Jæja børnin gód, hvad syngur í ykkur?
Oh, alveg er ég viss um ad sumarid hérna í Køben er búid, núna er ég farin ad sakna vetursins svo madur geti kveikt á kertum og svoleidis, leidinlegt svona millibilsástand.
Annars er nú helst í fréttum hér á bænum ad vid Peter minn erum komin med nýja íbúd! :D Vid fáum hana afhenta núna 1. júlí og spenningurinn er tvílíkur. Íbúdin er stadsett hérna nidri í Kastrup, 300 metrum frá íbúdinni sem vid búum í núna. Tad er nú aldeilis heppilegt, tví tá verdur nú audvelt ad flytja allt dótid okkar. Eda já, allt dótid okkar, tótt tessi íbúd sé ad springa utan af okkur, tá mun dótid tæplegast fylla upp í horn í nýju íbúdinni.
Fyrir tá sem ekki vita, tá er íbúdin sem vid búum í núna svona: 40 fermetrar, ekkert svefnherbergi svo rúmid er í stofunni. Minnsta klósett í heimi tar sem madur getur pissad, burstad í sér tennurnar og verid í sturtu, allt á sama tíma. Fínar svalir og ágætis eldhús. Ekkert skápapláss fyrir draslid mitt svo føtin mín eru øll í tveimur ferdatøskum á gólfinu (tad verdur nú audvelt ad flytja tad tví tad tarf ekkert ad pakka, hahaha) og snyrtidraslid mitt er í gluggakistunni tar sem sólin skín allan daginn, tegar hún skín tad er ad segja. En ljómandi gód og sæt íbúd ef madur er single.
Svo skodudum vid nýju íbúdina okkar í gær og hún verdur svona:
- 86,1 fermetri, 3 herbergja.
- Gott anddyri med gódu plássi fyrir yfirhafnir og skóhillur og spegil og prófast og snøgum og øllu tví sem anddyrir tilheyrir.
- Stofa sem er 26 fermetrar og nóg pláss fyrir risastóran hornsófa og skenk fyrir flatskjáinn og bordstofubord og stóla og bara allt sem manni dettur í hug ad hafa í stofu. Í stofunni eru einnig aldeilis ágætar svalir sem eru adeins stærri en tær sem vid erum med núna.
- Ljómandi fínt svefnherbergi med FRØNSKUM SVØLUM (ohohoh, tad verdur ædi, fyrir tá sem ekki vita tá eru franskar svalir bara dyr og svo grind, tad kemur sem sagt ekkert út heldur er bara hægt ad opna dyrnar og njóta góda vedursins) og svo er rúsínan í pylsuendanum: Fataskápurinn!!! Hann er innbyggdur í vegginn og tetta er ekki bara einhver fataskápur heldur er tetta svona lítid herbergi sem madur gengur inn í :D :D :D Tar er hellings pláss med fram veggjunum fyrir føt og svo efst upp er skápurinn byggdur enn lengra inn í vegginn svo tar er allt heimsins skápapláss fyrir allskonar dót :D Einmitt tad sem mig hefur alltaf dreymt um, mitt eigid fataherbergi :D
- Badherbergi, ekkert risastórt en tó mun stærra en tad sem vid erum med núna. Og ekki nóg med tad, tá er líka badkar tar!!! Tetta er án vafa fyndnasta badkar sem ég hef á ævi minni séd, rosalega stutt á lengdina en alveg fáránlega djúpt. Tad hefur greinilega verid ad nýta plássid, hahaha.
- Eldhúsid er RISASTÓRT midad vid tad sem vid høfum núna, og skápaplássid er gífurlegt. Eini mínusinn er ad eldhúsinnréttingin hefur sennilega verid tar frá tví á midøldum, eda allavega frá tví um sautjánhundrud- og súrkál, og tví ætlum vid seinna ad reyna ad fá leyfi til ad skipta henni út seinna meir og henda einhverjum af øllum tessum skápum, tad er ekki eins og vid séum ad reka 7 manna heimili.
- Kústaskápur, lítill og sætur :)
- Aukaherbergi sem verdur notad undir allt møgulegt. Tad herbergi átti í raun ad vera fata- og snyrtiherbergid mitt, hahaha, en svo fylgdi óvart fataherbergi med íbúdinni svo tetta herbergi verdur bara notad undir eitthvad annad.
- Íbúdin er mjøg opin og bjørt og alveg fullkomin :)
En tad er samt alveg greinilegt ad tad hefur sennilega búid gømul kona tarna í mørg ár eda eitthvad álíka, tví tad er margt sem tarf (eda tess tarf nú kannski ekki, en okkur langar til) ad gera. Fyrir tá sem ekki vita, tá er Peter smidur og hefur mikid verid ad vinna vid ad standsetja íbúdir svo hann hefur reynslu á tessu svidi, hentugt ;) Vid ætlum ad byrja á tví ad skipta út gólflistum og mála dyrakarma. Svo er búid ad mála alla íbúdina nema svefnherbergid svo vid ætlum ad mála tad. Tad er búid ad pússa gólfid, kaupa nýtt klósett og skipta út bordpløtu á eldhúsinnréttingunni svo vid turfum ekki ad hugsa um tad ;) Svo ætlum vid ad setja rennihurd á hluta af anddyrinu og búa til skáp og svo ætlum vid ad mála eitt og annad og reyna ad fá leyfi til tess ad brjóta nidur hillurnar í innangengna fataskápnum og fá ad setja nýjar. Seinna (tegar fjárrád leyfa) ætlum vid ad reyna ad fá leyfi til ad skipta um eldhúsinnréttingu og hurdum.
Svo ad núna verda hlutirnir ad ganga hratt, tví vid ætlum ad losa okkur vid núverandi íbúd 15. júlí og svo ætla ég líka ad segja upp herberginu mínu í Vanløse og skila tví tann 30. júlí. Sem betur fer verdur Peter heima í eina til tvær vikur í byrjun júlí tví hann lendir milli verkefna í vinnunni svo hann getur stússast í tessu øllu saman.
En jæja, núna ætla ég ad hætta tessu bulli, týda tessa færslu fyrir Peter og fara í bad. Svo er ég ekki frá tví ad tad bídi okkar súkkuladikaka...
Hafid tad gott ástarpungarnir mínir :) Bestu kvedjur, Anna hin ofurspennta :)
þriðjudagur, júní 24, 2008
Jahúúú :D
...sagði
Anna Bj.
-
þriðjudagur, júní 24, 2008
Flokkur: Danmark
laugardagur, júní 21, 2008
Vúhú :D
Oh hvad ég er hamingjusøm núna!!! Í marga mánudi er ég búin ad leita stanslaust og árangurslaust ad einu ákvednu lagi. Og í dag fann ég tad!!! Tannig er mál med vexti ad ég var ad horfa á sjónvarpid á danskan karíokíkeppnistátt og tá var sungid lagid "Langebro" med Gasolin og Kim Larsen. Lagid hef ég oft heyrt ádur, en eitthvad fannst mér samt extra kunnuglegt vid lagid. Og svo fattadi ég tad: Tetta var lagid sem ég var ad leita ad!!! Og svo komst ég ad tví ad melódían er ekki dønsk heldur er hún enskt tjódlag og heitir Geordie. Og vúla, mín búin ad finna lagid :D:D:D
Hérna er útgáfan hjá Kim Larsen: http://www.youtube.com/watch?v=omDlmQHhXdI
Og hérna er lagid í útgáfunni sem ég var ad leita ad: http://www.youtube.com/watch?v=jlLH3nkAOKE
Hohohoho :D
Bestu kvedjur, Anna Lauritz (Hildur, sakna tín, er ad farast úr Lauritz-trá!!!).
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, júní 21, 2008
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, júní 19, 2008
Af símum, flugum, bambus og fleiru
Jæja, tá er sumarid greinilega búid hér í Kaupmannahøfn, allavega hefur verid óttalega kalt hérna seinustu tvær vikurnar eda svo. Tetta verdur ábyggilega eins og seinasta sumar tar sem sólin lét ekkert sjá sig eftir 10. júní. En Pollýannan sem ég er, tá sé ég ad sjálfsøgdu bjørtu hlidarnar á tessu máli, tví ad í Hollywood er heitasti húdliturinn í augnablikinu alveg næpuhvítur! Tau skilyrdi uppfylli ég fullkomlega og bíd tví eftir ad hringt verdi í mig og mér bodid hlutverk í mynd.
Reyndar týdir lítid fyrir mig ad bída vid símann, tví hann er alveg ad gefa upp øndina greyid, líkt og seinustu trjú árin eda svo. Í seinustu viku var hann reyndar óvenju slæmur tví ég fékk ekki smsin fyrr en seint og um sídir, og stundum neitadi síminn fólki um ad hringja í mig og sendi mér tess í stad sms "xxxxxxxx hefur reynt ad hringja", og tau sms bárust ad sjálfsøgdu seint og illa til mín. En síminn er búinn ad vera í lagi undanfarna daga, jájá. Svo styttist í ad síminn hans Peters verdi 6 mánada gamall (eftir 2 mánudi) og tá mun síminn lenda í minni eigu, vúhú! Já, hann fær nýjan síma á 6 mánada fresti á 1 DKK og nýt ég góds af tví.
Fólk hefur oft spurt mig af hverju ég kaupi ekki bara nýjan síma. Hugsanlega hefur tad eitthvad med tad ad gera ad ég hef tekid heilrædi hennar ømmu minnar aaadeins of alvarlega tarna í den, en tau hljóma svo: "Nota skal tad sem hendi er næst og ekki hugsa um tad sem ekki fæst". Einmitt tess vegna eru allar vinnubuxurnar mínar gatslitnar á alla kanta (ein úr vinnunni ætlar reyndar ad fá tær lánadar í næstu viku og sauma tær fyrir mig, hahaha) en tví er reddad med tví ad vera í leggings innan undir. Finnst algjør ótarfi ad vera ad spreda í nýjum buxum tegar madur gerir hvort sem er ekki annad en ad skrída á gólfinu og reka sig utan í hluti og skera (óvart) gøt á buxurnar (og sjálfan sig í leidinni) med vinnuhnífnum... Alltaf stud í vinnunni ;)
Annars lenti ég nú í hørkuhasar vid eina flugudruslu í vinnunni í gær! Ég var eitthvad ad brasa og gekk fram hjá mjólkurkælinum. Tá sá ég allt í einu eitthvad kvikindi sitja á einni mjólkurfernunni og ákvad ad kanna málid nánar. Tá sá ég ad tetta var kæmpestór húsafluga. Ég reyndi ad blása adeins á drusluna, en hún hreyfdi sig hvergi. Tad tók ég fernuna og hristi hana, en hvergi fór flugan. Ég potadi í fluguna, en hún sýndi engin vidbrøgd. Hún var samt ekki daud og tví kalladi ég í ørvinglan (er tad ekki annars ord?) minni á einn vinnufélaga minn. Hann reyndi sømu kúnstir og ég, en áfram sat flugan klesst á fernunni. Tá datt mér í hug ad reyna ad hrinda flugunni nidur á gólf. Ég hrinti henni, en tá festist hún bara vid gólfid í stadinn! Vid ákvádum tá ad henda flugunni út, enda bidu okkar 3 pallettur med osti og áleggi og vid høfdum ekki tíma í svona sirkusatridi. Vid tókum fluguna aftur upp med mjólkurfernunni (og flugan klesstist ad sjálfsøgdu vid hana) og fórum svo med hana inn á lager og út um útidyrnar tar. Vinnufélagi minn reyndi svo ad hrista fluguna af fernunni, en hún fór hvergi. Hann reyndi betur, en ekkert virkadi. En hann gafst ekki upp og hristi af øllum lífs og sálarkrøftum, og tá loksins flaug flugan!!! Vid føgnudum hástøfum á medan vid horfdum á fluguna fljúga, en tetta var tó skammgód gledi, tví allt í einu sáum vid fluguna taka stefnuna aftur inn! Vid hlupum øskrandi inn og reyndum ad skella hurdinni, en flugan var of fljót og sat enn á ný sem klesst vid gólfid á lagernum. Vid dóum úr hlátri og vissum ekki hvad til bragds ætti ad taka. Vid skírdum fluguna Løtu Fluguna, tví ad hún gat greinilega flogid, hún bara nennti tví ekki. En vid gátum nú ekki skilid fluguna eftir tarna á midju gólfi (tad gæti einhver stigid ofan á hana eda keyrt á hana med pallettulyftara) svo vid tókum hana aftur upp med mjólkurfernunni og reyndum aftur. Eftir allnokkra hristinga flaug flugan, og rétt ádur en hún nádi ad fljúga aftur inn (hún tók ad sjálfsøgdu stefnuna rakleitt tangad) tá nádum vid ad skella á nefid á henni. Og svo hentum vid mjólkurfernunni.
Svo var nú gaman hjá mér um seinustu helgi. Hann Ingi minn kæri fyrrverandi medleigjandi kom nefnilega í heimsókn og gisti í trjár nætur, vúhú! Hann var sem sagt á Nordurlandareisu tar sem hann keyrdi frá frá Noregi til Svítjódar og tadan til Danmerkur. Vid gerdum okkur margt til dundurs, eyddum m.a. heilum degi í tívolí og annars skemmtilegt. Aldeilis ágætt :) Tví midur veit ég ekki um myndavélasnúruna mína svo ég get ekki sýnt ykkur neinar myndir.
Svo verdur tessi helgi líka aldeilis ágæt. Á morgun (føstudag) verdur farid út ad borda og svo í bíó fyrir bíómidana sem Peter vann í einhverjum fótboltaleik í vinnustadapartíi um daginn (kom svo allur krambúleradur heim í skemmtilegu ástandi med blóm sem hann hafdi týnt handa mér í nærliggjandi gørdum og baud mér í bíó, haha, rómantískur ;) ). Á laugardaginn verdur shop-amok, eda med ødrum ordum "shop till you drop". Mér finnst ástæda ad taka tad fram ad tad var EKKI mín hugmynd, heldur adrir heimilismedlimir undir tví yfirskini ad plata upp úr mér hvada mig langar í í afmælisgjøf, sem er by the way eftir meira en mánud. En hér í Danaveldi er náttúrulega ekki hægt ad prumpa nema vera búinn ad skrifa tad nidur á dagatal :) Reyndar er løngu búid ad ákveda hvad ég fæ í afmælisgjøf, en ég tarf samt ad fara sjálf og velja. Læt ykkur vita afraksturinn tann 29. júlí... Eftir shopping-túrinn fer ég svo á starfsmannafund í vinnunni og svo í keilu med vinnufélugunum og svo væri nú ekki verra ef hægt væri ad draga tá med sér á nærliggjandi bar eftir tad... Á sunnudaginn verd ég svo karlalaus og tá verdur afslappelsi. Dejligt.
En jæja, best ad drífa sig. Í dag er indælis fimmtudagur (frí frí) og margt sem tarf ad gera. T.d. er ég loksins búin ad kaupa blómapott handa bambusstønginni minni! Já, tann 18. febrúar (eda svona um tad bil, tad var allavega nokkrum døgum eftir Valentínusardaginn) fórum vid Peter út í búd og sáum Valentínusarblómvendi á nidursettu verdi, enda ordnir eilítid sjúskadir. Vid ákvádum samt ad kaupa einn tví teir voru á svo ágætu verdi og drøsludumst med hann heim í rokinu. Núnú, nokkrum døgum eftir blómakaupin fer ég svo med Hildi Evu í IKEA tar sem vid misstum okkur í tví ad skoda lampa og rúm og badinnréttingar (ætlunin var ekki ad kaupa neitt, heldur bara fá útrás fyrir áhuga okkar á húsgøgnum og innréttingum) og endudum í kertadeildinni tar sem ég kippti med mér nokkrum kertum og kertastjøkum og blómavasa svo fátt eitt sé nefnt. Og tar sé ég einmitt einhver blóm og bendi á græna blómastøng og segi "Hey svona blóm á ég!". Tá segir Hildur Eva "Já ókei, tetta lifir í einhvern tíma og tetta er frekar vinsælt". Og ekkert meira med tad. Nema ad svo deyja náttúrulega blómin í blómvendinum og ég hendi teim, nema tessari grænu støng, tví skv. vitneskju Hildar Evu var tetta lifandi trátt fyrir ad líta út eins og dautt. Nokkrum vikum seinna byrjar svo ad vaxa lítill grænn angi út úr stønginni og ég fer ad verda stressud med hvernig madur haldi eiginlega lífi í svona støng, og hvad óskøpunum ég eigi ad gera vid hana, láta hana bara endalaust búa í blómavasanum mínum? En jæja, áfram lifir støngin fínu lífi, og ég komst ad tví ad hún óx helmingi hradar ef hún fékk félagsskap frá ødrum blómum, svo vid høfum "tví midur" turft ad vera ansi dugleg vid ad kaupa blómvendi hér á bæ. Núnú, svo kom mamma hans Peters í heimsókn núna um daginn. Hún er mikil blómakona og tví notadi ég tækifærid og spurdi hvad í óskupunum tessi støng væri og hvad ég ætti ad gera vid hana. Hún rak upp stór augu og sagdi ad tetta væri bambus, en ég hlyti ad hafa afskaplega græna fingur tví hún hafdi aldrei í sínu lífi hitt neinn sem hefdi tekist ad láta bambusstøng blómstra heima í stofu!!! Ég fór strax í fum og fát enda hef ég frekar verid tekkt fyrir ad drepa blóm í ógáti heldur en hitt (spyrjid bara Ragnar í Gautaborg!), og spurdi hvad ég ætti nú ad gera, hvort ég ætti ad skella tessu í pott og mold eda hvad? Svo ad nú á ég víst ad skella tessu í pott og mold og vøkva á hverjum degi. Gangi mér vel ad muna tad... Ég skelli inn myndum af tessum bambus seinna handa ykkur til tess ad leyfa ykkur ad sjá tessa støng.
En nú er ég hætt. Verd nefnilega, eftir ad hafa farid í leidangur í blómabúd ad kaupa mér mold, ad fara út í búd. Peter vakti mig einmitt seint í gærkvøldi, tví hann hafdi fengid tá flugu í høfudid ad hann langadi í pønnukøkur í dag, og tilkynnti mér ad ef ég væri alveg voda voda sæt og tætti voda voda vænt um hann, tá mætti ég gjarnan hafa tær tilbúnar tegar hann kæmi heim úr vinnunni... Ég er ekki frá tví ad pønnukøkuuppskriftin hennar mømmu hitti allsstadar í mark. Allavega eru oft bakadar pønnukøkur hérna á heimilinu, margir hafa lofsamad tær og Ágústa er búin ad panta pønnukøkubod hjá mér...
Hafid tad gott rúsínurnar mínar! Bestu kvedjur, Anna bambus.
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, júní 19, 2008
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, júní 12, 2008
Rómverskir riddarar
Já aldeilis hressar umrædur í kommentunum á seinustu færslu!
Annars er fimmtudagur í dag og ég í letikasti, eins og á øllum frídøgum. Verd nú samt brádum ad koma mér í ad gera eitthvad, jadúddamía. Annars hleypur tíminn áfram tessa dagana, tad er nefnilega tad. Tad er einfaldlega ALLTAF helgi og mánudagur, hinir dagarnir eru ekki til. Nema fimmtudagar, en tá er nú eiginlega komin helgi. Og svo er sumarfrí eftir minna en tvo mánudi, vúhú!
Eftir Íslandsferdina gódu í ágúst er førinni heitid til Portúgal í viku med vinapari. Tví midur fyrir mig á ég afar erfitt med ad bera fram nafnid Portúgal á dønsku... Ég er nefnilega alveg føst í tví ad bera ordid fram sem "Potúgeil" eins og madur les tad, sem sagt med ei í stadinn fyrir a og áherslu á seinnil hluta ordsins. En tad er nú aldeilis ekki réttur framburdur, tví madur á víst ad segja "Potúgal" med a og áherslu á fyrri hluta ordsins. Minn ástkæri sambýlismadur hefur legid í ófáum krampakøstum søkum tessa, tví tótt ég sé búin ad læra réttan framburd núna slædist gamli framburdurinn samt stundum med...
Já tessi landanøfn eru ekkert alltaf audveld. Dæmi um ønnur lønd og borgir sem heita alveg gløøøtudum nøfnum á dønsku:
- Filippinerne. Einhverja hluta held ég alltaf ad tetta land heiti "Filippinien" og hefur tad valdid ófáum hláturskøstum hjá kæró.
- Asien ("Eisíen"). Tetta ber ég statt og stødugt fram sem Asía ("Eisía"), sem er eins vitlaust og hægt er ad vera. Skv. ordabók týdir Asia nefnilega asíugúrka sem búid er ad taka kjarnann úr, og á greinilega ekkert skylt vid heimsálfuna Asíu. Og ad sjálfsøgdu er hlegid ad mér í hvert skipti.
- Borgin Varsjá heitir á dønsku Warszawa (berist fram sem "Varseiva"). Eitt skipti (af mørgum) vorum vid Peter ad spila Trivial Pursuit á dønsku og tetta nafn kom fram. Tad var sama hvernig ég reyndi ad bera tetta fram, Peter greyid skyldi mig ekki. Ég er búin ad læra tetta núna.
- Tjekkiet týdir Tékkland. Eitthvert skiptid sem ég ætladi ad tala um Tékkland vid Peter mundi ég ekki eftir hvernig ætti ad segja tetta á dønsku svo ég stamadi út úr mér "Oh skat, du ved, Tjekkland...". Tad hefur verid brandari hér á heimilinu allar gøtur sídan.
Og svo er EM í fótbolta byrjad. Og ekki bætti úr skák ad í gær voru Portúgal og Tékkland ad spila! Ég stód inni í eldhúsi og var ad baka súkkuladikøku og tá gargadi minn: "Hey skat, kommer du ikke lige og ser kampen? Det er "Potúgeil" og "Tjekkland" som spiller!!!". Takk elskan.
Já tótt madur sé reiprennandi í dønsku klikkar madur nú samt stundum. T.d. um daginn kom einn strákur til mín í vinnunni og spurdi hvort vid ættum flamengos. Uhh nei sagdi ég og spurdi hvad hann væri eiginlega ad meina, hvort hann væri ad meina flamengofugl?? Nei tad var ekki tad, en hann gat ekki útskýrt hvad tad væri. Eftir nokkra stund gafst ég upp, tví hvad gæti flamengo verid annad en fugl og sagdi ad ég gæti tví midur ekki hjálpad honum. Seinna spurdi ég svo vinnufélaga minn hvad flamengo væri eiginlega, tví einn kúnninn hafdi spurt mig um tad. Tá var mér sagt ad flamengo væri fraudplastkassar...
En jæja, best ad fara og gera eitthvad gáfulegt! Bestu kvedjur, Anna hin danska
PS. Prófid ad segja tetta fimm sinnum í rød: Fem flade flødeboller på et fladt flødebollefad. Erfitt? Prófid tá ad segja tetta fimm sinnum í rød: Stativ, stakit, kasket.
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, júní 12, 2008
Flokkur: Danmark
föstudagur, júní 06, 2008
Styggdu ekki steggina med lodnum leggjum
Nú legg ég til ad ég hækki adeins í launum í vinnunni, enda klárt mál ad ég hef søluhvetjandi áhrif á kúnnana.
Sagan: Fyrir ca. 5 árum sídan ákvad ég ad hætta ad raka á mér lappirnar eftir ad mér var sagt ad madur fengi skeggrót af tví og fór ad nota háreydingarkrem í stadinn (tó adeins á lappirnar, rakvélin fær enn ad sjá um ønnur líkamssvædi). Hefur Veet-háreydingarkremid verid í hvad mestu uppáhaldi hjá mér í gegnum árin (sjá t.d. tessa færslu), enda lætur árangurinn ekki á sér standa og ég er grínlaust med silkimjúkar og hárlausar lappir í tvær vikur á eftir. Eftir tvær vikur eru lappirnar ekki jafn hárlausar, en enn jafn silkimjúkar. Hallelúja.
Núnú, í dag var ég svo ad taka upp tilbodsvørur í vinnunni (tilbodsvørur eru vørur sem eru ekki fastur gestur á hillunum hjá okkur heldur seljast kannski bara í eina viku) og rakst tá á tetta agalega fína Veet-háreydingakrem, med aloa vera og sturtuvænt. Rak ég upp strídøskur og fór og kannadi verdid, sem var 50 kall danskar, sem er skítódýrt tví yfirleitt er ég ad borga um 80-90 kall fyrir sama krem í ødrum ónefndum verslunum. Ég ákvad ad láta tetta glæsilega tilbod ekki fram hjá mér fara og greip eina fjóra pakka af kreminu og fór ad køssunum og kastadi kreminu í kørfu sem ég ætladi ad geyma bakvid kassana og kaupa tegar ég væri búin í vinnunni.
Einn samstarfsfélagi minn (kvk) sem sat á einum kassanum sá ad ég var ad brasa eitthvad og spurdi hvad ég væri ad leggja til hlidar. Tá greip ég einn pakka af kreminu góda og fór og sýndi henni og sagdi henni frá tessu glæsilega tilbodi. Tad var dágód rød á kassanum og um leid og ég hafdi sagt samstarfskonu minni frá kreminu pikkadi einn kúnninn úr rødinni í mig og spurdi hvort tetta virkadi eitthvad. Ég játti tví, og sagdi ad tetta væri sko tad eina sem kæmi nálægt løppunum á mér. Tá sagdist kúnninn ætla ad fá einn pakka og ég lét hana fá pakkann sem ég var med í høndunum. Tá spurdi ønnur kona hvort tetta væri gott tilbod og ég sagdi ad mér fyndist tad, midad vid hvad ég væri ad borga annarsstadar. Tá sagdist hún líka ætla ad fá einn pakka, svo hún fékk einn úr kørfunni minni. Tá vildi sú tridja líka fá árángurssøgur af tessu kremi, en hún hafdi einmitt oft verid ad pæla í svona kremum en aldrei torad ad prófa. Hún fékk tridja pakkann minn. Tá gall í teirri fjórdu ad hún gæti nú ekki verid minni madur en hinar trjár svo hún fékk seinasta pakkann.
Tá ákvad ég ad forda mér og nældi mér í meira krem og geymdi tad í felum inni á lager, tók ekki fleiri sénsa á ad taka tad med ad køssunum ;)
En jæja, best ad halda áfram ad hanga í leti, agalegt ástand er tetta.
Bestu kvedjur, Anna la Veet
...sagði
Anna Bj.
-
föstudagur, júní 06, 2008
Flokkur: Danmark
fimmtudagur, júní 05, 2008
Of heitt
Púha! Nú er hitinn vid tad ad skrída yfir mín mørk, alltaf 20-25 stiga hiti. Ég er reyndar komin med smá lit en tessi hiti hefur svo sannaralega sínu neikvædu hlidar.
1) Tad er ómøgulegt ad sofa á nóttunni tví tad er svo heitt, trátt fyrir ad sofa í stofunni tar sem tad eru galopnar svaladyr og fjórir risastórir gluggar opnir upp á gátt (og tad er sko mikil gátt!) og adeins med sængurver og enga sæng.
2) Tad er ekki hægt ad sofa bara med sængurver og enga sæng, tví madur tarf ad geta vafid sig inn í sængina til tess ad geta sofid, en eins og sagt er í númer 1) tá er of heitt til tess ad sofa med sæng og tví bara alls ekki hægt ad sofa yfirleitt.
3) Í svona miklum hita er naudsynlegt ad drekka mikid yfir daginn, sem veldur tví ad á slaginu 02:50 hverja einustu nótt vakna ég (ef ég hef yfirleitt verid sofandi) og turft ad fara fram úr og pissa. Vegna hita tekur tad um klukkustund ad sofa aftur, ef manni tekst tá ad sofna aftur.
4) Klukkan hálffimm er ordid svo bjart úti ad madur gladvaknar trátt fyrir ad turfa ekki ad vakna fyrr en klukkan sex. Tá hefur madur (ef madur er heppinn) nád 3-5 tíma svefni yfir nóttina. Og sama saga endurtekur sig hverja einustu nótt.
Fyrir tá sem ekki vita, tá sofna ég klukkan 21:00-21:30 á veturna og sef í einum dúr til klukkan 06:00. Oh ég sakna vetrarins...
Annars er fínasti dagur í dag. Vid Peter fórum í brunch í morgun og svo heim ad laga til, tví vid eigum von á gestum í kvøld (tad er Grundlovsdagur í dag og tví frí á mørgum vinnustødum). Nú er ég reyndar ein heima tví Peter er í ræktinni og ætla ég tví ad kúra mig fyrir framan sjónvarpid. Ahh tú ljúfa líf...
Bestu kvedjur úr hitanum, Anna hin sveitta
...sagði
Anna Bj.
-
fimmtudagur, júní 05, 2008
Flokkur: Danmark
laugardagur, maí 31, 2008
Komið þið sæl og blessuð
Ég get svoleiðis svarið það, það er gjörsamlega alltaf helgi! Og 1. júní á morgun, sem þýðir að það vantar fjóra daga upp á að ég hafi búið í útlöndum í tvö ár. Jadúddamía! Finnst ansi stutt síðan ég pakkaði vídjókaramellunni minni og sprengjunni ofan í tösku og hélt á vit ævintýranna. Óska ég hér með eftir að fá göngugrind og ókeypis aðgang að aldraðrabingói í afmælisgjöf í sumar, óboj.
Annars var stanslaust stuð í vinnunni í dag. Einn fylliraftur ákvað t.d. að fá sér dúr fyrir framan vínhillurnar okkar, góður staður! Þeir hjá 112 voru of uppteknir til þess að koma og keyra manninn heim (sem var nú ekki með nein læti, ætlaði bara rétt að leggja sig) og tók það yfirmann minn 40 mínútur að tala hann á að standa upp, þurfti náttúrulega að passa að hann sofnaði ekki... og hver þurfti að taka við stjórninni á búðinni á meðan? Hmm, jú, ég. Vúhú.
Svo er ég loksins búin að finna bókasafnið niðri í Kastrup, jess! Það tók ekki nema svona 10 göngutúra að leita að því, komst að því í göngutúr númer níu að það væri búið að flytja safnið og kominn leikskóli í staðinn, ekki nema vona að ég fyndi ekki staðinn... Í göngutúr númer tíu var ég búin að fá nýja heimilisfangið og fann safnið, í tíu mínútna göngufæri frá hýbýlum okkar. Já þetta er hið allra glæsilegasta safn, enda aðalbókasafnið í Tårnby-kommúnu (þar sem Kastrup er). Þar komst ég í glæsilegan fjársjóð þegar ég fann nótnasafnið þeirra og grét svo gleðitárum þegar ég komst að því að þar er líka hljómborð til afnots fyrir almenning :D Já, þetta eru svo sannarlega gleðileg tíðindi svo ekki sé meira sagt. Reyndar sakna ég þess að þeir skuli ekki vera með klassískar nótur, heldur eru þarna einungis popplaga- og rokknótur, en ég gat skemmt mér heilmikið með nótur af Kim Larsen lögum :D Þvílík gleði hér á bæ skal ég ykkur segja, nú mun ég eyða öllum mínum frístundum á bókasafninu...
Annars er sumarið að verða komið hérna í Danmörku og því ekki seinna vænna að koma sér í bikiníform, svona fyrst að maður býr í korters-göngufæri frá ströndinni. Kúrinn "í kjólinn fyrir jólin um mitt sumar" hófst fyrir þremur vikum síðan og er ég búin að standa mig afskaplega vel. Kúrinn er saminn af sjálfri mér og virkar þannig að ég borða hollt alla daga vikunnar nema laugardaga, þá má ég hakka í mig súkkulaði og allskonar jukki. Ég er einmitt búin að standa mig afskaplega vel í dag (laugardagur) og fékk mér súkkulaði í hádeginu og popp í kvöldmat. Já, maður verður nú að fylgja kúrnum!
Á morgun er spáð skrilljón stiga hita (er mér sagt) og að því tilefni erum við Peter búin að bjóða mömmu hans Peters og systur hans ásamt manni hennar og syni(17 mánaða aaalgjör snúlli!) í grill niðri í Kastrup. Erum einmitt búin að byrgja okkur upp af einnotagrillum og ætlum að grilla á einu af túnunum í kringum húsið, því það má ekki grilla á svölunum (er heldur ekki viss um að það væri pláss fyrir alla í íbúðinni okkar, hahaha, verðum vonandi komin í nýja íbúð í lok árs, krossaputta!). Já maður er alltaf eitthvað að bralla.
Heyrði svo aðeins í Ágústu áðan. Hún er svo upptekin að það liggur við að maður þurfi að panta símatíma hjá henni í gegnum e-mail, hehe ;) Eeeen planið er allavega að hafa hitting á fimmtudaginn, það verður nú aldeilis gaman, finnst eins og það sé öld síðan við hittumst seinast.
En best að fara að sofa, þarf að vakna snemma í fyrramálið og drífa mig niður í Kastrup (er í Vanlöse núna), klára að kaupa inn fyrir grillpartíið og græja sallat með vínberjum til að hafa með grillinu (hún Hildur Eva mín kenndi mér að setja vínber í sallöt, þið ættuð að prófa það líka!) og vökva blómið og svoleiðis (Peter er búinn að laga til, myndarlegur ;) ). Annars er nú alveg ótrúlegt að þetta blóm skuli enn vera á lífi, því það er í umsjá minni og það veit Guð að ég er ekki sú besta í að halda lífi í blómum (er enn á bömmer eftir að hafa drepið tvö blóm heima hjá Ragnari sænska í Svíþjóð 2006 og gert hin 9 stykkin vönkuð, er ekki viss um að þau hafi nokkurn tímann náð sér aftur...). Já þessu blómi var sem sagt skellt í mína ábyrgð þegar ég flutti inn, því konur eiga víst að vera svo góðar í að muna hluti. Því segi ég nú bara grey Peter að hafa nælt sér í gleymnustu konu í heimi :D Og svo eru líka ýmsir aðrir hlutir sem mér er gert að muna, svo sem tannlæknatíma og klippingatíma og um daginn varð minn nú heldur móðgaður þegar ég gleymdi næstum því að minna hann á að drekka bjórinn sem hann hafði keypt fyrr um daginn ;)
Jæja, ég er þotin í rúmið, hafið það gott sykurpúðarnir mínir! Bestu kveðjur, Anna Netto
...sagði
Anna Bj.
-
laugardagur, maí 31, 2008
Flokkur: Danmark