sunnudagur, júní 10, 2007

Svo heitt, svo heitt

Doh, og nú er netið komið með stæla! Ég ætlaði nú aldeilis að skella inn myndunum núna í kvöld, en nei, "this page could not be displayed". Og svo virkar msnið mitt ekki heldur. Og ég er viss um að skype virkar ekki heldur. Bömmer.

Og oh, mér er svo heitt! Ég var með galopinn glugga hjá mér í nótt (ég er samt á jarðhæð, en ég ákvað að taka sénsinn til þess að halda lífi) og ég var í nákvæmlega ekki neinu og sængurnar mínar báðar á gólfinu og lakið rennandi blautt af svita... Já góðir lesendur, það var 29,7 gráðu hiti inni í herberginu mínu í nótt! Ég hélt ég myndi ekki lifa þetta af. Ég ætla að kaupa mér viftu og leið og ég fæ útborgað.

Og nú er klukkan að verða níu að kvöldi til og það er ennþá 24,6 stiga hiti svo ég sé fram á aðra svefnlausa nótt. Og ég get varla hamrað lengur á lyklaborðið mitt því puttarnir á mér eru svo þvalir, svona í samræmi við restina af mér þótt ég sitji hér í mínípilsi og hlírabol með opinn glugga. Þannig að ég ætla að slútta þessari skemmtilegu færslu og kíkja pínu í skólabækur.

Adjö! Ástarkveðjur, Anna sem er í góðu skapi þrátt fyrir of gott veður og neikvæða bloggfærslu

Engin ummæli: