mánudagur, desember 03, 2007

Ég sá mömmu kyssa jólasvein

Enn einn mánudagurinn. Og á morgun verður enn einn föstudagurinn. Og á hinn verður enn einn mánudagurinn.

Góð helgi að baki. Það var fíflast, það var djammað, það var sofið, það var farið út að borða, það var horft á dvd og sumir gerðu heiðarlega tilraun til þess að kveikja í húsinu...

Fór svo og borgaði húsleiguna áðan og sagði eigandanum í leiðinni frá raunum mínum með örbylgjupoppið, alveg handviss um að nú yrði mér hent út því allt húsið angar af brunafýlu og ég búin að forðast eigandann eins og heitan eldinn seinustu þrjá dagana til þess að þurfa ekki að útskýra mál mitt fyrr en ég væri búin að finna haldbær rök fyrir því af hverju mér ætti ekki að vera kastað út. "Ha, hvaða lykt ertu að tala um?" hvað þá í kallinum, "ég finn enga!". "HA???" hváði ég. "Finnurðu ENGA???". "Nei, ég hélt að þetta væru bara klóakrörin niðri í kjallara eins og venjulega... hefurðu ekki fundið þá lykt?" sagði kallinn. "Nei, ég hef nú aldrei fundið neina skrítna lykt hérna í húsinu... En jæja, ókei!" sagði ég og yppti öxlum. Sjúkket, slapp fyrir horn...

Þjóðerni mitt er smám saman að breytast úr Svía yfir í Norðmann. Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um það, en reyni þó að taka því sem jákvæðum hlut því norskan liggur nú ekkert langt frá dönskunni. Ég lenti til dæmis í því í bænum um helgina að vera að tala íslensku og var spurð að því hvort ég væri Norðmaður. Yfirleitt er alltaf giskað á Svíþjóð (þótt mér takist ekki alveg að heyra hvað er líkt með íslensku og sænsku). Lenti svo í því á kassanum í vinnunni í dag að einn fastakúnninn byrjaði að tala frekar furðulega, svona voðalega syngjandi, en þó á dönsku. Ég hélt að kellan væri kannski í svona rosalega góðu skapi og brosti því bara á meðan hún sagði mér skellihlægjandi sögur af einhverju ómerkilegu sem ég man ekki hvað var. Svo þegar ég var búin að brosa og kinka kolli í smástund leit hún á mig og sagði "Bíddu, þú ert norsk er það ekki???". "Uhh nei, ég kem frá Íslandi...". "Ó guð fyrirgefðu, ég er bara búin að pæla og pæla í þessu og var orðin alveg pottþétt á að þú værir norsk! Þetta máttu afsaka, híhíhí". Hahaha :D

En já, allt að gerast hér í Mörkinni og ég stoppa ekki hálfa sekúndu. Á svo eftir öll jólagjafakaup og jólastúss ýmiskonar, er með fjölmarga hittinga af öllum toga á planinu, er alltaf í vinnunni og það styttist óðfluga í að ég fari heim... Jæks, spólum aðeins til baka!

En nú verð ég að drífa mig, ætla að kasta í vél, skunda út í búð, snæða, laga til og fara út að skokka... Hafið það gott rúsínurassarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna sem á ekki framtíðina fyrir sér í eldhúsinu

Engin ummæli: