... en svei mér ef hún er ekki skárri þegar hún er verri! (Kaffibrúsakallarnir)
Nú er ég alveg hætt að skilja tjáningu sjónvarpsins míns.
Fyrst þegar ég flutti hingað var skjámyndin gul. Svo fékk danska vini míni í heimsókn til þess að sýna þeim gula sjónvarpið mitt og þá hætti það að vera gult og hefur ekki verið gult síðan. Og ég var sökuð um geðveilu.
Svo fylgir engin fjarstýring sjónvarpinu og er ég því búin að þróa með mér þann hæfileika að geta hækkað og lækkað og skipt um stöð með tánum þegar ég ligg í "hægindastólnum" góða. En stundum fapast mér þó listin og rekst í einhverja stöðvarstillingartakka og þá er nú bara happa glappa hvort ég finni sjónvarpsstöðina nokkurn tímann aftur. En ég get nú svo sem lifað með því og í dag fann ég meira að segja óvart nýja sjónvarpsstöð þar sem ég gat horft á Vík milli vina (Dawson's Creek) mér til mikillar skemmtunar.
Og stundum sýnir sjónvarpið bara leiðinlega sjónvarpsþætti. En ég get svo sem lifað með því líka, því þá hef ég tíma til þess að strauja og vaska upp og svona.
En nýjasta nýtt er þó hávært suð sem er að gera mig vitlausa! Í morgun hélt ég hreinlega að sjónvarpið væri ónýtt því ég heyrði bara suð en ekkert í Dr. Phil og skipti engu hversu mikið ég bankaði og lamdi í kassann (það virkaði alltaf með gamla sjónvarpið hjá afa og ömmu og eins má nota þá aðferð á prentarann í vinnunni!). Í vonsvikiskasti mínu yfir suðinu lagaði ég pínu til í herberginu mínu og kveikti svo aftur á tækinu. Þá var suðið hætt og að því tilefni hef ég setið sem límd fyrir framan imbann í allan dag. En nú er suðið komið aftur, nei nú hvarf það!! Hoho, þá er þessi færsla nú eiginlega fallin um sjálfa sig...
Ástarkveðja, Anna sem skrifaði færslu sem hefur ekki lengur tilgang og er þar af leiðandi ekki fyndin
fimmtudagur, ágúst 09, 2007
Stundum er hún skárri, og stundum er hún verri
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, ágúst 09, 2007
Flokkur: Danmark
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli