fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Síðustu dagar

Jæja, nú ætla ég að blogga! Einbeitingin hefur verið svona út um hvippinn og hvappinn undanfarið og skírir það bæði bloggleysið og af hverju ég þríf herbergin á lúsarhraða í vinnunni... En nóg um það.

Þar sem ég er ekki mikill aðdáandi blogga þar sem ekkert annað er gert en að segja frá hvað viðkomandi gerði yfir daginn, þá ætla ég reyna að forðast í lengstu lög að gerast svo leiðinlegur bloggari. En þar sem þetta er nú dagbókin mín líka (skírir einmitt af hverju stundum koma svona upptalningar) þá finnst mér ég knúin til að skella inn nokkrum myndum til að minna mig á í framtíðinni hvurn fjandann ég var eiginlega að gera af mér. Here we go:

Svona var veðrið 2. ágúst

Ég fann þessa fínu fínu Indjánahljómsveit... og gerðist stalker... og hef séð hana núna á hverjum einasta degi í marga daga í röð... og keypti geisladiskinn hennar (hljómsveitarinnar altså)... og gaurarnir í henni eru farnir að heilsa mér þegar þeir sjá mig... ó boj.

Fór á opnunarhátíð EM ásamt svona 75.000-110.000 manns... Mætti samt snemma svo ég var eiginlega alveg upp við sviðið, jahú! Þarna einhversstaðar á myndinni er hin "geðveikt fræga" og "geðveikt vinsæla" Carola (að hennar mati) sem söng sænska júróvisjónlagið í ár.

Kostuleg þessi! Það var svo þröngt þarna að engin leið var að pósa almennilega, takið eftir höndinni! Reyndar voru þrengslin allt í lagi, svona þar til þrítugi gaurinn frá égveitekkihvar kom og fór að káfa óþarflega mikið á mér... hefði eflaust kýlt kauða kaldan hefði ég haft pláss til að snúa mér við, en notaðist þess í stað við olbogaskotin... endaði samt einhvern veginn með e-mailið hans (átti að senda honum myndirnar sem ég tók af sviðinu, sem sagt cheap way to get my e-mail address) en ég týndi miðanum með addressunni hans nær samstundis, vúps!

Og þarna er svo gríska júróvosjóngellan sem vann júróvisjónkeppnina í fyrra með laginu "You are the one, you're my number one" og svo videre. Já, ég alveg að brillera á myndavélinni skal ég segja ykkur!


Og þarna einhversstaðar gefur svo á að líta RONAN KEATING BABY!!! Vá, enda kom ég nú á þessa blessuðu opnunarhátíð bara til að sjá hann! Hann var sko í algjöru uppáhaldi hjá mér þegar ég var svona 11, 12, 13, 14 ára... Enda dýrkaði ég gjörsamlega strákabandið Boyzone á þeim tíma (og geri enn...). Ég tók síðan fyrsta lagið sem hans upp á vídjókameruna mína, en þar sem ég brillera ekkert alltaf á REC takkanum (ansi mikilvægur takki samt!) þá á ég ekki seinni tvö lögin... bömmer!

Daginn eftir opnunarhátíðina skellti ég mér síðan í Slottskogen ásamt einhverju Nordjobbliði. Þar voru haldnar keppnir af ýmsu tagi í tilefni EM, og frá því er skemmst að segja að mitt lið (ég og Dennis) urðum í öðru sæti, takk fyrir pent! Hefðum lent í fyrsta sæti ef lokaþrautin hefði ekki gefið alveg margfaldan stigafjölda, svo liðið sem var í síðasta sætinu skaust upp í fyrsta sætið með því að kasta hring á einhvern asnalegan pinna. Pff. En verðlaunin sem annað sætið fékk voru engu að síður stórglæsileg, fékk alveg fullt af nammi (getið eflaust giskað á hvað ég gerði við það!), geggjaða sænska dvd-mynd sem heitir "Vingar av glas" og Göteborgspassen!!! Jess, ég sem hafði ætlað að kaupa mér einn slíkan og gerast svo menningarleg að kíkja á öll helstu söfn Gautaborgar! Nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því lengur! Engar myndir voru teknar á þessu kvöldi, enda birtan afskaplega leiðinleg svona þegar degi tekur að halla.

Daginn eftir það (á þriðjudaginn) heimsótti ég svo Ylvu í Lerum. Það var ekkert smá gaman! Já, eða svona þegar ég loksins komst á staðinn, lestin mín ákvað nefnilega að sleppa því að fara á þeim tíma sem ég ætlaði að fara, svo ég þurfti að bíða í heilan hálftíma eftir næstu lest... Var gróflega misboðið sko!

Fallegt í Lerum

Við gengum í gegnum skóg


Syntum svo í þessu vatni sem kallast Bottom Lake eða "Rassavatn". Ég man ekki sænska nafnið, en það má beinþýða sem "Bottom Lake" og þess vegna er það kallað því nafni.

Jájá, þetta er ég

Litli sæti froskurinn (eða kartan eða hvað það nú er sem barnafroskar kallast) sem ég hélt á! Æh, hann var svo mikið krútt, langaði helst til að eiga hann :)

Veðrið var alveg æðislegt, eða tjah, svona þar til á næstu mynd...

...því svo kom nefnilega þrumuveður með þvílíkri rigningu að ég vissi ekki að slíkt væri leyfilegt! Og svo kom haglél!!!

Við Ylva komnar til Gautaborgar eftir að hafa setið fastar í allsvaðalegri umferðarteppu sökum EM. Þarna er Ylva komin í lúðrasveitarbúningin, en hún spilar á pikkolaflautu í frekar frægri lúðrasveit unglinga sem kallast Göta Lejon. Og í Guðanna bænum, reynið að hunsa á mér hárið, ég var ekki með hárblásarann í vasanum eftir sundið í vatninu ;) Eða jú, hárblásarinn var með í för, en innstungurnar voru nú ekkert á hverju strái þarna í skóginum...

Búið að stilla upp og alles klar :)

Ylva tekur sig vel út með flautuna (önnur frá vinstri)

Jæja, kemst ekki lengra í kvöld, þarf að fara að sofa...

Kærar kveðjur, Anna Björk

mánudagur, ágúst 07, 2006

Hej du!

Nei hæ! Þú hér?

Ætla bara að kasta á ykkur stuttri kveðju, svona áður en fólk fer að ýja að nýrri bloggfærslu, enda heilir tveir dagar síðan ég bloggaði síðast ;) Má náttúrulega ekki láta svoleiðis viðgangast.

Annars er heilmikið að gerast þessa dagana og lítill tími fyrir bloggfærslur. Jahså.

Á morgun ætla ég svo út úr bænum, ætla að heimsækja hana Ylvu í Lerum, sem er rétt fyrir utan bæinn. Það er ekkert mál, hoppa bara upp í lest á brautarpalli eitt, og hoppa síðan aftur út eftir 15 mínútur. Held ég ætti að ráða við það, en maður getur nú annars ekki stólað á neitt þegar ég á í hlut... heh.

Góða nótt älsklingarnir mínir!

Venla, jag bloggar igen i morgon, med några fotos :) Skall til Lerum i morgon och träffa Ylva (Ragnars syster) och simma lite (inte svimma!! Haha). Och titta, jag bloggar på svenska, bara for dig, for jag vet inte hur många andra förstår min svenska... Men du måste jo förstå den, vi bodde jo tilsammans... hahaha. Ha det bra!

Kærar kveðjur, Anna Björk

laugardagur, ágúst 05, 2006

Svo svöng...

Ég lýsi yfir hungursneið á heimilinu. Ég er nefnilega farin í megrun og get þar af leiðandi ekki borðað snúða, óhóflegt magn af brauði eða skyndibitapitsur á 7 krónur úr Netto. Nei, ég er þess í stað búin að borða eintómt grænfóður í allan dag og verð hreinlega svangari (svengri? Er aðeins farin að ryðga...) með hverjum bitanum sem líður. Ó svei.

Ástæða megrunar? Jú, allt þetta spengilega íþróttafólk sem vappar hér út um allan bæ! EM byrjar á morgun og bærinn er orðinn pakkfullur af fólki. Og ég þarf að ganga fram hjá Ullevi (íþróttaleikvanginum) á hverjum degi til að komast í vinnuna. Einn kostur er reyndar við þetta allt saman og hann er sá að umferð hefur að mestu leyti verið stoppuð á þessu svæði (sem er annars heilmikið umferðarsvæði) og þarf ég því ekki að bíða eftir 5 grænum körlum á leiðinni, heldur get ég bara gengið beint yfir göturnar. Á leiðinni heim úr vinnunni í dag lenti ég hins vegar í stökustu vandræðum, þar sem einhverjir amatörar í 3 kílómetra skokki voru að hlaupa yfir á Ullevi-leikvanginn og hlupu þeir allir þvert yfir veginn sem ég þarf að komast yfir til að komast heim. Tafði þetta mig því um heilar 10 mínútur (en þá ákvað ég að láta slag standa og hljóp sem mest ég mátti yfir veginn til að enginn myndi klessa á mig) og var ég því komin heim klukkan hálffjögur í stað tuttugu mínútna yfir fjögur. Hrmpf.

Í gær átti ég hins vegar frí og gerði mér margt (ó)nytsamlegt til dundurs. Byrjaði á að vakna klukkan 7 og skellti í fjórar vélar eða svo. Á milli véla lagaði ég síðan til, og viti menn! Ég fann peninga! Já, ég fann heilar 540 sænskar krónur inn í einhverri bók sem ég á. Pening þennan hafði ég ætlað að eiga sem "varasjóð" fyrstu dagana hér úti, svona ef að debetkortið mitt skyldi klikka. Debetkortið klikkaði greinilega ekki. Og dreif ég mig því samstundis niður í bæ, svona áður en skynsemin næði yfirhöndinni, og fagnaði nýfundnu ríkidæmi mínu með því að eyða peningunum í eitthvað fallegt...

...kom síðan heim fjórum tímum síðar, dressuð í ný föt frá toppi til táar og með alls konar fylgihluti af öllum stærðum og gerðum. Og með eina vekjaraklukku. Já, það er ódýrt að kaupa föt í Gautaborg, jahú!

Já, nauðsynlegt var að kaupa vekjaraklukku, því síminn minn er ennþá alveg á síðasta snúningi. Hann yngist víst ekkert héðan í frá, blessaður ljúflingurinn. Ég lýsti því samt yfir í vor að mitt fyrsta verk þegar ég lenti í Gautaborg væri að kaupa mér nýjan síma. En hvað get ég gert? Mér finnst bara svo miklu miklu MIKLU skemmtilegra (og nytsamlegra) að kaupa mér föt og snyrtivörur og fylgihluti í stað þess að spandera peningunum í nýjan síma. Pff. Og síminn minn er meðal annars farinn að taka uppá því að taka ekki á móti smsum. Ó svei. En ég verð víst að una við það ástand að minnsta kosti fram að næsta launaseðli...

Og já. Í gær fór ég líka á bókasafnið og náði í hollenskutungumálanámskeiðið sem ég er búin að bíða eftir í tvær vikur. Eyddi síðan gærkvöldinu í að læra hollensku hægri vinstri. Þetta getur t.d. verið gott að kunna: "Een jongen en een vrouw in een boot." Einn strákur og ein frú í bát. Jájá. Og "een" berist fram sem "un". Bara svo þið vitið.

En ég má eiginlega ekki vera að þessu blaðri, ég ætla nefnilega að sauma smá út...

Hafið það gott og farið ykkur nú ekki að voða um helgina älsklingarnir mínir! Puss og kram, Anna Björk

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Ju minn!

Ég stendst ekki mátið, ég verð að blogga aftur.

Í dag eru akkúrat þrjár vikur þar til ég fer til Hollands. Hugsa að ég verði að byrja niðurpökkun helst ekki seinna en á morgun, þið munið nú hvernig þetta fór síðast! Eins verð ég að finna upp aðferð til að minnka allt dótið mitt. Hefi ég því úthugsað það ráð að henda öllum óþarfa umbúðum, s.s. kössum utan af snyrtivörum og fleiru, til þess að geta komið öllu í mínar tvær ferðatöskur. Og Guði sé lof (eða guðskeklof Hrafnhildur mín!), þá kostar yfirvigtin með SAS aðeins um 400 íslenskar krónur í stað 1000 með Iceland Express. Er því hugsanlegt að ég fari ekki algjörlega á hausinn.

Á morgun eru einnig tveir mánuðir síðan ég kom hingað til Svíalands, eða 62 dagar. Ji minn eini, hvað tíminn líður!

Dvöl mín hér hefur hins vegar valdið hjá mér málhelti á háu stigi. Mér þykir ákaflega erfitt að tala við Dagnýju (hinn Íslendinginn á Gothia Towers), því ég er löngu búin að gleyma hrynjandanum í íslenska málinu, sem veldur því að mér er það lífsins ómögulegt að setja áherslupunktana á rétt orð og þarf því yfirleitt að endurtaka setningarnar til að ná fram réttri merkingu. Ég er þó ekki farin að syngja íslenskuna, sem betur fer. Eins finnst mér afskalega erfitt að bera fram orð á borð við "herbergi". Ég vil helst kalla öll herbergi rúm, en þegar ég man eftir því að rúm eru herbergi, þá þarf ég að vanda mig vel og vandlega við framburðinn. Orð eins og "ha?" eru mér líka mjög ótöm í augnablikinu, því nú er allt bara "Va?".

En nú er ég búin að sitja ansi lengi á mínum allra heilagasta rassi, best að fara og laga pínu til! Kærar kveðjur, Anna Björk

Lýsing á degi vinnandi Önnu

Vinnudagurinn í dag byrjaði ekkert spes. Ég var á tuttugustu hæð í West, sem sagt Sky herbergi með flóknum míníbar (tveir vodka, tvö whiskey, tvö vín í svörtum umbúðum, eitt rauðvín, eitt hvítvín, tvær kókakóla, einn appelsínu Schweppes, einn öðruvísi Schweppes, tveir bjórar, ein dós salthnetur, ein dós kasjúhnetur, ein dós nammi, eitt kolsýrt vatn, tvö lítil áfengisglös, tvö venjuleg glös og tvö rauðvínsglös), flóknu baðherbergisdóti (tvö sjampó, tvær hárnæringar, tvö bodylotion, tvö skópúss, tvær sturtuhúfur, tveir pakkar með eyrnapinnum og bómull, tvö saumasett og tvær sápur) og í hverju herbergi á að finna morgunsloppa og inniskó, flösku af "himnesku vatni" og tvö Toblerone.

Dagurinn byrjaði sem sagt á því að ég fann hvergi hreinar skúringarmoppur. Slæmt mál, en ég nennti nú ekki að gera vesen út af því og ákvað því að nota moppur frá því deginum áður og bleyta upp í þeim með vatni. Þess má geta að daginn áður fór ég á næstum hverja einustu hæð á þessu blessaða hóteli til að finna hreinar moppur og fann eina.

Og síðan fann ég enga morgunsloppa. Ég fór niður á hæð 19, því þeir eru yfirleitt þar. En þar voru engir sloppar. En ég nennti nú ekki að gera veður út af því, heldur tók þá ákvörðun að setja hreinlega enga sloppa inn í herbergin, ekki nennti ég nú að eyða hálfum vinnudeginum í að leita að slíku dóti.

Og svo ætlaði ég að byrja að þrífa og bankaði voða pent á eitt herbergið. Enginn kom til dyra svo ég stakk lyklakortinu í kortaraufina, en ekkert gerðist. Ég prófaði næstu dyr, og ekkert gerðist. Þá tók ég eftir því að ég hafði fengið vitlausan lykil, svo ég var tilneydd til að fara alla leið niður á hæð núll og fá nýjan lykil.

Og fyrst ég var komin niður á annað borð, þá spurði ég hvar ég fyndi hreinar moppur. Húsfrúrnar (yfirmenn mínir kallast húsfrúr) komu alveg af fjöllum því enginn hafði tilkynnt þeim um skort á moppum, svo þær sögðu mér að fara á hæð 15, kannski væru einhverjar til þar. Ég spurði líka hvar ég fyndi morgunsloppana. Aftur komu þær af fjöllum, því enginn hafði tilkynnt um skort á morgunsloppum, en þær sögðu mér að fara á hæð 18 og tékka hvort ég fyndi einhverja þar.

Frá því er skemmst að segja að engar moppur voru á hæð 15 og engir morgunsloppar á hæð 18.

En allt þetta flakk tafði mig svo mikið að klukkan hálf ellefu var ég búin með eitt herbergi í stað þriggja og sá fram á að vera föst í vinnunni fram að jólum.

En þá ákváðu einhverjar elskur í tveimur herbergjum að vera sofandi í allan dag svo ég þurfti ekkert að þrífa herbergin þeirra og var búin með öll þrif klukkan fjögur, jahú! Og þá átti ég reyndar eftir að fylla á vagninn sem tók nú sinn tíma, sérstaklega þar sem ég fann þetta fína fína slúðurblað í ruslinu í einu herberginu sem ég þurfti að sjálfsögðu að lesa... tók það nú reyndar með mér heim til að geta lesið það ennþá betur!

En í vinnunni var ég búin klukkan fimm mínútur í fimm, svo dagurinn var nú ekkert svo slæmur eftir allt sem á undan var gengið.

Þetta var nú aldeilis skemmtileg saga.

Á morgun er ég svo í fríi en ætla að vakna klukkan sjö til að þvo þvott. Ó þetta líf!

En jæja, ég ætlaði að segja frá mörgu fleiri í dag, en ég veit ekki alveg hvað lesendur mínir höndla langar færslur, svo ég læt það bíða í bili. Kannski ég bloggi aftur í kvöld?

Ástarkveðjur úr rigningunni, Anna Björk

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Fátt í fréttum

Hin bjartsýna ég fór í klofstuttu pilsi og hlírabol til vinnu í dag. Las síðan í Göteborgsposten í morgunmatnum að nú séu hitabylgjurnar búnar og við tekur venjulegt sænskt sumar, m.ö.o. rigning daginn út og daginn inn. Strunsaði því heim, afar fáklædd, í rigningu og nístingskulda klukkan fimm. Ó svei.

Ég held ég eigi líka tíma í þvottahúsinu akkúrat núna. En sökum leti ætla ég ekki að hreyfa mig úr þessum sófa í allt kvöld.

Annars er fátt að frétta, fyrir utan að ég fór allt of seint að sofa og allt of seint á fætur. Já, svona er að þurfa að hugsa um sig sjálfur! Mig vantar Venlu mína aftur!

Jæja, má ekki vera að þessu blaðri, ég er svo agalega upptekin við mikilvæga hluti á borð við sjónvarpsgláp og blogglestur...

Hagið ykkur vel! Anna Björk

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Úrslit júlí-mánaðar!

Já, síðasta færsla var nú í aðeins lengri og þyngri kantinum, þið megið látið það duga að skoða bara myndirnar ;)

En já, júlí er búinn og er því komið að því að gera grein fyrir kommentasigurvegurum mánaðarðins.

1. sæti:

Björg María Jónsdóttir. Sorrí Björg mín, ég átti enga mynd af þér og fann enga á netinu sem ég kunni við að stela, svo þú færð þessa fínu blómastelpu í staðinn :) En já, Björg kom, sá og sigraði í þessum mánuði, til hamingju með það :D

2. sæti

Kristinn Björn Haraldsson, litli brósi. Á enn enga mynd af gaurnum svo ég set bara inn mynd af Grænavatni að vetri til :) Kristinn var í 3. sæti í júní-mánuðinum svo nú vantar bara herslumuninn, en það munaði aðeins einu atkvæði á honum og Björg.

3. sæti:


Elín Ósk Magnúsdóttir, sem hefur ekki komist mikið í tölvu undanfarið, en þarf að herða sig ef hún ætlar að halda sig í toppsætunum ;) En þess má þó geta að hún var aðeins einu atkvæði á eftir Kristni, eða tveimur atkvæðum á eftir toppsætinu.

Annars er fátt að frétta, fyrir utan að ég er orðin einbýlingur aftur. Venla fór aftur til Finnlands í morgun eins og plön gerðu ráð fyrir, enda byrjar skólinn hjá henni eftir tvær vikur. Reyndar skemmdi ég óvart hjá henni flotta planið sem hún ætlaði að hrinda í framkvæmd núna í morgun!

Já, sagan er sú að ég gleymdi símanum mínum óvart í vinnupilsinu mínu á Gothia Towers í gær og uppgötvaði ég það í gærkvöldi að ég væri símalaus og þar með vekjaraklukkulaus með öllu. Fól ég Venlu því það verk að vekja mig núna í morgun, fyrst klukkan sjö, síðan aftur klukkan tuttugu mínútur yfir sjö og í síðasta skiptið klukkan hálf átta, alveg eins og síminn minn er vanur að gera. Frá því er skemmst að segja að ég vaknaði alveg sjálf (eða við umganginn í Venlu) klukkan tíu mínútur í sjö og fór á fætur. Þá varð Venla ekkert smá vonsvikin, enda var hafði hún ætlað sér að öskra "HOUSEKEEPING!!!" af öllum lífs og sálarkröftum, svona í kveðjuskyni! :D Hahaha.

"Housekeeping" er nefnilega orðinn einn stór brandari hér í Óðinsgötunni. Því við vorum jú báðar ræstingarkípur (eða ræstingarpíkur). Og í gær þegar ég sá fram á að búa ein í næstum fjórar vikur, þá allt í einu atvikaðist það að "don't disturbe" skilti frá Gothia Towers lenti allt í einu ofan í bakpokanum mínum og kom með mér heim! Jeminn eini, ég veit ekkert hvernig það vildi til. En þess má geta að þetta var eldgamalt skilti sem búið er að skipta út fyrir nýrri og "fágaðri" skilti. Reyndar var þetta eitt af örfáum sem eftir voru. Nýju skiltin eru ljót. Á grænu hliðinni er mynd af ryksugu og á rauðu hliðinni er mynd af tám sem gægjast út fyrir rúmstokk.

En gömlu skiltin, já gömlu skiltin! Þau eru flott!

Venla, if you read this, these photos are for you ;)

This is the cleaning-lady that will to keep me company for the rest of the month

And this guy will... ehm... keep me warm at night? Nice hat, by the way! :D

Jæja, best að fara og gera eitthvað gáfulegt. And Venla, miss you already!

Bestu Göteborgarkveðjur, Anna Björk