fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Ó boj

Það er svo gaman að vera ég! Vá, ég hreinlega kemst ekki yfir það.

Seinniparti dagsins eyddi ég með snarklikkuðum Hollendingum. Sumir þeirra töluðu meðal annars mjög slæma ensku (þrátt fyrir yfirlýsingar mínar í seinustu færslu, og já, þeir eru allir á mínum aldri), og þá varð ég að gjöra svo vel og nota alla mína frábæru hollenskukunnáttu, sem takmarkast að miklu leyti við "Þetta er stórt hús" og "Takk fyrir". Hoho, en ég brilleraði allavega í því að segja fólki hvað klukkan var, það kann ég upp á mína tíu fingur!
Dagurinn endaði síðan á pitsustaðnum "Ali Baba" þar sem allir fengu sér kebab - nema ég. Ég fékk mér cheeseburger, sem ég fékk framreiddan í pítubrauði... Örlítið spes, en himneskt engu að síður. Reyndar fengu sumir ekki fylli sína af einu skitnu kebabi, og var þá haldið á staðinn "Kebab" þar sem að meira kebab var keypt... Ég skil ekki þetta kebab-æði í öllum löndum.

Já, svo á ég alveg eftir að segja ykkur frá afrekum gærkvöldsins! Þau voru nú reyndar ekki mörg, en eitthvað þó...

  • Ég hitti símatvíburann minn!!! (Mamma, ekki síamstvíbura heldur símatvíbura... Já, bara að rétt að taka það fram þar sem ég er ekki enn búin að gleyma vídjókaramellunni góðu!). Já, ég sat sem sagt í rólegheitunum í eldhúsinu á stúdentagörðunum, og allt í einu byrjaði síminn minn að væla eitthvað. Ég fálma eitthvað ofan í tösku og stoppa pípið, og þá rekur Hollendingurinn Jesse upp skaðræðisöskur og gargar "YOU HAVE THE SAME PHONE AS I DO!!!". Já, sko kallinn, Samsung-símarnir alveg að brillera greinilega! Hins vegar eru akkúrat 6 mánuðir síðan ég gaf út yfirlýsingar þess efnis að mitt fyrsta verk þegar ég færi til útlanda væri að kaupa mér nýjan síma... En hef ég nennt að kaupa mér nýjan síma á þessum 6 mánuðum? Nóbb!
  • Ég fékk óþarflega miklar upplýsingar frá sumum um háreyðingarmeðferðir á baki...
  • Einn á franska kærustu sem heitir BLONDINE!!! Kannski er það skrifað öðruvísi, en það er allavega borið fram sem Blondín!!! Jahérnahér, grey stelpan.
  • Ég var að sjálfsögðu kappklædd þegar ég hjólaði frá stúdentagörðunum að háskólabarnum "Tricka Bella". Einn gaurinn starði á Nike-húfuna mína.
    Gaur: You are from Iceland, right?
    Anna: Yah?
    Gaur: And you are wearing a hat?
    Anna: Yah!
    Gaur: But you are from Iceland?
    Anna: Yah, that's why!
  • Nafnið mitt er í leikjamaskínunni á Tricka Bella! Yes maður! Já, einn myndarpiltur lagði það á sig að eyða alveg heilmörgum evrum í það að reyna að vinna einhvern fótboltaspurningaleik svo ég gæti fengið nafnið mitt í High-Score (það var ekki mín hugmynd samt!), en það tókst ekki alveg. En ég reddaði þessu glæsilega með því að vinna einhvern kapal sem ég hef bara aldrei á ævinni heyrt eða séð, og komst í fyrsta sæti á high-score listanum! Íha!
  • Huhuhumm, ég vakti vægasta sagt OF MIKLA ATHYGLI þegar ég fór í sleik við Lieku! Jahérnahér. En ég var nú samt bara alls ekkert að kyssa hana, heldur var ég að kenna henni "þumalputtabrellukossinn", sem virkar þannig að þátttakendurnir tveir krækja höndunum saman á sérstakan hátt og sjúga síðan allan þumalputtann á sér, þannig að það lítur út fyrir að þeir séu að kyssast mjög innilegum og djúpum kossi. Æ-æ. En gæjunum fannst þetta nú hreinlega ekki leiðinlegt, því þeir vissu ekki að þetta væri plat, vúps!

En jæja, best að rimpa síðustu frönskuverkefnunum af, au revoir!

Holland, fagra Holland

Humm, kannski er kominn tími á það að ég segi ykkur pínulítið frá Hollandi. Það er að segja hvernig ég upplifi Holland.

Holland er algjört æði. Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna veðrið. Þetta árið er veðrið svolítið undarlegt, því yfirleitt á þessum tíma árs er hitinn frá -5 gráðum og upp í 5 gráður. Núna er hitinn hins vegar alltaf á milli 8 gráða og 15 gráða. Ekki amalegt það! Hollendingar eru alveg bit yfir þessu og segja mér í sífellu að þetta eigi EKKI að vera svona! En þetta er mjög spes. Sérstaklega þegar ég fer í garðinn að skokka með jólalög í mp3-spilaranum mínum, ég meina, grasið er ennþá grænt og trén eru ennþá græn! Það er, jah, spes tilfinning.

Ég dýrka fólkið hérna. Það eru alltaf ALLIR tilbúnir til þess að hjálpa manni með hvað sem er! Hollendingar tala líka í flestum tilfellum alveg brilljant ensku, enda telur þjóðin ekki nema 16 milljón manns og viðhorfið í þjóðfélaginu er þannig að fyrst það búi svona fáir í landinu, þá sé nauðsynlegt að kunna góða ensku!

Hjólin eru svo kapítuli út af fyrir sig. Hollensk börn eignast í mörgum tilfellum sitt fyrsta þríhjól áður en þau byrja að ganga, sem sagt fyrir eins árs aldurinn. Svo það er ekkert skrítið þótt ég, sem hef aldrei verið haldin miklum hjólaáhuga, hafi til að byrja með verið eilítið smeik við að hjóla á miðjum umferðargötunum! Á mörgum stöðum eru reyndar hjólreiðarstígar, en stundum þá er ætlast til þess að hjólreiðarmennirnir hjóli á sömu götum og bílarnir. Þá er ég ekki að meina bara úti í kantinum, nei. Maður hjólar bara eins og maður sé á bíl! Og þá er nú best að vera ekkert að dunda sér...

"Eftir einn ei aki neinn" er ströng regla heima á Íslandi. Þess vegna finnst mér fyndið að hér í Hollandi megi maður drekka tvö glös áður en maður sest upp í fararskjóta. Sama hvort það er hjól eða bíll. Og það er ekki tilgreint hvað má vera í þessum tveimur glösum. Og hérna missir maður ekki bílprófið við að hjóla fullur. Reyndar held ég að það eigi að vera þannig að maður fái sekt ef maður drekkur meira en tvö glös og hjólar svo, en ég held að það sé nákvæmlega enginn að fylgjast með því, því það er skömminni skárra að hjóla fullur heim heldur en að labba og eiga það á hættu að verða fyrir barðinum á einhverjum óprúttnum náungum...

Hér máttu byrja að reykja 16 ára. Enda eru líka gjörsamlega ALLIR sem reykja hérna! Eða kannski ekki alveg allir, en alveg rosalega margir. Stundum sér maður krakka á fermingaraldri hópa sig saman í garðinum og kveikja í nokkrum rettum og það þykir hið allra eðlilegasta mál...

Ég held ég fari með rétt mál þegar ég segi að dóp sé löglegt í Hollandi. Enda er, að ég held, ekki mikið mál að verða sér úti um dóp hérna. Ég þarf t.d. ekki að fara lengra en í garðinn hérna hinum megin við götuna til þess að hitta dópdílera. En þeir eru samt mjög friðsamir og láta mann alveg í friði. Í gær fór ég á háskólabar bæjarins. Þýsk stelpa, sem heitir Swanni, kom og náði í mig og við þurftum að fara aðra leið ein venjulega því að brúin ógurlega ákvað að fara upp akkúrat þegar við komum að henni. Á leiðinni að stúdentagörðunum sagði hún við mig: "And there is the coffie-shop that everyone goes to" og benti á eitthvert hús. Ég bara já ókei og hélt áfram að hjóla. Svo spurði ég: "Do you go there often?". "Me??? No, I don't smoke." Þá mundi ég eftir því að "coffie-shop" hér í Hollandi eru ekki venjuleg kaffihús, heldur eru það sérstakir staðir þar sem hægt er að kaupa dóp!!!
Síðan á barnum í gær hoppaði og skoppaði ein spænsk stelpa af gleði, því vinur hennar hafði fundið hass að andvirði 40 evrur á þessari "coffie-shop" og gefið henni. Síðan rauk hún beint út að reykja ásamt hópi af Frökkum.

Verðlagið hérna er einn stór brandari. Reyndar eru leikskólagjöld og svoleiðis dýrara en heima á Íslandi, en maturinn og fötin og annað dót, maður minn sko! Þetta er eiginlega alveg ferlegt!

Strákarnir hérna eru svo krúttlegir. Þeir eru líka svo miklar dramadrottningar að það hálfa væri hellingur! Það eru fleiri en einn búnir að segjast elska mig. Ég hef líka alveg látið gæjana heyra það! En mig grunar samt að sennilega sé þetta ekki þeim að kenna, þetta er ábyggilega eitthvert menningartengt atriði... Annað mjög áberandi er, að þegar maður fer á skemmtistaði, þá er alltaf einhver sem "á" mann. Um leið og einhver gaur er búinn að eigna sér mann, þá má enginn annars gefa manni undir fótinn því þá er farið út að slást!!! Reyndar hefur mér með klókindum alltaf tekist að halda "mínum" gæjum frá slagsmálum, thank God! En það er óneitanlega nokkuð spes að lenda í svona aðstöðu...
Allir hollenskir strákar eru með krullað hár. Algjör rassgöt!

Þegar ég var úti í Svíþjóð fannst mér það MJÖG slæmt að fá alltaf eitt langt auglýsingarhlé inni í öllum þáttum. En vitið þið hvað? Ég myndi gefa MIKIÐ fyrir að fá sænska sjónvarpið hingað til Hollands! Því að hér í Hollandi er þetta miklu verra! Í þáttum sem eru 45 mínútur eru tvö sjö og hálfs mínútna auglýsingarhlé! Það fyrsta kemur þegar tíu mínútur eru búnar af þættinum. Hið síðara kemur þegar tíu mínútur eru eftir af þættinum. Með öðrum orðum: Það tekur klukkutíma að horfa á 45 mínútna þátt. Það eru engar auglýsingar á milli þátta, nei o nei. Þær eru bara inni í miðjum þáttunum!!! Margar hollenskar auglýsingar pirra mig líka óstjórnlega mikið. Því að þegar auglýsing X er búin, þá koma tvær auglýsingar á eftir henni. Síðan birtist AFTUR hluti af auglýsingu X, svona til þess að troða þessu alveg örugglega inn í hausinn á fólki! Ég segi nú bara fyrir mína parta: Ef ég hef ekki áhuga á vörunni í fyrsta skipti, þá hef ég heldur engan áhuga á henni seinna skiptið.
En annars er auðveldlega hægt að líta á björtu hliðarnar með þetta. T.d. þá endist ánægjan af því að horfa á sjónvarpsþættina mun lengur en ella, m.ö.o. ég get notið Gilmore Girls í lengri tíma í hvert skipti! :D Það er nú ekki amalegt.

En núna verð ég að drífa mig út að skokka, kannski ég ræði við nokkra dópdílara í leiðinni...

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Blahhh

Ég skil ekki hvernig útlendingar læra eiginlega á klukku.

Hjá mér: Klukkan korter yfir fjögur þýðir klukkan tuttugu mínútur yfir fjögur.
Hjá Hollendingum: Klukkan korter yfir fjögur þýðir klukkan fjögur.

Hjá mér: Klukkan tólf á miðnætti þýðir klukkan rúmlega eitt.
Hjá Hollendingum: Klukkan tólf á miðnætti þýðir klukkan tíu mínútur í tólf.

Hjá mér: Klukkan níu að kvöldi til þýðir klukkan tæplega tíu.
Hjá Þjóðverjum: Klukkan níu að kvöldi til þýðir klukkan rúmlega átta.

Í kvöld er ég að fara á snargeggjað miðvikudagsdjamm á háskólabarnum þar sem finnskt/rússneskt þema mun ráða ríkjum. Þýsk stelpa ætlar að ná í mig. Á ég þá að vera tilbúin klukkan tæplega sjö? Á morgun ætla ég að hitta nokkra Hollendinga fyrir framan kirkjuna klukkan fjögur. Á ég þá að vera mætt á staðinn klukkan tíu mínútur í fjögur?

Þetta er ekkert auðvelt, gott fólk...

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Jess!

Í gær var mikill dýrðardagur, því þá fékk ég tölvuna mína til baka!!! Ég sat að sjálfsögðu um Steven besta nágranna þegar hann kom heim úr vinnunni og spurði hvort hann nennti nokkuð að skutla mér, annars væri ég eflaust ennþá að hjóla... Já, það er gott að eiga góða granna! Hann skutlaði mér líka í síðustu viku þegar ég fór með tölvuna mína í viðgerð, þá reyndar bað ég hann ekki um það heldur heimtaði hann það þegar hann sá að ég ætlaði að hjóla með tölvuna mína á bakinu alla leið út í Rosmalen, sem er tæknilega séð allt annar bær... En já, svo ég segi ykkur aðeins frá honum Steven, þá er hann 28 ára og kemur oft oft í heimsókn í póker og svona, og býðst svo til þess að lána okkur dýnur og bíla og jafnvel íbúðina sína ef þannig liggur við... Hann er sko algjör draumanágranni!

En að allt öðru. Í dag ætla ég að gera ansi margt. T.d. ætla ég að rumpa af spænskuritgerðinni sem ég átti að skila í gær, söguritgerðinni sem ég átti að skila síðasta föstudag og nokkrum frönskuverkefnum sem ég ætlaði að skila í síðustu viku. Auk þess er planið að fara út að skokka, fara í sturtu, fara í bæinn og hitta fólk, fara í FusionDance og horfa á Gilmore girls. Já, alltaf nóg að gera!

Annars hef ég fátt að segja. Jú, í dag breyttist ég í tveggja barna móðir þegar eitt barnið fór heim til Íslands, ég er ekki frá því að örfá tár hafi fallið af hvörmum mínum... Ég er náttúrulega búin að passa strákinn í þrjá mánuði, og síðan fattaði ég líka að þetta Hollands-ævintýri er alveg að verða búið! Bara 16 dagar í Ísland, og svo bara búið! Reyndar tekur annað og spennandi ævintýri við eftir jól, svo ég ætla ekki að skæla allt of mikið.

Nei, best að klára spænskudraslið. Bæjó!

laugardagur, nóvember 25, 2006

Freaky Friday

Já, ég hreinlega verd ad blogga á tessa peningaplokkara hérna á bókasafninu, tilhugsunin ein um ad geta ekki bloggad aftur fyrr en í naestu viku vekur hjá mér kvídakast.

Víkjum okkur ad gaerdeginum sem var med allra besta móti. Ég turfti svo gott sem ekkert ad passa, en afrekadi tó ad horfa á Bjorn bródir 2, tvisvar sinnum í rod, med strákunum tótt ég vaeri nú barasta ekkert ad passa tá. Tvílíkt er tetta skemmtileg mynd!

Eftir vídjóglápid ákvad ég ad koma búslódarkassanum mínum í póst, en flykkid vóg 11,1 kíló. En um leid og ég var búin ad drosla kassanum frá fjórdu haed og nidur á fyrstu, tá byrjadi ad rigna, svo ég turfti ad drosla ferlíkinu aftur upp á adra haed til tess ad fyllti ekki upp í alla forstofuna (tad er sko bara forstofa á fyrstu haed, og hún er á staerd vid frímerki!). En ég ákvad ad láta tetta ekki slá mig út af laginu, heldur fór í baeinn í jólagjafaleidangur. Húhú!

Um kvoldid fór ég sídan í fyrsta skipti á aevinni til midils. Já, mamma hennar Rakelar er midill, og tar sem hún er í baenum núna í heimsókn, tá spádi hún fyrir mér. Ég aetla ekki ad rekja í smáatridum tad sem midillinn, sem heitir nú annars Valdís, sagdi, enda á tad ekki heima á opnum vef tar sem Jón og Gunna geta lesid allt sem ég skrifa. En ég tarf samt ad hafa mig alla vid ad skrifa ekkert um tetta hérna, enda er margt og mikid til tess ad monta sig af :D Tví ég dró spil sem Valdís hefur nú barasta aldrei séd ádur, og ykkur ad segja, tá voru tad oll bestu spilin í stokknum... Ég get ekki annad en brosad allan hringinn yfir tví sem var spád! Reyndar tarf ég ad laera ad beita sumu í mínu fari á réttan hátt, tví tá er ég komin med ómetanlega oflug vopn í hendurnar... En annars mun tetta ganga slétt og fellt fyrir sig, I say no more, tetta kemur allt í ljós :D

Sídan aetla ég til hollensks midils núna ádur en ég fer heim, tví tad eru allir gestir og gangandi í Geldersedam 42 búnir ad fara tangad nema ég, og tad segja allir ad tetta sé ótrúlega gódur midill. Ég vona ad ég fái tá stadfestingu á tví sem var sagt vid mig í gaer, tad vaeri nú ekki amalegt :)

Svo kíkti ég í baeinn í gaer med hollenskum vini mínum. Og tar sem ég var bara einn og hálfan tíma í baenum (ástaeda er tilgreind hér nedar), tá nádi ég ekki ad afreka of marga skandala. Bara nokkra, sem eru ekki prenthaefir. En allt hitt sem er prenthaeft, ég hugsa ad ég skelli tví í orfáa punkta:

  • Ég laerdi tad ad tólf týdir tólf en ekki rúmlega eitt.
  • Reyndar breyttist rúmlega eitt yfir í tvo tegar ég fann ekki stadinn (sem heitir Lalalaa!) og hjóladi lengi um í villu míns vegar ádur en ég tordi ad spyrja til vegar. Ég sé nefnilega ekkert nema ribbalda og dópista og naudgara í hverju horni...
  • Í fyrsta skipti hér í Hollandi sveid mig ekki í nefid út af reykjarstaekju. Hugsanlega var reykingarbann tarna, allavega er engin reykingarlykt af fotunum mínum...
  • Ég sokkadi feitt í hinum hollensku dansmúvum, held ég verdi ad aefa mig orlítid fyrir framan spegilinn ádur en ég reyni tetta aftur...
  • Ég var ekki alveg ad hondla tilveruna og potadi óvart augad úr einum myndarlegum og ókunnugum Hollendingi, sem gerdi ekkert af sér nema ad aetla ad hraekja* í eyrad á mér... Ég bara sá hann ekki og vúps! Oj, haha.
  • Ég dansadi uppi á bordi.
  • Ég heyrdi EKKERT nema ''hollensk partílog'' tetta kvold. Fyrir tá sem ekki vita, tá er hollensk tónlist fyndari en allt annad í heiminum.
  • Ég var í mesta sakleysi mínu ad dansa og aefa "my Dutsch way of dancing" tegar tad pikkadi einhver ókunnugur í oxlina á mér og tród fimm rondóttum sogrorum í hárid á mér! Og sídan fór hann. Verst ad ég skyldi myndavélina mína eftir heima...
  • Bartjónarnir kostudu ísmolum í alla tá sem voru ad kyssast. Má tad?

Já, eins og tid sjáid, tá afrekadi ég ekki margt prenthaeft, enda var ég bara einn og hálfan tíma tarna... Ég maeti á slaginu tólf naest!

Ástarkvedjur, Anna Bjork

*Hraekja=tala hollensku

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Tar fór í verra

Smá tilkynning:

Tolvan mín er í vidgerd í augnablikinu tví power-pinninn í henni skekktist (power-pinni er pinninn í gatinu á tolvunni tar sem hledslutaekid fer inn í). Ég aetti ad fá tolvuna aftur eftir um tad bil 5 daga, og verd tá jafnframt 150 evrum fátaekari. Verd ég tví jafnframt ad tilkynna ad allir teir sem áttu ad fá jólagjof frá mér fá enga jólagjof fyrr en eftir nokkra launasedla eftir jól, tví tetta setur heljarinnar strik í fjárhaginn. Nema náttúrulega allra nánasta fjolskyldan, hún faer jólagjafir, svo mamma, pabbi, Einar, Kristinn og Fridrik, ekki panikka. Tid hin, ekki kaupa jólagjof handa mér.

Bestu kvedjur úr rigningunni og ekki vera hissa á bloggleysi naestu daga, ástarkvedjur, Anna van Bosch

sunnudagur, nóvember 19, 2006

Svo ljúft og gott

Hafið þið uppgötvað frelsið sem fylgir því að vera í saumlausum brjóstahaldara? Ef ekki, þá held ég að þið ættuð að kynna ykkur það mál.

Annars er fátt að frétta. Ég fór á msn áðan og spjallaði við næstum því alla sem eru á contact listanum mínum (eða kannski er ég að ýkja smá, ég talaði allavega við svona átta...), og komst að því helsta sem búið er að gerast heima síðastliðnar vikur. Það er líka alltaf gott að vita að fólk er farið að sakna mín, og sumir svo óbærilega mikið að fólk er farið að panta knús, já jafnvel fleiri en eitt og jafnvel fleiri en tvö! Ég hugsa að besta leiðin til þess að skipuleggja þetta allt saman sé að láta pöntunarlista ganga, nú eða að taka "fyrstir koma, fyrstir fá" á þetta!

En annars læt ég þetta gott heita í kvöld, góða nótt og sofið rótt!