föstudagur, mars 23, 2007

Já halló?

Góðan daginn, perrar mínir og frúr!

Í dag skín sólin líkt og aðra daga, og þess vegna ætla ég út að skokka svona í morgunsárið. Kannski maður skelli samt inn einni gelgjufærslu fyrst, svona svo fólk komi ekki að tómum kofanum þegar það kíkir hingað í dag.


Fimmtudagur, 3. apríl 2003

Ég lenti í furðulegu símtali í morgun. Og ekki í gemsanum mínum, heldur í heimilissímanum. Svona var símtalið:

Díulíulíulíu! Díulíulíulíu! (Þetta er síminn að hringja klukkan 07:45).
Anna: “Halló?”
Kona: “Hæ!”
Anna: “Hæ!”
Kona: “Ég gleymdi einu!”
Anna: “Jáááá, hverju?”
Kona: “Þú VERÐUR að koma með kassana, ég gleymdi þeim! Þeir eru við hliðina á útvarpinu, sérðu þá?”
Anna: “Aaaööö, nei... Hver er þetta?”. (Og hvaða kassar?)
Kona: “Þetta er MAMMA ÞÍN!!!”
Anna: “MAMMA? Nei, mamma er sofandi...!” (Eða hún var það allavega fyrir tveimur mínútum síðan)
Kona: “Hvað meinarðu??? Ó, afsakið!”
BÍP BÍP BÍP


Samkvæmt símnúmerabirtinum, þá hafði konan greinilega svissað tveimur stöfum í númerinu og þar af leiðandi hringt í vitlaust númer...



Hafið það gott í dag! Sólskinskveðjur, Anna Björk Haraldsdóttir

Engin ummæli: