg typical sænskt og er haldið í ágúst á hverju ári. Í stuttu máli sagt er Kräftskiva hittingur þar sem vinirnir safnast saman, borða eitthvað sem líkist míní-humrum og drekka áfengi. O seisei.

Nordjobb-kräftskivan var haldin á Nordjobbskrifstofunni, þar sem fólk borðaði kräfturnar (míní-humrana), kjötbollur og annað meðlæti af mikilli áfergju. Sumir fengu sér örlítið í litlutánna og aðrir jafnvel í stórutánna...

Og svo gerðist ég stórreykingarmaður. Já já. Vildi það svona til:

Mamma hringdi í mig. Ég fór út til að tala í símann, því það var svo mikill hávaði inni.
Allt í einu sá ég Juuso standa í útidyrunum og stara á mig með skelfingu. Svo kallaði hann á Peter og Peter hrópaði upp fyrir sig: "ANNA!". Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið og hélt áfram að tala í símann. Svo kölluðu strákarnir á Dennis líka, sem missti hökuna niður í gólf.

Dennis: Nej men Anna!!! Inte du!!!
Anna: Va? Jag pratar i telefonen...
Juuso: Nej men... Va, röker du???
Anna: RÖKER???
Peter: Jaa, röker du?
Anna: Nej, jag pratar i telefonen!
Juuso: Nej men, varför står du där? Röker du?
Anna: Nej fy fan, jag röker inte! Jag pratar med min MAMMA!
Juuso: Aaaja, jag trodde bara att du rökte for du var där ute och dina händer var...
Anna: Nej nej, jag pratar bara med min mamma!
Juuso: Hur säger man "röke" på isländska?
Anna: Reykja
Juuso: Reykja? Reykja reykja... som i Reykjavik?
Anna: Ja, som i Reykjavik... men jag pratar med min mamma så tyst nu!

En já. Eftir kräftskivuna var ákveðið að fara til Hönnu í smá eftirpartí, enda kvaðst hún eiga meira en nóg af búsi. Sumir kváðust ekkert ætla að drekka, enda að fara í vinnuna daginn eftir, en eitthvað breyttust þau viðhorf eftir því sem leið á kvöldið... Ég ákvað að yfirgefa teitið um eittleytið enda þreytt með eindæmum, og voru þá margir komnir á vodkaskot númer sjö af hreinum vodka, ótalandi á öðrum tungumálum en þýsku, búnir að kyssa mann og annan (af sama kyni vel að merkja) og áttu absolút hvorki finnskan, finnlandssænskan, sænskan eða tyrkneskan kærasta... nema þegar aðeins fór að líða á kvöldið, þá áttu sumir tyrkneskan kærasta, grínlaust! Og einhvern veginn held ég gestirnir á Gothia Towers hafi ekkert endilega fengið hrein handklæði í dag...

En jæja, kannski ég skelli inn nokkrum myndum og fari að gera eitthvað af viti.


Hluti af kræsingunum

Nordjobbarar

Fleiri Nordjobbarar - birtan ekki upp á sitt besta

Og enn fleiri Nordjobbarar

Pósa - ég borðaði þetta absolútt ekki!!!

Komin í eftirpartíið - trekanturinn í horninu

Juuso og ég - hvað er eiginlega málið með löppina?

Nærmynd af Hönnu, sem var aðeins búin smakka áfengið...

Tiina var á rassgatinu, ef svo má að orði komast!

Allt partíliðið saman komið: Riikka, rassinn á Tiinu, Hanna, Juuso, ég, Dennis og Peter. Tyrkneski gaurinn sem var kærasti sumra (Riikku) tók myndina.

Auf wiedersehen! Anna Björk