Ein eldsnögg færsla!
Ég þakka öll komment á síðustu færslu :)
Á meðan ég man, þá ætti ég kannski að láta ykkur vita af því að ég er inneignarlaus og hef verið það alla seinustu vikuna, þannig að þið sem hafið verið að senda mér sms, þið verðið að afsaka það aðeins lengur að ég svari ykkur aldrei. Ég hef ekki tíma til þess að kaupa mér inneign.
Þið heima á Grænó, takk fyrir myndirnar sem þið senduð mér í gær! Skelli þeim í næstu færslu! Greinilegt að vorið er komið...
Af sjálfri mér er það að frétta að ég hef það fínt. Er reyndar of upptekin í augnablikinu við vinnu, skóla, heimalærdóm og svefn, en ég lít á þetta sem tímabundið ástand og sé fram á bjartari tíma í október/nóvember þegar ég verð búin með skólann...
Ég ætla svo að reyna að blogga um helgina, og búið ykkur undir langa færslu. Það er alltaf eitthvað að gerast hér í Köben, jájájá.
Bestu kveðjur, Anna sem þarf að drífa sig í sturtu og fara svo niður í bæ og láta reikna út fyrir sig nýtt skattkort áður en hún fer í vinnuna
fimmtudagur, apríl 19, 2007
Í stuttu máli sagt
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, apríl 19, 2007
Flokkur: Danmark
miðvikudagur, apríl 11, 2007
Það hlaut að koma að því
Ein stutt færsla rétt fyrir svefninn.
ÉG ER KOMIN MEÐ VINNU!!! Ég tek við hamingjuóskum í kommentum, blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir ;)
Já, ég er hér með orðin starfsmaður í Netto, klöppum fyrir því! Reyndar er ég ekki starfsmaður í Nettóunum tveimur sem seinasta færsla fjallaði um, heldur er þessi Nettóbúð á Frederiksberg (sem sagt sama keðja, önnur staðsetning).
En maður minn, þetta tók á. Það tók mig tvo heila daga að mana mig upp í það að ganga inn í búðina og sækja um starfið (það var ekki hægt að sækja um skriflega) og eins tók ég þrjá langa göngutúra fyrir utan búðina áður en ég þorði inn... Ég var sem sagt mætt fyrir utan búðina klukkan tíu í morgun en þorði ekki inn fyrr en klukkan hálf tólf, hahaha.
En allt gekk þetta eins og í sögu. Ég fékk að tala við verslunarstjórann, fyllti út heljarinnar blað með upplýsingum um nafn, aldur, skólagöngu, fyrri störf, skónúmer og nafn ömmusystur... Eða kannski ekki alveg, en það tók allavega margar mínútur að fylla þetta blað út. Þegar því verki var lokið var ég tekin í viðtal. Frá því er skemmst að segja að ég kom, sá og sigraði og var ráðin á staðnum. Voru það rosalega margir þættir sem urðu til þess að ég fékk starfið, m.a. góð nærvera, góð meðmæli, fyrri starfsreynsla og persónuleiki. Allt þetta small saman og skaut þá staðreynd að ég tala ekki fullkomna dönsku algjörlega í kaf :)
Þannig að já, á morgun er fyrsti dagurinn í nýrri vinnu. Mitt starfsheiti er "salgsassistent", sem þýðir að ég verð bæði á kassa og í vöruuppfyllingu og svo í öðrum tilfallandi störfum. Það verður nú fróðlegt að sjá hvernig mér mun ganga á kassanum, ég með mína fínu fínu dönsku! Sjitt... Sem betur fer ég með dönsku tölurnar á hreinu. Garg.
En nú verð ég að blása á mér hárið og drífa mig svo í rúmið, ég á að mæta klukkan átta í fyrramálið. Krossið nú öll fingur og hugsið vel til mín á morgun, helst á dönsku takk fyrir takk!
Ástarkveðjur, Anna sem er ekki lengur atvinnulaus :D
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, apríl 11, 2007
Flokkur: Danmark
mánudagur, apríl 09, 2007
Ég veit ekki hvort eða hveeernig eða hveeenær ééég kemst heim
Jú, mikið rétt, færsla númer tvö í dag. Nú held ég að sumir verði glaðir, hoho! Ykkur að segja, þá er ég svo uppfull af hugmyndum að bloggfærslum að ég er búin að búa til lista yfir allt það sem ég þarf að blogga um, svona svo ég gleymi því ekki. Já, þessi bloggpása undanfarið hefur greinilega skilað sínu.

Hafið það gott! Bestu kveðjur, Anna hin áttavillta
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, apríl 09, 2007
Flokkur: Danmark
Kommentakeppni des, jan, feb og mars
Jæja gott fólk! Loksins er komið að því! Samkvæmt niðurstöðu könnunarinnar hér til hliðar, þá er mikill áhugi meðal almennings að ég haldi áfram að birta úrslit úr kommentakeppni mánaðarins. Þar sem ég hef ekki birt þessi úrslit undanfarna mánuði (vegna einskærrar leti), þá kemur heillöng runa núna. En nú lofa ég að úrslit þessi munu birtast hér í hverjum mánuði. Og munið svo, að sá sem á flest komment í lok árs fær verðlaun! Reyndar á ég enn eftir að senda henni Elínu verðlaunin fyrir árið 2006, en það er eingöngu vegna bágra fjárhagaðstæðna akkúrat í augnablikinu. En þetta kemur með hækkandi sól og batnandi fjárhag. Að þessum orðum sögðum, þá er ekki eftir öðru að bíða en að vinda sér í þetta. Ég biðst fyrirfram afsökunar á öllu greinarskilarugli, en blogspot er ekki alltaf mjög samvinnufús þegar hann þarf að birta myndir
Elín Ósk Magnúsdóttir hampaði titlinum í marsmánuði og átti samtals 36% allra kommenta. Til lukku!!! Þarna er gellan úti í (á?) Búlgaríu í útskriftarferð. Myndinni stal ég fimlega af myndasíðunni hennar. Kristinn Björn "litlibró" Haraldsson stóð sig einnig stórglæsilega og átti 32% af kommentunum. Congratulations! Á myndinn heldur hann á silfurpeningi, ég meina, það er alveg hægt að nota fótboltapeninga í kommentakeppni? ;)
3. sæti
Lilja Níelsdóttir stóð sig einnig með stakri prýði og átti samtals 21% allra kommenta. Til hamingju með það! Myndina tók ég fyrir ári síðan þegar Lilja átti leið inn á Akureyri :)
Lesandi febrúar 2007
1. sæti
Elín Ósk Magnúsdóttir nældi sér í titilinn í febrúar með alls 29% allra atkvæða. Hamingjuóskir! Þarna eru hún stödd í partíi. Myndinni stal ég af myndasíðunni hennar. Kristinn litlibró Haraldsson stóð sig einnig eins og hetja og átti 20% allra kommenta. Til hamingju! Á myndinni heldur hann reyndar á bronspeningi, en þar sem hann lenti aldrei í bronssæti í talningunni að þessu sinni, þá fær myndin að fljóta hér.
3. sæti
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings lét ekki sitt eftir liggja og átti 16% af öllum kommentum. Tillykke! Myndinni stal ég af myspace-inu hennar.
Lesandi janúar 2007
1. sæti
Hún Elín Ósk Magnúsdóttir er alveg hörkuduglegur kommentari og uppsker eins og hún sáir. Að þessu sinni átti hún 35% allra kommenta. Til hamingju! Myndin er tekin á vistinni á Akureyri í lok 1. bekkjar í MA, sem sagt fyrir tæpum þremur árum síðan. Prófatörnin var í gangi og allir myglaðir eins og sjá má á mér! (Ég er til vinstri, Elín til hægri).
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings krækti í 2.-3. sæti með alls 10% allra kommenta. Til hamingju! Myndinn stal ég af myndasíðunni hennar.
Kristinn Björn Haraldsson, minn kæri litli bróðir, lenti einnig í 2.-3. sæti með alls 10% allra kommenta. Til lukku! Myndin er tekin í Danmörku seinasta sumar.
Kristinn Björn Haraldsson lillebror stóð sig eins og hetja þennan mánuðinn og átti alls 37% allra kommenta. Til hamingju! Á myndinni heldur hann á gullpeningi, enda vel við hæfi.
Elín Ósk Magnúsdóttir stóð sig glæsilega og átti alls 33% allra kommenta. Til hamingju! Glöggir menn sjá að hér er á ferðinni Carmínumyndin hennar, en ekki eiginleg ljósmynd. Myndinni stal ég af blogginu hennar.
3. sæti
Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir Cummings krækti sér í þriðja sætið með 13% allra atkvæða. Myndinni stal ég af myndasíðunni hennar.
Já, þannig var nú það! Ég þakka einnig öllum öðrum hjartanlega fyrir kommentin, en alls kommentuðu 17 manns 197 komment þessa fjóra mánuði. Eigið góðan dag ástarpungarnir mínir :) Bestu kveðjur frá Danmörku, Anna Björk
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, apríl 09, 2007
Flokkur: Lesandi mánaðarins
sunnudagur, apríl 08, 2007
Páskadagur
Góðan daginn og gleðilega páska! Og afsakið illa uppsett greinarskil í þessari færslu, blogspot fer á gelgjuna þegar maður setur inn myndir líka.
Vafalaust sitja allir við tölvuna og eru að smjatta á páskaeggjum þessa stundina. Ekki ég samt, og ákvað ég að stúta heilum pakka af rúsínum fyrst ég borða ekki páskaegg. Ég er háð rúsínum þessa dagana.
Í tilefni dagsins ákvað ég að birta eina gelgjufærslu, sem var skrifuð í upphafi páskafrís árið 2003, sem sagt þegar ég var í 10. bekk. Þessi færsla er tileinkuð mömmu.
Föstudagurinn 11. apríl 2003
ÉG ER KOMIN Í PÁSKAFRÍ!!!!! Það byrjaði fyrir akkúrat átta klukkutímum og tíu mínútum síðan...
Í skólanum í dag vorum við að föndra eitthvað páskadrasl. Við gátum valið á milli þess að gera pappapáskalilju, fullt af einhverju páskamyndadrasli eða saumaðan páskaunga. Ég þoli ekki að föndra. Ég ákvað samt að búa til páskaungann, og ákvað að hafa hann úr gulu efni. Svo þurfti ég að búa til vængi á hann. ”Djöfull!” hugsaði ég eftir að hafa teiknað vængina upp fjórtán sinnum. Þannig að ég ákvað að hafa ungann vængjalausan. Þá átti stærðfræðikennarinn minn leið hjá. ”Ungi ÁN vængja?” spurði hún. ”JÁ!” svaraði ég pirruð. ”Æi Anna, láttu ekki svona! Þetta er bara stærðfræði! Sko, hérna er blað og hér eru skæri...” Eftir tuttugu sekúndur var hún búin að búa til vængi handa mér. Svo átti ég að teikna vængina á einhverskonar límblað, það átti að vera mjög auðvelt verk. Ég veit ekki af hverju, og ég veit svo sannarlega ekki HVERNIG vængirnir urðu eins ólíkir hvor öðrum og hægt er! ”Æi, mér er alveg nákvæmlega sama” sagði ég við sjálfa mig og límdi vængina á ungann. Ég skírði ungann minn ”The fucking wing-thing”.
Nú var komið að því að sauma aðra hænuhluti á ungann. Eftir það hét unginn ”The fucking wing-thing sem átti enga vini því kamburinn og goggurinn voru alltof litlir”. Nú átti landafræðikennarinn leið hjá. ”Hvernig gengur hér?” spurði hann hress. ”Illa, og þetta er alveg ógeðslega leiðinlegt!” svaraði ég. ”En Anna, hugsaðu bara um hversu mikið þú lærir af þessu!” sagði hann. ”Humm já, það er nefnilega svo gagnlegt að kunna að búa til kjúkling!” sagði ég. ”Það er fullt fullt af stærðfræði í þessu!” sagði hann. ”Hjálpar það mér í samræmdu?” spurði ég. ”OG þú lærir LÍKA að gera eitthvað sem þér finnst ekki skemmtilegt!” sagði hann mjög stoltur af sjálfum sér yfir að hafa fattað þann punkt. Ég andvarpaði.
Síðan var komið að því að sauma pínu meira og fylla ungann af fylti (bómull). Ég gerði það. Unginn varð ALLTOF feitur. “Æi vá, skiptir ekki máli” hugsaði ég, mjög þreytt á öllu þessu veseni. Svo var komið að því að sauma saman rassinn á unganum í saumavél. En ég gerði eitthvað vitlaust. Unginn minn leit allt í einu út eins og lítill púði! (Hann átti sko að vera svona þríhyrningslaga eins og pýramídi eða Sun Lolly klaki). “Þetta átti EKKI að gerast!” sagði ég ógeðslega pirruð. “ÉG ER BÚIN! Má ég fara?” spurði ég einn af kennurunum. “Má ég sjá hvað þú föndraðir?” spurði kennarinn. “Ég bjó til “The fucking wing-thing sem átti enga vini því kamburinn og goggurinn voru alltof litlir og heimski eigandinn lét hann líta út eins og púða”” svaraði ég og gekk í burtu. PÁSKAFRÍ!!!!!
Enn þann dag í dag þykir móður minni afar vænt um þennan unga og er hann geymdur á vísum stað heima á Grænavatni. Var það því ekki málið fyrir ma & pa að taka myndir af honum fyrir mig og senda mér, svo þið gætuð séð föndurhæfileika mína. Unginn reyndar gerir ekki alveg sitt gagn þar sem hann getur ekki staðið sjálfur, enda varð hann óvart púði í staðinn fyrir pýramídi, og þurfti því að halla honum upp að vegg á fyrri myndinni. En eins og sjá má, þá getur hann vel setið í páskaliljum og tekur sig ansi vel út í því umhverfi.
Eigið góðan dag! Páskakveðjur, Anna sem ætlar að laga til í dag
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, apríl 08, 2007
föstudagur, apríl 06, 2007
Gallup!
Jæja, þá er ég búin að skella inn könnun hér til hliðar. Sjálf viðurkenni ég fúslega að þessi síða er hálf daufleg og leiðinleg akkúrat í augnablikinu, en ég ætla þó að vinna í því á næstunni að glæða hana lífi og ná sama flugi og fyrr.
Allir að taka þátt!
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, apríl 06, 2007
Flokkur: Danmark
laugardagur, mars 31, 2007
Ó mig auma
Jesús minn góður og allar hans lærisneiðar!
Í dag gerði ég það sem ég hef lengi ætlað að gera. Ég lagðist í það mikla verk að glósa bæði af netinu og úr snyrtiblöðunum mínum allt það sem að ég þarf að eignast til þess að geta talist ekta gella og geta sett á mig hvaða andlit sem er á svipstundu. Sem betur fer á ég slatta af brúklegum snyrtivörum, en það er nú ekki nema brotabrotabrot af því sem æskilegt er að eiga. Ætla ég ykkur til mikillar skemmtunar að skella inn niðurstöðum dagsins og mun ég því birta hér lista yfir allt það sem ég þarf að eignast. Sumt á ég reyndar nú þegar, mikil gleði. Og hafið það í huga að listinn er gerður með mitt litarhaft, mína húðgerð og minn smekk í huga. Ég er viss um að Kristinn og pabbi verða ánægðir með þessa færslu, hoho.
- Farði/meik: Ekki tékk.
- Augnblýantur
# appelsínugulur (appelsínugulur dregur fram bláan lit): Ekki tékk
# rauðbrúnn: Ekki tékk
# gylltur: Tvöfalt tékk (já, maður á aldrei nóg af gylltum augnblýöntum!)
# kopar: Ekki tékk
# plómulitaður: Ekki tékk
# gulgrænn: Ekki tékk
# svartur: Þrefalt tékk (einn í veskið, annar á náttborðið og þriðji ef hinir tveir týnast)
# súkkulaðibrúnn: Tékk
# kókosgrár: Tékk
# skærblár: Ekki tékk
# dimmblár: Ekki tékk
# dökkfjólublár: Ekki tékk
# hvítur: Tékk
# kremlitaður: Ekki tékk
# harður: Tékk
# mjúkur: Tékk í svörtum
# skuggi/gel: Ekki tékk
# fljótandi: Tékk í svörtum, bleikum glimmer, gylltum glimmer og silfruðum glimmer
# augntúss: Ekki tékk
- Augnskuggar
# pressaður púðurskuggi: Mörg tékk
# laus púðurskuggi: Ekki tékk
# kremkenndur augnskuggi sem breytist í púður: Ekki tékk
# fljótandi augnskuggi: Ekki tékk
# augnskuggablýantur: Ekki tékk
- Snyrtiburstar af öllum stærðum og gerðum: Tékk
- Burstahreinsir: Ekki tékk
- Gloss: Ekki tékk
- Hyljari: Ekki tékk
- Kinnalitur: Ekki mikið tékk, bara pínu
- Maskari
# svartur: Tékk
# brúnn: Tékk
# bleikur: Tékk
# silfurgrár: Ekki tékk
# vatnsheldur: Ekki tékk
- Augnhárabrettari: Ekki tékk
- Varablýantur: Ekki tékk
- Varalitur: Ekki tékk (laxableikur er samt tékk)
- Kornakrem
# fyrir líkama: Æh, mitt er búið, svo ekki tékk
# fyrir andlit: Tékk
# fyrir fætur: Tékk
- Húðmjólk/body lotion: Ekki tékk (þarf að kaupa svoleiðis!)
- Sólarpúður: Tvöfalt tékk (bæði fastpressað og kremkennt)
- Plokkari: Tékk (samt afskaplega lítið notaður, þarf bara að plokka pínu á milli)
- Brúnkukrem
# fyrir líkama: Tékk (er samt ennþá með bikinífar og sandalafar frá seinasta sumri)
# fyrir andlit: Tékk
- Líkamsmaski úr avókadó eða höfrum: Ekki tékk
- Handáburður: Tvöfalt tékk
- Naglaolía/krem: Ekki tékk
- Naglaþjöl: Tékk
- Naglabandaolía: Ekki tékk
- Naglaslípunarþjöl: Tékk
- Möndluolía: Ekki tékk
- Lavendilolía: Ekki tékk
- Leirmaski: Ekki tékk
- Varasalvi
# litaður: Ekki tékk
# með sólarvörn: Tékk
- Gervineglur: Ekki tékk (fæ mér svoleiðis einhvern daginn)
- Rakakrem
# dagkrem: Ekki tékk (á ekki pening svo það er bara handáburðurinn, hahaha)
# næturkrem: Ekki tékk
# rakakrem með sólarvörn: Ekki tékk
- Sólarvörn: Tékk, en þarf samt birgja mig betur upp
- Naglalakk: Eitt tékk, þarf að kaupa meira
- Varaþykkir: Ekki tékk
- Krullukrem í hárið: Ekki tékk
- Naglalökk fyrir franska handsnyrtingu: Tékk
- Húðhreinsir: Ekki tékk (jeminn eini, þarf að kaupa svoleiðis, nota bara vatn, haha)
- Skrúbbburstar (auka blóðflæðið): Ekki tékk
- Hármaski: Tékk
- Hárvökvi gegn hita vegna hárblásara/sléttujárns: Ekki tékk
- Hárvökvi (fyrir litlu óstýrilátu hárin): Ekki tékk
- Hárlakk: Ekki tékk
- Hármótunarvörur: Margfalt tékk (mold, gelsprey, extreme gel, froða)
- Hársléttunarkrem: Tékk
- Naglaklippur: Tvöfalt tékk
- Tánaglaklippur: Tékk (hef samt aldrei notað þær)
- Tánaglaskæri: Tékk (hef samt aldrei notað þau)
- Naglabandeyðir: Ekki tékk
- Fótasalt: Ekki tékk
- Fótasvampur: Ekki tékk
- Fótaraspur/pimpsteinn: Ekki tékk
- Acínton: Ekki tékk
- Naglabursti: Ekki tékk
- Rakagefandi sturtusápa: Tékk
- Ilmvatn: Tékk
- Ilmavatnsstautur: Ekki tékk
- Rakaúði í andlit: Ekki tékk
- Blautþurrkur með svitalyktareyði: Ekki tékk
Jadúddamía! Hugsa að ég hætti við að gerast gella og gerist frekar svona kona sem notar bara vaselín. Reyndar er vaselín til margs brúklegt í fegrunaraðgerðum:
- Hægt er að nota það sem rakakrem
- Hægt er að nota það sem varasalva
- Hægt er að nota það sem gloss
- Hægt er að setja það á tennurnar til að ná fram glans
- Hægt er að setja það á augnhárin til þess að ná fram glans ef enginn maskari er við höndina
Hugsa að ég stofni styrktarreikning fyrir sjálfa mig, svei mér þá. Ég tek glöð við öllum framlögum!
Nei, ég má ekki vera að þessu lengur, ég ætla aðeins að skella mér á næsta götuhorn...
Bestu kveðjur, Anna sem þarf að eignast pening
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, mars 31, 2007
Flokkur: Danmark
