Ein eldsnögg færsla!
Ég þakka öll komment á síðustu færslu :)
Á meðan ég man, þá ætti ég kannski að láta ykkur vita af því að ég er inneignarlaus og hef verið það alla seinustu vikuna, þannig að þið sem hafið verið að senda mér sms, þið verðið að afsaka það aðeins lengur að ég svari ykkur aldrei. Ég hef ekki tíma til þess að kaupa mér inneign.
Þið heima á Grænó, takk fyrir myndirnar sem þið senduð mér í gær! Skelli þeim í næstu færslu! Greinilegt að vorið er komið...
Af sjálfri mér er það að frétta að ég hef það fínt. Er reyndar of upptekin í augnablikinu við vinnu, skóla, heimalærdóm og svefn, en ég lít á þetta sem tímabundið ástand og sé fram á bjartari tíma í október/nóvember þegar ég verð búin með skólann...
Ég ætla svo að reyna að blogga um helgina, og búið ykkur undir langa færslu. Það er alltaf eitthvað að gerast hér í Köben, jájájá.
Bestu kveðjur, Anna sem þarf að drífa sig í sturtu og fara svo niður í bæ og láta reikna út fyrir sig nýtt skattkort áður en hún fer í vinnuna
fimmtudagur, apríl 19, 2007
Í stuttu máli sagt
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, apríl 19, 2007
Flokkur: Danmark
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli