laugardagur, september 23, 2006

Nafnasafn

Hún Elín Ósk er að leita að nafni á tölvuna sína sem hefur, eftir þriggja ára notkun, ekki enn hlotið nafn. Þá fattaði ég að tölvan mín heitir heldur ekki neitt! Hrmpf, ég veit nú ekkert hvernig á því stendur.

En það er ekki þar með sagt að ég láti alla hlutina mína ganga um óskírða, ónei Hemmi minn!

  • Lárus er bíllinn minn, Toyota Corola árgerð 1985, fjögurra gíra með sjálfvirku innsogi. Ég elska bílinn minn mjög mikið, enda kaggi af bestu gerð. Því miður varð greyið að vera eftir heima á Íslandi, enda kaupverðið 15.000 krónur (að mig minnir, gæti þó hafa verið 20.000) og fólk ætti að sjá í hendi sér að þá borgar ekki að taka hann með sér til útlanda... snökt. Og JÁ, hann gengur eins og klukka og gott betur en það (fékk hrós og alles þegar hann fór síðast í skoðun) og NEI, þótt hann skemmist einhvern tímann þá verður hann EKKI til sölu, hvorki til að láta gera hann upp né í bílapartasölu. Ég er búin að fá þónokkur tilboð...
  • Matthildur er apinn sem ég keypti alls ekki í Tiger á sínum tíma. Heiða (fyrir þá sem ekki vita hver Heiða er, þá bjuggum við saman í tvö og hálft ár eða svo) á svo apann Dúdda sem er heldur alls ekki keyptur í Tiger og er alls ekki með brunablett á rassinum því hann sat aðeins of lengi á lampa... Reyndar gangast Matthildur og Dúddi einnig undir nöfnunum Dútthildur og Maddi en ég mismælti mig víst einhvern tímann...
  • Heima á Grænavatni er gullfiskur sem ég kýs að kalla Stellu en hinir í fjölskyldunni kalla Skúla. Fiskinn höfum við átt ég veit ekki hvað lengi (ábyggilega tvö ár eða svo, mamma?) og við vitum ekki ennþá kynið.
  • Við Heiða áttum líka einu sinni vekjaraklukku sem hét Matthías. Síðan fannst okkur nafnið ekki alveg passa og breyttum því yfir í Leifur...
  • Já, við Heiða eigum líka flotta önd sem er alls ekki keypt í Rúmfó. Öndin hefur vakið upp svona tvöhundruðogsjö hlátursköst (það er bara SVO fyndið þegar hún gargar brabrabra) og hlaut nafnið Andó. Sumir myndu ætla að hún (hún er karlkyns) héti Andó því að hún er önd, en það er nú alls ekki svo, heldur liggur þvílíkur einkahúmor á bakvið að ég segi ekki nokkrum manni frá! Og það þýðir heldur ekkert að tuða í kommentunum...
  • Hehemm, við Heiða létum ekki eitt einasta tækifæri framhjá okkur fara þegar það kom að því að skíra hluti, og skírðum við því klósettið í HrafnaSex Gottskálk... Það ætti nú hvert mannsbarn að geta áttað sig á þeirri tengingu (þið vitið, góð skál...) og óþarfi að útskýra nánar.

Ég held að það sé óþarfi að telja fleira upp, þið skiljið hvert ég er að fara.

En svo verð ég því miður að lifa við þá reginhneisu að tölvan mín heitir ekki neitt! Já, skömm er að, en ég held því miður að það passi ekkert nafn við greyið... ég þarf að hugsa þetta mál örlítið betur!

Engin ummæli: