föstudagur, júní 01, 2007

Du er ikke ret klog, hvaa?

Lort!

Ég verð orðin gráhærð fyrir tvítugt ef ég lendi á fleiri töfum og stoppum og ófullnægjandi upplýsingum í öllum þessu ljótu kerfum hér í Danmörku. Ef það er ekki bankanum að kenna að ég fæ ekki útborgað (eins og í febrúar og mars í hinni vinnunni minni) þá er það öðrum kerfum og boðleiðum að kenna að ég hef hvorki fengið útborgað fyrir mína vinnu í apríl né é maí. Lort. Þannig að nú sit ég hér, syndug manneskja og með samviskubit dauðans yfir því að skulda í fyrsta skipti í mínu lífi peninga. Já gott fólk, ég átti að borga húsaleiguna í dag! Lort, og ekki hægt að millifæra af íslenskum reikningum, því það myndi hvort sem er aldrei skila sér fyrr en á mánudaginn. En þann dag FÆ ég útborgað, og ef ekki, þá er yfirmaðurinn minn með backup-peningaplan handa mér, svona svo mér verði ekki kastað út úr húsnæðinu (það er ekki yfirmanni mínum að kenna að ég fékk ekki útborgað...). En grenj, hvað maður getur orðið pirraður.

Annars var gaman í hjá mér í gærkvöldi. Komu þar við sögur hamborgarar á stærð og þyngd við heilan hest, brjálaðir mávar sem réðust hamborgaraeigendurna í hundraðatali eftir að ákveðið var að auðvelda sér átið með því að kasta stórum hluta borgaranna út í vatnið, rúnturinn á aðalkagga bæjarins, stórhættulegar fjarstýrðar leikfangaþyrlur sem flæktust í hárinu á sumum í einni brotlendingunni og trúnó. Ágætt, ágætt...

Jæja, best að halda áfram með smjaðurtölvupóstinn til húseigandans, og svo sex tíma svefn og svo tíu tíma vinnuvakt. Adiós, Anna sem er ekki jafn pirruð og hún hljómar ;) En samt bara pínu.

Engin ummæli: