Jæja gott fólk! Loksins er komið að því! Samkvæmt niðurstöðu könnunarinnar hér til hliðar, þá er mikill áhugi meðal almennings að ég haldi áfram að birta úrslit úr kommentakeppni mánaðarins. Þar sem ég hef ekki birt þessi úrslit undanfarna mánuði (vegna einskærrar leti), þá kemur heillöng runa núna. En nú lofa ég að úrslit þessi munu birtast hér í hverjum mánuði. Og munið svo, að sá sem á flest komment í lok árs fær verðlaun! Reyndar á ég enn eftir að senda henni Elínu verðlaunin fyrir árið 2006, en það er eingöngu vegna bágra fjárhagaðstæðna akkúrat í augnablikinu. En þetta kemur með hækkandi sól og batnandi fjárhag. Að þessum orðum sögðum, þá er ekki eftir öðru að bíða en að vinda sér í þetta. Ég biðst fyrirfram afsökunar á öllu greinarskilarugli, en blogspot er ekki alltaf mjög samvinnufús þegar hann þarf að birta myndir
Elín Ósk Magnúsdóttir hampaði titlinum í marsmánuði og átti samtals 36% allra kommenta. Til lukku!!! Þarna er gellan úti í (á?) Búlgaríu í útskriftarferð. Myndinni stal ég fimlega af myndasíðunni hennar. Kristinn Björn "litlibró" Haraldsson stóð sig einnig stórglæsilega og átti 32% af kommentunum. Congratulations! Á myndinn heldur hann á silfurpeningi, ég meina, það er alveg hægt að nota fótboltapeninga í kommentakeppni? ;)
3. sæti
Lilja Níelsdóttir stóð sig einnig með stakri prýði og átti samtals 21% allra kommenta. Til hamingju með það! Myndina tók ég fyrir ári síðan þegar Lilja átti leið inn á Akureyri :)
Lesandi febrúar 2007
1. sæti
Elín Ósk Magnúsdóttir nældi sér í titilinn í febrúar með alls 29% allra atkvæða. Hamingjuóskir! Þarna eru hún stödd í partíi. Myndinni stal ég af myndasíðunni hennar. Kristinn litlibró Haraldsson stóð sig einnig eins og hetja og átti 20% allra kommenta. Til hamingju! Á myndinni heldur hann reyndar á bronspeningi, en þar sem hann lenti aldrei í bronssæti í talningunni að þessu sinni, þá fær myndin að fljóta hér.
3. sæti
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings lét ekki sitt eftir liggja og átti 16% af öllum kommentum. Tillykke! Myndinni stal ég af myspace-inu hennar.
Lesandi janúar 2007
1. sæti
Hún Elín Ósk Magnúsdóttir er alveg hörkuduglegur kommentari og uppsker eins og hún sáir. Að þessu sinni átti hún 35% allra kommenta. Til hamingju! Myndin er tekin á vistinni á Akureyri í lok 1. bekkjar í MA, sem sagt fyrir tæpum þremur árum síðan. Prófatörnin var í gangi og allir myglaðir eins og sjá má á mér! (Ég er til vinstri, Elín til hægri).
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings krækti í 2.-3. sæti með alls 10% allra kommenta. Til hamingju! Myndinn stal ég af myndasíðunni hennar.
Kristinn Björn Haraldsson, minn kæri litli bróðir, lenti einnig í 2.-3. sæti með alls 10% allra kommenta. Til lukku! Myndin er tekin í Danmörku seinasta sumar.
Kristinn Björn Haraldsson lillebror stóð sig eins og hetja þennan mánuðinn og átti alls 37% allra kommenta. Til hamingju! Á myndinni heldur hann á gullpeningi, enda vel við hæfi.
Elín Ósk Magnúsdóttir stóð sig glæsilega og átti alls 33% allra kommenta. Til hamingju! Glöggir menn sjá að hér er á ferðinni Carmínumyndin hennar, en ekki eiginleg ljósmynd. Myndinni stal ég af blogginu hennar.
3. sæti
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings krækti sér í þriðja sætið með 13% allra atkvæða. Myndinni stal ég af myndasíðunni hennar.
Já, þannig var nú það! Ég þakka einnig öllum öðrum hjartanlega fyrir kommentin, en alls kommentuðu 17 manns 197 komment þessa fjóra mánuði. Eigið góðan dag ástarpungarnir mínir :) Bestu kveðjur frá Danmörku, Anna Björk

Engin ummæli:
Skrifa ummæli