Jæja, tá er utanlandsferdum lokid í bili. Reyndar á ég enn vikufrí eftir af mínu fríi sem týdir ad alla næstu viku mun ég sitja heima og lakka á mér táneglurnar á medan Peter tarf ad mæta aftur í vinnuna. Ljúft líf, ójá.
Ég ætla ekki ad koma med langar ferdasøgur núna, ég skelli teim inn sídar med myndum og alles. Og fyrir tá sem ekki vita, tá lentum vid í 11 tíma seinkun á flugi frá Akureyri sem vard til tess ad vid misstum af fluginu okkar til Portúgal. En vid leyfdum tví tó ekki ad skemma allt fyrir okkur, svo vid breyttum midunum (og urdum um leid 6200 dønskum krónum fátækari, áts) og skelltum okkur til Portúgal 4 døgum á eftir áætlun og vorum tar í 4 daga í stad 8. En tad var nú samt afar ljúft og vid erum bædi brún og sæt. En já, ferdasøgur og myndir koma sídar.
Svo nú sitjum vid heima og hámum í okkur nammi, enda fyrsti í megrun á morgun. Reyndar turfa sumir nú ekki á tví ad halda, en adrir (ég...) tora ekki ad stíga á vigt og hef ég heldur ekki hugsad mér ad gera tad fyrr en eftir svona 3 vikur og nokkra skokktúra. Hóst hóst.
Og ég er innistædulaus svo ég hef ekki getad svarad neinum smsum í dag (ég reyni ekki einu sinni ad skilja hvernig síminn hans Peters virkar og glætan ad ég nenni ad arka út í sjoppu), en mamma, ég hringi á morgun á Skype.
Gledifréttir dagsins eru svo tær ad ég fékk 9 í Týsku503 og er tar med komin inn í Humanistisk Informatik í Álaborgarháskóla í Kaupmannahøfn, vúhú! :D Ég veit reyndar ekki alveg hvernig á tví stendur ad ég fékk níu í tessum áfanga, enda:
- Byrjadi ég 4 vikum á eftir øllum ødrum í áfanganum tví ég vissi ekki ad mig vantadi tennan áfanga. Sem betur fer er fjarnámsstjórinn í Versló alveg yndisleg og hleypti mér í áfangann.
- Ég hef ekki lært týsku í 2 ár og var búin ad gleyma øllu, meira ad segja tølustøfunum.
- Ég nennti engan veginn ad læra týsku í júlí (áfanginn byrjadi í byrjun júní en ég byrjadi í júlí) enda ekkert alltof bjartsýn á ad komast inn í skólann tar sem adsókn var mikil.
En sjá, svo í lok júlí fékk ég já frá skólanum, svo ég las týsku í flugvélinni á leidinni til Íslands og vaknadi svo alla morgna á undan Peter til tess ad lesa (tók prófid á Akureyri) og vúla, ég fékk 9 í áfanga tar sem lokaprófid gilti 90% . Jawohl, sehr gut! Svo núna tarf ég bara ad bída eftir pappírunum frá Íslandi, svo tarf ég eina fja***ns ferdina enn ad redda undirskriftum og kennitølum og stadfestingum á réttmæti pappíranna og ljósrita og blablablablabla. Ég verd nú samt ad segja ad ég vona ad ég turfi aldrei nokkurn tímann ad sækja um háskóla aftur, ég hef aldrei á ævinni turft ad standa í svona miklu veseni med nokkurn hlut.
Og svo er bara ad mæta eldhress tann 1. september í skólann sem liggur í Ballerup, sem er úthverfi í Kaupmannahøfn og er reyndar hverfid sem liggur upp vid Vanløse tar sem ég bjó. En nú er ég flutt eins langt í burtu frá skólanum og hægt er ad komast, svo nú mun ferdalagid í skólann taka minnst klukkutíma og 20 mínútur, adra leid! Ég mun sem sagt turfa ad sitja í strætó (eda lestum og strætó en tad tekur jafn langan tíma og ad taka tetta bara allt med strætó) í tæpa 3 klukkutíma á dag tá daga sem ég tarf ad mæta í skólann. Næstu fimm árin. Tad er eins gott ad ég er med gamla Ipodinn hennar Hildar Evu í láni!!!
Tannig ad núna standa málin svona: Næsta vika sumarfrí, tarnæsta vika Netto, tartarnæsta vika skóli. Og svo mun ég vinna smávegis í Netto med skóla, er búin ad semja vid yfirmanninn um ad taka annan hvern laugardag og svo hugsanlega einhverja sunnudaga ef tad vantar (tad er bara opid fyrsta sunnudaginn í mánudinum) og eins má hann alveg hringja í mig og spyrja hvort mig langi til tess ad mæta á støku vaktir ef tad vantar fólk. Ég mun sem sagt bara skuldbinda mig annan hvern laugardag, en mun í rauninni hafa møguleika á eins mikilli vinnu og ég vil tar sem tad vantar alltaf fólk. Sehr gut, ja ja!
En já, best ad koma sér í rúmid, svona ádur en ég sofna hér á sófanum.
Auf Wiedersehen, Anna Wolfgang
laugardagur, ágúst 16, 2008
Komin heim
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, ágúst 16, 2008
Flokkur: Danmark
föstudagur, ágúst 01, 2008
Leti
Jæja gott fólk, langadi bara ad takka fyrir allar afmæliskvedjurnar tann 29. júlí :) Svo ég svari kommentunum:
Kristinn: Ólíft. Ég ætla ad kaupa mér viftu og húka inni alla daga. Veit ekki alveg hvad ég var ad pæla tegar ég sudadi um ad mig langadi til sólarlanda!!! Peter hefdi nú betur gert ad sleppa tví ad láta tad eftir mér... Og ég nenni ekki ad sjá tessa Batman-mynd sama hvad tautar og raular :)
Elísa: Takk fyrir tad :) :)
Vala: Já kakan var sko tad mikilvægasta tennan daginn, ad mati yfirmanns míns. En ég skellti mér sem sagt í bakaríid vid hlidina á búdinni og keypti jardaberjatertu med ferskum jardarberjum og hlaupi yfir og ostakøkubotni, en ég fékk ekki bita af henni tví hún var klárud á fimm mínútum og akkúrat tessar fimm mínútur var ég ad setja vørur upp í hillu. Svo keypti ég líka geggjad góda eplatertu, var blaut og gód innan í. Ég nádi einni sneid af henni ádur en hún hvarf upp í starfsfélaga mína... :) Og hallelúja fyrir teim sem nenna ekki ad sjá tessa Batman-mynd!
Fridrik: Takk fyrir tad, takk líka fyrir tølvupóstinn :) Hlakka til ad fá heimabakada afmæliskøku, nammi namm!
Hrafnhildur: Ekkert ad takka ;)
Hildur: 29 dagar ;)
Tetta var sem sagt mjøg gódur dagur í alla stadi, Peter ætladi aldrei ad hætta ad gefa mér gjafir (fékk líka fullt af ødrum gjøfum, takk kærlega fyrir tad, sem og øll smsin og kortin!) og svo fórum vid út ad borda :)
Annars er fátt títt. Tengdamamma og madurinn hennar komu hingad í mat í gærkvøldi og var tad afar yndælt. Ég er komin í sumarfrí í vinnunni og tad er ljúft. Peter fór med klinkbaukinn okkar í bankann í dag (klinkbaukurinn= baukurinn sem vid setjum afgangspening og klink úr matarsjódnum okkar í) og fengum vid 100 evrur fyrir tad, og vid vorum bara búin ad safna í baukinn í fjóra mánudi. Tad var mjøg ánægjulegt. Ég er komin inn í háskóla med teim skilyrdum ad ég standi týskupróf núna í ágúst. Ánægjulegt en samt ekki, tví ég kann ekki boffs í týsku lengur.
En jæja, best ad lesa meira týskudrasl, er ein heima og nenni engu. Peter er í hjólatúr (fer um tad bil vikulega í 50 kílómetra langan fjallahjólatúr med féløgunum sínum í einhverjum skógi á medan ég sit heima og safna spiki) en hann er væntanlegur heim hvad úr hverju.
Nenni ekki meiru, vid heyrumst aftur tegar ég er búin í sumarfríi! :) Bestu kvedjur, Anna busy.
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, ágúst 01, 2008
Flokkur: Danmark
laugardagur, júlí 26, 2008
Varúd - løng færsla
Peter vid flutningskassana med eldhúsdótinu okkar daginn sem vid fluttum inn. Tarna vorum vid nú tegar búin ad taka upp úr tveimur køssum...
Og flutningum var svo fagnad med videigandi drykkjuskap um kvøldid, tessi mynd er tekin eftir nokkur gløs...
Nei nú er ég hætt. Bless og bless og ekkert stress!
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, júlí 26, 2008
sunnudagur, júlí 20, 2008
Haps haps
Ég verd alveg crazy ef tad byrjar ad rigna núna. Er nefnilega med súkkuladikøkuna sem ég ætla ad borda í hádegismat í kælingu úti á svølum og verd alveg foxill ef tad fellur dropi úr lofti.
Suma daga verdur madur bara ad fá súkkuladikøku í hádegismat, namminamm.
Hilsen, Anna Bjørk súkkuladikaka :)
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, júlí 20, 2008
Flokkur: Danmark
þriðjudagur, júlí 15, 2008
Góda kvøldid
Ég ætladi ad setjast nidur med bók í hønd og lesa, en tá mundi ég eftir tví ad tad eru engin ljós í íbúdinni og tar sem tekid er ad dimma úti féll hugmyndin um sjálfa sig. Vid eigum reyndar trjú loftljós en tar sem rafmagnid hérna er frekar óskiljanlegt ætlum vid ad bjóda systur hans Peters og manni í heimsókn einhvern tímann brádlega, tví madur systur Peters er víst ansi flinkur vid svona ljósastúss. Og svo eru samstarfsfélagar mínir adeins farnir ad gera athugasemdir vid hárid á mér, tví vid Peter eigum heldur ekki einn einasta spegil hérna í húsinu og tví verdur madur bara ad giska ;) Reyndar er tad ekkert nýtt af nálinni ad tad sé hlegid ad hárinu á mér í vinnunni tví tad stendur yfirleitt allt út í loftid trátt fyrir ad vera í tagli (nenni nú ekki ad snurfusa mig fyrir græna netto-bolinn), en núna er skiptingin í hárinu á mér ordin svo hrikalega sikksakk ad fólk getur ekki annad en gert ekstra mikid grín ad mér. Ég ætla ekki ad reyna ad setja á mig augnblýant...
Annars var ég á kvøldvakt í vinnunni í gær sem er nú ekki í frásøgur færandi, nema ad tad tók mig einn og hálfa klukkutíma ad komast heim! Venjulega tekur ekki nema 45 mínútur ad fara tessa leid, en hættu nú alveg. Fyrst turfti ég ad bída óhemjulengi eftir strætó tví ég nennti ekki ad ganga á metróstødina eins og ég er vøn. Svo tegar ég var loksins búin ad taka strætóinn ad metróstødinni komst ég ad tví ad metróarnir keyrdu seint og illa tví tad var verid ad tvo nedanjardargøngin tar sem teir keyra, en yndislegt. Eftir 5 stødvar og 25 mínútur gafst ég upp og ákvad ad skipta yfir í annan strætó sem keyrir hingad nidur í Kastrup. En neineinei, tad gekk nú ekki svo greitt, tví í fyrsta lagi turfti ég ad bída í korter eftir strætónum og svo tegar hann loksins kom tá voru midaverdirnir komnir á kreik og lokudu øllum inn- og útgønguleidum og tékkudu á midum hjá fólki. Ad sjálfsøgdu voru margir sektadir (ekki ég samt!) og tad tók nú aldeilis sinn tíma. Og svo loksins skrølti strætódruslan af stad, en tá var hann svo trodfullur af fólki med ferdatøskum (ég var líka med ferdatøsku tví ég hafdi verid í Vanløse fyrir vinnu ad ná í dót) ad tad var hvorki hægt ad standa né sitja, og ekki skánadi ástandid tegar tvær frekjur med barnavagna brussudust inn í strætóinn og hrintu øllum sem fyrir voru í allar áttir. Tad má tví med sanni segja ad tad hafi verid eilítid treytt og pirrud Anna sem kom heim úr vinnunni klukkan rúmlega 23 í gærkvøldi, og nádi einungis 5-6 tíma svefni, tví ad sjálfsøgdu var rise and shine hjá mér klukkan 5 í morgun. Yndælt. Ég sef yfirleitt 8-9 tíma og voru afkøstin í vinnunni í morgun eftir tví... ;)
En jæja, best ad fara ad gera eitthvad, Peter er einhversstadar í hinum enda bæjarins ad hjóla í einhverjum skógi med félaga sínum og ég tví ein heima í myrkrinu. Reyndar er ljós inni á badi og í fataskápnum góda, svo spurning hvort madur skelli sér ekki í bad og allsherjardekur...
Svo um helgina verdur klárlega stud, tví stefnan er ad fá vini okkar í mat og drykk hingad á føstudaginn og á laugardaginn ætlum vid ad fara í spegla- og rusalkørfuleidangur...
Vid hittumst heil! Bestu kvedjur, Anna sikksakk í myrkrinu :)
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, júlí 15, 2008
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, júlí 10, 2008
Gódan dag
Langt sídan seinast!
Ákvad ad gefa mér nokkrar mínútur í ad skrifa blogg, en svo heldur harkid áfram.
Í gærkvøldi klárudum vid ad mála og trífa nýju íbúdina, og í dag fluttum vid næstum allt lausadraslid yfirum. Á laugardaginn koma svo nokkrir vinir hans Peters og hjálpa honum med ad flytja rúmid, sófann, sófabordid, stofubordid, ísskápinn og tvottavélina, sjálf ætla ég ad vera í vinnunni á medan teim óskøpum stendur.
Vid skilum svo gømlu íbúdinni okkar fimmtudaginn tann 17. ágúst og verdum ad vera búin ad trífa hana fyrir tann tíma, úffpúff.
En jæja, best ad fara ad gera eitthvad gáfulegt, t.d. trífa ísskápinn eda eitthvad...
Bestu kvedjur, A. Haraldsdöttir (ég heiti tad á hurdinni í nýju íbúdinni...).
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, júlí 10, 2008
Flokkur: Danmark
þriðjudagur, júní 24, 2008
Jahúúú :D
Jæja børnin gód, hvad syngur í ykkur?
Oh, alveg er ég viss um ad sumarid hérna í Køben er búid, núna er ég farin ad sakna vetursins svo madur geti kveikt á kertum og svoleidis, leidinlegt svona millibilsástand.
Annars er nú helst í fréttum hér á bænum ad vid Peter minn erum komin med nýja íbúd! :D Vid fáum hana afhenta núna 1. júlí og spenningurinn er tvílíkur. Íbúdin er stadsett hérna nidri í Kastrup, 300 metrum frá íbúdinni sem vid búum í núna. Tad er nú aldeilis heppilegt, tví tá verdur nú audvelt ad flytja allt dótid okkar. Eda já, allt dótid okkar, tótt tessi íbúd sé ad springa utan af okkur, tá mun dótid tæplegast fylla upp í horn í nýju íbúdinni.
Fyrir tá sem ekki vita, tá er íbúdin sem vid búum í núna svona: 40 fermetrar, ekkert svefnherbergi svo rúmid er í stofunni. Minnsta klósett í heimi tar sem madur getur pissad, burstad í sér tennurnar og verid í sturtu, allt á sama tíma. Fínar svalir og ágætis eldhús. Ekkert skápapláss fyrir draslid mitt svo føtin mín eru øll í tveimur ferdatøskum á gólfinu (tad verdur nú audvelt ad flytja tad tví tad tarf ekkert ad pakka, hahaha) og snyrtidraslid mitt er í gluggakistunni tar sem sólin skín allan daginn, tegar hún skín tad er ad segja. En ljómandi gód og sæt íbúd ef madur er single.
Svo skodudum vid nýju íbúdina okkar í gær og hún verdur svona:
- 86,1 fermetri, 3 herbergja.
- Gott anddyri med gódu plássi fyrir yfirhafnir og skóhillur og spegil og prófast og snøgum og øllu tví sem anddyrir tilheyrir.
- Stofa sem er 26 fermetrar og nóg pláss fyrir risastóran hornsófa og skenk fyrir flatskjáinn og bordstofubord og stóla og bara allt sem manni dettur í hug ad hafa í stofu. Í stofunni eru einnig aldeilis ágætar svalir sem eru adeins stærri en tær sem vid erum med núna.
- Ljómandi fínt svefnherbergi med FRØNSKUM SVØLUM (ohohoh, tad verdur ædi, fyrir tá sem ekki vita tá eru franskar svalir bara dyr og svo grind, tad kemur sem sagt ekkert út heldur er bara hægt ad opna dyrnar og njóta góda vedursins) og svo er rúsínan í pylsuendanum: Fataskápurinn!!! Hann er innbyggdur í vegginn og tetta er ekki bara einhver fataskápur heldur er tetta svona lítid herbergi sem madur gengur inn í :D :D :D Tar er hellings pláss med fram veggjunum fyrir føt og svo efst upp er skápurinn byggdur enn lengra inn í vegginn svo tar er allt heimsins skápapláss fyrir allskonar dót :D Einmitt tad sem mig hefur alltaf dreymt um, mitt eigid fataherbergi :D
- Badherbergi, ekkert risastórt en tó mun stærra en tad sem vid erum med núna. Og ekki nóg med tad, tá er líka badkar tar!!! Tetta er án vafa fyndnasta badkar sem ég hef á ævi minni séd, rosalega stutt á lengdina en alveg fáránlega djúpt. Tad hefur greinilega verid ad nýta plássid, hahaha.
- Eldhúsid er RISASTÓRT midad vid tad sem vid høfum núna, og skápaplássid er gífurlegt. Eini mínusinn er ad eldhúsinnréttingin hefur sennilega verid tar frá tví á midøldum, eda allavega frá tví um sautjánhundrud- og súrkál, og tví ætlum vid seinna ad reyna ad fá leyfi til ad skipta henni út seinna meir og henda einhverjum af øllum tessum skápum, tad er ekki eins og vid séum ad reka 7 manna heimili.
- Kústaskápur, lítill og sætur :)
- Aukaherbergi sem verdur notad undir allt møgulegt. Tad herbergi átti í raun ad vera fata- og snyrtiherbergid mitt, hahaha, en svo fylgdi óvart fataherbergi med íbúdinni svo tetta herbergi verdur bara notad undir eitthvad annad.
- Íbúdin er mjøg opin og bjørt og alveg fullkomin :)
En tad er samt alveg greinilegt ad tad hefur sennilega búid gømul kona tarna í mørg ár eda eitthvad álíka, tví tad er margt sem tarf (eda tess tarf nú kannski ekki, en okkur langar til) ad gera. Fyrir tá sem ekki vita, tá er Peter smidur og hefur mikid verid ad vinna vid ad standsetja íbúdir svo hann hefur reynslu á tessu svidi, hentugt ;) Vid ætlum ad byrja á tví ad skipta út gólflistum og mála dyrakarma. Svo er búid ad mála alla íbúdina nema svefnherbergid svo vid ætlum ad mála tad. Tad er búid ad pússa gólfid, kaupa nýtt klósett og skipta út bordpløtu á eldhúsinnréttingunni svo vid turfum ekki ad hugsa um tad ;) Svo ætlum vid ad setja rennihurd á hluta af anddyrinu og búa til skáp og svo ætlum vid ad mála eitt og annad og reyna ad fá leyfi til tess ad brjóta nidur hillurnar í innangengna fataskápnum og fá ad setja nýjar. Seinna (tegar fjárrád leyfa) ætlum vid ad reyna ad fá leyfi til ad skipta um eldhúsinnréttingu og hurdum.
Svo ad núna verda hlutirnir ad ganga hratt, tví vid ætlum ad losa okkur vid núverandi íbúd 15. júlí og svo ætla ég líka ad segja upp herberginu mínu í Vanløse og skila tví tann 30. júlí. Sem betur fer verdur Peter heima í eina til tvær vikur í byrjun júlí tví hann lendir milli verkefna í vinnunni svo hann getur stússast í tessu øllu saman.
En jæja, núna ætla ég ad hætta tessu bulli, týda tessa færslu fyrir Peter og fara í bad. Svo er ég ekki frá tví ad tad bídi okkar súkkuladikaka...
Hafid tad gott ástarpungarnir mínir :) Bestu kvedjur, Anna hin ofurspennta :)
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, júní 24, 2008
Flokkur: Danmark