sunnudagur, mars 11, 2007

Sísí fríkar út

Mér hefur borist til eyrna að honum pabba mínum þyki ég ekki blogga nógu oft. Ætti hann því að verða þónokkuð glaður þegar hann sér alveg flunkunýja færslu, sem fjallar öll um tísku... :-)


Já, tíska er mér mjög ofarlega í huga þessa dagana, enda er ég algjör gella. Allavega í huganum, og ef skattmann hætti að stela öllum peningunum mínum, þá gæti ég kannski látið útlitið samræmast hugsunarhætti.
Þessa dagana er vor í lofti og 10 stiga hiti. Er því ekki seinna vænna að huga að sumrinu, sem er væntanlegt hvað úr hverju, allavega ef tíminn heldur áfram að fljúga svona áfram.

Þetta sumarið eru þrír hlutir sem maður þarf að eiga.

1. Stuttbuxur, þær mega bara ekki vera of stuttur. Mega notast með gammósíum, sokkum eða berum fótleggjum.

2. A-laga kjóll. Mammamía, hvað mig langar í kjól! Hef ekki átt sumarkjól frá því ég var svona 5 ára...

3. Bleikur varalitur. Og nú hlær mamma.


Síðan er það tekið fram, að þeir sem eru með langa og granna leggi megi ganga í ballerínuskóm (fyrir þá sem ekki vita hvað það er, þá eru það flatbotna fínir skór sem eru með lokaðri tá). Hinir (óheppnu) verða að ganga á hælum, gúlp! Og þar sem ég er aðeins með 78 cm langar lappir mælt frá nára, þá telst ég sennilega ekki vera ein af þessum langlöppuðu og er því dæmd til þess að ganga á háum hælum! Og nú hlær mamma aftur.

Já, stöldrum nú aðeins við. Ég hef aldrei á minni nítjánoghálfsárs ævi gengið á neinu sem gæti komist í líkinu við háa hæla! Í fyrsta lagi finnst mér vont að vera illt og þreytt í löppunum og er því alltaf í strigaskóm, við öll tækifæri. Í öðru lagi myndi ég eflaust vera stíf og þvinguð og algjörlega laus við mitt gífurlega þokkafulla göngulag, og það væri nú ekki fallegt. Held ég splæsi samt í einu pari, maður má nú ekki vera halló (hallærislegur).


Eins hef ég heyrt að augnblýantar séu að koma sterkir inn, sjúkket, ég ræð allavega við þá tísku.


Annars er minn heitasti draumur þessa dagana að eignast saumavél. Já, ég sagði saumavél. Ég sem kann ekki einu sinni að þræða nál! Ég held nefnilega að málið sé algjörlega að taka sig til og læra að sauma föt. Vandamálið er bara það, að ég hef enga ódýra saumavél fundið hér í Kaupinhavn (ég vil helst ekki notaða, ég er með ofnæmi fyrir notuðu dóti). Hefði helst viljað finna eina á 2.000 ISK, svona eins og fæst í Rúmfó heima... En jæja, ætli ég verði ekki að bíða með að sauma hryðjuverkin þar til ég eignast pening og bankanum þóknast að senda mér PIN-númerið á kortinu mínu.

Og já, svona í lokin, fyrir þá fréttaþyrstu. Af mér er ekkert nýtt að frétta, vinna og skóli og vinna og skóli. Og ég er með vöðvabólgu vegna vinnuálags. Sniff.

Jæja, best að fara og baka bolludagsbollur! Já, það gerist allt ofurhægt í bankanum hér í Danmörku og þar sem ég á aðeins 10 danskar krónur í klinki og ekkert PIN-númer, þá get ég ekki keypt mér mat. En ég á fullt af hráefni í bolludagsbollur, ójá. Það er ekki amalegt.

Bestu kveðjur úr sól og 11,0 stiga hita í kóngsins Kaupmannahöfn, Anna Haralds

Myndaheimildir: Hér og þar af gúgúl.

Engin ummæli: