föstudagur, júlí 07, 2006

Föstudagsblaður/blaðra

Einhverra hluta vegna er ég með blöðru neðan á hægri litlutá. En Guðskelof, þá er ég ekki að fara að nota fæturna á morgun. Nei, ég ætla að nota upphandleggsvöðvana, múhahaha.

Ég hef bara einu sinni farið á kanó áður. Það var í Danmörku vorið 2003 og ég ALLTOF mikil gelgja til að róa sjálf og lét þess vegna hina bara um það.

En núna er ég minni gelgja (og jafnvel minni gella líka, haha) og ætla að róa sjálf... eða svona kannski... sjáum til hvernig okkur verður raðað í kanóana :) Mestan áhuga hef ég þó á vatninu sjálfu, því það er svo flott að sjá öldurnar skella á bátnum... Held samt að verðum að taka ansi mikið á því ef við ætlum að fá einhverjar öldur, hehemm!

Og stærstu fréttirnar í dag eru að sjálfsögðu tatatata! Veðurfréttir! Já, ég tala ansi mikið um veðrið, en þið þarna þorskar á þurru landi (Frónbúar) þurfið að sjálfsögðu að vera vel upplýst um veðrið hér á meginlandsflekanum! Og já. Kannski ég segi þá fréttirnar. Í nótt RIGNDI :D:D:D Já, þið getið ekki ímyndað ykkur gleðina sem skein úr mínum augum í morgun! Reyndar er einn galli á þessari rigningu og hann er sá að loftið verður rakt og hárið á mér krullar sér algjörlega óumbeðið upp í allskonar furðulega liði... Sléttujárn segið þið?

Núna um helgina á síðan að vera frekar kalt samkvæmt veðurspánni, eða svona 18 til 25 stig. Í næstu viku á síðan að hlýna aftur og þá verða 25 til 30 stig. Og vúhú, það rignir heima á Grænavatni :D Og er það alfarið mér að þakka! Reyndar segir mamma að ég hefði nú alveg mátt sleppa kuldanum sem fylgir, en það eru víst ekki nema bara svona 6 gráður heima núna... heh, vúps!

Og já, pff, ég er nú eiginlega orðin algjör sænskusnillingur! Þegar fólk er farið að skilja mig alveg fullkomlega í síma án þess að þurfa að segja "Hvad säger du?" svona sjö sinnum, þá tel ég það vera merki um stórkostlegar framfarir.

Í dag skildi t.d. þvottamaðurinn á hótelinu þetta þegar ég hringdi í hann: "Heijj, der fínns ínga stúra handdukjar úbbe po voníng tolv í vest... taggj so míggje!" ("Där finns inga stora handdukar oppe på våning tolv i West... tack så mycket!"). Reyndar er ég ekki alveg klár á hvort maður segir "úbbe" eða "obbe", en mér finnst skemmtilegra að segja hið fyrrnefnda svo ég held bara áfram að segja "úbbe" þar til ég veit betur. En allavega, þvottamaðurinn kom eftir hálfa mínútu með vagn stútfullann af stúrum handdúkum, ú je!

Já, þetta var nú aldeilis skemmtileg saga.

Og já. Sá sem kann að segja orðið "vifta" á ensku má kommenta hjá mér hið snarasta. Það er nefnilega ekki mjög smart að segja "windmaker" (eins og Venla stakk upp á). Sérstaklega ekki þar sem ég ætla að kaupa mér eina slíka græju og yrði það nokkuð hallærislegt að fara út í búð og segja: "Ursäkta! Har du en windmaker?". Og ef þið kunnið að segja orðið á sænsku, tjah, þá er það náttúrulega ekkert verra ;)

Jæja, best að fara og horfa á ekkert í sjónvarpinu. Verið góð hvert við annað! Anna Björk

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Too warm, too warm...

Jájá. Hitinn er nú í kringum 30 stig á daginn... Ekki amalegt það! En öllu má nú samt ofgera... Og hvar er eiginlega kalda hafgolan sem er alltaf heima á Íslandi? Þið megið allavega senda hana hingað til mín ;)

Ég dýfði táslunum í sjóinn í dag

Nú er ég orðin svo brún að það styttist í að ég verði útfjólublá.


Saltholmen, þarna velur maður sér stað og liggur í sólbaði

Já, sólbaðið í dag var hið fínasta. Reyndar eru sumir líkamspartar óþarflega grillaðir núna, en það jafnar sig á nokkrum dögum og verður að hinni fínustu brúnku :)

Bjútí bjútí

Slottskógurinn var líka fínn. Við Núrjobbarar grilluðum pylsur og skelltum okkur í smá hafnarbolta. Frá því er skemmst að segja að ég, grínlaust, BRILLERAÐI í hafnarboltanum og sló ekki eitt einasta vindhögg! Öss, ekkert smá flott á því!

Grillað í Slottskogen

Hvað fleira? Hmm, jújú, vinna á morgun. Eftir vinnu ætla ég heim og glápa á imbakassann, því ég ætla að leyfa húðinni að taka smá pásu frá sólinni. Eða kannski ég kíki á bókasafnið og taki fleiri Evu&Adams bækur að láni? Hmm já, ég held ég geri það bara!

Núrjobbarar

Magnaðar pósur alltaf hreint!

En jæja, best að fara að koma sér í rúmið! Held samt að ég sé ekkert að fara að sofa, það er alltof heitt hér til slíkra athafna... Adiós, Anna hin útfjólubláa

Hiti sviti

Jahá, ein eftirmiðnætti færsla hér á ferð! Já, það er einfaldlega of heitt til að sofa. Sérstaklega þar sem ég sef uppi á fataskáp og allt heita loftið leitar upp á við... held ég? Heh, ansi langt síðan ég var síðast í eðlisfræði ;)

Og já, það hjálpar ekkert að hafa gluggana opna, því það er næstum því heitara úti en inni. Og það hjálpar heldur ekkert að vera alveg nakin og með enga sæng. Og það hjálpar klárlega ekki að fara út í einhvern almenningsgarð og sofa þar, því það er ennþá yfir tuttugu stiga hiti úti...

Og hvað gerir maður þá? Jú, hangir á netinu eins og manni sé borgað fyrir það! Ætlaði að niðurhlaða einhverjum skemmtilegum lögum af netinu, en er allt í einu búin að gleyma hvernig tónlistarsmekk ég hef. Fuss, ég kenni MTV um! Sem spilar by the way geðveikt leiðinleg lög sem ég fíla furðulega mikið!

En ég ætla samt ekki að kvarta yfir veðrinu hér í Svíaveldi, ó nei! En ég ætla hins vegar að kvarta yfir veðrinu heima á Grænavatni og biðja hvern þann sem vill hlusta á um að senda foreldrum mínum smá rigningu á túnin...

Vá, talandi um tilgangslausa bloggfærslu! Haha. En jæja, best að kasta af sér klæðum og skríða upp á fataskápinn og fara að sofa! Það er nefnilega bissí dagur á morgun, fyrst Saltholmen og síðan Slottskogen... ;)

Og já. Þegar ég nenni þá þarf ég að muna eftir að fara í þvottahúsið og panta mér þvottatíma! Tjah, reyndar er einn hængur á, og hann er sá að ég nenni aldrei ;) Ég meina halló, ég bý á fimmtu hæð í LYFTULAUSU húsi og þvottahúsið er einhversstaðar niðri í öðru húsi... Það er ekki eins og ég nenni að hlaupa niður til þess eins að panta tíma og hlaupa upp aftur ;)

Reyndar hefði ég nú ekkert nema gott af því. Ég hef nefnilega verið aðeins of dugleg við að rækta nýjasta áhugamálið mitt hérna í Gautaborg: Kökur! Kökur af öllum stærðum og gerðum! Namminamm. En satt best að segja hef ég EKKI GLÓRU um hversu þung ég er akkúrat núna, hvort ég er 57 kíló (vonandi) eða 60 kíló (jafnt og MEGRUN!), tjah, ég hreinlega get ekki sagt til um það. Þó finnst mér ég vera í þyngri kantinum þótt útlitið beri það ekki með sér, kannski þetta "þunglyndi" stafi af því að ég hef ekkert hreyft mig (fyrir utan að ganga og rúlla mér á línuskautum) síðan ég kom hingað til Gautaborgar? Já, ég ætla klárlega út að skokka á föstudaginn! :D

En jæja, skriftum lokið, ég er farin að sofa (eða réttara sagt soðna). Adiós og hagið ykkur vel! AnnaHaralz

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Saltholmen í dag

Í morgun stökk ég upp í sporvagn númer níu og skellti mér í Saltholmen sem er lengst úti í burska. Eða kannski ekkert svo langt í burtu, en 35 mínútur með sporvagni er nú alveg kappnóg að mínu mati.
Saltholmen er mjög huggulegur baðstaður. Ég skyldi myndavélina mína þó viljandi eftir heima, því ég vildi kanna staðinn fyrst og meta hversu miklar líkur eru á að slíkum gripum sé stolið þar. Eftir fjögurra klukkustunda langt sólbað í bikiníbrókinni einum fata komst ég að því að hættan er ekki mikil, því umhverfið er einfaldlega þannig að erfitt er að nálgast aðrar manneskjur án þess að þær taki eftir því. Ekki það að ég hafi gert einhverjar tilraunir með það...
Og já. Það verður að segjast eins og er að það sé miklu, tjah, vandræðaminna að skella sér á svona baðstað og vera ber að ofan þar í stað þess að flagga sínum málum alveg óvart í miðjum almenningsgarði... eins og ég gerði einmitt í Kungsparken um daginn... Já, þar lá ég í mestu makindum með lokuð augun og mp3 spilarann á eyrunum og fattaði ekki fyrr en eftir maaargar mínútur að bikiníbrjóstahaldarinn minn var nú ekkert alveg á sínum stað... Hehe. Vúps.
Og á morgun ætla ég aftur í Saltholmen, og svei mér þá, kannski ég skelli mér barasta í sjóinn þá! Ég ákvað samt að sleppa því í dag, því eitthvað hef ég heyrt sögusagnir þess efnis að hættan á að maður sólbrenni sé mun meiri ef maður þvær saltvatnið ekki af sér. Og þar sem engar sturtur eru á svæðinu, tjah, þá tók ég enga sénsa.
Annars er fátt í fréttum hér í Gautaborg, fyrir utan að hún Venla er týnd... Eða hún hefur allavega ekki látið sjá sig hér í Odinsgatan eftir að ég kom heim klukkan fimm. Hmm, ég hefði nú samt helst viljað sjá hana hér, því ég ætlaði að draga hana með mér í Liseberg að skoða sæta stráka.
Jæja, best að hætta þessu blaðri og fara að lesa bloggsíður! Eða fara í Liseberg! Eða leita að Venlu! Tjah, eða bara horfa á sjónvarpið...
Adiós, AnnaBabe

þriðjudagur, júlí 04, 2006

Sumar í Sverige

Bloggfærsla númer tvö í dag, ég hlýt að vera orðin geðveik. Þetta hefur ekki komið fyrir síðan á Íslandi!

Ekki það að ég hafi eitthvað merkilegt að segja, heldur eru dansararnir í "So you think you can dance" svo hörmulegir að ég nenni ekki að horfa á þáttinn nema með hálfum huga. Það er ekki við hæfi að segja með "öðru auganu" líkt ég ætlaði að segja, því ég er ekki svo hæfileikarík að geta horft í tvær áttir í einu, svo bæði augun fá að hvíla á sjónvarpsskjánum en hugurinn splittast þess í stað.

Áðan skellti ég mér á finnskt kvöld á Núrjobbskrifstofunni. Frá því er skemmst að segja að enginn Finni hafði undirbúið neitt finnskt, svo eftir að rædd höfðu verið praktísk mál hvað varðar komandi atburði hjá Nordjobb, þá fór ég snemma heim til að geta notað sama sporvagnamiðann aftur. (Ef maður fer með sporvagni þá gildir miðinn manns áfram í einn og hálfan tíma).

Já, komandi atburðir. Á fimmtudagkvöldið ætlum við Núrjobbarar í Slottskogen að sprella eitthvað, og á laugardaginn er tatatatataaa! Kanóferð :D Vúhú! Ég meira að segja tek mér frí úr vinnunni á laugardaginn til þess að fara með í þessa ferð, því ég elska að sigla á bátum af öllu tagi! Og síðan er ég búin að skrá mig á sænskutungumálanámskeið og ég veit ekki hvað og hvað.

Og já, af sænskunni er allt gott af frétta. Ég er farin að geta talað sænsku í síma og get meira að segja haldið uppi nokkuð eðlilegum samræðum á sænsku. Reyndar snýst uppáhaldsumræðuefnið mitt ennþá um þrif af öllu tagi... En ég get samt alveg talað um eitthvað annað líka ;)

Jæja, best að fara að koma sér upp á fataskápinn og fara að sofa... Ég man ekki hvort ég er búin að segja ykkur frá því, en ég sef tæknilega séð uppi á fataskáp! Já, það er hátt til lofts hér í Odinsgatan og því ekki að nota plássið??

Over and out! Tack så mycket :) Puss og kram, Anna Björk hin ofursænska

Hún öskra, ég glápa!

Í dag var ég búin í vinnunni klukkan tvö vegna þess að margir gestanna voru sofandi og ég gat ekkert gert. Sweet! Hins vegar held ég að það sé klárt mál að ég ríði ekki feitum hesti peningalega séð eftir sumarið... En mér er samt eiginlega alveg sama, því ég þarf náttúrulega ekkert að safna fyrir skóla eða einhverju slíku, og finnst mér því tilvalið að njóta þess að vera til í staðinn :)

Í dag stendur mælirinn í 27,7 gráðum og í stað þess að njóta sólarinnar ætla ég að njóta tölvunnar minnar. Neinei, ég er ekkert búin að missa vitið. En hins vegar er staðreyndin sú að ég ætla annað hvort á ströndina á morgun ("ströndin" samanstendur af klöppum og engum sandi) eða í einhvern listigarð og liggja í sólinni allan daginn með Britney Spears í eyrunum og nesti í hönd. Og þar sem ég er með frekar viðkvæma húð, þá er ég nokkuð viss um að ég þoli ekki sólbað í marga daga í röð, og því ætla ég að halda mig að mestu leyti innandyra í dag.

Og já, þið heyrðuð rétt. Britney Spears! En ég meina, halló! Ég hlusta/horfi á MTV allan daginn í vinnunni og er þetta sjálfkrafa afleiðing þess. Ég á t.d. ansi bágt með að grípa mér ekki klósettrúllu í hönd (hljóðneminn, þið skiljið) og dansa og syngja "Oops I did it again" eins hátt og ég get fyrir framan stóru speglana í herbergjunum. Mig grunar nefnilega að einhver gestanna myndi kvarta.

Hey, í dag í fjórði júlí. Sem þýðir að akkúrat í dag lenti ég í Gautaborg fyrir fjórum tímum síðan fyrir akkúrat mánuði síðan. Með öðrum orðum: ÉG ER BÚIN AÐ VERA HÉR Í HEILAN MÁNUÐ!!! Heill mánuður bara fokinn út í buskann! Og án þess að ég tæki eftir því! Ó svei. Og ég er ekki búin að koma neinu í verk! Ég er t.d. ekki búin að kaupa mér push-up-lausan brjóstahaldara í stærð 70A (þó úir allt og grúir hér af þeim, annað en heima á Fróni!), ég er ekkert búin að fara út að skokka, ég er ekki einu sinni búin að tékka á verðinu á lestarferðum til Osló, ég er ekkert búin að fara í heimsfrægan listigarð með 3000 tegundum af rósum sem er hérna hinum megin við götuna, ég er ekkert búin að kaupa mér föt (fyrir utan eina peysu, eitt pils og einn bol... og fyrir ykkur sem ekki vissuð, þá átti ég engin föt fyrir... ein að missa sig í kaupæðinu, ha?) og ég hef barasta ekki gert nokkurn skapaðan hlut!

Hins vegar er það klárt mál að ef ég væri heima á Fróni, þá væri ennþá tuttugasti júní og ég væri ALLTAF í vinnunni, skituhvít af sólarleysi! Ha ha.

Og já. Hún móðir mín er himinlifandi yfir að ég skuli loksins vera farin að taka smá lit. Hún var nefnilega farin að örvænta að ég yrði yfirhöfuð brún! En svei, það eina sem þurfti til var smá sól og útlönd :P

Hvað fleira? Jújú, 17 dagar í Köbenhavn baby :D Vá, hvað ég hlakka viðbjóðslega mikið til! Ég held reyndar að það standi til að eyða hluta af þeirri helgi með öðrum Núrjobburum sem vinna í Köben baby, en mér dettur eiginlega ekki í hug að eyða mínum tíma í svoleiðis rugl! Pff nei, ég ætla sko að ganga um og njóta lífsins og snakka dönsku (sem er gjörsamlega eyðilögð núna vegna sænskunnar)! Reyndar er hálffurðulegt að vera að fara til útlanda þegar maður sjálfur býr í útlöndum... Ef ég væri heima á Fróni væri ég löngu búin að gera foreldra mína geðbilaða því ég hlakkaði svo mikið til. Og þó, þau höndluðu mig og mína tilhlökkun fyrir Sverige baby með stakri prýði, en Svíþjóð er auðvitað ekki Danmörk svo það er ekkert skrítið þótt ég hafi verið temmilega hófsöm í tilhlökkuninni fyrir Svíþjóð (sem var þó brjálæðislega mikil). Eða já. Þið skiljið.

Veckoträff (vikulegur fundur Núrjobbaranna í Gautaborg) er í kvöld og ég nenni engan veginn. Reyndar verður finnskt þemakvöld, en þar sem að hér í bæ eru aðeins fjórir Núrjobbarar sem ekki eru frá Finnlandi, þá hefur metnaður Finnanna í að finna eitthvað að gera á þessu þemakvöldi ekki verið nema svona tveggja fiska virði. Eða með öðrum orðum: Þau hafa ekki planað neitt. Og þó, kannski maður skelli sér og dragi síðan einhverja með sér á kaffihús :) Já, ég held að það sé málið.

Jæja, best að tékka á hvort að það finnist ætur matarbiti hér á heimilinu... annars lýsi ég yfir hungursneið því ég nenni ekki út í búð!

Knús og kossar, Anna Björk

mánudagur, júlí 03, 2006

Önnur myndafærsla, jess

Í tilefni þess að hægri ökklinn á mér höndlar ekki meira labb í bili, þá hefi ég ákveðið að láta allt félaglíf um lönd leiða í kvöld og heiðra ykkur þess í stað með nærveru minni.

Og áfram skal haldið þar sem frá var horfið!

30 .júní: Við Venla að tékka statusinn á útlitinu

Já, við reyndum að vera svolítið alvarlegar

Við á einhverjum svölum einhversstaðar

1. júlí: Svona var veðrið þennan júlímorgun og tilvalið að leika sveittan túrista ásamt hinum núrjobburunum, ókeypis! Því við fengum öll ókeypis “Gautaborgarpassa” sem hleypti okkur ókeypis inn á flest söfn borgarinnar og annað túristadót í heilan sólarhring.

Æ-æ. Eitthvað er hárið að klikka á þessari mynd! Kannski vegna þess að ég dundaði mér einum of mikið við að borða morgunmatinn og lesa vikugömul dagblöð svo ég þurfti að hlaupa sem mest ég mátti til að verða ekki of sein? Hmm, pæling!

Við byrjuðum á að fara í Universeum, svo já Björg, ég hef farið þangað :D

Í Universeum, sem er náttúrulífssafn eða eitthvað í þá áttina, sá ég þessar fínu fínu slöngur/snáka/orma.

Mér finnst nú appelsínuguli gullfiskurinn minn heima í sveitinni aðeins sætari en þessi blái fiskur.

Og fleiri slöngur/snákar/ormar.

Hjálp!

Komin í hitabeltið sem var aaaðeins of loftlaust fyrir minn smekk

Þetta fína fiðrildi fann ég í hitabeltinu

Já, það var fallegt "landslag" þarna

Ég sá sjálfa mig á risaskjá… Takið eftir nýju og fínu Pamelu Anderson brjóstunum mínum!

Ég alveg rosalega menningarleg á listasafni þar sem þemað var húsgagnahönnun í Norðrinu eða eitthvað slíkt.

Þessi mynd er tekin í “The Lipstick-house”, byggingu sem lítur út eins og varalitur. Flestar myndirnar sem ég tók úr turninum eru ónothæfar með öllu því myndavélin mín var að verða batteríslaus og vildi ekki sýna mér myndirnar á stóra skjánum og ég fattaði ekki að nota litla gatið og skaut þess vegna út í loftið og einnig vegna þess að ég sjálf speglaðist alltaf í glugganum og skemmdi myndirnar… Og vá, hvað þetta var löng setning! En já, þarna sjáið þið aðalbrautarstöðina (Central Station) og ég bý þarna rétt hjá…

Þarna var ég komin í “Pödduna” (Paddan) sem er túristabátur sem siglir um skurðina í Gautaborg. Spurning um að vera aðeins glaðlegri á sjálfsmyndum?

Stolt siglir fleyið mitt stjórsjónum á… Af hverju gerist það alltaf að myndirnar mínar halla? Kannski það sé í genunum, því eitthvað held ég að hún móðir mín sé engin reglustika heldur... ;)

Ég hafði aðeins meiri áhuga á vatninu heldur en túristafyrirlestrinum. Ekki þó vegna skorts á áhuga á helstu stöðum Gautaborgar, heldur finnst mér bara svo sjúklega gaman að sigla! :D

Við Venla létum fara vel um okkur í Slottskogen, stærsta útivistarsvæðinu í Gautaborg. Og ég get nú alls ekki sagt að ég myndist vel svona liggjandi.

Degi tekið að halla

Já, þannig var nú það! Loksins er ég búin að vinna upp allar myndalausu færslurnar mínar, vúhú! Njótið vel og lengi og hugsið fallega til mín þar sem ég ligg í sólbaði í 27 stiga næstum dag hvern...

Adiós, Anna Björk