sunnudagur, desember 23, 2007

Hvernig skipta skal eggi

Það var einn góðan veðurdag í desember 2002, sem hún móðir mín ákvað að baka smákökur. Tók hún fram áhöld og hráefni og gerði sig klára í slaginn, alvön húsmóðirin. En fljótt kom þó upp babb í bátinn, því að í uppskriftina átti að nota hálft egg!

Nú voru góð ráð dýr. Stóðum við þarna fjölskyldan og hneyksluðumst á þessari asnalegu uppskrift, en ég dó þó ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn og ákvað að taka það að mér að skipta eggi í tvo helminga. Og hófust þá aðgerðirnar.

Ég náði mér í matardisk og ætlaði að skera eggið í sundur, en komst þó fljótlega að því að eggið hoppaði og skoppaði og vildi ekki vera kyrrt. Þá náði ég í litla tréliti sem við höfðum fengið gefins frá Landsvirkjun eða eitthvað álíka og límdi þá með límbandi niður á diskinn til þess að skorða eggið. Svo markaði ég hvar miðjan á egginu var og var nokkuð klár í slaginn.
Hér má sjá eggið skorðað niður.
--

En svo hófust vandræðin. Hvernig átti ég eiginlega að fara að því að skera akkúrat á miðjuna, því eggið var náttúrulega sleipt og hnífurinn tolldi illa á miðjunni? Auk þess sá ég fram á að eggið myndi fara allt í klessu þegar ég væri búin að skera það, því varla væri ég nógu snögg að skilja hlutana að. Þá tók ég á það ráð að klippa niður söfnunarbauk (æ nú fæ ég samviskubit) og límdi tvær hliðarnar saman með límbandi, svo ég kom hnífnum á milli. Náði ég þar með að skorða hnífinn á egginu, akkúrat á miðjunni, auk þess sem söfnunarbauknum var ætlað að halda eggjahelmingunum aðskildum þegar á hólminn væri komið.

Hér má sjá hnífinn skorðaðan með söfnunarbauknum á egginu.

--


Og svo var skorið. Tók þónokkur átök að komast í gegnum skurnið, en það tókst þó og söfnunarbaukurinn datt niður og skildi eggjahelmingana að.

Hér má sjá eggið í tveimur helmingum og söfnunarbaukurinn gegnir því hlutverki að halda eggjahelmingunum aðskildum.

---


Og svo var bara að fiska annan helminginn upp og vúla, hálfa eggið var klárt!

Annar helmingurinn á disknum og hinn í glasinu, aðgerðin heppnaðist fullkomlega.

--


Það var þá sem heyrðist í mömmu: "Við hefðum svo sem getað tvöfaldað uppskriftina?"

Hafið það gott börnin góð :) Bestu kveðjur, Anna á veggnum

Engin ummæli: