Fyrir skitnar 127 evrur (11.430 íslenskar krónur) fæ ég að fara fram að 14. desember í:
- þrjá Step 'N Shape tíma á viku
- þrjá Body Power tíma á viku
- fimm Step tíma á viku (Step er ekki steppdans, bömmer, haha)
- einn Tae-Bo tíma á viku
- sex Spinning tíma á viku
- þrjá Pilates tíma á viku
- þrjá tvöfalda boxtíma á viku
- tvo Fusion-Dance tíma á viku (í hverjum tíma er mismunandi dans tekinn fyrir, t.d. Salsa, HipHop, Freestyle og maður þarf ekki að vera professional dansari til að mega mæta!)
- einn Spin & Shape tíma á viku
- tvo TaeBootCamp tíma á viku
- og ég fæ minn eigin skápslykil
- og ég fæ ótakmarkað aðgang að klikkað flotta fitnesstækjasalnum!!!
Ég tek það fram að þetta er ekki 127 evrur á mánuði, heldur 127 evrur fyrir tvo og hálfan mánuð! Ó boj, ó boj.
Humm, það er ekki svo að skilja að ég sé að fara í þetta allt saman, heldur kannski svona einn eða tvo tíma á dag, allt eftir nennu. Í kvöld stefni ég t.d. á Tae-Bo og á morgun í Fusion-Dance...
Úff, ef ég verð ekki orðin skutla fyrir jólin, þá fer ég í fýlu og geri það að tilgangi lífs míns að safna spiki.
Jæja, best að drífa spænskuna af svo ég komist í Tae-Bo í kvöld...! Kveðjur, Anna van Bosch
Engin ummæli:
Skrifa ummæli