föstudagur, júlí 28, 2006

Jahú

Heilir tveir dagar síðan ég bloggaði seinast og dyggir aðdáendur farnir að kvarta. Svo auðvitað bregst maður fljótt og vel við og hendir inn eins og einni bloggfærslu.

Annars ákvað ég að ég gæti nú ekki verið minni manneskja en hann litli bróðir minn (sem er annars miklu hærri en ég) og ákvað ég því að telja öll komment sem ég fékk í júní-mánuði og hæla þeim sem eiga flest kommentin.

Leikar fóru svo:

Í 1.-2. sæti eru:


Elín Ósk Magnúsdóttir (þessi mynd er alls ekki stolin og ég klippti alls ekki hinn hausinn út af henni)

Lilja Níelsdóttir (þessi mynd er heldur ekki stolin og það er alls ekki búið að klippa annan haus út af henni)

Í 3. sæti er:


Kristinn Björn Haralsson, litli bróðir minn! Því miður átti ég enga mynd af gaurnum, nema einhverjar sem eru svo gamlar að hann er miklu minni en ég á þeim, svo ég set því mynd af Grænavatni hér í staðinn... Já, þetta er Grænavatn, myndin er tekin úr garðinum heima :)

Annars fátt að frétta sosum. Fyrir utan að ég fékk afmælispakka frá fjölskyldu minni í dag, sem er by the way sætasta fjölskylda í heimi, ég get svoleiðis svarið það! Já, ég fékk sendan Da Vinci kóðann minn (sem ég gleymdi heima núna í vor!) og síðan fékk ég hollenska/enska enska/hollenska orðabók í afmælisgjöf!!! Og síðan fékk ég sænska krónu frá Friðriki litla sæta brósa og sætt bréf :) Og ökuskírteinið mitt, endurnýjað, og gildir það til ársins 2057... Og síðan fékk ég líka póstkort :) Já, þetta gerði daginn mjög skemmtilegan eftir alveg hreint út sagt hörmulegan vinnudag :D

Jæja, best að fara og taka fötin úr þurrkaranum... Ætlaði að skella mér í sturtu áðan, en fattaði svo að öll handklæðin mín voru í þvottavél svo ekkert varð úr þeim áætlunum. Og síðan ætla ég að pakka. Því að á morgun er ég nefnilega að fara til Hunnebostranden og liggja í sólbaði í tvo daga eða svo! Og já, ég var beðin um að vinna á morgun... Told you so!!!

Munið svo að ég á afmæli á morgun :) 19 ára, úff púff! Tíminn líður! Ég mun sennilega fara að grenja á 20 ára afmælisdaginn minn eftir ár... Nei oj, ég sagði þessa tölu aldrei! Þetta er alveg skelfilegt! Spurning samt hvort þetta er skelfilegra fyrir mig eða foreldra mína, haha, litla stelpan þeirra sem gekk á tánum og borðaði upp úr smjördallinum með skeið er næstum því (ég sagði NÆSTUM því og það mun vera næstum því ansi lengi) farin að ganga á (háum) hælum í staðinn fyrir tám og læra að nota smjör til matargerðar í stað þess að borða það bara. Já, ég held þetta sé mun skelfilegra fyrir foreldra mína.

En jæja, farin að tékka á fötunum mínum! Samasem: Hlaupa niður stigann í 7. skiptið í dag og drattast upp hann aftur í 7. skiptið í dag... (Ég bý á fimmtu hæð og engin lyfta, remember!).

Kærar kveðjur, Bjork Anna (sem er nýjasta nafnið mitt, því fólkið á Gothia Towers veit greinilega ekki að ég er Haraldsdottir líka...)

miðvikudagur, júlí 26, 2006

It's a sunny day!

Ég ætla að byrja þessa færslu á að óska henni Hrafnhildi Ýr til hamingju með afmælið, en hún er orðin tvítug gellan ;) Hálffertug alveg hreint :P Njóttu dagsins vel og vandlega í Þjóðverjalandi, og lifðu í lukku en ekki í krukku :D

Einnig eru aðeins þrír dagar í að ég verði 19 ára, eða hálf þrjátíuogátta ára. Og gerist það sem sagt þann 29. júlí. Og hvurnig skal halda upp á afmælið? Tjah, ég hef um akkúrat tvennt að velja.

1. Fara á bar ásamt hinum Nordjobburunum og halda sameiginlega upp á afmælið okkar Hönnu frá Finnlandi, en hún á afmæli þann 30. júlí. Drekka vondan bjór og vonast til að hitta sæta gaura.

2. Fara á ströndina í Hunds-blablabla-stranden sem er í um tveggja klukkustundaakstur fyrir utan Gautaborg. Gista þar í sumarhúsi sem foreldrar Ragnar (gaursins sem á íbúðina) eiga. Liggja í sólbaði, verða alveg heví-brún, spila strandbolta með stæltum kroppum og synda í sjónum. Hugsanlega og kannski verður yngri bróðir hans Ragnars einnig á staðnum, og ef hann líkist stóra bróður sínum eitthvað í útliti, tjah, þá mun mér nú ekki leiðast mikið!!!

Já, ég er nú ekki það vitlaus að ég þurfi að hugsa um hvorn kostinn ég ætla að velja! Það verður að sjálfsögðu númer tvö, gott að komast aðeins út fyrir bæinn og slappa pínu af og synda í sjónum :)

(Útskýring fyrir foreldra mína: Mamma hans Ragnars hringdi í mig áðan og sagði að þau hjónakornin væru í þessu sumarhúsi og myndu vera þar þar til 7. ágúst og þau buðu mér að koma og gista hjá þeim, muna bara eftir handklæðum, því þarna er strönd og fólk og strandbolti og gaman gaman og gott veður og ég veit ekki hvað og hvað... og þeim þætti alveg afskaplega gaman ef ég myndi koma og heimsækja þau :) )

Svo auðvitað verður það kostur tvö. Þá hef ég líka virkilega góða afsökun þegar ég verð beðin um að vinna á laugardaginn og sunnudaginn, frídagana mína, því það mun pottþétt gerast, sannið bara til! Ég þori varla að fara inn á skrifstofuna lengur eða láta yfirmenn mína sjá mig einhversstaðar því það er alltaf verið að biðja mig um að taka aukavaktir ;) Og það hljómar betur að segja: "Nei sorrí, ég verð ekki í bænum" heldur en að segja: "Nei því miður, ég er að fara út á laugardagskvöldið og ætla seint að sofa og get þess vegna ekki mætt í vinnu á sunnudaginn".

Ég hef annars ekkert á móti því að vera sveigjanlegur starfskraftur. En þegar vinnan er að þrífa hótelherbergi og að gera sömu hlutina aftur og aftur og aftur og aftur, tjah, þá nenni ég eiginlega ekki að vinna meira en nauðsynlegt er.

Og gleðifréttir: Síðasti vinnudagurinn minn er 20. ágúst :D Eftir þann dag ætla ég ALDREI AFTUR Í MÍNU LÍFI að þrífa hótelherbergi. Það er samt eiginlega alls ekki svo leiðinlegt að þrífa, síður en svo, það er eiginlega mjög gaman ef eitthvað er! En 14 herbergi á dag í þrjá mánuði (maður er samt ekkert að vinna alla daga!) og maður er alltaf í kappi við tímann, maður fær eiginlega alveg nóg...

En jæja, best að fara og bíða með óþreyju eftir FOOTBALLER'S WIVES sem byrjar eftir einn og hálfan klukkutíma!!! Já, ég hélt ég myndi gera alla heyrnarlausa í húsinu í síðustu viku þegar ég uppgötvaði að þeir sýna Footballer's wives hérna!!! Þvílík voru nefnilega öskrin...

Knús og kossar til ykkar allra og geheggjaðar afmæliskveðjur til Hrafnhildar :) Anna Björk

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Dejlige Dejlige Danmark, part 3

Og núna kemur lokapartur sögunnar:

SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006

Við vöknuðum snemma og pökkuðum. Og tékkuðum okkur út. Og fórum síðan til Hovedbanegården þar sem við tróðum töskunum okkar í farangursgeymslur. Síðan fór ég og spásseraði um bæinn í smá tíma. Eftir um klukkutíma hittumst við síðan öll (eða allar) við Amalienborg þar sem við fórum í smá gædaðan túr um eitthvað safn. Það var ágætt.

Síðan fóru allir á tyrkneskan veitingastað, nema ég. Ég fór í 7-eleven og keypti mér samloku.

Við hittumst síðan aftur á Hovedbanegården klukkan tvö. Lestin kom síðan eitthvað yfir tvö. Reyndar var einhvern ruglingur með númerin á vögnunum og við fundum ekki vagninn okkar. Og ég var svo stressuð að missa af lestinni (ekki að það hefði verið neitt slæmt samt, hahaha) að ég tróð mér bara inn í einhvern vagn og allir fylgdu á eftir. Og við skulum bara orða það svo að lestin var TROÐFULL og ég gat varla hreyft á mér litla puttann!! En síðan fækkaði fólkinu eftir því sem stoppin urðu fleiri, og tókst okkur að finna vagninn okkar á milli Hovedbanegården og Malmö... ha ha.

En síðan var lestinni allt í einu "aflýst" og við þurftum að hoppa úr í Malmö og strunsa sem mest við máttum langa leið að næstu lest. Og sú lest er sú lengsta sem ég hef á ævi minni séð, alveg mörg hundruð metrar! Og okkar vagn var AÐ SJÁLFSÖGÐU aftasti vagninn... En já, við sprettum aðeins úr spori og náðum lestinni í tæka tíð.

Og síðan var það búið.

Já, ferðin gekk eins og í lygasögu, enginn gerði tilraun til að ræna mig/mér, veðrið var alveg æðislegt og já, Danmörk er bara svo æðisleg!

Og núna koma myndirnar:

Pas på tyverier via vinduet!!!

Þessi mynd er handa mömmu... Hálf búslóðin með í för og ég búin að dreifa henni svona fallega út um allt... Já, sumir breytast aldrei ;)

Aarg, man ekki nafnið á þessari kirkju... Marmarakirkjan?


Ég fyrir utan Amalienborg (konungsfjölskylduheimilin), sem ég ákvað að yrðu aldrei mín framtíðarheimili fyrst maður má ekki einu sinni ákveða litinn á veggjunum sjálfur, hvað þá að færa til húsgögnin... :S

Eitt af húsunum við Amalienborg


Alveg með pósurnar á hreinu skal ég segja ykkur!

Jájá

Jæja, þannig var nú það! Hafið það gott :) Anna Babe

mánudagur, júlí 24, 2006

Dejlige Dejlige Danmark, part 2

Jæja, áfram skal haldið þar sem frá var horfið!

LAUGARDAGURINN 22. JÚLÍ 2006

Þar sem ég afrekaði það að koma ekki heim á vandræðaheimilið aftur fyrr en klukkan níu um morguninn, og tölvustýrða lyklakerfið á vandræðaheimilinu bilaði svo enginn gat farið inn í herbergin sín eða á klósettið (sem var tölvulyklastýrt), þá náði ég ekki að taka mig til í tæka tíð fyrir Christianiu-ferðina. Ég komst nefnilega inn í herbergið mitt klukkan 9:25 og það lagt af stað klukkan 9:30. En ég nennti nú ekki að gráta það mikið, heldur fór bara að sofa.

Ég var síðan mætt í miðbæinn um 16-leytið. Ég nennti nú ekki að gera neitt annað að njóta þess að vera dönsk (hefði samt getað farið ókeypis á flest söfn borgarinnar með Kaupmannahafnarpassanum mínum). Um 19-leytið fór ég síðan aftur á vandræðaheimilið, og klukkan 20 fór ég ásamt Nordjobb-grúppunni á Islandsbryggen, sem er svæði í Kaupmannahöfn. Þar örkuðum við á pitsustað og pöntuðum okkur pitsur. Afgreiðslumennirnir sögðu reyndar að ein meðalstór pitsa væri allt of mikið fyrir eina manneskju, en við hlustuðum ekki á svoleiðis bull og pöntuðum 7 stykki, allt á kostnað Nordjobb. Frá því er skemmst að segja að pitsurnar voru allt of stórar. Við hlógum okkur líka næstum til óbóta þegar við sáum 3 stælta karlmenn koma trítlandi út með eina meðalstóra pitsu sem þeir ætluðu að deila með sér... Já, svo stórar voru pitsurnar!

Ætlunin var síðan að fara á skemmtistað og sletta ærlega úr klaufunum, en sökum mikillar þreytu og takmarkaðs áhuga á áfengisdrykkju, þá ákvað ég að fara bara heim að sofa um 23-leytið en hin fóru og dönsuðu frá sér allt vit.
Og nú koma myndirnar:

Vandræðaheimilið mitt


Ég í Nyhavn


Fallega fallega Nyhavn

Lifandi tónlist í Nyhavn



Þessi er tekin á Strikinu

Hovedbanegården


Pitsuát á Islandsbryggen

Dagur að kveldi kominn

Ég var bláedrú, en eitthvað var myndatökumaðurinn búinn að smakka vínið og lét mig pósa svona...

Sunnudagurinn kemur kannski á morgun!

Ástarkveðjur, Anna B

sunnudagur, júlí 23, 2006

Dejlige Dejlige Danmark!

Komin heim (til Gautaborgar) úr hinni æðislegu Kaupmannahöfn, grenj :'( Ég elska Danmörku, ég elska Danmörku, ég elska Danmörku, ÉG ELSKA DANMÖRKU!

Og þar sem þið megið að sjálfsögðu ekki missa af einu augnabliki úr mínu lífi, þá ætla ég að skrifa ferðasöguna hér í grófum dráttum! Fögnum því! :D

Byrjum á svona samantekt, og síðan ætla ég að skella myndunum inn.

FÖSTUDAGURINN 21. JÚLÍ 2006

Við (ég, Venla, Paula, Anne, Elina, Nora og Elise) vorum komnar til Kaupmannahafnar um 12-leytið. Við byrjuðum á að skella okkur á vandræðaheimilið okkar (vandrerhjem, farfuglaheimili) sem var við Belle Center á Vest-Amager sem er um 4 kílómetra fyrir utan borgina. Til að komast þangað þurfti að taka s-tog frá Hovedbanegården til Nørreport og þaðan metro til Belle Center. Þaðan þurfti síðan að taka rútu í nokkrar mínútur og þá var maður kominn á vandræðaheimilið.

Eftir að hafa kastað töskunum inn í herbergin (ég var að sjálfsögðu með langmesta farangurinn, risastóra bleika ferðataskan mín var sko það eina sem dugði til undir allt draslið mitt!), þá fórum við aftur í miðbæinn. Þar splittaðist grúppan. Ég tók þá ákvörðun að gera nákvæmlega ekki neitt annað en að spássera um bæinn og njóta þess að vera dönsk og spjalla við Danina og svona. Og vá, hvað Köbenhavn er æðislegasta borg í heimi!

Um kvöldmatarleytið var haldið á tyrkneskan veitingarstað. Ég borðaði nú reyndar ekkert þar. Eftir kvöldmat fór ég síðan aftur á vandræðaheimilið og hvíldi mig smá og tók mig síðan til fyrir hið danska djamm!!! Ég hafði nefnilega haft samband við danskan vin minn (sem ég hafði by the way ekki hitt í þrjú ár) og hann hrifsaði mig með sér í næturklúbb með honum og vinum hans sem hétu allir Kasper og Jesper. Og við skulum bara segja að danskt djamm er GEGGJAÐ!!! Aðgangseyririnn í klúbbinn var 75 DKK fyrir kvenkyns og 150 fyrir karlkyns (don't ask me why!), og þegar inn var komið gat maður drukkið eins mikið og maður vildi af (vatnsþynntum) bjór og kampavíni sem var allskonar á litinn. Þannig að fyrst var strunsað á barinn (mín áfengisdrykkja var öll í góðu hófi samt!) og klukkan hálftvö var farið á dansgólfið þar sem hendur hreyfðust, rassar hristust og mjöðmum var skotið í allar áttir af miklum móði. Og tónlistin var nú ekkert KaffiAk eða Dátinn, nei onei! Þetta kallar maður sko EKTA GEGGJAÐ FRÍKAÐ GÓÐA DANSTÓNLIST!!! Vá, segi ég nú bara! Og næst þegar ég kem við heima á Fróni, þá skal ég kenna ykkur fullt af geggjuðum "múvum" sém ég lærði þetta kvöld. Sem dæmi um hreyfingar má nefna "ekki missa slímið" og "að tína epli af tré" (ég bjó til nöfnin sjálf).

Og nú koma föstudagsmyndirnar:



Séð frá stoppistöðinni í Belle Center


Við fórum og fengum okkur pitsu

Ég í Kaupmannahöfn

Ráðhúsið

Á tyrkneska veitingarstaðnum

Bjútí bjútí við Belle Center


Ég og Venla á Hovedbanegården

Ég með pósurnar á hreinu

Við að reyna að vera ofurlítið danskar

Jájá

Sólarupprás á ströndinni

Já, þetta var sem sagt föstudagurinn í mjög grófum dráttum. Laugardagurinn kemur vonandi inn á morgun og sunnudagurinn kannski líka :)

Knus og kram! Anna den danske :)

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Monní monní

Jæja, þá er launaseðilinn fyrir júní kominn í hús, þó fæ ég peningana ekki fyrr en þann tuttugastaogfimmta þessa mánaðar.

Við skulum bara segja að seðilinn var ekkert til að hrópa húrra fyrir, hehemm. En ég var nú alveg búin að búa mig undir það, maður fer nú ekki í Nordjobb til að græða böns of monní ;)

Já, þetta er held ég það eina merkilega sem ég hef að segja í dag, svei mér þá!

Jæja, best að halda áfram að horfa á Britains Next Topmodel! Hagið ykkur vel :) Anna Björk

þriðjudagur, júlí 18, 2006

I HAVE A WINDMAKER :D

Í dag fór ég og keypti mér "windmaker". Og ekki af minnstu gerðinni. Ónei, hér í hitanum dugar ekkert annað en risavifta með 40 cm stórt vænghaf! Reyndar hefði minni vifta svo sem alveg dugað, en tæknilega séð var þesssi ódýrust, því hefði ég keypt minni, þá hefði ég hvergi getað haft hana því hér á heimilinu er alvarlegur skortur á borðum og hillum af öllu tagi. Þessi frábæra vifta getur nefnilega staðið alveg sjálf á gólfinu og getur verið allt frá 100 cm upp í 127 cm há. Ekki amalegt það! Og hún kostaði skitnar 198 SEK. Ég elska viftuna mína. Reyndar er hún svo öflug að það gæti allt eins farið svo að ég vakni með kvef einn daginn... hahaha. Því ég ætla að sjálfsögðu að nota hana þegar ég sef, til þess keypti ég hana nú!

Ég að drösla ferlíkinu heim

Og síðan var að púsla... það tók ekki nema svona 45 mínútur...

Unaður

Í dag bókaði ég síðan lestarmiða og fór svo í smá "window-shopping". Ætlunin var síðan að kaupa mér augnblýant, en ég fann engan sem ég var fyllilega ánægð með. Því aðal augnblýanturinn minn er nefnilega ennþá týndur! Þess vegna hef ég síðustu daga notað einn gamlan sem ég hef átt aaansi lengi. Já, ég hef átt hann svo lengi, að hann var með í för síðast þegar ég fór til Danmerkur! Sem var fyrir rúmur þremur árum síðan, hósthóst. Og svo virðist vera sem hann fari með aftur núna! Talandi um góða endingu...

Svona var veðrið í dag

Jæja, best að fara að sofa og prófa nýju viftuna! Ekkert smá þægilegt þegar maður lætur hana hreyfast svona til og frá, því hún er jú svo mögnuð að geta hreyft sig um heilar 90 gráður ;)

Góða nótt ástarpungar! AnnaHaralz

mánudagur, júlí 17, 2006

Mánudagur - frí :D

Góðir hálsar og aðrið líkamspartar! (Þið megið hlægja núna)

Þá er það búið og gert, flugmiðinn pantaður og hananú.

Ferðaplan? Tjah, ódýrt og gott skulum við bara segja :) Ég er alveg ótrúlega sátt, gæti ekki verið sáttari við þessa frábæru planeringu mína.

Annars lítur hún nú í grófum (eða eiginlega frekar fínum) dráttum svona út:

24. ágúst 2006
Göteborg-Köbenhavn (train) 7:40-11:37
Köbenhavn-Amsterdam (flight) 14:55-16:20
Amsterdam-Den Bosch (train) 17:13-18:15

Og allur pakkinn á svona 12.000 IKR (sem ég þarf reyndar ekki að borga sjálf).
Og segið svo að ég kunni ekki að skipuleggja! :D Ætla í Central-stationið á morgun og kaupa lestarmiðana, en það verður nú ekki mikið mál, ég er búin að dobbúl-tékka á að allt standist og að það sé laust pláss í lestarnar :) Og ég er meira að segja búin að spyrja hvort ég geti haft lestarmiðann minn í Amsterdam opinn, svona ef ég skyldist týnast á flugvellinum... Og það er að sjálfsögðu ekkert mál (bæði að hafa miðann opinn og fyrir mig að týnast).

Annars er fátt að frétta. Þessi frídagur minn fór nú ekki allkostar í nytsamlega hluti. Ég vaknaði klukkan átta og hékk heima þar til klukkan tólf og dundaði mér við fegrunaraðgerðir af ýmsu tagi sem hún móðir mín er nú annars vön að sjá um.

Eftir dúlleríið ákvað ég síðan að mig langaði til að skila skóm sem ég keypti í síðustu viku, svo ég arkaði út í skóbúð, þrútin í framan og ógreidd og ómáluð með öllu. Í skóbúðinni hitti ég fyrir gellu sem tók það absolút ekki til greina að taka skóna til baka, enda "greinilega búið að ganga á þeim úti sko!". Sem var nú reyndar alveg satt, og eiginlega alveg mjög satt því ég var búin að nota skóna frekar mikið.´

En ég var nú ekki á þeim buxunum að gefast upp, enda heilar 180 SEK í húfi, og arkaði því heim aftur, skellti mér í sturtu og fleyginn bol og klíndi á mig make-uppi, og strunsaði síðan aftur í skóbúðina. Þar blikkaði ég myndarlegan ungan afgreiðslumann sem tók við skónum möglunarlaust og án þess að svo mikið sem að líta á sólana á þeim. Já, um að gera að nota það sem maður hefur ;)

Og því næst fór ég sem leið lá, 180 SEK ríkari, beint í næstu snyrtivöruverslun og splæsti þar í fegurðarvörum af ýmsu tagi með góðri samvisku. Jahú!

4 dagar í Köpenhamn baby! Ég veit nú reyndar ekki hvursu mikið ég mun fylgja hópnum í þeirri ferð, en þó ætla ég að sjálfsögðu að skella mér í Kristjaníu með liðinu!

Christiania, já. Reyndar er smá pressa á mér fyrir þá heimsókn, og bíður öll fjölskyldan spennt heima á Íslandi eftir að fá að vita hvernig sú ferð fer.

Nei, ég er ekki að fara að reykja hass. Bíð með það þar til ég fer til Amsterdam og kaupi mér hash-brownie.

En já. Sagan er sem sagt sú að vorið 2003 fór ég með bekknum mínum (var í 10. bekk í grunnskóla) til Danmerkur og við fórum meðal annars í Kristjaníu. Á meðan bekkjarfélagar mínir skoðuðu hasspípur af miklum móð, þá hafði ég meiri áhuga á að skoða alls konar boli sem voru þarna til sölu, enda hafði ég hugsað mér að kaupa einn slíkan handa stóra bróður mínum (Einari) sem minjagrip. Þarna gramsaði ég í gegnum boli sem allir höfðu tilvísanir í hass og maríjúana, en ég hafði satt best að segja engan spes áhuga á að kaupa slíkan bol.

Og síðan sá ég hann. THE BOLUR! Hvítur með bláa Ford-merkinu, fyrir utan að það stóð ekki "Ford" á merkinu heldur "Fuck". Eftir smá umhugsun og pælingar hvað varða stærð (hef aldrei verið góð í að sigta út stærðir) þá splæsti ég í einum bol á skitnar 100 DKK, og vúla, bolurinn passaði fullkomlega :D

Þessi bolur hefur alla tíð síðan vakið mikla athygli og eftirtekt og hefur fólk frá öllum heimshornum dáðst að honum og jafnvel boðist til að kaupa hann fyrir háar fjárupphæðir.

Reyndar var nú frekar skondið þegar ég sýndi familíunni bolinn í fyrsta skiptið. Stóri bróðir minn, eigandi bolsins, sprakk úr hlátri því honum fannst þetta svo geggjað fyndið og töff, og mamma mín sprakk úr hlátri því henni fannst ég svo agalega sniðug og hugmyndarík að kaupa svona fínan Ford-bol! Síðan reyndar fattaði hún að það stæði ekki Ford heldur Fuck á honum... sem framkallaði annað hláturskast...

En já. Í dag er þessi bolur orðinn ansi snjáður og trosnaður greyið, og hefur því öll fjölskyldan sett á mig þá pressu að finna samskonar bol í Kristjaníu. Athugið að það eru 3 ár síðan ég var þarna seinast.

Annars er fátt að frétta, best að fara að sofa! Bestu kveðjur, Anna Be

laugardagur, júlí 15, 2006

Öss maður

Ég er orðin ansi góð í að hugsa á þremur til fjórum tungumálum í einu (sænsku, ensku, íslensku og jafnvel dönsku).

En stundum get ég farið algjörlega út í öfgar í þessari snilld minni og farið aðeins fram úr sjálfri mér. Eins og t.d. í morgun.

Ég var uppi á 14. hæð að þrífa hótelherbergi. Í næsta herbergi við mig var Tero, Finni sem talar ekki sænsku, á fullum gangi með að þrífa hótelherbergi. Til þess að þrífa baðherbergin notum við venjulega gula svampa. Allt í einu tók ég eftir að ég var með tvo svampa í þrífingarfötunni minni, þrátt fyrir að hafa bara tekið einn með mér um morguninn, og gekk ég því inn til Teros og var næstum því búin að spyrja: "Is this mushroom yours?"

Já, kæra fólk! Þessa setningu bjó ég til í algjöru hugsunarleysi, og sem betur fer æfði ég hana rétt áður en ég ætlaði að segja hana.

Fyrir þá sem ekki skilja af hverju ég var næstum búin að kalla svampinn svepp, þá er sagan sú að "svamp" á bæði dönsku og sænsku þýðir "sveppur" ("svamp" þýðir reyndar líka svampur á sænsku). Og því beinþýddi ég "Är den här svamp din?" sem "Is this mushroom yours?".

Og í dag ætlaði ég á bóksafnið (sjá mynd hér til hliðar), sem lokaði að sjálfsögðu klukkan fimm. Bömmer! En ég fer þá bara á mánudaginn (lokað á sunnudögum). Annars er planið að liggja í sólbaði á mánudaginn og þriðjudaginn, aðeins að lífga brúnkuna við aftur. Hins vegar nenni ég ekki að fara í Saltholmen (ströndina) til þess, enda tekur það 40 mínútur að fara þangað með sporvagni. Held því að ég skelli mér bara í Kungsparken í staðinn. En þá er spurningin: Er nekt bönnuð á almannafæri hér í Svíaveldi? Því mér dettur að sjálfsögðu ekki í hug að vera í neinu sem hylur efripartinn, langar nefnilega ekkert sérstaklega til að fá bikinífarið aftur (sem hvarf blessunarlega um daginn í öllum sólböðunum mínum í Slatholmen). Ha ha, mikið held ég að foreldrar mínir myndu hlægja í mörg ár ef ég hringdi í þá og segði: "Hey hæ! Heyrðu, ég var tekin föst fyrir nekt á almannafæri... nennið þið nokkuð að redda mér?".

Þessi var ekki tekinn fastur fyrir nekt á almannafæri

Annars er nú fátt að frétta. Ég er svo gott sem búin að plana ferðina mína til Hollands, ódýra og þægilega, þarf bara aðeins að ræða við gellurnar á Aðalbrautarstöðinni hér í Svíþjóð og tékka á hvenær dags farnar eru lestarferðir frá Amsterdam til 's-Hertogenbosch. Flugmiðann ætla ég að panta á mánudaginn. Vúhú :D

Í kvöld á ég síðan að vera stödd einhversstaðar í bænum með öðru góðu fólki, en sökum mikillar þreytu og vinnu í fyrramálið ætla ég að vera félagsskítur og hanga heima með góðvini mínum honum Imbakassa. Jahú.

Bið að heilsa öllum, knús og kram, Anna Be (já, ég heiti Anna Be í vinnunni)

föstudagur, júlí 14, 2006

7 dagar í Danmark baby!

Jahá! Aðeins 7 dagar í Köbenhavn baby! Gleði gleði!

Og vinna á morgun og á hinn, dagana sem ég átti að vera í fríi. En ég fæ mánudaginn og þriðjudaginn fría í staðinn, og er það eiginlega miklu betra en að fá frí núna um helgina því þá líta næstu dagar svona út hjá mér:

Laugardagur: Vinna.
Sunnudagur: Vinna.
Mánudagur: Frí.
Þriðjudagur: Frí.
Miðvikudagur: Vinna.
Fimmtudagur: Vinna.
Föstudagur: Köbenhavn baby!
Laugardagur: Köbenhavn baby!
Sunnudagur: Köbenhavn baby!
Mánudagur: Vinna.
Þriðjudagur: Frí.
Miðvikudagur: Frí.

Sem sagt ekki mikið um vinnu á næstunni, vúhú :D



Ég í gær

Annars ætlaði ég nú á bókasafnið strax eftir vinnu í dag. Ég lagði leiðina þangað vel og vandlega á minnið í morgunsárið, því Venla bannaði mér að taka kortið mitt með mér. Ekki vill maður nú líta út eins og túristi! En já. Frá því er skemmst að segja að ég gleymdi víst að beygja einhversstaðar og endaði þess vegna allt í einu hérna í Odinsgatan. Án þess að finna bókasafnið. Ó svei, og ég sem ætlaði að tékka á hvort þar væri að finna hollenskar málfræðibækur! Jæja, legg þetta betur á minnið á morgun...

Svona var veðrið í dag

Annars hef ég eitthvað fátt að segja í dag svo ég enda þetta á smá skemmtilegheitum: Sænskir tungubrjótar! Haha, ef þið kunnið sænskan framburð, þá er þetta alveg stórskemmtilegt! Og smá hjálp: Í fyrsta tungubrjótnum, þá er sj eða sjk eða sk ALLTAF borið fram eins og g-ið í íslenska orðinu "og", sem sagt nokkurs konar kokhljóð. Það er ekki allsstaðar gert í Svíþjóð, en það partur af mállýskunni sem töluð er í Gautaborg. Svo já, skemmtið ykkur og munið eftir kokhljóðinu í númer eitt!

1. Sju sjösjuka sjömän sköttes av sjutton sköna sjuksköterskor.

2. Packa pappas kappsäck (segið þetta tíu sinnum í röð!)

3. Knut sat vid en knut och knöt en knut. När Knut knutit knuten var knuten knuten.

4. Flyg, fula fluga, flyg! Och den fula flugan flög.

5. Sex laxar i en laxask (veit nú ekki hvað á að vera svona erfitt við þetta)

6. Kvistfritt kvastskaft (tíu sinnum í röð)

7. Far, får får får? Nej, får får inte får, får får lamm.

8. Dessa dagar kan man inte kalla kalla, de borde heta heta (ég setti þennan inn bara fyrir pabba! Hahaha).

Kærar kveðjur úr Gautaborg frá Önnu B og vinstra hnénu sem er alveg að gefa sig

miðvikudagur, júlí 12, 2006

Det er din mamma! Man måste jo svara på kunnarne...

"Nej men hej mamma! Har du? Vilken affär? Nej vad fint![...]" Vodafone har blivit Telenor!


Hahahahaha... ég hlæ mig vitlausa í hvert skipti sem ég sé þessa auglýsingu, og samt hef ég séð hana svona sjö sinnum á dag síðustu fimm vikurnar. En það er að sjálfsögðu ekkert gaman fyrir ykkur að lesa hana, enda skiljið þið ekki hvernig aðstæðurnar eru, en næst þegar ég hitti ykkur skal ég útksýra þetta allt saman og segja ykkur með hvernig málrómi karlinn talar... Hahahaha...

Annars gerði ég mér margt til dundurs í dag. Ég fór m.a. í klippingu (engar dramatískar breytingar, bara stytta toppinn og laga stytturnar og svona) og sæti gaurinn sem klippti mig var ósköp næs. Þegar ég sagði honum frá því að ég væri að fara til Hollands, þá tók hann djúp andköf og spurði hvort ég gæti ekki tekið hann með. Í kjölfarið spurði hann síðan hvernig mér litist á sænsku strákana. Áhugaverðar samræður á þeim bænum!
Og síðan fór ég á fataráp, móður minni til mikillar gleði! Hún er nefnilega grínlaust búin að tala um það síðustu 5 árin eða svo að ég þurfi nú að fara að kaupa mér föt... En alltaf hef ég þráast við og heimtað að nota gamlar buxur af litla bróður mínum eða eitthvað ámóta praktískt.

En í dag keypti ég fullt af fötum. Satt best að segja missti ég mig algjörlega og keypti mér

  • geggjaðan hvítan bol (hvítur með svörtum og gylltum stöfum og doppum framan á, nær niður fyrir rass, ermalaus með reimar á ermunum sem bundnar eru í nettar slaufur),
  • hvítt gellubelti (hef aldrei átt gellubelti á allri minni ævi, þetta belti er hvítt og svona 7-8 cm þykkt og einhvern veginn fléttað svo það er ekki bara heilstykki),
  • hvíta skó (svona töfflur með ballerínuböndum sem maður bindur upp leggina, ekkert smá flottir og óþægilegir skór),
  • hvíta sokka (geggjaðir úr H&M með ballerínuböndum, mamma, svona eins og ég pantaði mér (og kom aldrei) nema bara með svona blúndumunstri allsstaðar)
  • OG! TATATATA! FULLKOMINN BRJÓSTAHALDARA!!! Já, hann er svartur. Hann er push-up laus. Hann er með klikkað flott snið. Og svei mér þá, hann minnkar á mér brjóstin sem er aðal plúsinn :D:D:D Hann er meira að segja ekki í neinni stærð, hann er bara x-small og passar svo fullkomlega að ég hef bara ekki séð annað eins! Vúhú, núna á ég tvo brjóstahaldara...
Og já. Í þessu fatakasti mínu eyddi ég heilum 568 SEK sem samsvarar u.þ.b. 5700 IKR. Ég vona að ég fari ekki á hausinn. Haha. Djók.
Áðan var ég á tungumálanámskeiði. Það var gaman! Mig langar að verða tungumálakennari.
Planið fyrir morgundaginn? Vinna. Fara á tungumálanámskeið. Komast að því hvernig ég kemst í ódýrari kantinum frá Svíþjóð til Hollands. Fara í sturtu. Sofa.
Annars er allt frábært að frétta hér í Gautaborg! Vá, hvað lífið er yndislegt! Reyndar eru greinilega ekki allir að fíla þetta Nordjobbdæmi. Í júní kom ein stelpa frá Noregi. Hún entist einn dag og tók síðan fyrsta flug heim aftur til Noregs. Fyrir tveimur vikum síðan kom ein stelpa frá Danmörku. Hún entist líka einn dag, og tók síðan fyrsta flug aftur heim. Sem mér þykir reyndar mjög leitt, því hún skyldi dönskuna mína og ég ætlaði svoleiðis að nýta mér það og æfa það tungumál. Svo nú eru bara eftir 3 Íslendingar og nokkrir tugir af Finnum.
En já, lífið er frábært. 9 dagar í Köpenhamn baby, og sú ferð kostar 1000 SEK (10.000 IKR), allt innifalið! Allt þýðir lestarferðin báðar leiðir, fullt fæði (fyrir utan hádegismat tvo daga), Kaupmannahafnarpassi sem gefur frían aðgang í Tívolíið og fleira skemmtilegt, gisting og hvað veit ég. I'm in heaven!
Annars er nú planið að flytja til Danmerkur í febrúar... Ég meina, hvernig gæti ég annað? Danmörk er mitt stærsta áhugamál EVER! Ég meina, sumir elska að tefla og verða stórmeistarar. Aðrir hafa mikla tónlistarhæfileika (ekki það að ég hafi þá ekki líka hehe, en áhuginn greinilega ekki nægur til að gera eitthvað alvarlegt úr því) og verða konsertmeistarar eða hljómsveitarmeðlimir, sumir helga lífi sínu taekwondo og aðrir verða eins og David Attenborough... En ég, ég elska Danmörku. Og þá ætla ég að verða dönsk, vúhú :D Eða já, "dönsk", ég verð að sjálfsögðu alltaf Íslendingur í hug og hjarta, en það er allt í lagi að vera smá dönsk líka ;)
Jæja, nóg af blaðri í kvöld, ég er farin að sofa! Góða nótt rúsínur, Anna den danske

þriðjudagur, júlí 11, 2006

Hífhopp æpti karlinn

Ó nei! Ég er búin að gleyma öllu sem ég ætlaði að segja ykkur! Ohh.

Hrósið í dag hlýtur þó tvímælalaust gaurinn sem ákvað að sofa í allan dag svo ég þurfti ekki að þrífa herbergið hans, vúhú! :D

Á eftir er íslenskt þemakvöld hjá Nordjobb. Frá því er skemmst að segja að tíminn líður svo hratt hér í Gautaborg að ég hélt að kvöldið væri í næstu viku. Ég sem var búin að plana að baka Ísland (skúffuköku-Ísland) og kenna Finnunum að dansa skottís og ræl, en þess í stað verða greyin að svelta og horfa á 101 Reykjavík. Kannski ég bjóðist til að halda annað íslenskt kvöld handa þeim seinna?

Ég er alltaf að rekast á Íslendinga hér í Gautaborg. Áðan þegar ég beið eftir sporvagninum mínum heyrði ég á tal nokkurra Íslendinga. Það var sem sagt frjálsíþróttalið frá Íslandi sem samanstóð af sex 13 ára stelpum og einni fullorðinni konu sem var fararstjórinn. Þarna stóðu þær og blöðruðu út í eitt, reyndar ekki um neitt merkilegt. Ég ákvað að segja ekki orð, heldur hlusta bara og athuga hvort þær færu að segja einhverjar skemmtilegar slúðursögur. Eftirfarandi átti samtals átti sér síðan stað:

Stelpa: Hey, hvenær kemur sporvagninn okkar?
Farastj: Hann kemur eftir 11 mínútur. Það er einn núna sem kemur "nu", haha skondið að hafa svoleiðis á skjánum!
Anna (sem gat ekki setið á sér að skjóta inn orði): Pff, það er nú ekkert að marka þetta "nu", því það mun standa þarna í svona þrjár mínútur...
Fararstj: Já er það? Haha. Smá þögn. HEY!!! ERTU ÍSLENSK????
Anna: Haha já.
Farastj: Nei hvað segirðu! Og býrðu hér í Svíþjóð?
Anna: Já, ég er að vinna hérna núna í sumar.
Farastj: Nei hvað segirðu!!!! OHH, aldrei datt mér neitt svoleiðis sniðugt í hug þegar ég var ung!

Síðan spjölluðum við um ýmislegt þar til ég þurfti að hoppa upp í númer 13 og leiðir skildust.

Og kannski ég segi ykkur frá því hvernig sporvagnatöflurnar virka hér í Gautaborg. Á stærstu stoppistöðvunum eru rafmagnstöflur sem segja hversu margar mínútur eru í að vagn númer eitthvað ákveðið komi. Dæmi:

13 Linnéplatsen via Skånegatan - 6 min
Tveimur mínútum síðar stendur þetta á skjánum: 13 Linnéplatsen via Skånegatan - 7 min
Eftir maaargar mínútur stendur þetta á skjánum: 13 Linnéplatsen via Skånegatan - 1 min
Eftir tvær mínútur stendur þetta á skjánum: 13 Linnéplatsen via Skånegatan - 2 min
Eftir eina mínútu stendur þetta á skjánum: 13 Linnéplatsen via Skånegatan - Nu
Eftir tvær mínútur kemur síðan sporvagninn.

En já, best að fara og leita að augnblýantinum mínum... Ég fann hann ekki í morgun og mætti því ómáluð í vinnuna, og ég vil helst ekki gera það aftur því það eru svo margir speglar í öllum herbergjum að ég varð hálf þunglynd af þessu málningarleysi.
Kærar rigningarkveðjur úr borg Gautanna! Anna Björk

mánudagur, júlí 10, 2006

Þvottadagur!

Í gær fór ég í Liseberg að horfa á Ítalíu-Frakkland. Ég hélt með Frakklandi, ó svei. Reyndar get ég ekki sagt að athygli mín hafi öll verið á boltanum, því í Liseberg hitti ég heilt handboltalið af 14 ára guttum frá Seltjarnarnesi (sem er absolut ekki í Reykjavík, ekki frekar en silungur væri fiskur) og höfðu þeir mikinn áhuga á að spjalla við mig og Finnana. Það var reyndar þrælgaman og skemmtum við okkur konunglega.

Juuso, ég og Venla í Liseberg

Dagurinn í dag fór síðan í hreingerningar af öllu tagi. Ég var heppin og fékk aðeins 10 herbergi í vinnunni á meðan allir hinir fengu 13. Lucky bastard :D En ég var nú samt svo góð og bauðst til að hjálpa öðrum þegar ég var búin með mín herbergi, money money!

Síðan kom ég heim og þreif eldhúsið. Afgangurinn af íbúðinni átti síðan að þrífast í kjölfarið, en ekkert varð úr því sökum þess að ég fann mér nýjan uppáhaldsstað: þvottahúsið! Já kæra fólk, í kvöld var þvottakvöldið mikla, og loksins, eftir að hafa gengið um nærbuxnalaus í tvo daga (já, það var ALLT SEM ÉG ÁTTI skítugt þar sem ég gleymdi helmingnum af mínum þvengjum heima á Fróni... Mamma?), þá á ég hreina sokka og hreint mínípils.

En já. Aftur að þvottahúsinu. Ég hékk þar í allt kvöld, því þvottamálin mín eru ekki neitt óskaplega einföld. Ó nei. Ég þurfti að setja í fjórar þvottavélar, og aðeins tvær vélar eru á staðnum. Þetta þurfti ég sem sagt að þvo: Eina hvíta vél með forþvotti, eina venjulega hvíta, eina dökka og eina rauða. Og sumt mátti fara í þurrkarann og annað ekki og var ég því upptekin við að sortera og skella sumu í þurrkarann og öðru í þurrkuskápinn. Eins sá ég einhverja furðulega maskínu þarna sem hafði engan sjáanlegan tilgang, en að sjálfsögðu þurfti ég samt að prófa hana. Þetta var sem sagt nokkurs konar rafmagnspressurúllujárn (svona eins og við notuðum heima fyrir laufabrauðið, remember! Bara okkar var handknúin...) og fannst mér óskaplega sniðugt að skella koddaverinu mínu í maskínuna og athuga hvort ég fengi það pressað til baka. Frá því er skemmst að segja að það kom krumpað og alveg ógeðslega rykugt til baka út úr þessari annars frábæru maskínu. Stórkostlegt. En þá var bara að dusta smá, og whola! Koddaverið var aftur orðið hreint ;)

En þetta þvottakvöld mitt var alls ekki leiðinlegt, því ég komst nefnilega að því að þvottahúsið bíður upp á ansi marga möguleika! Það er nefnilega frekar stórt og hljóðbært og fannst mér því vel við hæfi að syngja "Oops I did it again" með Britney Spears fullum hálsi (var með mp3 spilarann með mér) og taka nokkur vel valin dansspor við. Þegar ég var búin að öskra úr mér röddina, þá fór ég að æfa púmse (taekwondo). Reyndar er einn galli á gjöf Njarðar og hann er sá að það eru ansi stórir gluggar á þvottahúsinu... En pff, ef fólk vill ekki sjá aðra dansa eggjandi dans við Britney Spears lag, þá á það bara ekkert að vera að glápa inn um glugga... ;) (og nú kemur tvöfalt enter sem vill ekki virka)
Ég hef ekki oft á ævinni brotið glas, en í gær tókst mér að brjóta tvö. Annað vægast sagt SMASSAÐIST á ganginum á fjórðu hæð í vinnunni (það var ekki gaman að ryksuga það upp, oj) og hitt braut ég hérna heima voða pent. Það var sem sagt tunnburstaglasið hennar Venlu sem brotnaði mjög fallega og fundum við alla bitana nema einn. En við hljótum að finna hann næst þegar við förum í sturtu, hehh... (og nú kemur aftur tvöfalt enter sem vill heldur ekki virka)
Og já. Lappirnar á mér eru allar útbitnar af einhverjum ljótum skordýrum, sennilega einhversskonar flóm. Ljótt er það! Og mig klæjar. Og þetta er ekki fallegt, það mætti halda að ég væri með sárasótt eða eitthvað þaðan af verra, því þetta er stórt, rautt og upphleypt. Ég vorkenni sjálfri mér, en dettur þó ekki í hug að fara að ganga í síðbuxum bara til að forðast einhverjar flær! Pff. (tvöfalt enter)
En jæja, best að fara að sofa í hreina rúminu mínu svo ég sofni ekki í einhverju herberginu í vinnunni á morgun... Haha, það væri samt húmor í því!
Kærar kveðjur héðan úr Gautaborg, AnnaBjorkHaraldsdottir

sunnudagur, júlí 09, 2006

HOLLAND BABY!!!

Já, þið heyrðuð rétt, Holland! Ég er búin að ráða mig sem au-pair þangað í nokkra mánuði og fer þangað í lok ágúst.

Ég þurfti reyndar að fletta upp í World-Atlasinum mínum (sem ég tók að sjálfsögðu með til Svíþjóðar) til að finna út hvar í heiminum Holland er staðsett. Ég vissi jú að það er í Evrópu og einhversstaðar nálægt Þýskalandsklessunni (Þýskalandsklessan = Þýskaland, Austurríki, Sviss, Lúxemborg og fleiri litlar klessur). En að það væri þarna rétt hjá Bretlandi, það vissi ég ekki.

Bærinn sem ég fer til er svipað stór og Reykjavík og heitir 's-Herogenbosch og er kallaður Den Bosch.

Holland. Hvað veit ég eiginlega um Holland? Jú, landið er alveg flatt (eins og Danmörk, vúhú!) og 1/4 hluti landsins er undir sjávarmáli. Tungumálið er alveg skelfilegt og fólkið gengur um í tréklossum.

Svo ég held að málið sé algjörlega að kaupa sér tréklossa og tala bjagaða þýsku, þá fattar enginn að ég er útlendingur.

Hollenska er nefnilega, að ég held, mjög svipuð þýsku, bara með meiri hrákahljóðum. Eða að minnsta kosti get ég lesið hollensku aldeilis ágætlega. Ætli þetta verði þá ekki sama sagan og hér í Sverige; Ég tala dönsku og þá tala ég sænsku eftir tvær vikur. Ég tala þýsku og þá tala ég hollensku eftir tvær vikur. Ekki mjög flókið reikningsdæmi. Hins vegar vil ég nota tækifærið og biðja foreldra mína um að svipast um eftir íslenskri/hollenskri og hollenskri/íslenskri orðabók, þótt ég efist reyndar um að slíkt sé að finna á hverju strái.

Eins vil ég nota tækifærið og biðja hann föður minn um að yfirfara tryggingarnar (hehe, aftur) og hana móður mína um að tékka á hvort ég sé með allar sprautur og allt slíkt. Haha, þau eru nýbúin að þurfa að gera þetta fyrir mig, og nú þurfa þau að gera þetta allt saman aftur!

En ég ætla nú ekki að tala um Holland í allan dag. Sussu nei.

Fyrir þá sem ekki vita, þá eru allar mínar bloggfærslur vel og vandlega úthugsaðar áður en þeim er þrusað inn á veraldarvefinn. Ég eyði oft mörgum klukkutímum í að pæla í hverju mig langar til að segja ykkur frá. Það er til dæmis mjög auðvelt að láta hugann reika í vinnunni. Þessi hugarstormur er mjög nauðsynlegur fyrir margra hluta sakir:

- Þá eru minni líkur á að ég segi ykkur í fljótfærni frá einhverju alveg hundleiðinlegu
- Þá eru minni líkur á að ég segi ykkur eitthvað sem kemur ykkur ekki svo mikið við
- Þá verða brandararnir betur útpældir
- Þá hef ég nægan tíma í að finna einhver flott orðasambönd til að troða einhversstaðar inn í færslurnar
- Þá sit ég ekki í þrjá klukkutíma fyrir framan skjáinn og reyni að sjóða saman færslu sem verður hundleiðinleg, kemur ykkur alls ekki við, brandaralaus og ekki með neinum flottum orðasamböndum.

En nú skulum við reyna að koma okkur að kjarna málsins.

Í dag eyddi ég miklum tíma í að hugsa um færslu dagsins þar sem ég skipti um á rúmum og skrúbbaði klósett í gríð og erg. Þetta var eftir hádegi og dagurinn hafði verið erfiður með eindæmum, öll herbergin skiptiherbergi og aukarúm (þriðja rúmið) í öllum herbergjunum sem tafði alveg endalaust mikið fyrir. Í hádeginu hafði ég talað við nokkra félaga mína og voru þeir allir búnir að gera svona 3-4 herbergi, af 13! Ég var aðeins betur stödd, enda búin að hamast á milljón allan morguninn og var þar af leiðandi búin með heil 6 herbergi. Um þetta hugsaði ég svo vel og vandlega þar sem ég þreif herbergin eftir hádegið og þakkaði mínum sæla yfir að ég skyldi hafa verið svona dugleg um morguninn svo ég kæmist vonandi heim fyrir klukkan 18:00. Og síðan fór ég að reyna að koma þessu öllu saman í flottar setningar svo ég gæti sagt ykkur frá þessu hérna á blogginu. Og þessa setningu hugsaði ég:

"...og ég að sjálfsögðu clein eins fast og ég gat"

Heh, vúps! Ég áttaði mig að sjálfsögðu fljótlega eftir fæðingu setningarinnar að það væri eitthvað bogið við þetta... Eftir að hafa krufið það mál til mergjar, þá komst að því að á íslensku segir maður:

"og ég að sjálfsögðu þreif eins hratt og ég gat"

Ég meina, ókei. Ég var nýbúin að tala ensku við félaga mína og það er staðreynd að íslenskan mín er orðin eitthvað furðuleg eftir þessa dvöl mína hér í Svíaveldi. En eftir að hafa pælt í þessu í smástund, þá komst ég að því að þessi furðulega setning mín er eiginlega algjör snilld! Ég meina, mér tókst, algjörlega óvart, að setja ensku sögnina "clean" í íslenska þátíð! Þið megið gera hlé á lestrinum í þrjár sekúndur og hugsa um snilldina. Byrja núna, takk.

Takk fyrir pent. Þessi tungumálaruglingur minn varð þó til þess að færslan sem ég var með í hausnum eyðilagðist því mér finnst miklu skemmtilegra að segja ykkur frá þessu heldur en erfiða vinnudeginum mínum.

En jæja, ég má ekki vera að þessu, ég er víst búin að lofa mér og Venlu í hitting í Liseberg að horfa á úrslitin í heimsmeistarakeppninni miklu. Þ.e.a.s. ef ég finn Venlu einhversstaðar. Hmm. Hvað er hún eiginlegað þvælast, getur fólk ekki bara verið heima hjá sér? Pff ;) Nei djók, hún var að koma inn úr dyrunum akkúrat í þessum töluðu orðum. Best að fara og yfirheyra hana!

Adiós, sumarkveðjur úr sælunni í Svíaveldi, Anna hin hollenska

laugardagur, júlí 08, 2006

Kanot-paddling

Er ekki kominn tími á smá bloggfærslu? Jú, svei mér þá!

Delsjön árla morguns


Það var skýjað þennan fallega dag

Venla mundar árina

Alles klar :)

Sumir sigldu beint í fenið... Hahaha

Veðrið var alveg hreint út sagt æðislegt!

Núrjobbarar á siglingu

Ég tók að sjálfsögðu sundsprett í vatninu sem var alls ekki svo kalt

Nordjobbarar

Svo var öndunum gefið

Svag is! Ótraust svell! Ó hjálpi mér allir heilagir ;) Takið eftir myndinni á skiltinu, þetta er hönd sem veifar upp í gegnum brotið svell...

Einn reddaði sér mótorkanó... og mótorinn var mennskur...

Svo eins og sjá má, þá var kanóferðin hin fínasta. Við köstuðum meðal annars konum (íslenska, m.ö.o. fleyttum kerlingar), og við köstuðum samlokum (sænska, m.ö.o. fleyttum kerlingar) og við köstuðum brauði (finnska, m.ö.o. fleyttum kerlingar). Og eins og sjá má hér fyrir ofan, þá synti ég í vatninu. Vatnið var svo gruggugt að ég sá hvort sem er ekki neina fiska, en fyrir þá sem ekki vita þá eru fiskar þau ljótustu dýr sem ég hef á ævi minni séð. Og svo er ég búin að lofa mér í nokkur taekwondospörk í Slottskogen einhvern daginn. Og við spjölluðum pínu við Anders And (danska), Kalle Anke (sænska), Andrés önd (íslenska) eða eitthvað furðulegt sem ég man ekki á finnsku.

Þegar heim var komið, þá strunsuðum við Venla rakleitt á pizzustaðinn sem er hérna í Odinsgatan og keyptum okkur tvær frekar stórar pizzur á 50 SEK stykkið! Pff, þvílíkir okrarar þarna á Íslandi...

En jæja, best að fara og gera eitthvað uppbyggilegt. Liseberg? Kanske það :)

Adiós, Anna Björk