Ég fór í orðsins fyllstu merkingu að skæla áðan þegar uppáhaldið mitt í danska X-factornum komst áfram í live-showið. Hann er 15 ára og þvílíkur karakter að því er vart hægt að lýsa.
Áfram Basim!
(Myndinni var fimlega stolið af http://www.dr.dk/dr1/xfactor/)
föstudagur, febrúar 01, 2008
:)
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, febrúar 01, 2008
Flokkur: Danmark
sunnudagur, janúar 13, 2008
MYNDIR!
Jæja er ekki komið að myndabloggi? Jú ég held það nú! Reyndar þarf ég að fara meira en mánuð aftur í tímann með þessar myndir en það verður bara að hafa það.
#
Þann 8. desember fórum ég, Hildur og Linda á djammið.
#
Þann 13. desember gisti ég hjá Hildi Evu. Daginn eftir ætlaði hún svo að skutla mér á lestarstöðina í Hörsholm, en þá ákváðum við að fara til Hilleröd í staðinn, því þangað hef ég aldrei komið. En þegar þangað var komið ákváðum við að gera þetta bara almennilega og skella okkur í surprise-heimsókn til Lindu í Frederikssund og gefa henni ís. Úr þessu varð hið skemmtilegasta ferðalag.
Hildur Eva að stilla GPS-inn góða.
Einbeitt við aksturinn.
Já svona er ástandið í Danmörku í desember, grænt gras svo langt sem augað eygir!
Svo var gerð smá útsýnispása, agalega fallegt þarna!
Hildur Eva að njóta dýrðarinnar.
All natural beauty! Uppáhaldsmyndin mín af okkur stöllunum :)
Já hann Mosi gamli ;) Sem sagt bíllinn hennar Hildar Evu.
Eigum við eitthvað að ræða þessa pósu?
Allt að verða klárt!
Ég heimta módelsamning ekki seinna en núna! Tyra Banks, hvar ertu? Ég veit þú lest þetta...
Já það verður að taka margar myndir til að vera viss um að ekkert sé að klikka!
Hildur mín, held þú sért að misskilja, við ætluðum nú ekki að hræða strákana í burtu sko...
Held við séum skárstar svona!
Mikið agalega var ég fersk ;)
Ég og Óli minn.
Við aftur, og ég held ég sé að missa brjóstin upp úr bolnum...
Útlitstékk - ég skítféll nú á því prófi!
Ég og Baldvin
Stymmi og Helgi, mér sýnist Helgi þurfa að fá sér gleraugu...
Og hverjir skildu þetta vera?
Rembdist eins og rjúpan við staurinn að myndast vel!
Stymmi með spjótið hans Óla. Þess má geta að síðar um kvöldið stakk ég mig á þessu spjóti á vinstri úlnliðnum, það hljóp einhver sýking í sárið svo það graftaði glæsilega í tvo daga og er fyrst að hjaðna núna, rúmri viku eftir stunguna... Það á ekki að leika sér með vopn!
Ég, Stymmi og Baldwin.
Og svo bættist Óli í hópinn.
Helgi var of svalur til að vera með í hópmyndasjálfsmyndatökunni...
Óli að pósa og Baldvin að reyna að trufla...
En Óli er ýmsu vanur og dettur ekki úr hlutverki.
Loksins áttu Óli og Pósan sviðsljósið ein.
Þarna voru sumir búnir að fá sér smá áfengissopa... (Þess má geta að Baldvin og Stymmi eru bræður!).
Harðasta gellan í bænum!
Veit ekki alveg hvað var í gangi á þessari mynd...
Baldvin, Stymmi og Eva.
Og svo var að sjálfsögðu slegist.
Baldvin og Helgi að syngja dúett fyrir Styrmi.
Settu meiri innlifun í þetta þegar Stymmi sýndi engin viðbrögð...
#
Og svo var kominn 6. desember og tími til þess að halda aftur til Danmerkur. Ingi minn kæri fyrrverandi sambýlingur skutlaði mér og Hildi til Kefló, með smá stoppi á Blönduósi svo ég gæti hitt hana Elínu mína! :D
Ég og Elín Ósk, hrikalega ferskar svona í morgunsárið ;)
Hildur Eva og ég í flugvélinni, það voru gerðar margar tilraunir til þess að ná almennilegri mynd af okkur, en sökum ljótu og þreytu á háu stigi var þetta besta myndin...
#
Já þannig var nú það!
Annars er helgin búin að vera agalega næs, fór í brunch með Hildi á föstudaginn og svo fórum við heim til hennar í kósílegheit, bökuðum pitsu og kjöftuðum eins og okkur tveimur er lagið. Ég gisti hjá henni þá um nóttina, og svo er afgangurinn af helginni búinn að fara í algjöra afslöppun, bíóferð og meira kósí. Ó já :)
En nú verð ég að hætta, ætla að færa mig yfir í rúmið og sauma pínulítið út!
Hafið það gott älsklingarnir mínir :) Bestu kveðjur, Anna hin afslappaða.
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, janúar 13, 2008
fimmtudagur, janúar 10, 2008
DK igen
Jæja, þá er maður aftur kominn til Danmerkur, klár í slaginn fyrir nýtt ár og ný ævintýri.
Þessir fyrstu dagar hafa að mestu leiti farið í algjöra leti, enda svolítið erfitt að koma sér aftur rútínu eftir þriggja vikna legu á Hótel mömmu. Þó er ég búin að standa við mína pligt og mæta í vinnuna alveg lon og don. Mætti meira að segja í dag, á frídeginum mínum heilaga (er alltaf í fríi á fimmtudögum) en þó gegn því að ég fengi frí á morgun = þriggja daga helgi! Hoho, það verður ljúft. Er þó með einhver plön hér og þar, en við sjáum til hvað verður.
Í dag fékk ég jólagjöf frá vinnunni. Það var einhver alveg agalega fín kaffipressukanna með niðurteljara, skeið og stórri krukku fyrir kaffibaunir. Yfirmaðurinn glotti og sagði að nú YRÐI ég hreinlega að læra að drekka kaffi, sama hvað tautar og raular. Það veit nefnilega alþjóð að ég hef margoft reynt að drekka svona viðbjóð en aldrei tekist að koma niður sopa. Og ég drekk heldur ekki vín. Og borða heldur ekki ólífur. (Þessir þrír hlutir, kaffi, vín og olífur, hanga eitthvað saman var mér sagt um daginn...). Jakk og bjakk.
Ferðalagið til Danmerkur núna seinasta sunnudag gekk aldeilis bærilega. Við Hildur Eva tékkuðum okkur sjálfar inn í Leifsstöð (og það var minna mál en að drekka vatn!) og gellan sem vigtaði töskurnar okkur var í svo agalega góðu skapi að hún horfði framhjá því að ég væri með 8 kíló í yfirvigt í farangri. Og 6 kíló í handfarangri. Svona á að gera þetta ;)
Fór svo og gaf kæró 2 kíló af íslensku nammi (sem var hluti af yfirvigtinni, hinn hlutinn var seríospakkar) og tópaspela. Sá varð harla kátur og sér fram á að sitja að áti fram að páskum, og mér er að sjálfsögðu meinaður aðgangur á meðan því hann er hræddur um að ég éti þetta frá honum. Ég vona samt innilega að honum finnist súkkulaðilakkrísnammið vont (enda hafa Danir aldrei smakkað svoleiðis), en annars sjáumst við bara í júní...
En nú gengur þetta ekki lengur. Laga til í kvöld, brunch með Hildi í fyrramálið og svo bara afslappelsi og hangerí fram á mánudagsmorgun klukkan sjö :)
Hafið það gott rjómabollurnar mínar! Bestu kveðjur, Anna Seríosdóttir
PS. Það dettur inn allsvakalegt myndablogg vonandi núna um helgina, so stay tuned ;)
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, janúar 10, 2008
Flokkur: Danmark
mánudagur, desember 31, 2007
Annáll 2007
Jæja, nú er árið brátt liðið í aldanna skaut og því komið að hinum árlega annáli, sem verður skammarlega stuttur að þessu sinni vegna atburðarleysis á árinu.
Í janúar 2007 flutti ég til Danmerkur, sem var nokkuð rökrétt framhald eftir búsetu mína í Svíþjóð og í Hollandi, enda var ég komin með alveg nóg af flutningum og farin að huga að varanlegri dvalarstað.
Ég man harla fátt frá fyrstu níu mánuðum ársins, enda var ég í fullri vinnu (fyrstu vikurnar í þvottahúsi og restina í hinni frábæru verslunarkeðju Netto) og þar að auki á all svakalegu hraðdönskunámskeiði sem tók allan minn frítíma og kvöldstundir. Sumarið fór þar af leiðandi algjörlega framhjá mér, og það eina sem ég afrekaði var að fara einu sinni í sólbað úti í garði - með dönskubækurnar á nefinu.
En svo leið loksins að lokum námsins, og viku áður en ég kláraði var skólanum mínum lokað vegna grægði Kaupmannahafnarkommúnu, sem mér er meinilla við alla tíð síðan.
Í byrjun haustsins var ég spottuð á Myspace og kynntist þar með Hildi Evu. Við létum ekki okkar eftir liggja og stunduðum skemmtistaði bæjarins grimmt (eða eiginlega bara einn stað, Lauritz Betjent er og verður okkar staður!) og gerðum allskonar skandala. Einnig var ákveðið að fara í eitt ákveðið missjón, og ekki leið langur tími áður en missjón var completed. Svo gerðum við okkur að sjálfsögðu ýmislegt annað til dundurs, kaffhús, brunch, kynlífssýningar og verslunartúrar urðu daglegt brauð, en svo kom allt í einu jólafrí eins og þruma úr heiðskíru lofti og haldið var heim til Íslands í þriggja vikna afslöppun og átveislu.
Þannig var nú árið 2007, viðburðarlítið með eindæmum vegna annríkis en fínasta ár engu að síður. Stefnir þó allt í frábært ár 2008 (þótt fátt toppi 2006) og er margt á dagskránni sem og í plönun.
Áramótaheit 2008 eru með svipuðu sniði og áður.
1. Borða minna.
2. Hreyfa mig meira.
3. Hætta að eyða pening í óþarfa, samanber haldapoka og bókasafnssektir. Undantekningar eru föt, skór og make-up, bíóferðir, út að borða og djamm.
4. Vera gella (sem sagt fara reglulega í klippingu og litun, hugsa um neglurnar, hugsa um fæturna, hugsa um húðina).
5. Halda strangt heimilsbókhald og læra að skilja að gerfiþarfir (fyrir utan föt, skó og make-up, bíóferðir, út að borða og djamm) frá frumþörfum.
Þar með er það upptalið.
Ég færi öllum lesendum mínum (sá hópur spannar bæði vini, fjölskyldu, kunningja, fólk sem kannast við mig, ókunnuga og svo framvegis) bestu þakkir fyrir samskiptin og lesturinn á árinu sem er að líða og vona að nýja árið færi ykkur hamingju og gleði.
Við hittumst/lesumst heil á nýju ári! Ástarkveðjur, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, desember 31, 2007
mánudagur, desember 24, 2007
Útskýring
(Til fastalesenda: Einhver virðist hafa linkað á síðuna mína á B2, greinilega svona agalega fyndin færsla hér fyrir neðan... sem skýrir einmitt þessu skrýtnu komment og lesendafjöldann!!!
Borðið ekki yfir ykkur í kvöld, sjálf er ég farin að stressast, á eftir að fara í sturtu og búa til súkkulaðimús og púsla og ráða krossgátu og jafnvel sauma pínulítið út... Jólakveðjur, Anna hin víðlesna).
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, desember 24, 2007
sunnudagur, desember 23, 2007
Hvernig skipta skal eggi
Það var einn góðan veðurdag í desember 2002, sem hún móðir mín ákvað að baka smákökur. Tók hún fram áhöld og hráefni og gerði sig klára í slaginn, alvön húsmóðirin. En fljótt kom þó upp babb í bátinn, því að í uppskriftina átti að nota hálft egg!
Nú voru góð ráð dýr. Stóðum við þarna fjölskyldan og hneyksluðumst á þessari asnalegu uppskrift, en ég dó þó ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn og ákvað að taka það að mér að skipta eggi í tvo helminga. Og hófust þá aðgerðirnar.
Ég náði mér í matardisk og ætlaði að skera eggið í sundur, en komst þó fljótlega að því að eggið hoppaði og skoppaði og vildi ekki vera kyrrt. Þá náði ég í litla tréliti sem við höfðum fengið gefins frá Landsvirkjun eða eitthvað álíka og límdi þá með límbandi niður á diskinn til þess að skorða eggið. Svo markaði ég hvar miðjan á egginu var og var nokkuð klár í slaginn.
Hér má sjá eggið skorðað niður.
--
En svo hófust vandræðin. Hvernig átti ég eiginlega að fara að því að skera akkúrat á miðjuna, því eggið var náttúrulega sleipt og hnífurinn tolldi illa á miðjunni? Auk þess sá ég fram á að eggið myndi fara allt í klessu þegar ég væri búin að skera það, því varla væri ég nógu snögg að skilja hlutana að. Þá tók ég á það ráð að klippa niður söfnunarbauk (æ nú fæ ég samviskubit) og límdi tvær hliðarnar saman með límbandi, svo ég kom hnífnum á milli. Náði ég þar með að skorða hnífinn á egginu, akkúrat á miðjunni, auk þess sem söfnunarbauknum var ætlað að halda eggjahelmingunum aðskildum þegar á hólminn væri komið.
Hér má sjá hnífinn skorðaðan með söfnunarbauknum á egginu.
--
Og svo var skorið. Tók þónokkur átök að komast í gegnum skurnið, en það tókst þó og söfnunarbaukurinn datt niður og skildi eggjahelmingana að.
Hér má sjá eggið í tveimur helmingum og söfnunarbaukurinn gegnir því hlutverki að halda eggjahelmingunum aðskildum.
---
Og svo var bara að fiska annan helminginn upp og vúla, hálfa eggið var klárt!
Annar helmingurinn á disknum og hinn í glasinu, aðgerðin heppnaðist fullkomlega.
--
Það var þá sem heyrðist í mömmu: "Við hefðum svo sem getað tvöfaldað uppskriftina?"
Hafið það gott börnin góð :) Bestu kveðjur, Anna á veggnum
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, desember 23, 2007
þriðjudagur, desember 18, 2007
Ég held ég gangi heim, held ég gangi heim
Jæja góðan daginn! Ef einhver veit hver ber ábyrgð á öllu þessu myrkri, þá má sá hinn sami gefa sig fram hið snarasta! Við þurfum að spjalla aðeins saman.
Ég er sem sagt stödd á Íslandinu góða, kom í gærkvöldi. Við Hildur Eva vorum ferðafélagar og gekk ferðin stóráfallalaust fyrir sig. Lentum í hlussuröð á Kastrup, þurfti bara að borga 5 kíló í yfirvigt (var samt með 10 kíló, húrra!), fórum og fengum okkur (ókeypis) pylsu hjá dönskum félaga mínum sem vinnur í Kastrup, misstum ekki af fluginu, fengum vondan flugvélamat, smá ókyrrð í lofti við lendingu en mín alveg pollróleg (enda ekki flughrædd) og flugmaðurinn kunni ekki að lenda mjúklega. Svo tókum við flugvallarútuna og brunuðum til Reykjavíkur, þar sem Doddi frændi Hildar og Lóa konan hans kipptu okkur með norður. Var svo komin hingað klukkan ca. hálftíu í gærkvöldi. Ljúft.
Reyndar má nú segja að þótt ferðin sjálf hafi gengið slétt og fellt fyrir sig, þá tókst okkur Hildi nú samt að gera okkur að smá fíflum í Kastrup. Við vorum búnar í öryggishliðinu og ætluðum að fá okkur litla töskuvagna undir allan handfarangurinn (sem var nú ekki í minna laginu) og hlupum að tveimur fínu fínu vögnum sem við sáum standa á miðju gólfi. Uh já. Það var greinilega ástæða fyrir því að þessir tveir vagnar stóðu þarna aleinir, því þeir voru nefnilega fastir saman og engin leið að ná þeim í sundur! En við Hildur (eða bara Hildur samt) getum verið svolítið of þrjóskar og því var togað og rykkt og hamast á grey vagnadruslunum alveg þangað til við náðum þeim í sundur. Það tók dálítinn tíma, áhorf annarra ferðalanga og svita, en það tókst. Er ekki frá því að ég hafi skammast mín eilítið fyrir aðferðirnar, en maður verður nú að redda sér, ikke?
Og það er svo gott að vera komin heim, þrátt fyrir myrkrið. Hér í húsinu mínu er nefnilega hlýtt og hreint og fullur ísskápur af mat - öfugt við það sem ég á að venjast úti í Danmörku. Svo sat ég og spilaði á píanóið fram á rauða nótt og svei mér, ég kann ennþá alveg helling! Var eitthvað með áhyggjur af þessu...
Íslenska símanúmerið mitt er (00354) 848 6686.
Ég held samt að það muni taka smá tíma að venjast íslenska lífinu aftur (höfum það í huga að ég hef ekki komið hingað síðan um seinustu jól og þar áður hafði ég ekki komið hingað í 7 mánuði). T.d. lenti ég í stórkostlegum vandræðum í gær með að skilja íslensku peningana. Ég er aðeins búin að missa verðskynið - og hvaða djókur er þetta eiginlega með allt þetta klink? Ég fór í sjoppu og (eftir að hafa misst mig yfir verðinu) þá ætlaði ég að borga með klinki sem mér hafði áskotnast yfir daginn. En ég stóð bara og starði og fattaði ekkert hvar ég átti að byrja og hvernig maður ætti að telja þetta svo ég rétti afgreiðsludömunni bara seðil (sem var by the way ógeðslega fyndinn á litinn). Fór svo og taldi klinkið mitt til þess að reyna að átta mig á þessu og taldi og taldi og endaði í 210 krónum. FULLT VESKI!!! Við erum að tala um að þetta eru tveir peningar í Danmörku! Fannst mér þetta nú heldur slappt.
Annar hlutur er að ég kann ekki lengur að biðja um hluti í sjoppum. Ég kann engan veginn við að fara inn í sjoppu og segja "Ég ætla að fá eina pylsu með...". Eruð þið ekki að grínast með ókurteisina? Ég, kurteisi Daninn, er nú meira á því að segja "Ég vildi gjarnan biðja um eina pylsu með...". Ég á aðeins eftir að pæla í þessu og finna einhvern góðan frasa til þess að nota á íslensku. Allar uppástungur eru vel þegnar.
Þannig að já, allt í góðum gír hér á bæ. Seinna ætla ég svo að setja inn myndir úr litla road-trippinu okkar Hildar á Mörkinni góðu þar sem grasið er ennþá grænt og það birtir stundum á daginn.
Hafið það gott ástarpungar,! Adiós, Anna Víkingur.
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, desember 18, 2007
Flokkur: Ísland







