Kræst, það er aftur að koma helgi! Hvað er málið?
---
Héðan er annars allt gott að frétta. Bara rétt rúmlega þrjár vikur eftir að dönskuskólanum í bili og ég strax farin að vandræðast hvað ég á að gera allan þann frítíma sem ég fæ. Einmitt þess vegna er ég búin að biðja múttu um að kippa með sér útsaumsmyndinni minni að heiman (sem ég byrjaði á fyrir tveimur árum síðan) þegar hún, pabbi og Friðrik litli bró koma hingað eftir akkúrat viku. Svo er ég líka búin að kaupa mér saumavél á spottprís í Netto svo kannski maður leggist hreinilega í föndur. Þið hafið nú öll séð myndina af páskaunganum mínum fallega...
---
Og svo skellti mér í klippingu og litun í morgun. Það var gaman. Ég er nefnilega búin að finna mér hárgreiðslukonu sem skilur hvað ég er að plana með hárið á mér, gerir akkúrat það sem ég segi, er góð í því að klippa og er bara fjári skemmtileg og veit núorðið allt um ævisögu mína og framtíðarplön... Ekki dónalegt!
---
En vá, nú er ég að falla á tíma, þarf að fara að sofa til að geta mætt í vinnuna til þess að græða meiri peninga til þess að geta keypt mér fleiri skó... Svo nú kemur lokahnykkurinn á þetta.
---
Um seinustu helgi lágu leiðir okkar Hildar nokkurrar saman og við ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt. Úr því varð all svakalegur djammtúr í bæinn (eftir smá hlaup á lestarstöðina) þar sem slett var aldeilis úr klaufunum. Verður þó að segjast eins og er að sumar (hóst*við*hóst) voru orðnar eilítið valtar á fótunum svona undir lokin, enda kannski aðeins fengið sér í aðra tánna og jafnvel í hina líka... Reyndar vil ég meina að mitt jafnvægisskyn hafi ekki verið jafn slæmt og raun ber vitni, heldur vil ég alfarið kenna hælunum á stígvélunum mínum um, því tappinn á öðrum hælnum ákvað að detta af í dansæðinu og var sá hæll því nokkru styttri en hinn... en það vissi ég ekki fyrr en út af skemmtistaðnum var komið og tími var til þess að skipta um skó. Var þetta rassadill hið fínasta og er planið að endurtaka leikinn annað kvöld.
Lúkkið tékkað áður en haldið var af stað
---
Þannig að ég sé sem sagt fram á vægast sagt fjöruga helgi. Mér tókst nefnilega óvart að bóka mig á þrjú djömm á tveimur dögum, svo augljóst er að einhverju verð ég að slaufa og hef ég nú gert upp hug minn. Planið fyrir helgina er því þetta:
Föstudagskvöld: Hitta Hildi, snurfusa okkur heima hjá mér, halda í bæinn og gera góða hluti (við erum sko með ákveðið "verkefni" í gangi, tala ekki meira um það hér...), fara heim til mín og sofa.
Laugardagur: Vakna vonandi einhvern tímann, svo þarf ég að gera ýmis erindi í bæinn, fara heim aftur, hringja í mömmu, taka mig til fyrir kvöldið og halda heim til einnar úr vinnunni þar sem við ætlum að hittast nokkrar Netto-gellur og hafa stuð. Þaðan verður svo haldið í bæinn þar sem allt verður gert vitlaust. Ekki aðeins er búið að plana óhóflega áfengisdrykkju, heldur er einnig veðmál í gangi sem best er að ræða ekki meira um hér á þessum víðlesna vef... Þess má geta að ég hafði ekkert um það að segja hvort myndi mæta eða ekki. Ef það er Netto-djamm, þá er Anna. Það verður nefnilega að hafa einhverjar sögur að segja hinu samstarfsfólkinu, sem komst ekki, næstu vikurnar, og þar kem ég víst inn í myndina... Engin Anna - engar sögur! Veit ekki hvort ég að vera upp með mér eða sármóðguð...
Sunnudagur: Vakna og laga til. Slappa af áður en vinnuvikan byrjar aftur. Ljúft :)
En nú verð ég að drífa mig, bæjó! Hilsen frá Köben ;)
fimmtudagur, september 20, 2007
Loksins ný færsla
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, september 20, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli