Jú, alltaf nóg að gerast hér í Danmörku! Morguninn byrjaði þó ekki alveg nógu vel. Ég átti að mæta í vinnu klukkan átta, og var því mætt út á lestarstöðina klukkan 7:24, svona eins og vera ber. En nei, vegna tæknilegra bilana GENGU ENGAR S-LESTIR Í BORGINNI! (Ekki "ganga" í bókstaflegri merkingu þó...). Bara alls engar! Overhovedet! Sjitt, og engar nothæfar strætóstoppistöðvar í margra kílómetra radíus. Og það var ekki búið að manna S-lestarstrætóana sem eiga að ganga þegar S-lestirnar bila, svo ég hringdi í yfirmanninn og sagðist vera föst á lestarstöðinni minni og kæmi sennilega frekar mikið of seint í vinnuna, þar sem ég þyrfti að ganga langa leið til þess að finna næstu Metro-lestarstöð. Yfirmaðurinn sagði mér að hringja bara á taxa í boði Netto, sem ég og gerði. "Góðan daginn, þetta er leigubílastöðin blablabla, þér eruð númer 13 í röðinni". Eftir þrjár mínútur var ég ennþá númer þrettán í röðinni og inneignin mín að klárast svo ég prófaði að hringja á aðra stöð. Sama sagan þar. Og svo var inneignin mín búin. Meira sjitt. En ég dó þó ekki ráðalaus og skundaði inn í næsta bakarí og spurði hvort ég mætti nokkuð aðeins nota símann þeirra gegn greiðslu. Ha jújú, 5 kall takk! Svo ég hringdi aftur í yfirmanninn og sagðist þurfa að skunda á næstu metrostöð því það væri engin leið að ná í taxa og svo var ég líka nýbúin að spjalla við einn mann sem var búinn að bíða í 20 mínútur eftir sínum taxa og taxinn hvergi nærri sjáanlegur... Svo ég arkaði af stað. Eftir heilmikið labb (hálftímaleið) og nestistopp í 7-eleven (kommon, hefði ég vitað af þessu labbi hefði ég borðað þrefaldan skammt af morgunmat í staðinn fyrir bara tvöfaldan!) tókst mér að koma bara hálftíma of seint í vinnuna. Þá hafði brauðið komið alltof seint og allar hinar vörurnar alltof snemma og búðin stöppuð af kúnnum (allir nýbúnir að fá útborgað) og allt í stressi. Æði! Sjá frétt um lestarvandamálið hér.
---
En nóg um það. Hér koma nokkrar myndir frá því Lilja var hér í seinustu viku.
Lilja og ég að versla, hojhoj! (Ég veit, ég veit, vitlaus notkun á sögninni "að versla"...).
Í sól og sumaryl á Strikinu :)
Á sunnudeginum var farið í Tívolí! Þar voru öll tækin prófuð nema tvö (sem var ákveðið að slaufa sökum ógleði og almennrar tækjaþreytu) og dagurinn var hinn allraskemmtilegasti. Eftir tívolíferðina var að sjálfsögðu haldið í Kristjaníu að fá sér að borða, svona eins og vera ber :)
Lilja og Snævar
---
En já, mikið óskaplega var gaman að fá hana Lilju mína í heimsókn! Lilja, komdu fljótt aftur :)
---
Núnú, á mánudeginum brunaði ég beint úr vinnunni og út á flugvöll að sækja Yukinu frá Japan. Þar voru miklir fagnaðarfundir og gaman gaman :) Og svo var komið að því að koma flykkinu (ferðatöskunni hennar Yukinu sem var bæði kingsize og í heljarinnar yfirvigt) inn í bæinn. Eftir að hafa dröslað ferlíkinu upp í lest með hálp sterkra manna sem glottu óþarflega mikið að óförum okkar við að reyna að koma töskunni upp tröppurnar í lestina, komumst við loksins í bæinn. Þar tók við heljarinnar svaðilför yfir götur og ofan í polla á leiðinni á gistiheimilið sem var 500 metra frá Aðalbrautarstöðinni. Eftir check-inn og lyftuferð í fyndnustu lyftu í heimi var komið að mér að láta ljós mitt skína og reyna á leiðsögumannahæfileika mína. Fyrst var skundað á Ráðhústorgið, og þá var sumum orðið ansi kalt því þeir föttuðu ekki að það væri kalt í Evrópu (hósthóst) svo ég fórnaði mér og lánaði Yukinu úlpuna mína og stökk svo inn í næstu búð og keypti eitt stykki flíspeysu. Og svo héldum við túrnum áfram.
Það var þó ekki svo kalt að það væri hægt að sleppa því að fá sér heita vöfflu með ís... Eftir ísinn fórum við í Kristjaníu (fjórða skiptið mitt á fimm dögum, geri aðrir betur) sem var með því svalasta sem Yukina hefur séð, hehe. Eftir túrinn í Kristjaníu bauð ég Yukinu út að borða á Jensens böfhouse, þar sem við fengum okkur fáránlega góða og fáránlega stóra hamborgara (minn var kjúklingaborgari, algjört æði!). Yfir matnum fattaði Yukina að hún átti afmæli (20 ára) og við spurðum því þjóninn hvort við fengjum ekki ókeypis eftirrétt, þrátt fyrir að hafa ekki náð að torga borgurunum ;) Eftir heilmikinn rannsóknarleiðangur kom þjónninn svo til baka og tilkynnti okkur leiður að það væri því miður ekkert slíkt í boði, en við gætum svo sem fengið þennan fína fána á borðið hjá okkur í tilefni dagsins, hahaha :P
Yukina með fánann fína.
Eftir matinn var klukkan orðin rúmlega tíu og ég fylgdi Yukinu aftur á gistiheimilið og fór svo heim.
Daginn eftir hitti ég Yukinu á gistiheimilinu klukkan tíu. Við komum töskuskrímslinu í farangurshólf á Aðalbrautarstöðinni og héldum svo í smá skoðunarferð um Nyhavn.
Yukina og ég á Nyhavn, þarna fyrir aftan okkur sést glitta í Óperuhúsið alveg til vinstri.
Og svo þurftum við að drífa okkur til baka og koma okkur út á flugvöll, því Yukina átti flug til GAUTABORGAR klukkan tvö. Já, stelpan er að fara í háskóla þar, flottasta borgin sko :P Og svo var komið að kveðjustund, snökt. En hver veit nema að maður skelli sér bara til Gautaborgar í heimsókn? ;)
---
En já, best að fara og horfa á sjónvarpið!
Ástarkveðjur, Anna hin þreytta sem þarf að vinna á morgun (sunnudegi!).
laugardagur, september 01, 2007
Copenhagen city
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, september 01, 2007
laugardagur, ágúst 25, 2007
Nej fy fan!
Það er búið að vera fáránlega gaman hjá mér undanfarna daga, hoho.
Á fimmtudaginn hitti ég hana Lilju mína sem er stödd hérna í Kaupmannahöfn þessa vikuna. Og vá, það var ekkert smá gaman að sjá andlit að heiman, hojhoj! Við fórum í m.a. í Christianiu og heilsuðum upp á íbúana þar og tókum dágóða slúðurskorpu yfir sjúklega góðum hamborgurum, enda margt slúðurvænt sem hefur gerst frá því hittumst seinast fyrir 7 mánuðum síðan. Því næst var haldið á Strikið og þar sem hlaupið var á milli skóbúða (ég náði þó mér að óvörum að hemja mig og kaupa ekki neitt, klapp fyrir því!) og þvínæst skildust leiðir þann daginn.
Föstudagurinn var algjört stuð. En þó ekki allt. Eftir vinnu fór ég í dönskuskólann eins og alltaf, og fékk þá að vita að fjárhagsdeilurnar milli Kaupmannahafnarkommúnu og skólans míns eru komnar á mjög alvarlegt stig og það gæti jafnvel farið svo að skólanum sé bara lokað fyrir fullt og allt :( Það verður reyndar reynt að finna út úr málinu (sem ég nenni ekki að farað útskýra hér) í næstu viku, en ef það tekst ekki verður ekki meira kennt :( Sem er alveg fáránlega ömurlegt, svo við skulum vona það besta og vona að þetta verði ekki meira en bara vikufrí. Ég er sem sagt í fríi alla næstu viku þessa máls, en vonast auðvitað til að málið leysist og ég geti byrjað aftur í skólanum eftir næstu viku.
En já, þetta var leiðinlegi parturinn af föstudeginum, svo byrjaði það skemmtilega. Eftir dönskuskólann ákváðu nokkrir að skella sér á bar í tilefni af því að hafa komist áfram á þrep níu (ef það verður þá eitthvað þrep níu) og var skálað vel og mikið fyrir skólanum. En ég stoppaði þó ekki lengi, því ég fékk sms frá henni Lilju minni um að það væri djamm í aðsigi, svo ég fór í ofboði heim, skellti mér í sneggstu sturtu í heimi (var bara 9 mínútur sem er langt undir heimsmeti á mínum mælikvarða), dreif mig í djammgallann og setti svo á mig andlitið í lest sem hristist aðeins of mikið. Og svo var skundað á djammið (ég, Lilja, kærastinn hennar og systir kærastans). Reyndar var klukkan farin að ganga tvö þegar við komumst loksins niður í bæ, en hvað um það. Og já, á leiðinni niður á Strikið (þar sem við ætluðum að djamma) hittum við Lilja einn mann sem spurði okkur til vegar. Hélt hann sjálfur að hann væri algjör fengur og ákvað því að reyna eilítið við okkur, en það eina sem honum tókst var að móðga mig. Já, hann þurfti endilega að skoða hendurnar á okkur Lilju af einni eða annarri ástæðu. Fyrst leit hann á hendurnar á Lilju og það var ekkert út á þær að setja. Því næst reif hann í hendurnar á mér og þurfti að skoða þær líka en það eina sem honum tókst að stynja út úr sér var "Ó mæ gad, ég hef aldrei í lífinu séð svona þurrar hendur! Vá, sérðu þetta? Vá, ég hef bara aldrei séð annað eins. Er þetta ekki vont? Við hvað vinnurðu eiginlega???" Uhh, hvað segir maður eiginlega við svona? Þvílíkt misheppnaður gæji og hann fékk nú bara að sigla sinn sjó.
En já, eftir stopp í 7eleven var haldið á The Dubliner, maður minn sko! Þar hittum við fyrir þrjá sænska sjarmöra og hvorki voru þeir nú ljótir né leiðinlegir greyin. Þeir skyldu samt ekki boffs í dönsku og hoppuðu því hæð sína í loft upp af undrun, aðdáun og gleði þegar ég byrjaði að tala sænsku við þá. Þeir ætluðu nú samt ekki að trúa því að ég hefði einungis dvalist þrjá mánuði í Svíþjóð og voru sannfærðir um að ég ætti einhverja sænska ættingja, því svona sænsku getur enginn talað eftir aðeins þrjá mánuði... Haha. Ég hef nú heyrt þetta nokkrum sinnum áður... ;)
En já, eftir að hafa spjallað við Svíana um stund fór öll hersingin (við Íslendingarnir og Svíarnir) á dansgólfið þar sem dansað var tryllt í tvo tíma eða svo. Þegar ég segi tryllt, þá meina ég að við SPÆNDUM upp dansgólfið við rífandi írska lifandi tónlist. Þetta var alveg brjálað, enda bogaði svitinn af okkur öllum saman á milli þess sem við steppuðum og klöppuðum og snérumst í hringi og hoppuðum og sungum og öskruðum og tvistuðum. Og ég á háum hælum allan tímann (7 cm) og fann ekki fyrir því! Svona er maður orðinn þjálfaður ;) Við yfirgáfum staðinn klukkan hálffimm og ég skakklappaðist heim til mín og var komin í rúmið klukkan hálfsex.
Dagurinn í dag (laugardagur) var líka algjört dúndur. Ég neitaði tilboði þess efnis að mæta í vinnuna og lagði af stað í langa bæjarferð eftir hádegið. Þar uppgötvaði ég alveg meeergjaða verslunarmiðstöð (Rödovre Centrum), veskinu mínu til mikillar mæði. Svo átti ég erindi niður í bæ og var því ekki komin heim aftur fyrr en klukkan sex. Þá dreif ég mig í eldsnögga sturtu (varla mikið lengri en daginn áður) og hafði svo samband við danskan vin minn sem býr í nágrenninu og plataði hann út að borða á pitsustað, enda hafði ég ekkert annað borðað en morgunmat þennan daginn. Eftir að hafa borðað nenntum við ekki heim og ákváðum við þá að þvo bílinn, en vinur minn hafði einmitt verið svo gáfaður að leggja honum undir tré fyrr um daginn, þar sem fuglarnir höfðu greinilega skemmt sér við að drita berjum á kaggann... En í Danmörku er ekkert til sem heitir kústur og vatn, og var því haldið á ekta bílaþvottastöð á bensínstöð! Þar þurfti að borga fullt af peningum til þess að fá að keyra í gegn, en það var samt þess virði því þetta var skemmtilegra heldur en hinn skemmtilegasti rússíbani, jömundur minn! Þvottaprógrammið tók korter og þetta var bara eins og sitja í rússíbanahermi, því bíllinn var kyrrstæður en allskonar tæki og tók hreyfðust í kring svo það var eins og við værum á hreyfingu. Mjög spes. Eftir þvottinn nenntum við ekki ennþá heim, svo þá var ákveðið að rúnta um borgina. Rúnturinn tók fjóra klukkutíma, en á þeim tíma tókst okkur að keyra um Vanlöse, Herlev (þar sem engir veitingastaðir eru svo maður getur ekki pissað), Husum, Bellahöj, Rödovre, Vesterbro, Nörrebro, Christianshavn (fórum meðal annars í Christianiu) og svo þurfti Íslendingurinn náttúrulega að fara á ströndina svo það var brunað á ströndina á Amager... Reyndar var aðeins of kalt til þess að kasta klæðum og fara að synda, en ég fór þá allavega á ströndina þetta sumarið! Eftir að hafa fengið okkur meira að borða (og svona fimm pissustopp fyrir mig) þá þurftu sumir að fara heim til þess að taka vinnuföt úr þvottavél (ekki ég!)... En sjitt, þetta var gaman :)
En nú þarf ég að drífa mig í rúmið, því við Lilja ætlum að taka daginn snemma og skella okkur í Tívolíið eldhressar klukkan ellefu í fyrramálið :)
Góða nótt älsklingar mínir, Anna sem er ennþá jätta bra í svensku :o)
PS. Hmm já, sem sagt góða nótt ef ég skyldi þá fá svefnfrið... Hér í húsinu við hliðina á mínu er nefnilega brúðkaup í gangi og akkúrat núna er sex manna hljómsveit að spila í tjaldi í garðinum og verður að þar til klukkan þrjú í nótt... Samt voða rómantískt, eintóm ástarlög, nú er t.d. verið að spila lag úr Grease (You are all that I want), svaka stuð og stemning :) Ég ætla sko pottþétt að vera með svona í brúðkaupinu mínu (sem er nú samt ekki beint á næstu grösum...)!
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, ágúst 25, 2007
Flokkur: Danmark
miðvikudagur, ágúst 22, 2007
Go' aften!
Dönskutími. Einn nemandi í einu hélt fyrirlestur fyrir bekkinn og áttu samnemendurnir svo að sjá um að dæma framburð, uppbyggingu og málfræði hjá fyrirlesaranum. Anna átti að fylgjast með framburðinum hjá einum sem talaði ekki neitt afbragðsgóða dönsku og jafnvel alveg fráleita á köflum. En Anna vissi að uppbyggjandi gagnrýni er það sem virkar best og hóf því mál sitt:
"Sko, það sem ég skildi skildi ég geðveikt vel. En það sem ég skildi ekki skildi ég bara alls ekki!"
Og svo dó bekkurinn.
Og ég sem átti að mæta í matarboð í kvöld, snökt. Fjandans skóli...
...sagði
Anna Bj.
-
miðvikudagur, ágúst 22, 2007
Flokkur: Danmark
sunnudagur, ágúst 19, 2007
Jaja man
Jæja, þá er reykingarbannið komið í gildi hér í Baunalandi. Danir eru afar móðgaðir vegna þessa og lesendapistlar allra dagblaða fjalla um að næst verði fólki bannað að leysa vind. Þó fannst mér nú eitthvað lítið bera á þessu reykingarbanni í gærkvöldi á sumum stöðum...
Annars voru reglur gærkvöldsins aðeins tvær:
1. Anna má ekki panta sér eksótíska drykki af barnum
2. Sofie má ekki fá skot
Segjum ekki meira um það mál...
Aðrar fréttir?
Núnú, sjónvarpið mitt suðar ekki lengur og er það afar gleðilegt.
Áðan fór ég út í búð og var næstum því snuðuð um 7 danskar krónur en ég fattaði það.
Lilja mín er að koma til Danmerkur eftir nokkra daga.
Japönsk stelpa sem ég kynntist á umhverfisþingi fyrir tveimur árum ætlar einnig að stoppa hér í Danmörku í nokkra daga, þótt hún nú reyndar að fara í skóla í Svíþjóð.
Ég er latasti bloggari í heimi.
Verð að þjóta! Ástarkveðjur, Anna sem veit núna að maður segir ekki sofaseng heldur sovesofa þegar maður er að tala um svefnsófa...
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, ágúst 19, 2007
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, ágúst 09, 2007
Stundum er hún skárri, og stundum er hún verri
... en svei mér ef hún er ekki skárri þegar hún er verri! (Kaffibrúsakallarnir)
Nú er ég alveg hætt að skilja tjáningu sjónvarpsins míns.
Fyrst þegar ég flutti hingað var skjámyndin gul. Svo fékk danska vini míni í heimsókn til þess að sýna þeim gula sjónvarpið mitt og þá hætti það að vera gult og hefur ekki verið gult síðan. Og ég var sökuð um geðveilu.
Svo fylgir engin fjarstýring sjónvarpinu og er ég því búin að þróa með mér þann hæfileika að geta hækkað og lækkað og skipt um stöð með tánum þegar ég ligg í "hægindastólnum" góða. En stundum fapast mér þó listin og rekst í einhverja stöðvarstillingartakka og þá er nú bara happa glappa hvort ég finni sjónvarpsstöðina nokkurn tímann aftur. En ég get nú svo sem lifað með því og í dag fann ég meira að segja óvart nýja sjónvarpsstöð þar sem ég gat horft á Vík milli vina (Dawson's Creek) mér til mikillar skemmtunar.
Og stundum sýnir sjónvarpið bara leiðinlega sjónvarpsþætti. En ég get svo sem lifað með því líka, því þá hef ég tíma til þess að strauja og vaska upp og svona.
En nýjasta nýtt er þó hávært suð sem er að gera mig vitlausa! Í morgun hélt ég hreinlega að sjónvarpið væri ónýtt því ég heyrði bara suð en ekkert í Dr. Phil og skipti engu hversu mikið ég bankaði og lamdi í kassann (það virkaði alltaf með gamla sjónvarpið hjá afa og ömmu og eins má nota þá aðferð á prentarann í vinnunni!). Í vonsvikiskasti mínu yfir suðinu lagaði ég pínu til í herberginu mínu og kveikti svo aftur á tækinu. Þá var suðið hætt og að því tilefni hef ég setið sem límd fyrir framan imbann í allan dag. En nú er suðið komið aftur, nei nú hvarf það!! Hoho, þá er þessi færsla nú eiginlega fallin um sjálfa sig...
Ástarkveðja, Anna sem skrifaði færslu sem hefur ekki lengur tilgang og er þar af leiðandi ekki fyndin
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, ágúst 09, 2007
Flokkur: Danmark
mánudagur, ágúst 06, 2007
And there we go again
Goddag! Eða god aften, þar sem að klukkan er rétt að renna í tíu.
Nú er sumarfríinu mínu er dönskuskólanum lokið og mætti ég því galvösk í tíma í dag. Nú eftir að hafa fengið að kynnast frelsinu í fjórar vikur get ég ekki hugsað um annað en hvað lífið verður ljúft þegar ég verð búin eftir þrjá mánuði eða svo. Dæs...
Annars var skóladagurinn hinn fínasti. Frímínúturnar voru að sjálfsögðu nýttar í það að spretta á milli stofa og heilsa upp á alla þá sem maður hefur einhvern tímann verið í bekk með áður og var mikil gleði og læti á milli nemenda enda heilar fjórar vikur síðan maður sá þetta fólk seinast. Reyndar tókst mér líka að gera mig að fífli nokkrum sinnum svona eins og vera ber (mundi absolút ekki eftir einum gaurnum sem hafði verið með mér í bekk á þrepi fjögur, játaði óvart ást mína upphátt á myndarlegasta kennaranum (ekki fyrir framan hann samt, hjúkket!) og veifaði til gamals bekkjarfélaga sem var ennþá inni í tíma og kennarinn hans hélt að ég væri að veifa honum (sem sagt kennaranum)...).
Þó verður að segjast alveg eins og er að ég notaði sumarfríið mitt ekki í neitt gáfulegt, enda var ég að vinna óheyrilega mikið (no money, no shoes!). En ég meina hey, þetta sumar verður/var kannski ekki það skemmtilegasta, en það kemur sumar eftir þetta sumar og næsta sumar hér í DK verður magnað, enda verð ég þá búin að koma betur undir mig fótunum fjárhagslega séð, á þá rétt á sumarfríi á launum, verð búin að styrkja félagslegt net mitt ennfrekar og verð búin með dönskuskólann. Svo er bara að vonast eftir góðu veðri og þá verður næsta sumar perfektos!
Annars eru gleðfréttirnar þessa dagana þær að hún Lilja mín yndislega er búin að panta sér flug til Danmark baby núna seinnipart ágúst og ætlar að dvelja hér í Kubenhán í heila viku! Hittir það svo vel á að þá viku verð ég einmitt í heilu helgarfríi og ætli við gerum ekki eitthvað af okkur þá... Hoho, ég hlakka svo til! :D Sumarið er nú ekkert alveg búið sko ;)
En kannski maður hætti þessi bulli og haldi áfram að laga til, er að bíða eftir að þvottavélin klári og ætla svo að skríða upp í rúm...
Góða nótt ljúflingarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna sem heitir ekki Ann eins og stóð á einu umslaginu í dag...
...sagði
Anna Bj.
-
mánudagur, ágúst 06, 2007
Flokkur: Danmark
sunnudagur, júlí 29, 2007
Anna í 20 ár
Fyrirmáli: Þessi færsla er löng og ég erfi það ekki við ykkur þótt þið lesið hana í nokkrum skömmtum. Einnig býst ég fastlega við að öll greinarskil verði í klessu, þar sem blogspot er ekki of samvinnufús þegar það kemur að myndbirtingu og greinarskilum. Aldurinn sem ég tilgreini miðast við ártalið á myndinni, þar sem það reyndist auðveldara við myndaöflun og skrif færslunnar. Get ég því verið t.d. fimmtíu ára á mynd þar sem stendur fimmtíuogeins árs því ég á afmæli á miðju árinu. Eins er ég meðvituð um að í þessari heljarinnar færslu gætu leynst tugir af málfræði-, orðtaka- og stafsetningarvillum. Athugið einnig að stiklað er á mjög stóru í þessari samantekt og margt sem ekki var pláss til þess að segja frá. Njótið vel!
---
Góðan daginn herramenn og heiðurskonur!
--
Í dag á ég afmæli og er þar með skriðin á þrítugsaldurinn. Er ég þó ekki neitt óskaplega miður mín því eins alþjóð veit þá er maður ekki orðinn gamall fyrr en maður er orðinn svona 21 árs.
--
Þó er þetta að sjálfsögðu merkilegur áfangi, því jafnvel þótt ég fagni ekki deginum með því að stökkva út í Ríkið og kaupa áfengi í hrönnum því það hef ég getað gert um langa stund, þá ætla ég að fagna honum með því að rifja upp ævihlaup mitt í máli og myndum og leyfa ykkur að njóta með. Taka skal samt fram að ég er búin að gera mér ýmislegt annað til dundurs og skemmtunar til þess að fagna deginum, bara svona svo fólk haldi ekki að bloggið sé hápunktur dagsins…
---
1987
Það var þann heiðursdag 29. júlí árið 1987 sem mér þóknaðist að fæðast. Var greyið hún mamma þá komin akkúrat þrjár vikur framyfir venjulegan meðgöngutíma og orðin ansi þreytt á ástandinu (vægt til orða tekið), enda er það fyrsta sem hún segir í dag þegar maður minnist á fæðinguna mína “Úúff, það var svo heitt”, því júlímánaðar þessa árs er minnst fyrir óeðlilegs og sjúklega mikils hita. En já, ég ætlaði sem sagt ekki að yfirgefa dvalarstað minn og því var ákveðið að mamma myndi verða gangsett eftir akkúrat fjögurtíuogþriggja vikna meðgöngu. En sjá, sama dag og hún átti að vera gangsett fór þó eitthvað að gerast svo gangsetning reyndist óþörf. En það er ekki þar með sagt að ég hafi ætlað mér að koma út þrátt fyrir að fæðingin væri farin af stað og ríghélt ég mér með kjafti og klóm og gerðist meira að segja svo fræg að skemma sogklukkuna á Húsavíkurspítala með þrjóskunni í mér, en klukkan slitnaði alls 7 sinnum. Eftir mikil erfiði og mikið vesen (vægast sagt) náðist þó að fiska mig út. Þó setti ég öll plön úr skorðum með því að fæðast svona seint (átti að fæðast 8. júlí) því það varð þess valdandi að hún móðir mín var aaalein á sjúkrahúsinu í heila viku þar sem pabbi var í heyskap og aðrir höfðu skipulagt utanlandsferðir sínar miðað við að ég fæddist 8. júlí en ekki þann 29... Og svo tek ég það fram að ég vildi aldrei snuddu, sama hversu mikið stóri bróðir minn reyndi að skrúfa henni (í bókstaflegri merkingu) upp í mig. Því að það kom nefnilega ekkert út úr snuddunni sjáið til, og það lét ég ekki bjóða mér upp á – foreldrum mínum til mikillar mæðu. Því að svo var ég nefnilega líka magabarn og eyrnabarn, hvað meira er hægt að biðja um? En til að fyrirbyggja allan misskilnings þá tóku foreldrar mínir þessu með ró og spekt og hugsa til fyrsta ársins míns með eintómri hlýju í brjósti.
Þarna er ég ca. þriggja mánaða, algjört bjútí :)
---
1988
Eins árs og allra manna yndi, nema stundum. Ég var nefnilega handviss um að ég væri nafli alheimsins. Reyndi ég meðal annars að sanna það með því að þykjast stjórna heiminum. Grenju- og frekjuköst voru alltíð þetta ár og reyndi ég á mörk foreldra minna sem mest ég mátti. Og svo grenjaði ég ennþá meira. En svo inn á milli var ég að sjálfsögðu algjör rúsína. Ég tók fyrstu skrefin mín (sem voru fimm talsins) á eins árs afmælisdaginn minn. Þremur vikum seinna fór ég að reyna að hlaupa og þremur mánuðum eftir það byrjaði ég að ganga á tánum og gekk varla öðruvísi þar til ég var þriggja ára. Allt til þess að æfa sig fyrir hælaskóna þið skiljið... Og svo gólaði ég, já. Ég talaði nefnilega á gólinu, og talaði ekki öðruvísi fyrr en ég var orðin þriggja til fjögurra ára. Og ekki nóg með að ég hafi gólað, heldur”söng” ég líka þegar ég talaði. Var því talað um Önnu hina sænsku fyrstu árin mín, þrátt fyrir að ég eigi engar rætur að rekja til Svíþjóðar og mamma lá aaalein á fæðingardeildinni svo það er ekki möguleiki á að börnum hafi verið ruglað saman.
Þarna er ég stödd í fjárhúsunum heima, algjör bolla
---
1989
Tveggja ára og enn gólandi og gangandi á tám...
---
1990
Þriggja ára og farin að muna eftir mér. Skapið sjatnað. Afmælisdaginn þetta ár munu foreldrar mínir muna það sem eftir lifir, en það var einmitt þann dag sem ég, fullviss um að heimurinn snérist í kringum mig, sagði að minnsta kosti þúsundogþrjátíu sinnum með litlu sætu þriggjaárastelpugólröddinni minni: ”Má ég blása attur?” og var þá að tala um afmæliskökuna mína. Hefur þetta verið brandari á mínu heimili alla tíð síðan og rifjað upp á hverju afmæli. Og ekki er verra að þetta afmæli er til á myndbandi, guð hjálpi okkur öllum.

Ég algjört rassgat í hæsnahúsinu hennar ömmu Steingerðar heima á Grænavatni.
---
1991
Fjögurra ára dúlla og allra manna yndi.
Dúkkurnar voru orðnar ansi stór partur af mínu lífi á þessu tímabili, þarna er ég einmitt úti að svæfa hana Lísu mína eftir að hafa þvegið öll fötin hennar í ekta vatni og hengt upp á dúkkusnúruna mína eins og svo oft áður... Verður þó að segjast eins og er að mér hefur hrakað allverulega í heimilisverkunum alla tíð síðan!
---
1992
Fimm ára og leikskólinn var sko málið! Man eins og það hafi verið í gær.
Og ég að sjálfsögðu með tískuhárgreiðslu þessa tímabils. Ég man eftir skyrtunni, en ég man ekki eftir þessum buxum! Og ég get svoleiðis svarið það að ég hef ekkert breyst frá því á þessari mynd, og ég er ekki að djóka!
---
1993
Sex ára og byrjuð í Skútustaðaskóla sem var með u.þ.b. 20 nemendur. Ég var eina stelpan í risastórum bekk sem innihélt mig og fimm stráka. Í þeim skóla var ég í þrjú ár, eða allt þar til skólar sveitarinnar voru sameinaðir. Ég lýg ekki að ég man hvert einasta augnablik úr Skútustaðaskóla. Ég man eftir fyrsta skóladeginum þegar ég uppgötvaði í forstofunni áður en ég mætti í fyrsta tímann að allir vaxlitirnir mínir voru dottnir úr pakkanum. Ég varð að sjálfsögðu alveg miður mín og mátti hún mamma raða öllum litunum í pakkann aftur áður en ég gekk inn í stofuna mína. Ég man líka eftir gömludansatímunum þar sem við lærðum Karl gekk út um morguntíma og fleira nytsamlegt. Og ófáum bílferðum á pallinum á prumpubíl kennarans þegar við fórum í leikfimi í félagsheimili þónokkuð frá skólanum. Ég man einnig eftir öllum sundtímunum, meðal annars þegar ég þurfti að fara inn í strákaklefann (hneyksl!) til þess að læra bringusundsfótatökin á þurru landi. Og heimilisfræðitímarnir, ég man ennþá eftir uppskriftunum og hver gerði hvað í hverjum tíma! Og ég man líka eftir því þegar ég var að fá mér að borða í mötuneytinu í hádeginu og var að fá mér tómatssósu úr glerflösku. Og svo allt í einu glúpp og risastór loftbóla full af tómatssósu lenti ofan á fiskinum mínum og ég fór næstum því að skæla. Að ógleymdum skólaböllunum! Ég man ennþá eftir því hvaða lög voru spiluð þar, og ég man einnig eftir því þegar ég missti fyrstu tönnina mína en það gerðist einmitt á skólaballi þegar ég var að borða ”upptakara” (saltlakkrís) og ég fór og setti tönnina mína í vasann á blómajakkanum sem mamma saumaði. Já, þetta man ég og meira til! En nú þurfum við að halda áfram með þessa færslu...
Þessi mynd er tekin á jólunum og ég man svo vel eftir þessum kjól og þessari hárspennu að það er ekki fyndið. Ekki veit ég samt hvernig mömmu hefur tekist að láta slöngulokkana halda sér enda hef ég aldrei náð að halda slöngulokkum í hárinu á mér, hvorki fyrr né síðar. Grunar mig að járnið hafi verið sett í hárið á mér mínútu fyrir myndatöku...---
1994
Sjö ára skotta.
Ég í skólafötunum mínum sem ég fékk í sex ára afmælisgjöf frá mömmu og pabba og bræðrum mínum. Ég fékk einnig Mikka-mús skólatöskuna mína og fjóra bleika blýanta frá þeim. Sagan á bakvið fötin er nú samt sú að nokkru fyrir sex-ára afmælisdaginn minn hafði fjölskyldan farið í ferð inn á Akureyri. Ég var látin máta þessi föt í Hagkaup og fór svo næstum að skæla þegar mamma ”ákvað að kaupa þau ekki”. Þið getið rétt ímyndað ykkur hamingjuna þegar ég fékk svo fötin í afmælisgjöf! Þó tek ég það fram að mamma man ekki eftir að ég hafi mátað fötin, það hefur greinilega sært mig meira en hana... segi sálfræðingnum þetta! Þarna er ég einnig að spila á blokkflautuna mína. Á þessum tíma var ekki skylda í mínum skóla að læra á blokkflautu, en ég fór samt í einkatíma til tónlistarkennara til þess að læra á hana (og reyndar píanó líka). Þó gekk frekar brösulega að kenna mér að halda rétt á blokkflautunni, því ég vildi alltaf svissa höndunum eins og sjá má. Má því segja að ég hafi ekki lært að halda rétt á blokkflautu fyrr en ég fór að læra á klarinett 14 ára því það er ekki fræðilegur möguleiki að reyna að spila á klarinett með hendurnar öfugar...
---
1995
Átta ára og orðin ”geðveikt stór” að eigin mati. Ég man eftir því þegar ég sat í sandkassanum heima þegar ég var sjö ára og hlakkaði geðveikt til að verða átta ára því mér fannst það svo flott...
Þarna er ég heima hjá ömmu og afa á Grænavatni og er að búa til laufabrauð. Já börnin góð, fyrst eru búnar til deigklessur og svo eru þær settar í þvottarúlluna (notuð til þess að vinda föt í gamla daga) og svo rúllar maður og fær út flatt deig. Svo er diskur settur á flata deigið og kleinujárn notað til þess að skera meðfram og svo notar maður laufabrauðsjárn til þess að skera munstur í og svo brettir maður og pikkar og steikir og borðar. Reyndar eru fleiri ár síðan við hættum að rúlla okkar eigin kökur og fórum að kaupa þær tilbúnar, en það er nú annað mál. En já, þarna á myndinni er ég sem sagt með nokkrar deigklessur sem á eftir að rúlla. Þessar klessur kallar amma mín spjarir. Og taka skal það fram að mamma mín hataði þennan gula seríosbol af öllum lífs- og sálarkröftum, enda ákaflega ljótur á litinn að hennar mati. En ég elskaði þennan bol nú samt út af lífinu og það mátti alls ekki henda honum...
---
1996
Níu ára og barbí var lífið. Punktur.
Eins og sjá má var ég algjör gella á þessum aldri og átti bleikt herbergi. Ég ætla samt ekki að segja ykkur hvað ég var gömul þegar ég hætti að leika mér í barbí, dúddírú...
---
1997
Tíu ára og ég man hvað ég fékk í afmælisgjöf þetta ár. Jahérnahér.
Þarna er ég að sauma dúkkuföt. Get ég þó með sanni sagt að saumahæfileikar mínir hafa ekki þróast neitt frekar síðan. Og af hverju er ég svona brún á handleggjunum?
---
1998
Ellefu ára. Jájájá.
Þessi mynd er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Þarna er ég á leiðinni á öskudagsball og mig minnir að ég hafi verið fegurðardrottning (allavega var það ekki dragdrottning!). Ég gjörsamlega elska þessa múnderingu, en ég man ekki í hvaða skóm ég var. Takið einnig eftir hvað ég er í stíl við lampann.---
1999
Tólf ára og man harla fátt svona í öjeblikket. Minnir þó að það hafi verið þetta ár sem ég hélt upp á afmælið mitt með stelpupartíi úti í tjaldi.
Þarna er ég á fiskeríi við Eiðsvatn í sumarbústaðaferð austur á landi. Taka skal það fram að ég hef aldrei í mínu lífið fiskað neitt þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, ekki einu sinni rusl! Hins vegar er ég ansi lunkin við það að festa spúninn á milli steina og jafnvel í peysunni hjá næsta manni, jájá...
---
2000
Þrettán ára og það ár var farið í skólabúðirnar á Reykjum. Þar var pælt í strákum og fötum daginn út og daginn inn. Mín að sjálfsögðu öll að komast á gelgjuna og tók því með mér hálft herbergið mitt í skólabúðirnar, má þar meðal annars nefna allskonar styttur og myndaramma og aðra skrautmuni sem allajafna prýða herbergi unglingsstúlkna. Var minn helmingur af herberginu mínu því það allra flottasta sem sést hefur á Reykjum frá upphafi...
Þarna er ég stödd í fermingarveislu á Húsavík. Og þennan bol notaði ég í mörg mörg ár...
---
2001
Fjórtán ára, mæ ó mæ! Ég man vel eftir þessu ári, árið sem ég byrjaði að mála mig og ganga í g-strengjum... Góðar stundir, góðar stundir! Skólaböllin í skólanum voru það allra heitasta, svo ég tali nú ekki um samskólamótin sem voru íþróttamót milli nokkurra skóla í sýslunni, og þar mátti nú sjá ýmsa myndarlega drengi...
Ég er ekkert öðruvísi en allir aðrir og þess vegna loka ég alltaf augunum þegar ég sé fermingarmyndir af mér. Ég vil helst ekki sjá þetta. Eða ég vil bara alls ekki sjá þetta! Ég man samt vel eftir fermingardeginum og ”magnaða partíinu” sem ég fór í kvöldið áður og var komin heim klukkan tólf sko! Vona að þið njótið myndarinnar, nú ætla ég að opna augun og flýta mér í næstu klausu!
---
2002
Fimmtán ára og níundi bekkur. Og mín orðin ansi mikil gella/gelgja!
Þessi mynd er tekin á jólunum, og ég nota þennan hlírabol ennþá, raunveruleikasjokk!!! Held ég þurfi að fara að versla... En ég meina hey, það er ekki eins og skálastærðin eða ummálið hafi stækkað eitthvað síðan þetta ár, ég hef mér það til málsbóta...
---
2003
Sextán ára og allt að gerast! Tíundi bekkur og mín að prófa sig áfram í fatastíl. Fatastíllinn var einfaldur: Allt það sem er í fataskápnum á að notast! Mætti ég því á hverjum einasta dagi uppstríluð í ýmsum múnderingum, skósíðum pilsum, klofstuttum pilsum (þó alltaf í sokkabuxum/fínum buxum innanundir, maður býr jú á ÍSlandi), bolum sem voru flegnir niður á nafla (í bókstaflegri merkingu!), í spariskyrtum og bara nefndu það. Ef ég átti það, þá notaði ég það. Eins gegndu skartgripir veigamiklu máli og ég gat ekki látið sjá mig án þess að vera allavega með risastóra eyrnalokka, tvö hálsmen og ökklaband. Þó var eitt atriði sem var mun mikilvægara en skartgripirnir, meiköppið!!! Á hverjum einasta degi allan tíunda bekkinn mætti ég stífmáluð í skólann. Meira að segja þegar ég var að fara í sund í öðrum tíma á þriðjudögum! Ég man samt eftir einum þriðjudeginum þar sem ég ákvað að prófa að mæta ómáluð í skólann því ég væri jú hvort sem er að fara í sund og nennti ekki alltaf að vera að berjast við að ná svertunni undan augunum á mér. Frá því er skemmst að segja að það gerði ég aldrei aftur! Þegar ég mætti í skólann læddist ég meðfram veggjum og leit ekki einu sinni upp. Og þegar einn bekkjarfélaginn spurði hvort ég væri þreytt (því að maður (eða allavega ég)) lítur þreyttur út þegar maður er ómálaður) þá var mér allri lokið og endurtók leikinn aldrei aftur. Og þess má geta að alltaf þegar ég var búin í sundinu flýtti ég mér sem mest ég mátti upp í skóla aftur áður en næsti tími byrjaði svo ég gæti málað mig upp á nýtt. Og oft var tíminn meira að segja byrjaður þegar ég stóð ennþá við spegilinn úti í horni á kennslustofunni og var að klára að mála mig. Hef ég mér þó það til málsbóta að ég lít í alvörunni illa út þegar ég er ómáluð. Hef ég stundum mætt ómáluð í vinnuna á þessu ári (2007) og hef ALLTAF fengið þessa setningu frá kúnnunum og oft mörgum á dag: ”Æ þú hlýtur að hlakka til að fara heim, ég sé það alveg á þér hvað þú ert þreytt!”.
Ég að gera mig klára fyrir útskriftarferðalagið til Danmerkur með níunda og tíunda bekk að heimsækja pennavinabekkinn. Þetta ferðalag var svo rosalega uppfullt af ævintýrum, vinskap og strákamálum að þegar ég kom heim úr ferðalaginu tók ég mig til og skrifaði niður allt sem ég mundi úr ferðinni og studdist þá við allítarlega ferðadagbók til þess að hafa dagsetningar og tímasetningar og önnur smáatriði á hreinu. Verkið telur fullklárað 61 síðu í Word með 12 punkta Times New Roman letri og einföldu línubili. Og ferðin var bara tíu dagar. Og það tók mig marga mánuði að skrifa þetta niður. Og þetta ritverk fær enginn að sjá, aldrei. Oh, hvað maður var mikil gelgja... Takið eftir því að ég er ekki í neinum sokkum á myndinni. Jú, því að fötin mín voru nefnilega öll með tölu komin niður í tösku (nema það sem ég er í á myndinni)! Mætti ég því berfætt í skólann dagana fyrir ferðalagið því að það var allt í þvotti. Fatnaðurinn skipti nefnilega miklu máli í ferðinni þið skiljið... Reyndar kannski of miklu, því að töskurnar voru alltof þungar og þetta var fyrir þann tíma sem allir áttu flugfreyjutöskur. Því varð ég að gjöra svo vel og dröslast með þessar tvær nýþöngu töskur um Danmörku þvera og endilanga, og það þótt mér ekki beint verk fyrir prinsessu og dekurrófu eins og mig...---
2004
Sautján ára. Flutt að heiman og komin í framhaldsskóla með tilheyrandi skemmtilegheitum. Varð virkur bloggari þetta ár svo ég hef fátt annað að segja en: Kíkið á gamla bloggið mitt ef þið eruð forvitin um hagi mína þetta ár.
Þetta er eimitt ástæða þess að ég baka ekki. Hef oft reynt það, aldrei tekist það. Og það endar oftast svona. Skelfileg mynd samt, enda er ég ómáluð...
---
2005
Átján ára og enn í framhaldsskóla. Fátt fleira um það að segja.
Nei, ég er ekki í útlöndum, þessi mynd er tekin heima á Klakanum góða. Þó er ég nokkuð túrhestaleg! Jú sjáið til, ég var nefnilega (nauðug viljug) skráð á umhverfisþing af náttúrufræðikennaranum mínum. Gekk þetta þing út á það að hingað til landsins komu tugir af jafnöldrum mínum frá Alaska, Japan og Rússlandi og rædd voru umhverfismál í heila viku. Við bjuggum í sumarbústaðabyggð einhversstaðar hjá Vaglaskógi og björguðum vandamálum heimsins hvað varðar gróðurhúsaáhrif. Ákaflega fræðandi, en þó var aðalskemmtunin fólgin í því að hitta allt þetta nýja fólk og eignast búnt af nýjum vinum. Við fengum rauðar flíspeysur og derhúfur og boli og nafnspjöld og það kom meira að segja hálfsíðu viðtal við mig í Mogganum þar sem ég lýsti yfir áhyggjum mínum um þróun umhverfismála í heiminum. Og þarna er ég einmitt stödd á Hömrum hjá Akureyri þar sem allur hópurinn var látinn planta trjám. Reyndar verð ég að vera alveg hreinskilin og segja að ég snerti ekki einu sinni skóflu, því mér finnst leiðinlegt að planta. Stóð ég því bara hjá og tók myndir, svo ég á engan heiður í trjávexti á Hömrum...
---
2006
Nítján ára. Loksins búin með framhaldsskólann (var nú reyndar enn átján þegar útskriftin var) og stungin af til útlanda tveimur vikum eftir útskrift. Fyrst bjó ég í Svíþjóð í tvo og hálfan mánuð þar sem ég skrúbbaði hótelklósett og kynntist fullt af æðislegum Svíum og Finnum. Svo bjó ég í Hollandi í þrjá og hálfan mánuð þar sem passaði börn af miklum móð og kynntist Hollendingum.
Ég á útskriftardaginn minn, einn af skemmtilegustu dögunum í mínu lífi. Því að jú, ég fékk nefnilega svo mörg verðlaun í athöfninni og þar af leiðandi gríðarlega mikla athygli sem mér fannst nú ekki leiðinlegt. Já, ég varð semídúx þrátt fyrir að hafa aldrei lært heima nema fyrstu önnina mína á fyrsta árinu og því var þetta nú ekki amalegur árangur, kom mynd af mér í blöðin og svona...
---
2007
Tuttugu ára og enn á besta aldri. Jaddúddamía! Búsett í Danmörku, óákveðin með framtíðina. Í blóma lífsins :)

Í einum af tveimur sólskinsdögum sumarsins...
---
Annars þakka ég bara fyrir öll sms, símhringingar og aðrar kveðjur í dag, og þakka einnig fyrir lesturinn ef einhver náði svo langt :)
---
Allar mínar bestu kveðjur, Anna hin tvítuga :)
...sagði
Anna Bj.
-
sunnudagur, júlí 29, 2007
