laugardagur, október 07, 2006

Nokkrar myndir

Ég skrapp aðeins út í búð áðan og ætlaði nú aldeilis að taka fullt af myndum í leiðinni til þess að setja hingað á bloggsíðuna. En vúps, ég gleymdi að taka myndirnar...

En til þess að bæta fyrir það ákvað ég að taka nokkrar myndir svona af allra nánasta umhverfinu og sýna ykkur...

Þessi mynd er tekin af svölunum í herberginu mínu - ekkert smá mikið af bakgörðum

Fleiri bakgarðar

Þessi er líka tekin af svölunum

Risasvalir, nóg pláss fyrir fimm manns í sólbaði!

Þessi er tekin út um borðstofugluggann. Þarna bakvið öll trén er Prince Hendrikspark, garðurinn sem ég fer með krakkana í á hverjum degi

Tek fleiri myndir seinna :) Ástarkveðjur, Anna van Bosch

föstudagur, október 06, 2006

Allt að gerast!

Dagurinn í dag hefur verið viðburðarlaus með eindæmum.

Reyndar afrekaði ég það að loka sænska bankareikningnum mínum, og þar sem að konan í símanum talaði ekki ensku fór þetta allt saman fram á sænsku. Jess maður, ég er ennþá alveg altalandi!

Síðan ætlaði ég að skella mér í búðir og svona, en þar sem mig vantar ekki neitt og er í fjárhagslegu aðhaldi, þá nennti ég því ekki. Eða reyndar vantar mig úlpu/kápu, sokka (hvar eru eiginlega allir sokkarnir mínir? Heima á Íslandi? Já, svei mér þá, ég held það barasta...) og sjampó.

Annars er nú varla að ég þori lengur að fara í búðirnar hérna! Í fyrradag fór ég nefnilega í íþróttavöruverslun og keypti eitt par af geggjuðum Nike-skóm til að nota í ræktinni. Ekkert athugavert við það svosem. Nema hvað að ég stend við búðarborðið og er að borga allar þessar 35 evrur (3026 íslenskar krónur, áttu að kosta 5101 krónur) og stend mig alveg óskaplega vel í að gera þetta alltsaman á hollensku (Ja, nee, dank U wel), og þá segir afgreiðslumaðurinn allt í einu eitthvað sem ég skyldi engan veginn og glotti svo. Ég ákvað að skipta yfir á ensku og sagði: "Sorry, my Dutsch speaking is not so good..." og hvað haldið þið að maðurinn hafi sagt? Jújú, hann sagði: "I know, I remember you!".

Humm, og ég sem hef bara einu sinni áður keypt eitthvað í þessari blessuðu búð og þá voru tvær konur að afgreiða mig! Mér varð svo mikið um að ég fattaði ekki að spyrja af hverju í ósköpunum þessi maður kannaðist við mig!!! En allavega, það sem maðurinn sagði sem ég skyldi engan veginn var nú bara: "Á ég að setja kvittunina í pokann?". Fúff...

fimmtudagur, október 05, 2006

Kæruleysi?

Juu minn, ég nenni ekki að læra meira. Því gúglaði ég upp svona líka skemmtilegum bloggleik, sem er að vísu eldgamall, en ég hef aldrei tekið þátt í! Ekki veit ég hvernig á því stendur, en úr því verður sko bætt núna...

  • 1. Aldrei í lífi mínu: ætla ég yfir 60 kílóin
  • 2. Þegar ég var fimm ára: var stuð í leikskólanum!
  • 3. Menntaskólaárin voru: Meinarðu framhaldsskólaárin? Tjah, þau voru þrjú og afskaplega bissí...
  • 4. Ég hitti einu sinni: konu með dökkt yfirvaraskegg
  • 5. Einu sinni þegar ég var á bar: Oh, má bara segja einu sinni? Hojhoj, ætti ég að segja frá því þegar ég fór einu sinni óvart á hollenskan bar en hrökklaðist samstundis aftur út því þar inni var snarsamkynhneigt rokkaralið með bjórvömb og í hlírabol? Eða ætti ég kannski að segja frá því þegar ég var í Danmörku og bað óvart um öl í staðinn fyrir kampavín og var ekki vinsælasta manneskjan á staðnum? Eða ætti ég að segja frá því þegar ég var í Svíþjóð og lenti í hálftíma biðröð á klósettið og afskaplega samkynhneigð og uppdópuð stelpa nánast reif mig úr pilsinu því hún reyndi óskaplega mikið við mig? Eða þegar ég var í Svíþjóð og fór með gaur á vitlausan bar, ætluðum sko á einn vinsælasta bar Gautaborgar en fórum óvart á barinn við hliðina á...? Eða þegar ég var í pínulitlum bæ í Svíþjóð og viðbjóðslega ógeðslega sveittur gaur nuddaði sér svo fáránlega mikið utan í mig að ég gaf honum óvart einn á kjammann...? Eða þegar ég á bar á Íslandi og græddi 7000 kall á að selja dimmiteringarbúninginn minn, mínus hausinn og spenana?
  • 6. Síðastliðna nótt svaf ég: svo rosalega vel að ég vildi óska þess að ég væri ennþá sofandi! Sofnaði sko í náttfötum og var svo hlýtt í 18 gráðu kalda herberginu mínu að ég ætlaði aldrei að koma mér frammúr.
  • 7. Næsta skipti sem ég fer í kirkju: verður þegar Friðrik litli bróðir fermist. (Hann er 7 ára...).
  • 8. Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég: Sögubókina mín, fartölvuna hans Egils, bakpokann hennar Rakelar, tvö kerti sem er kveikt á og risastóran glugga.
  • 9. Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég: stofurennihurðina sem er með risastórum gluggum og bjarmann frá sjónvarpinu.
  • 10. Hvað eru margir dagar í afmælið mitt: Uhh, svona 9 til 10 mánuðir?
  • 11. Ef ég væri karakter skrifaður af Shakespeare: væri ég ábyggilega Ríkharður þriðji... ojoj :S
  • 12. Um þetta leyti á næsta ári: Verð ég í Danmörku í góðra vina hópi
  • 13. Betra nafn fyrir mig væri: Fröken kærulaus eða fröken leti.
  • 14. Ég á erfitt með að skilja: af hverju fólk hugsar ekki nákvæmlega eins og ég...
  • 15. Þú veist mér líkar vel við þig ef: ég held allskonar ræður yfir þér um lánasöfnun ungs fólks, áhrif óholls mataræðis og hversu nauðsynlegt það er að velja sína eigin braut í lífinu.
  • 16. Fyrsta manneskjan sem ég myndi þakka ef ég myndi vinna verðlaun væri: Tjah, takk mamma og pabbi fyrir að ala mig svona vel upp :)
  • 17. Farðu eftir ráðum mínum: flyttu til útlanda, það er svo gaman :D
  • 18. Uppáhalds morgunmaturinn minn er: Súrmjólk og seríos, nýristað brauð með osti og svo kornfleks... helst allt í einu! Ég borða eins og hestur á morgnana, enda uppáhaldstími dagsins!
  • 19. Why won't someone: give me plenty of money!
  • 20. Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup ef: tjah, brúðkaup? Úffpúff, mér leiðast veislur svo ógeðslega mikið að ef ég gifti mig einhvern tímann verður það skyndiákvörðun og skundað beint á sýsló, svo ég hefði nú ekki mikinn tíma til að skipta um skoðun sko :)
  • 21. Heimurinn mætti alveg vera án: fitu
  • 22. Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að: steypa mér í skuldir
  • 23. Bréfaklemmur eru nytsamlegri en: hvítir eyrnapinnar. Ég nota ekki hvíta eyrnapinna, mér finnst miklu flottara ef þeir eru í allskonar litum :) Núna á ég einmitt gommu af fjólubláum...
  • 24. Ef ég geri e-ð vel, er það: að vera kærulaus alveg fram á síðustu stundu
  • 25. Og að lokum: óheppin þið að vera ekki ég :D

Já, þetta var nú aldeilis gaman! Vona að þið hafið haft gagn og gaman af...

Vad skall göra?

Humm, hvað á ég eiginlega að gera í heila 9 daga, sem sagt frá laugardeginum 14. október til sunnudagsins 22. október? Úffpúff, ég ætla samt fyrst að tékka fjárhagsstöðuna og fara svo á lestarstöðina og ræða aðeins við fólkið þar... því ég ætla sko pottþétt að fara til "útlanda"! Ég held að maður verði nú að minnsta kosti að skreppa smá til Þýskalands og smá til Belgíu, því ég er minna en klukkutíma frá landamærunum að þessum löndum. Og ég nenni ekki að fara meira en dagsferðir, annað er bara peningasóun og svo skellir maður sér nú heldur ekkert á djammið ef maður er bara einn á ferð!

En hins vegar ef einhver þekkir einhvern í annaðhvort Belgíu eða Þýskalandi sem er nálægt landamærum Hollands og langar til þess að fá mig í heimsókn gegn vægu gjaldi (ég er ung og skemmtileg og get talað þýsku, hollensku, spænsku, dönsku, sænsku, íslensku, norsku, ensku, babl í frönsku og babl í rússnesku svo tungumál eru engin fyrirstaða) þá megið þið alveg láta mig vita...

miðvikudagur, október 04, 2006

VÁ VÁ VÁ

Vá, ef ég er ekki búin að finna framtíðaríþróttina, þá veit ég ekki hvað!

Ég mætti sem sagt í FusionDance áðan (tímanum í gær var aflýst) og ég er frelsuð!!! Ég hef reyndar lengi vel vitað að dans væri uppáhaldsíþróttin mín, en hef bara ekki getað stundað hana sem slíka... En úffpúff, þetta var bara F***ing snilld! Oh, mig langar strax aftur...

Já, ég sem sagt mætti í ræktina og ákvað að skella mér í FusionDance. Ég er ekki frá því að ég hafi verið dulítið stressuð, enda vissi ég ekkert hvernig dans átti að kenna og hvort ég væri sú eina sem kynni nákvæmlega ekki sjitt. Það kom á daginn að dansinn sem kenndur var, var StreetDance (maður að reyna að vera geðveikt kúl og skora á alla hina í danskeppni og svona) og humm, ég var sú eina sem kunni ekki sjitt... En það reddaðist, allavega náði ég hinum GEGGJAÐ FLOTTU danssporum fyrir rest (við vorum að læra nýjan dans, og allt á hollensku takk fyrir takk!) og dansaði eins og ég ætti lífið að leysa. Hoho, spurning um að leggja þetta fyrir sig?

Nei án gríns, þá hef ég alltaf verið algjörlega danssjúk. Þakka ég foreldrum mínum kærlega fyrir að hafa sent mig á öll dansnámskeiðin í Dansskóla Báru (hét hann ekki það?) þegar ég var bara 5 ára eða eitthvað... Og síðan voru náttúrulega einhver dansnámskeið í grunnskóla, og svo hef ég farið á afródansnámskeið og salsanámskeið og lært sænska þjóðdansa og ég veit ekki hvað og hvað... En sjæse, ég hef greinilega ekki farið á dansnámskeið lengi því ég var búin að gleyma að þetta væri SVONA gaman! Æh, mig langar til að grenja úr gleði akkúrat núna. Held samt að ég sleppi því og fari frekar upp að æfa mig í staðinn... Hoho!

Ástarkveðjur, Anna sem er að springa úr gleði og mætir sko POTTÞÉTT í FusionDance næsta þriðjudag!!!

Rigning

Nei, ég skrifaði svo leiðinlega bloggfærslu að ég strokaði hana út. Síðan skrifaði ég aðra færslu um hversu öfgaleiðinleg fyrri færslan hefði verið, en ég strokaði hana líka út því hún var svo leiðinleg.

Æh, rosalega er ég andlaus í dag! Ég hugsa að rigningin eigi þar einhvern hlut að máli, og kannski einnig sú staðreynd að það voru bara 19 gráður í herberginu mínu þegar ég vaknaði í morgun. Eftir sumarið er ég nefnilega orðin ansi vön minnst 25 gráðum. Sé ég því fram á að þurfa að kaupa mér náttföt!!! Já, ég! Og ég sem hef sofið nakin í ég-veit-ekki-hve-mörg ár! Brrr.

Held að ég skreppi núna í bæinn í rigningarskrattanum, ég hef nefnilega augastað á ansi flottum og þykkum náttfötum...

Nei, þessi færsla var ykkur ekki til andlegrar uppörvunar. Ó mig auma...

mánudagur, október 02, 2006

Varúð - tilangslaus færsla

Farin... og komin...

Úffpúff, þetta var erfitt! Ég mætti sem sagt galvösk í Tae-Bo tíma, tilbúin til að taka vel á þrátt fyrir súkkulaðikökuna sem ég borðaði rétt fyrir æfingu... Humm. En já. Þarna púlaði ég innan um hóp af svona 30 Hollendingum sem gátu ekki gert aptsjagí í höfuðhæð eins og ég (múhahaha, taekwondið kom sér vel þarna!) og svitnaði eins og svín. Og svei mér þá, þetta var bara eins og góð taekwondoþrekæfing, með öðrum orðum: Hörkupúl! Og tungumálaörðugleikarnir voru ekki jafnmiklir og ég bjóst við, allavega skyldi ég alveg að "hook" þýðir krókur og svona, og síðan hermdi ég bara eftir hinum... Var nú ekkert áberandi asnaleg að mínu mati! Sjáum svo til hvernig það fer í dansinum á morgun... ojoj.

Nei jesús minn, hvað er ég eiginlega að blogga þegar ég hef ekkert að segja? Mér væri nær að klára frönskuverkefnið sem ég á að skila á miðvikudaginn...

Nei annars, ég er farin að sofa. Hitt er svo annað mál að ég veit ekkert hvenær ég á að vakna, þannig að ég rís bara úr rekkju svona einhvern tímann...