Ég lenti í afar, jah, spes atviki áðan. Ég fór sem sagt sem leið lá í dönskuskólann, og þar sem það var fyrsti dagurinn á þrepi þrjú, þá voru nokkrir nýir nemendur í bekknum sem ég hef aldrei séð áður. Ég kom fyrst allra inn í stofuna, og skömmu síðar kom einhver kona sem ég þekkti ekki.
Anna: Hi, I haven't seen you before! Where are you from? (Sagt með eins bandarískum hreim og mér er unnt að framkvæma, er aðeins að reyna að dempa breskuna niður)
Kona: I'm from Singapor. Where are you from?
Anna: I'm from ÆSland.
Kona: Uhh, Iceland? Or island? (Borið fram sem "æland", sem sagt eyja)
Anna: Eh, ÆSland. (Með ofuráherslu á s-ið).
Kona: Excuse me? Your accent is very very British, are you saying Iceland or island?
Anna: Öhhhhhhmm, ÆS-LAND! Ice, as in very cold! Do you know where that is?
Kona: Oh yes, I know where Iceland is! (Eftirfarandi sagði hún líka á ensku:) Málið er bara, að ég hef verið í bekk með alveg rosalega mörgum Íslendingum, og þeir eru allir með svo rosa rosa rosalega mikinn íslenskan hreim í enskunni, að mér datt ekki í hug að þú gætir verið þaðan. Auk þess sem margir Íslendinganna bera fram orðið "island" (eyja) sem æsland, svo ég var alveg rugluð í ríminu... En Ísland segirðu! Hvar fékkstu þennan magnaða hreim? Ég hef bara aldrei heyrt Íslending tala eins og ekta Breti!
Ég held ég sé alveg glötuð. Ég get ekki einu sinni talað með bandarískum hreim, jafnvel þótt ég reyni af öllum lífs og sálar kröftum! Eins er alveg rosalegt hvað margir pæla í þessu. Um daginn kom t.d. einhver kona í bekkinn minn í eitt skipti (komst ekki í morgunbekkinn sinn), og hún bókstaflega elti mig uppi úti í götu eftir tímann til að spyrja hvaðan í ÓSKÖPUNUM ég væri eiginlega, þessi hreimur fékk hana alveg til að kikna í hnjánum og hún gat ekki einbeitt sér allan tímann því hún var svo mikið að pæla í hvert maður þyrfti eiginlega að flytja til að geta talað svona... Og dyggir aðdáendur mínir muna sennilega að ég hef margsinnis sagt sögur hér af allskonar kommentum sem ég fengið á enskuna. Jadúddamía. Og svo trúir fólk því ekki að ég sé frá Íslandi. Ég held ég flytji aftur heim.
Bestu kveðjur, Anna sem er greinilega alveg ferlega bresk, þrátt fyrir að reyna hið gagnstæða
mánudagur, mars 19, 2007
Excuse me!
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, mars 19, 2007
Flokkur: Danmark
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli