Ég get svoleiðis svarið það, það er gjörsamlega alltaf helgi! Og 1. júní á morgun, sem þýðir að það vantar fjóra daga upp á að ég hafi búið í útlöndum í tvö ár. Jadúddamía! Finnst ansi stutt síðan ég pakkaði vídjókaramellunni minni og sprengjunni ofan í tösku og hélt á vit ævintýranna. Óska ég hér með eftir að fá göngugrind og ókeypis aðgang að aldraðrabingói í afmælisgjöf í sumar, óboj.
Annars var stanslaust stuð í vinnunni í dag. Einn fylliraftur ákvað t.d. að fá sér dúr fyrir framan vínhillurnar okkar, góður staður! Þeir hjá 112 voru of uppteknir til þess að koma og keyra manninn heim (sem var nú ekki með nein læti, ætlaði bara rétt að leggja sig) og tók það yfirmann minn 40 mínútur að tala hann á að standa upp, þurfti náttúrulega að passa að hann sofnaði ekki... og hver þurfti að taka við stjórninni á búðinni á meðan? Hmm, jú, ég. Vúhú.
Svo er ég loksins búin að finna bókasafnið niðri í Kastrup, jess! Það tók ekki nema svona 10 göngutúra að leita að því, komst að því í göngutúr númer níu að það væri búið að flytja safnið og kominn leikskóli í staðinn, ekki nema vona að ég fyndi ekki staðinn... Í göngutúr númer tíu var ég búin að fá nýja heimilisfangið og fann safnið, í tíu mínútna göngufæri frá hýbýlum okkar. Já þetta er hið allra glæsilegasta safn, enda aðalbókasafnið í Tårnby-kommúnu (þar sem Kastrup er). Þar komst ég í glæsilegan fjársjóð þegar ég fann nótnasafnið þeirra og grét svo gleðitárum þegar ég komst að því að þar er líka hljómborð til afnots fyrir almenning :D Já, þetta eru svo sannarlega gleðileg tíðindi svo ekki sé meira sagt. Reyndar sakna ég þess að þeir skuli ekki vera með klassískar nótur, heldur eru þarna einungis popplaga- og rokknótur, en ég gat skemmt mér heilmikið með nótur af Kim Larsen lögum :D Þvílík gleði hér á bæ skal ég ykkur segja, nú mun ég eyða öllum mínum frístundum á bókasafninu...
Annars er sumarið að verða komið hérna í Danmörku og því ekki seinna vænna að koma sér í bikiníform, svona fyrst að maður býr í korters-göngufæri frá ströndinni. Kúrinn "í kjólinn fyrir jólin um mitt sumar" hófst fyrir þremur vikum síðan og er ég búin að standa mig afskaplega vel. Kúrinn er saminn af sjálfri mér og virkar þannig að ég borða hollt alla daga vikunnar nema laugardaga, þá má ég hakka í mig súkkulaði og allskonar jukki. Ég er einmitt búin að standa mig afskaplega vel í dag (laugardagur) og fékk mér súkkulaði í hádeginu og popp í kvöldmat. Já, maður verður nú að fylgja kúrnum!
Á morgun er spáð skrilljón stiga hita (er mér sagt) og að því tilefni erum við Peter búin að bjóða mömmu hans Peters og systur hans ásamt manni hennar og syni(17 mánaða aaalgjör snúlli!) í grill niðri í Kastrup. Erum einmitt búin að byrgja okkur upp af einnotagrillum og ætlum að grilla á einu af túnunum í kringum húsið, því það má ekki grilla á svölunum (er heldur ekki viss um að það væri pláss fyrir alla í íbúðinni okkar, hahaha, verðum vonandi komin í nýja íbúð í lok árs, krossaputta!). Já maður er alltaf eitthvað að bralla.
Heyrði svo aðeins í Ágústu áðan. Hún er svo upptekin að það liggur við að maður þurfi að panta símatíma hjá henni í gegnum e-mail, hehe ;) Eeeen planið er allavega að hafa hitting á fimmtudaginn, það verður nú aldeilis gaman, finnst eins og það sé öld síðan við hittumst seinast.
En best að fara að sofa, þarf að vakna snemma í fyrramálið og drífa mig niður í Kastrup (er í Vanlöse núna), klára að kaupa inn fyrir grillpartíið og græja sallat með vínberjum til að hafa með grillinu (hún Hildur Eva mín kenndi mér að setja vínber í sallöt, þið ættuð að prófa það líka!) og vökva blómið og svoleiðis (Peter er búinn að laga til, myndarlegur ;) ). Annars er nú alveg ótrúlegt að þetta blóm skuli enn vera á lífi, því það er í umsjá minni og það veit Guð að ég er ekki sú besta í að halda lífi í blómum (er enn á bömmer eftir að hafa drepið tvö blóm heima hjá Ragnari sænska í Svíþjóð 2006 og gert hin 9 stykkin vönkuð, er ekki viss um að þau hafi nokkurn tímann náð sér aftur...). Já þessu blómi var sem sagt skellt í mína ábyrgð þegar ég flutti inn, því konur eiga víst að vera svo góðar í að muna hluti. Því segi ég nú bara grey Peter að hafa nælt sér í gleymnustu konu í heimi :D Og svo eru líka ýmsir aðrir hlutir sem mér er gert að muna, svo sem tannlæknatíma og klippingatíma og um daginn varð minn nú heldur móðgaður þegar ég gleymdi næstum því að minna hann á að drekka bjórinn sem hann hafði keypt fyrr um daginn ;)
Jæja, ég er þotin í rúmið, hafið það gott sykurpúðarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna Netto
laugardagur, maí 31, 2008
Komið þið sæl og blessuð
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, maí 31, 2008
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, maí 22, 2008
Súrmjólk í hádeginu og seríos á kvøldin
Gódan daginn kæru hálsar! Klukkan er rétt ad skrída í níu á fimmtudagsmorgni (ég er í fríi á fimmtudøgum) og ég er vøknud og komin á ról. Er einmitt med afgangana af heimabakadri pitsu frá tví í gær í upphitun í ofninum, tví tad er engin mjólk til á heimilinu og ég ad sálast úr hungri, og heilar tíu mínútur tangad til matvørubúdin hérna rétt hjá opnar.
Allt er í gódum gír hérna í Danmørkinni. Hildur Eva er reyndar búin ad yfirgefa mig í bili, en stefnan er tekin á ad koma aftur í haust. Já, hún eiginlega neydist "tví midur" til tess ad koma aftur tví ég er med svo mikid af dóti í láni frá henni. Fyrst byrjadi hún á tví ad gefa mér ca. 2 kíló af snyrtivørum allskonar, vúhú! Og svo fékk ég Vanillu-body-splashid hennar lánad. Og svo fékk ég 5 kíló af uppskriftabókum lánud (tar á medal Køkubók Hagkaups, ó boj!) og svo fékk ég líka gamla i-podinn hennar lánadan :D Samt spurning hvort hún eigi yfirhøfud ad koma aftur, mér líst nefnilega svo skratti vel á tessa Køkubók...
Føstudaginn seinasta hringdi síminn hjá mér klukkan hálftíu um morguninn. Ég lá enntá uppi í rúmi heima í Vanløse eftir bæjarferd kvøldid ádur og sá ad tad var vinnan sem var ad hringja. Sjitt, ég var ekki mætt of seint í vinnuna, er tad? En alveg róleg, tetta var bara yfirmadurinn ad spyrja hvort ég væri ekki til í ad hjálpa til í annarri Netto-búd tann daginn. Ég sagdist vel geta tad, og tá kom í ljós ad tetta var búdin sem er vid lestarstødina mína í Vanløse, og ég tar af leidandi fastakúnni tar (hefur reyndar minnkad eftir ad ég flutti nánast ad øllu leiti nidur í Kastrup). Svo ég arkadi út í Netto og kynnti mig, ekkert smá skrítid ad hafa verslad tarna í meira en eitt ár og svo allt í einu fara ad spjalla vid fólk sem hefur unnid tarna frá tví ég flutti til Danmerkur... tví tau kønnudust ad sjálfsøgdu vel vid mig. En tetta gekk sem sagt ljómandi vel allt saman, en mikid rosalega fann ég hvad "heima er best" tegar ég fór aftur í mína búd daginn eftir.
Og svo ad adalfréttunum: Vid Peter erum búin ad panta okkur flugmida til Íslands í sumar, vúhú!!! Vid lendum á Akureyri sunnudaginn 3. ágúst klukkan 13:55 og fljúgum aftur til Kaupmannahafnar føstudaginn 8. ágúst klukkan 15:30. Vegna tímamismuns tekur flugid til Íslands adeins einn klukkutíma, á medan flugid út tekur fimm klukkutíma...
Mesti spenningurinn hjá mér felst ad sjálfsøgdu í tví ad fá aftur mømmumat!!! Ad tví tilefni er ég nádarsamlegast búin ad setja saman lista med tví sem á ad matreida:
MORGUNMATUR: Alltaf súrmjólk og seríos! (Kornfleks fyrir Peter).
HÁDEGISMATUR: Íslenskt skyr og íslenskt braud med íslenskum osti. Kakósúpa med seríosi. Grjónagrautur og braud og ostur. Braud í grilli. Snarl.
KAFFITÍMI: Afmæliskaka (ég á nú afmæli 29. júlí...). Vøfflur med rabarbarasultu (fæst ekki í Danmørku) og glassúr og íslensk mjólk. Pønnukøkur med rabarbarasultu. Jólakaka. Skúffukaka. Kanelsnúdar. Pitsusnúdar. Skinkuhorn. Ætla svo ad semja vid ømmu um ad baka kleinur.
KVØLDMATUR: Kjøtfarsbollur í brúnni sósu og kartøflur. Mømmupitsa. Grillmatur (audvitad verdur vedrid gott!). Ýsa í raspi. Einhver steik.
Ótarfi ad vera med einhverja prinsessustæla og tví er listinn ekki lengri. Mamma, ertu ekki ørugglega ad punkta tetta nidur?
En núna ætla ég ad sauma pínu út. Vid heyrumst!
Bestu kvedjur, Anna Jólakaka.
PS. Var ad fá e-mail um tad ad einn af mínum gømlu kennurum úr dønskuskólanum mínum, sem ekki er lengur til vegna yfirgangs Kaupmannahafnarkommúnu, sé búinn ad opna sinn eigin skóla! Mæli ég ad sjálfsøgdu med teim skóla, enda einn besti kennarinn sem stofnar hann:) http://www.dynamiskdansk.dk/
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, maí 22, 2008
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, maí 15, 2008
Gautaborg baby!
Jæja, tá er madur aftur kominn til Kaupmannahafnar eftir aldeilis og sérdeilis ljómandi ferd til Gautaborgar! Held ad tad sé best ad segja frá ferdinni í máli og myndum.
---
Á føstudaginn seinasta ørkudum vid sem leid lá útí flugstødina, sem liggur hérna rétt hjá okkur. Sól skein í heidi og vedrid hefdi ekki getad verid betra. Vid vorum komin í flugstødina um sjø-leytid (19:00) og fundum okkur check-in maskínu, tar sem madur tékkar sig sjálfur inn. Gekk tad ljómandi, trátt fyrir eilítid panikkskast hjá mér tegar ég sá ad á skjánum stód "KUN FOR HÅNDBAGAGE" eda bara fyrir ferdalanga med eingøngu handfarangur. O-ó! En eftir ad hafa spjallad vid einhverjar gellur hjá flugfélaginu komst ég ad tví ad tad er víst alveg sama hvada check-inn maskínu madur notar, svo stóra bleika ferdataskan mín komst med í flugid. Sjúkket. Fluginu okkar seinkadi samt um 45 mínútur, foj. Ég í Lufthavnen í Kastrup, spennt ad fara af stad.
---
Vid lentum í Gautaborg klukkan hálf ellefu um kvøldid og komumst ad tví ad Dankortid mitt (debetkortid mitt) virkadi ekki. Vúhú! Og síminn minn virkadi ekki heldur. Enntá meira vúhú! Svo keyptum vid okkur mida med flugvallarrútu sem keyrdi okkur beint upp ad dyrum á Hotel Gothia Towers. Tad tók okkur hálfa mínútu ad tékka okkur inn á hótelid og svo eftir ad hafa farid ýmsa krókaleidir komumst vid upp á fimmtu hæd (hefdi alveg viljad vera ofar, en tad skipti svo sem ekki øllu) tar sem herbergid beid eftir okkur, vel trifid og fullkomlega búid um rúmid ;)
Herbergid okkar, ádur en vid gerdum okkur heimkomin og hentum draslinu okkar út um allt. Tid fáid ekki ad sjá mynd af tví...
---
Nú var okkur farid ad tyrsta í eitthvad ad drekka og ákvádum vid ad skella okkur nidur í lobbíid, en tar var lifandi tónlist og fullt af fólki, opinn bar og partístemning.
---
Og svo var farid nidur og skundad beint á barinn. Svona var ástandid eftir nokkra stund:
- Anna: Jeg er så stiv. Jeg er så stiv. Jeg ER så stiv. Hvorfor er du ikke stiv?
- Peter: Jeg ER stiv.
- Anna: Nej du er ikke stiv. Jeg er så stiv. Jeg er så stiv. Jeg ER så stiv. Hvorfor er du ikke stiv?
- Peter: Jeg ER stiv.
- Anna: Nej du er ikke stiv. Jeg er stiv. Jeg er så stiv...
(Stiv=fullur).
---
Já tad var stud á hótelinu, og tónlistin var í besta gædaflokki! Tad var madur sem spiladi á píanó og søng og svo var annar á gítar. Gedveikt vel gert hjá teim.
Vid skulum ekkert ræda tessa mynd frekar.
---
Núnú á laugardeginum var risid tímanlega úr rekkju til tess ad ná morgunmatarhladbordinu sem var innifalinn í verdinu (um ad gera ad notfæra sér tad). Sem betur fer hef ég tann eiginlega ad verda ekki tunn (7-9-13) og ástandi var heldur ekki afleitt hjá Peter svo tad gekk áreynslulaust ad skella sér fram úr klukkan tíu og arka nidur. Og Ó MÆ GAD!!! Morgunmaturinn var HEAVEN!!! Hrærd egg, kokteilpylsur, beikon, 17 tegundir af braudi og jógúrt og múslí og safa og áleggi og ávøxtum og gud veit hvad og hvad! Ég var nú samt mest í hrærdu eggjunum og kokteilpylsunum, hollt og gott ;)
---
Svo fórum vid í bæinn í verslunarleidangur tar sem ég nældi mér medal annars í kjól og nýja tøsku, tad var nú aldeilis ágætt!
Tad er fullt af kanølum í Gautaborg.
Hitinn var um 25 stig og alveg heidskírt.
---
Svo fórum vid og fundum okkur gard tar sem vid settumst og sløppudum af í sólinni.
Sól sól skín á mig...
Ég ýkt svøl med sólgleraugun hans Peters, úje!
---
Um kvøldid, eftir ad hafa gengid um Gautaborg og slappad af og bordad ís, fórum vid og fengum okkur ad borda. Fyrir valinu urdu hamborgarar og franskar. Med hamborgurunum fengum vid kørfu fulla af sósum og kryddi. Ég ætladi nú aldeilis ad fá mér smá tómatssósu med matnum, en tók tá eftir ad tómatssósan var í glerfløsku. Fyrir tá sem ekki vita, tá hef ég slæmar minningar um slíkar fløskur, tví tegar ég var í fyrsta bekk í grunnskóla, tá var ég í møtuneytinu og ætladi ad fá mér tómatssósu med matnum. Svo ég tók tómatssósufløskuna sem var úr gleri og tá bara BLÚBB!!! Sprakk heil tómatssósuloftbóla og diskurinn minn var allur takinn tómatssósu og allir fóru ad hlægja. En tetta var nú smá útúrdúr. En tómatssósan var sem sagt í glerfløsku á tessum stad sem vid vorum á, en ég ákvad nú samt ad gefa henni smá séns, svo ég tók fløskuna og hvolfdi. Ekkert gerdist. Ég hristi fløskuna, ekkert gerdist. Peter reyndi, og ekkert gerdist. Tá sá ég einn grillpinna sem fylgt hafdi matnum og prófadi ad ná sósunni út med honum. Ekkert gerdist. Tá kom ein tjónustustúlkan hlægjandi ad bordinu til okkar og sagdi ad madur ætti ad setja tappann á fløskuna, hrista hana og svo hella. Svo baudst hún til tess ad taka grillpinnan sem var allur útatadur í sósu og henda honum. Já takk. Svo setti ég lokid á fløskuna og hristi og hvolfdi en ekkert gerdist. Peter ákvad tá ad prófa en ekki vildi betur til en svo ad BLÚBB!!! Allt í einu var peysan mín øll útøtud í tómatssósu, og ég sem sat á móti honum! Ég tók upp servíettu og byrjadi ad turrka peysuna mína, skellihlægjandi. Tá heyrdust allt í einu tessu tvílíku hlátraskøll bakvid okkur og vid Peter litum vid, og tá stódu tvær tjónustustúlkur í dyrunum og skellihlógu ad okkur. Svo komu tær med blautt bréf handa mér og budust til tess ad hella tómatssósu fyrir mig. Já takk. Svo eftir ad hafa bordad í dálitla stund vantadi mig meiri tómatssósu, en ég ákvad samt ad láta allt slíkt vera og bordadi frønskurnar turrar...
---
Um kvøldid kíktum vid Peter svo adeins í bæinn en stoppudum ekki lengi vid, tví stefnan var tekin á tívolí daginn eftir og varla gáfulegt ad drekka mikid fyrir slíka før...
...
Daginn eftir, eftir syndsamlega gódan morgunmat, var haldid í Liseberg, tívolíid í Gautaborg.
---
Eitt innskot: Liseberg er 50 metra frá Hotel Gothia Towers og sést tví vel frá hótelinu. Tegar vid Peter vorum nýkomin á hótelid fyrsta kvøldid okkar í Gautaborg, tá var algjørt myrkur úti. Minn ágæti kærasti leit út um gluggann á herberginu okkar og sagdi "Hey ég sé stóra rússíbanann í tívolíinu út um gluggann!!!" "Nú já, snilld!" sagdi ég sem stód hinum megin í herberginu og nennti ekki ad kíkja út um gluggann. Morguninn eftir, tegar sólin var farin ad skína, litum vid aftur út um gluggann til tess ad sjá rússíbanann í dagsljósi og tá blasti vid okkur tetta:
"Rússíbaninn" hans Peters! (Gløggir lesendur sjá ad tad er enginn rússíbani á myndinni, tívolíid er nefnilega hinum megin vid húsid...).
---
Eftir ad hafa verid í Liseberg fórum vid inn í bæinn og fengum okkur ad borda og nutum lífsins.
Peter vid einn kanalinn.
Jájá.
Ég vid kanalinn.
---
Á mánudeginum gerdum vid mest lítid, tékkudum okkur út af hótelinu og røltum um og sløppudum af. Fórum svo í flughøfnina sem er 30 sinnum minni en Keflavík, tad voru ekki nema fjórar búdir tar... Eftir 20 mínútna seinkun á flugi komumst vid svo heil og á høldnu aftur heim til Kaupmannahafnar.
---
Já tar hafid tid tad børnin gód! En núna verd ég ad drífa mig til Vanløse og laga til, Hildur Eva ætlar nefnilega ad koma til mín tangad tví stefnan er tekin á djammid í kvøld, vúhú!
Vid heyrumst! Bestu kvedjur, Anna panna.
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, maí 15, 2008
föstudagur, maí 09, 2008
ÉG...
... er farin til Gautaborgar!!!
Ég veit ekki hvort Dankortid mitt (debetkortid mitt) virki í Sverige, og ég veit heldur ekki hvort síminn minn virki (hann virkar nú reyndar varla í Danmørku heldur, en tad er nú ønnur saga).
Mamma, ég hafdi ekki tíma til ad hringa aftur í gær, tví vid Peter (hann bannadi mér ad skrifa Pési tegar hann leit hérna yfir á skjáinn hjá mér) budum Hildi í grill og svoleidis, en ég sendi tér sms frá Svítjód og hugsanlega fáid tid póstkort frá mér. Ég ætla allavega ad skrifa póstkortid, vid sjáum svo til hvort ég sendi tad, tví tad eru engin pósthús í Svítjód.
Hrafnhildur, vid spjøllum saman tegar ég kem aftur heim :) Er ekki enn búin ad ná í kallinn, en ég reyni aftur í næstu viku.
En jæja, best ad fara ad arka út í flugstød, tad tekur einungis 12 mínútur ad ganga tangad hédan frá íbúdinni okkar, lúxus ;)
Fyrir tá sem ekki vita, tá er um 23 stiga hiti núna í Kaupmannahøfn og ødru eins spád fyrir helgina í Gautaborg. Vúhú!
Bid ad heilsa ykkur øllum ;) Bestu kvedjur, Anna og Peter
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, maí 09, 2008
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, maí 01, 2008
Eniga meniga
Það er alltaf gaman að eiga meiri pening en maður heldur, vúhú!
Stóð einmitt í hraðbanka áðan og var að taka út pening fyrir leigunni og prentaði svo út kvittun svona eins og ég geri alltaf. Nei bíddu nú við, þetta var nú eitthvað skrítið. Ég átti allt í einu miklu meiri pening heldur en ég hélt ég ætti, hvað var eiginlega í gangi? Kíkti svo á heimabankann minn og sá að ég hafði fengið ágæta summu útborgaða frá þvottahúsvinnunni sem ég var í í janúar 2007... Say what??? Reyndar á ég inni einhverja orlofspeninga hjá þeim en ég hélt ég þyrfti að senda orlofskortið mitt til þeirra, ma-ma-maður áttar sig ekki á þessu. Ég þarf að reyna að komast til botns í þessu máli.
Svo þennan mánuðinn ætla ég að njóta þess að vera nýríkur Íslendingur. Því ég fékk nefnilega líka, mér að algjörum óvörum, marga og óvænta yfirvinnutíma útborgaða frá Nettó þennan mánuðinn, og ég sem hef ekki tekið að mér auka vakt síðan í október eða eitthvað! Ég spurði yfirmann minn í gær hverju þetta sætti eiginlega, hvort það væri nú búið að troða mér í meira en 100% vinnu án þess að láta mig fatta það... Yfirmaðurinn átti nú engin svör við því, sagði að þetta gætu þess vegna verið yfirvinnutímar frá því í desember eða janúar því árinu er skipt niður í fjögur tímabil. En það getur því miður ekki passað því ég var í fríi hálfan desember og hálfan janúar og lifði á hafragraut fram í mars til þess að rétta fjárhaginn aftur við, en engar aukavaktir hef ég tekið.
Ég ætla að eyða öllu þessu nýtilkomna ríkidæmi mínu í fríhöfninni eftir akkúrat viku og einn dag, ójá!
En jæja, verð að drífa mig, verð að reyna að ná ferskleikanum upp eftir glæsilegt miðvikudagsdjamm í gær, því ég er að fara í mat til tengdamömmu.
Við heyrumst ástarpungarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna Banana
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, maí 01, 2008
Flokkur: Danmark