sunnudagur, júlí 02, 2006

Undanfarnir dagar

Þá er komið að því! Loksins fáið þið, ó kæru lesendur, eina góða myndafærslu! Hugsanlegt er þó að þessi færsla verði löng, já mjög löng, en það er ekki mér að kenna. Hef ég hins vegar mun meiri áhyggjur af því að ég muni vera í alla nótt að koma henni inn á veraldarvefinn, en hvað gerir maður ekki fyrir ykkur :)

Og já. Akkúrat í þessum töluðu orðum er ég að hlusta á Robbie Williams LIVE. Hann er nefnilega akkúrat núna með tónleika í Ullevi-leikvanginum (þar sem EM í frjálsum íþróttum verður haldið í byrjun ágúst) og þar sem ég bý skammt frá Ullevi, þá heyri ég óminn af þessu hingað heim í stofu. Já, bara svona að segja ykkur frá því...

And here we go.

22. júní: Það var rigning í Liseberg

Við Venla skelltum okkur í þrívíddarbíó

23. júní: Ég á leiðinni í Stenungsund (klukkustundarakstur með rútu) til að halda upp á Midsommarfirande (Jónsmessu) ásamt öðrum Núrjobburum. Rútan keyrði á 5 kílómetra hraða vegna gífurlegrar umferðar og sökum þess að einn vegurinn var lokaður vegna umferðarslyss. Ég var að missa alla þolinmæði á hægaganginum eins og glöggt má sjá á þessari mynd.

Ég að bíða eftir taxa í Stenungsund til að komast á hátíðarsvæðið sem var í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Stenungsund. Á þessum tímapunkti vorum við búin að finna farfuglaheimilið okkar sem var 20 mínútna gang frá Stenungsund.

Stenungsund

Núrjobbarar á hátíðarsvæðinu.

Midsommarsúlan reist. Já, í kringum þessa súlu gekk ég og söng “Göngum við í kringum einiberjarunn” fullum hálsi ásamt öðrum jólalögum! Það sem eru hrein og klár jólalög heima á Fróni eru sumarlög hér…

Ég að pósa

Þessi gella gekk á línu… á hælaháum skóm!

Þarna vorum við búin að yfirgefa hátíðarsvæðið og komin aftur í Stenungsund á eina staðinn sem var opinn í þessum 25.000 manna bæ! Við höfðum yfirgefið hátíðarsvæðið ansi snemma (um áttaleytið), því það var bara fólk yfir sextugt eftir á svæðinu… Einn eldgamall maður var þó svo sætur í sér að kenna mér eldgamlan sænskan þjóðdans :P En já. Þarna vorum við in the middle of nowhere, því 25.000 manna bæir teljast víst til algjörra skítapleisa hér í Svíþjóð þar sem fjölda næturklúbba er haldið í algjöru lágmarki… En sem sagt, þarna á þessum bar fengum við okkur heitt kakó til að fá smá yl í kroppinn :)

Stengunsund, the middle of nowhere!

Við fórum sem sagt í göngutúr því barinn var svo leiðinlegur. Þessi pósa er ekki alveg að gera sig!

Halló-alló-alló-alló… Heyrir einhver í mér - í mér - í mér - í mér…?

Við fundum strönd

Oh damn! Það var bannað að stinga sér af bryggjunni! Og ég sem hafði einmitt hugsað mér að gera það í þessum nístingskulda…

Já, við fórum bara aftur á farfuglaheimilið um tólfleytið, enda ekkert annað að gera þarna lengst úti í buska. Og já. Þess má geta að ég fór að ráðum Finnanna, týndi 7 tegundir af blómum og setti undir koddann minn. Mig átti víst að dreyma framtíðareiginmann minn, því það var Jónsmessunótt. Frá því er skemmst að segja að enginn karlmaður vildi koma nálægt mínum draumum þessa nótt og bendir því allt til þess að ég muni pipra. Ó svei.

24. júní: Nösnäs – nánös?

Þarna er ég í Liseberg eina ferðina enn… Ég fer þangað svona þriðja hvern dag!

Við Venla sáum þennan flotta loftbelg.

Kungportplatsen klukkan níu um kvöld.

Ég við Kungportsplatsen

Já, það var sem sagt steggjapartí í gangi á Kungportsplatsen. Samansafn af hljóðfæraleikurum spilaði nokkur lög og rammfalskur söngvari söng eins og hann ætti lífið að leysa. Steggurinn sjálfur var PISSFULLUR með hvíta hárkollu og dansaði eggjandi dansa við gesti og gangandi. Ég lenti einmitt í mjög seiðandi sömbu með karlgreyinu sem stóð varla í lappirnar vegna ofurölvunar. En ég ætla sko pottþétt að giftast píanóleikaranum sem var nú ekkert slor sko! Venla ætlar að eigna sér trommuleikarann ;)

26. júní:Odinsgatan eitt rigningarkvöldið

27. júní: Ég fór í Liseberg og horfði á geðveikt vinsælan gaur að nafni Magnus Carlson syngja nokkur lög. Ég hef aldrei fyrr heyrt á kauða minnst, enda er hann tiltölulega nýr í bransanum, en á þó risastóran aðdáendahóp á öllum aldri. Sem er svo sem ekkert skrítið, ég ætla sko að splæsa í geisladisknum hans strax í byrjun ágústmánaðar! :D

29 .júní: Þessi mynd er tekin í Kungsparken klukkan átta um kvöld. Veðrið var algjört æði!

Þessi er líka tekin í Kungsparken.

Jæja, ég kemst ekki lengra í kvöld, klukkan er korter í tólf og Robbie karlinn er hættur að syngja... Blogga samt vonandi meira á morgun ef tími leyfir og kem með fleiri myndir af atburðum undafarinna daga!

Kærar kveðjur, knús og kossar, Anna Björk

Engin ummæli: