sunnudagur, september 24, 2006

Er nýbúin að standa í svona veseni!

Ó-ó, hvað á ég eiginlega að gera eftir áramót?

  • Au-pair? Nei, ég held ég sé því miður búin að útiloka þann möguleika, grenj. Í mig er nefnilega kominn smá háskólafílingur (obbobb) og græði ég sennilega meira á því að finna mér aðra vinnu og íbúð sjálf. Ég ætlaði samt að ráða mig aftur sem au-pair, damn...
  • Finna íbúð og vinnu sjálf? Tjah, það kemur varla annað til greina... Það er samt ábyggilega hellings vesen, en ég hef nú eiginlega frekar gaman að því að púsla svona saman, svo það er nú ekkert óyfirstíganlegt.
  • Heim til Íslands? Nei.
  • Í skóla? Á ekki pening, og fyrr ferst heimurinn en að ég taki mér námslán!!! Auk þess hef ég ekki GLÓRU um hvað mig langar til að læra... sjúbbídú.
  • Til Danmerkur? Ójá, ég ELSKA Danmörku svo mikið, snökt. En hvar? Århus eða Kaupmannahöfn? Ég get ekki valið, grenj.
  • Til Svíþjóðar? Vegna tungumálsins, já. En annars ekki.
  • Áfram í Hollandi? Nei, það er svona land sem maður heimsækir bara í fríum og í svona nokkra mánuði :)
  • Grafa mig í fönn fram í júní og ráða mig þá sem Nordjobbara í einhverju landi? Huhumm, miðað við síðasta launaseðilinn minn (sem ég fæ útborgaðan á morgun, jess), þá græði ég meiri pening á því að fara bara heim og skrá mig í unglingavinnuna... grínlaust!

Garg, þetta er nú ljóta ástandið. Allar tillögur eru vel þegnar.

Engin ummæli: